Morgunblaðið - 01.05.1985, Blaðsíða 64
OPINN 10.00-00.30
TIL DAGLEGRA NOTA
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1985
VERÐ I LAUSASÖLU 25 KR.
Tekjutrygging
og ellilífeyrir
hækka 7—12%
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI I gær
var ákveAin hækkun á ellilífeyris- og
tekjutryggingu, sem kemur til með
að kostn um 280 milljónir króna á
ársgrundvelli, og var fjármálaráð-
herra falið að leita leiða til þess að
afla þess fjár, án þess að ráðast í
erlendar lántökur.
Það var ákveðið að hækka elli-
lífeyri um 7% og tekjutryggingu
um 12%. Eru þessar hækkanir
tengdar þeim launahækkunum
sem veröa almennt í dag, þann 1.
maí, en þó eru þær verulega um-
fram umsamdar hækkanir á al-
mennum launamarkaði.
Á ríkisstjórnarfundinum í gær
var i tengslum við þessa ákvörðun
samþykkt að biðja Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra að
gera tillögur um það hvernig þess-
Víkingur
varð bik-
armeistari
VÍKINGUR varð í gærkvöldi
bikarmeistari í handknattleik.
Víkingarnir unnu íslandsmeist-
ara FH í æsispennandi úrslita-
leik í Laugardalshöll 25:21.
Þetta er þriðja árið í röð
sem Víkingar verða bikar-
meistarar og áttunda árið i
röð sem félagið vinnur annað
hvort sigur í íslandsmóti eða
Bikarkeppni HSÍ.
Sjá nánar á íþróttasíðum
blaðsins.
ari 280 milljóna króna útgjalda-
aukningu á ársgrundvelli, verði
mætt. Var það sérstaklega tiltekið
að slíkar tillögur skuli ekki ganga
út á erlendar lántökur.
Iðnrekendur
vilja virðis-
aukaskatt
MIKILL meirihluti félaga í Félagi
íslenskra iðnrekenda vill taka upp
upp virðisaukaskatt I stað sölu-
skatts. Þetta er niðurstaða at-
kvæðagreiðslu um málið, sem
staðið hefur í viku, og lauk í gær.
Samkvæmt upplýsingum Víg-
lundar Þorsteinssonar var fjöldi
útsendra atkvæða 90.712 og greidd
atkvæði 74.499 eða 87,6%, en at-
kvæðavægi félaga fer eftir sér-
stökum reglum. Með virðisauka-
skatti voru greidd 64.694 atkvæði
eða 81,37%, en á móti 10.313 eða
12,97%. Auðir seðlar voru 4.492.
Alvarlegt slys á Höfðabakka
Morgunblaðid/Júlíus
MJÖG harður árekstur varð um
hádegisbil í gær á mótum Höfða-
bakka og Dverghöfða í Reykjavík.
Tvítugur maður ( litlum fólksbfl
lenti framan á stórum vöruflutn-
ingabíl með tengivagni og slasaðist
alvarlega. Hann mun ekki í lífs-
hættu.
Áreksturinn vildi þannig til að
fólksbíl, pólskum Fiat, var ekið
suður Höfðabakka þegar annar
bíll kom inn á götuna frá
Dverghöfða. Sá mun hafa trufl-
að ökumann Fiatsins, sem við
það fór yfir á vinstri akrein og
lenti framan á vöruflutninga-
bílnum er ók norður Höfða-
bakka.
Fiatinn er gjörónýtur en
skemmdir á vöruflutningabíln-
um urðu litlar. Ökumaður hans
siapp alveg ómeiddur.
Myndin var tekin á slysstað í
gær og sést greinilega hve fólks-
billinn er illa farinn.
Aukið frjálsræði í gjaldeyrismálum:
Útflytjendum heimilað að
opna gjaldeyrisreikninga
Liður í ráðstöfunum til meira frjálsræðis, segir viðskiptaráðherra
MATTHÍAS Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra skýrði frá því á ársfundi
Seðlabankans í gær að ákveðið hefði
verið að heimila frjálsari notkun á
gjaldeyrisreikningum en verið hefur
fram að þessu. Ráðherrann undirrit-
aði í gær reglugerð, sem tekur gildi
I. ágúst nk., en þar er kveðið svo á,
að útflytjendum sem eiga eða eign-
ast erlendan gjaldeyri sé heimilt
tímabundið að leggja hann inn á
gjaldeyrisreikning í íslenskum
banka. Eigendur gjaldeyrisreikninga
geta síðan ráðstafað fé af þeim til
„viðurkenndra greiðslna vegna
viðskipta í erlendri mynt til greiðslu
á þeim kostnaði í erlendri mynt, sem
starfsemi þeirra fylgir“, eins og það
er orðað í reglugerð.
Reglugerðin áskilur, að sé gjald-
eyrisandvirði veðsett viðkomandi
gjaldeyrisbanka eða ávísað honum
með öðrum hætti, skuli slíkum
samningum fyrst fullnægt, áður
en eigendur geta lagt andvirði inn
á reikning. Starfsemi útflytjenda,
sem honum er heimilt að annast
greiðslur til af reikningnum, er
nánar skilgreind í reglugerð svo:
,...svo sem vegna kaupa reikn-
Bátur hætt kominn við Faxasker
Stefndi á fullri siglingu á skeriÖ,
þegar skipstjórinn vaknaöi viö stýriÖ
Veatmaniuejju, 30. iprfl.
LITLU mátti muna í morgun, að bátur sigldi á fullri ferð á Faxaskcr vegna
þeas að skipstjóri hans sofnaði við stýrið. Skipstjórinn vaknaði og áttaði sig
á hættunni rétt í þann mund sem báturinn nálgaðist Faxaskerið, en honum
tókst ekki að koma í veg fyrir að báturinn rækist harkalega utan í skerið og
skemmdist talsvert. Skipstjórinn slasaðist talsvert í andliti svo sauma
þurfti sex spor, auk þess missti hann eina tönn.
Skipstjórinn vaknaði og áttaði
sig þegar á því að báturinn
stefndi beint á Faxasker. Setti
hann þá þegar á fulla ferð aftur á
bak og munaði litlu að honum
tækist að forðast skerið. Lenti
báturinn þó allharkalega utan í
skerið, kom gat á stefni hans ofan
sjólinu og hann dældaðist allmik-
ið. Höggið var það mikið, að
skipverjar þeir sem sváfu,
hrukku upp með andfælum. Ekki
slösuðust aðrir en skipstjórinn og
Þetta átti sér stað laust fyrir
kl. 7 í morgun, Kópur ÁR 9,103
tonna stálbátur frá Stokkseyri,
var þá á leið til hafnar hér í Eyj-
um til þess að sækja veiðarfæri.
Sex manna áhöfn var um borð og
voru skipstjóri og vélstjóri á
vakt, en aðrir skipverjar sofandi.
Siglt var eftir landsýn og ratsjá.
Skipstjórinn var einn í brúnni og
sofnaði við stýrið á siglingunni,
en báturinn öslaði sjóinn á fullri
ferð.
MorKunbladið/ Sigurgeir
Stefni Kóps ÁR 9 eftir að hafa skollið á Faxaskeri. Myndin var tekin í
Vestmannaeyjahöfn síðdcgis í gær.
var bátnum siglt til hafnar þar
sem hann verður tekinn á land í
skipalyftunni og skemmdir kann-
aðir nánar. Sjópróf fóru fram í
dag hjá embætti bæjarfógeta.
hkj.
ingseigenda á erlendri vöru og
þjónustu eða með sölu til innlends
gj aldeyrisbanka".
Matthías Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra sagði ( þessu til-
efni í samtali við Mbl.: „Þetta er
liður í þeim ráðstöfunum til meira
frjálsræðis í framkvæmd gjald-
eyrismála, sem unnið hefur verið
að í tíð núverandi ríkisstjórnar.
Þær reglur sem við höfum búið við
allt frá 1977 voru við það miðaðar,
að notkun gjaldeyrisreikninganna
væri takmörkuð við ákveðin svið
gjaldeyrisöflunar. Helsta undan-
tekningin var sú, að ekki væri
heimilt að geyma gjaldeyri á slík-
um reikningum, sem aflað hefur
verið með útflutningi á vöru eða
þjónustu. Það skapar vissulega
ýmislegt hagræði fyrir útflytjend-
ur að fá slíka heimild og gæti ver-
ið beint fjárhagslegt atriði að nota
innistæðu á gjaldeyrisreikningum
til greiðslu á erlendum kostnaði
vegna framleiðslunnar.
Með breytingu á gildandi reglu-
gerð er ætlunin að koma til móts
við þessi sjónarmið. Svo róttæk
breyting getur haft í för með sér
aukningu á gjaldeyrisreikningum
á skömmum tíma, þ.e. að hún auki
þann hluta af umráðafé bank-
anna, sem krefst gengisbindingar,
og getur því verið nauðsynlegt að
gera ráðstafanir til að bregðast
við slíkri þróun." Matthías sagði
að lokum aðspuröur, að gildistím-
inn 1. ágúst nk. væri miðaður við
það að bankastofnanir fengju
nokkurn aðlögunartíma.
Sjá fréttir af ársfundi
Seðlabankans á bls. 4.