Morgunblaðið - 21.05.1985, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1985
t'%# ■'Mmrn
■t .. «*#» .«* J
^#"r,
\uirrJ* *■ ~ ^
' ' '*'*■ íltaÉlr “
;r r r t w. f É, , f.
mm,
AP/Símamynd
• Neville Southall, markvörður Everton, horfir á eftir knettinum í netiö hjá sér eftir skot Normans Whiteside í framlengingunni á laugardag.
Whiteside er úti í teignum — aftan við varnarmann Everton ...
„Floin“
fær vel
borgað
LITLI Danínn Jesper Olsen,
„ftóin“ eins og hann er kallaö-
ur, varð um helgina fyrsti Dan-
inn til að veröa enskur bik-
armeistari í knattspyrnu og
reyndar sá fyrsti til aö taka
þátt í FA-bikarúrslitaleik á
Englandi.
Þess má til gamans geta aö
Olsen notar minni skó en flestir
leikmenn — og hann hefur ör-
ugglega veriö í minnstu skón-
um á vellinum á laugardag.
Hann notar skó númer fimm og
hálft — hálfgeröa „barna-
stærö“!
Taliö er aö Olsen sé launa-
hæsti leikmaður ensku 1. deild-
arinnar. Vikulaun hans, meö
uppbótargreiöslum fyrir stig,
eru talin hvorki meira nó minna
en 3.500 pund. Þaö er tæp ein
og hálf milljón íslenskra króna
— Á VIKU!
Olsen vann í banka í tvö ár
fyrir nokkrum árum áöur en
hann fór út í atvinnumennskuna
og hefur hann haft gott af dvöl
sinni þar því hann þykir fjár-
festa mjög viturlega.
Manchester United bikarmeistari 1985 í Englandi:
„Hélt að Moran hefði sagt
eitthvað Ijótt við dómarann“
— sagði Ron Atkinson, framkvæmdastjóri Man. Utd. eftir leikinn
MANCHESTER United, sem lék meö 10 leikmenn siöustu 40 mínútur
leiksins skoraöí sigurmarkiö é 111. mínútu é skemmtilegan hétt og
unnu sigur á Englands- og bikarmeisturum Everton í úrslitum enska
bikarsins á laugardag. Eftir venjulegan leiktíma var staöan jöfn, 0—0,
og varð því aö framlengja tvisvar sinnum 15 mín. og þaö var þá sem
noröur-trski landsliðsmaóurinn Norman Whiteside geröi út um vonir
Everton um aö vinna þrennu, er hann skoraöi meö lúmsku skoti,
snúningi neöst í markhorniö fjær, óverjandi fyrir knattspyrnumann
ársins á Englandi, markvörðinn Neville Southall.
Eftir aö liöin tvö komu inn á
Wembley-leikvanginn og höföu hit-
aö upp var einnar mínútu þögn til
minningar um hina 52 sem létu lífiö
í hinum hörmulega eldsvoöa sem
kom upp á leikvanginum í Brad-
ford fyrir nokkru. Allir leikmenn liö-
anna léku síöan meö sorgarbönd
vegna þessa.
Everton var sterkari aöilinn til
aö byrja meö og voru meira meö
knöttinn, en tókst ekki aö skapa
sér hættuleg færi utan einu sinni er
Peter Reid átti skot í stöng um
miðjan fyrri hálfleik. Southall þurfti
aöeins einu sinni aö taka á honum
stóra sínum fyrstu 45 mínúturnar,
þaö var er hann varöi vel skot frá
Frank Stapleton er hann komst frír
inn fyrir vörn Everton.
Mikill hraöi var í fyrri hálfleik og
gekk knötturinn markanna á milli.
Síöari hálfleikur byrjaöi eins og
sá fyrri endaöi, sami hraói en ekki
umtalsverö tækifæri. Andy Gray
átti skot yfir og skömmu síöar
varói Southall vel frá Norman
Whiteside. Andy Gray var bókaöur
þegar 15 mínútur voru eftir af
venjulegum leiktíma og skömmu
síðar var Kevin Moran, rekinn af
leikvelli fyrir brot á Peter Reid,
sem mörgum fannst undarlegur
dómur. Framkvæmdastjóri
Manchester United, Ron Atkinson
sagöi um þetta atvik: „Þaö var eins
og Moran væri aó reyna aö ná
knettinum og óg held aö leikmenn
hugsi ekki eingöngu um manninn,
þetta er bara venjuleg „tackling"
sem kemur upp mörgum sinnum í
svona leik. Þaó getur enginn í
heiminum sannfært mig um þaö,
aö þetta hafi verió viljandi brot og
veröskuldaö útafrekstur, þaö er af
og frá. Moran var aöeins að stöðva
sókn á löglegan hátt og hélt ég aö
hann hefði sagt eitthvaö oröljótt
viö dómarann, sem veröskuldaöi
útafreksturinn, en svo var ekki,
hann sagöi ekki orö, enda kannski
ekki undarlegt aö hann ætti ekki til
orö yfir þennan dóm,“ sagöi At-
kinson eftir leikinn.
Atkinson færöi framherjann
Frank Stapleton aftur í stööu Kev-
ins Moran og lék hann sem aftasti
maöur, Stapleton getur leikiö allar
stööur á vellinum, hann skilaöi
hlutverki sínu vel í vörninni og náöi
aigjörlega aö halda Andy Gray
nióri þaö sem eftir var leiksins.
„Þessi stööuskipting kom vel út
hjá mér, ég haföi fundiö fyrir
meiöslum í fyrri hálfleik framleng-
ingarinnar, en ég varö bara aö bíta
á jaxlinn og halda áfram,“ sagöi
Frank Stapleton eftir leikinn.
Markiö kom svo eins og áöur
segir á 111. mínútu leiksins þegar
um níu mínútur voru eftir af fram-
lengingunni. Eftir markiö var ekki
spurning um þaö aó Manchester
United myndi reyna aó halda
þessu síöustu níu mínúturnar og
þaö tókst og meö því varö draum-
ur Everton um að vinna þrefalt og
veröa fyrsta liðið á Englandi til
þess aö ná þeim merka áfanga aó
engu. En Everton má vel viö una,
liöiö hefur sýnt frábæra knatt-
spyrnu í vetur og haft yfirburöi í
deildinni.
Þetta var í 104. sinn sem keppt
var til úrslita um enska bikarinn.
Sjónvarpaö var beint til 56 landa
og auk þess var uppselt á
Wembley-leikvanginn löngu fyrir
leikinn, áhorfendur 100.000.
Þarna fengum viö aö sjá tvö
bestu liö Englands i dag, leikurinn
var fjörugur og hraöinn mikill og
gat hann eins endaö meö sigri
Everton. Þaö er oft taugaspenna
sem einkennir svona útslitaleiki og
mikiö í húfi. Þaö var eins og Un-
ited-leikmönnum yxi ásmegin viö
aö vera einum færri. Þaö virkar oft
sálrænt á liö aö missa leikmann
útaf og reyna leikmenn þá sitt
ítrasta og gera þá oft jafnvel meira
en þeir geta. Nú þaö má líka segja
aö Everton hafi slakaö ósjálfrátt á,
þar sem þeir voru einum leikmanni
fleiri og haldiö aö leikurinn væri
unninn, en annaö var upp á ten-
ingnum.
Liöin voru skipuð eftirtöldum leik-
mönnum:
ManchMtor United. Gary Bailey, John Gid-
man, Paul McGrath, Kevin Moran, Arthur Al-
biston, (Mike Dukbury 90 mín.), Norman
Whiteside, Bryan Robson, Gordon Strachan,
Jesper Olsen, Mark Hughes, Frank Stapleton.
Everton. Neville Southall, Gary Stevens, Der-
ek Mountfield, Kevin Ratcliffe, Pat van den
Hauwe, Trevor Steven, Peter Reíd, Paul
Bracewell, Kevin Sheedy, Andy Gray, Graeme
Sharp.
AP/Símamynd
• Norman Whiteside, hetja United á laugardag, heldur bikarnum á
loft. Whiteside skoraði einnig í sigri United á Brighton í bikarúrslítaleik
fyrir tveimur árum — varö þá yngsti leikmeður til eö skora í úrslitaleik
FA-bikarkeppninnar, aöeins 18 ára. Frank Stapieton er til vinstri.