Morgunblaðið - 29.05.1985, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAl 1985
Skotar fá farseðilinn
til Mexíkó á silfuiiati
— Unnu mikinn heppnissigur á íslendingum (1K)) á Laugardalsvelli í gærkvöldi í 7. ridli HM
ÞAÐ VAR grátlegt aö tapa báöum
stigunum til Skota í HM-leiknum
á Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Skotar sigruöu 1:0. „íslendingur-
inn“ Jim Bett skoraöi eina mark
leiksíns þremur og hálfri mínútu
fyrir leikslok. Grátlegt, já, því ís-
lendingar höföu átt mun meira í
siöari hálfleiknum — fengiö
nokkur mjög góö marktækifæri
og auk þess haföi Teitur Þöröar-
son, fyrirliði liösins, látiö verja frá
sér vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum.
Skotar standa nú vel aö vígi, eru í
efsta sætinu ásamt Wales-mönn-
um meö sex stig eftir fimm leiki
og ættu að komast til Mexíkó.
Hefóu þeir tapaö heföi sú von
nánast aö engu oröiö — en menn
gera sér nú grein fyrir, eftir þetta
tap í gær, aö sá draumur um að
„litla“ ísland kæmist í úrslit
heimsmeistarakeppninnar í Mex-
íkó næsta sumar var engin fals-
von. Fram á síöustu mínútu
þessa leiks var sú von enn í fullu
gildi.
íslendingar geta vel unaö viö
langflest i þessum leik — nema
náttúrlega aö færin sem gáfust
skyldi ekki nýtast. Skotar voru
heppnir aö fara á burt meö bæöi
stigin — hundheppnir. Þeir léku
langt frá því sem þeir best geta.
Voru hreint ekki sannfærandi lang-
tímum saman í leiknum og islend-
ingar hreinlega „áttu“ miöju vallar-
ins langtímum saman í síöari hálf-
leiknum.
Góö byrjun
islenska liöiö byrjaöi leikinn
mjög vel. Leikmenn sóttu fast aö
marki Skotanna fyrstu mínúturnar
— Teitur og Pétur sýndu góöa
takta, þó verulega hættuleg færi
hafi ekki komiö. Atli átti þó skot frá
vítateig eftir góöa sókn — en þaö
var allt of laust og Leighton var
ekki í vandræöum meö aö verja.
Skotarnir komu svo inn í ieikinn
og eftir kortér fékk Andy Gray
mjög gott færi. Hann fékk knöttinn
skyndilega á miöjum markteign-
um, skaut strax, en Eggert Guö-
mundsson, sem lék í fyrsta skipti i
marki A-landsliðs islands, varöi
mjög vel, var snöggur niöur.
Eftir þetta voru Skotarnir mun
betri um tíma. Réöu gangi mála á
miöjunni. Þeir fengu einnig oft í
fyrri hálfleiknum allt of mikinn tíma
til aö athafna sig úti á köntunum.
Slíkt er algert eitur gegn breskum
liðum, þaö eiga íslensku strákarnir
aö vita. Kantmennirnir fengu aö
leggja knöttinn fyrir sig áður en
þeir sóttu aö varnarmönnunum,
sem síöan „seldu“ sig oft of mikiö í
návígjum, renndu sér á vellinum og
voru skildir eftir.
Siggi meiddist
Á 25. mín. geröist leiöindaatvik.
Siguröur Jónsson meiddist og
varö aö fara af velli, borinn út af.
Haföi byrjað af krafti og því synd
aö missa hann út af. Souness,
fyrirliði Skota, „takklaöi" hann
mjög gróflega. Var bókaöur fyrir.
Sigurjón landsliöslæknir sagöi í
gærkvöldi aö Siguröur væri ekki
brotinn heldur illa tognaöur á
ökkla.
Ómar Torfason kom inn fyrir
Sigurö og stóö sig mjög vel. Kom
mjög vel inn í leikinn, hélt boltan-
um vel, átti góöar sendingar og
haföi góöa yfirferö.
Eftir atvikiö var ætíö baulaö á
Souness er hann fékk boltann og
bar ekki mikið á honum.
Víti — Gullið tæki-
færi, en variö ...
Já, þaö var sorgleg stund þegar
Teitur Þóröarson, fyrirliöi lands-
liösins, lét verja frá sér vítaspyrnu
á 35. mín. Ómar Torfason átti
mjög góöa sendingu inn á vítateig,
Pétur Pétursson baröist um bolt-
ann viö Roy Aitken inn við mark-
teig og var felldur. Vítaspyrna aö
sjálfsögöu umsvifalaust dæmd.
Teitur tók spyrnuna, en hörmulega
lélegt skot hans varöi Leighton
auöveldlega. Skotiö var laust og
ekki utarlega.
En hvers vegna í ósköpunum
tók Teitur vítiö? Er hann vanur
því? Hvers vegna tók Pétur ekki
vítiö sjálfur? Þessum spurningum
veltu margir fyrir sér — og ekki aö
ósekju.
Margir hafa eflaust haldiö aö
þetta atvik myndi drepa íslensku
leikmennina niöur, en þaö var nú
öðru nær. Þeir sóttu stíft eftir þetta
og Pétur Pétursson, sem lék mjög
vel í gær, aö vanda liggur mér viö
Texti:
Skapti Hallgrímsson
Myndir:
Friöþjófur Helgason
aö segja, þegar landsliöiö er ann-
ars vegar, þrumaöi aö marki
tveimur mín. fyrir leikhlé, utan úr
teig og maöur sá knöttinn bókstaf-
lega í netinu. En hann flaug rétt
framhjá stöng.
Góður seinni hálfleikur
íslendingar léku vel mest allan
síöari hálfleikinn. Boltinn gekk vel
manna á milli, leikskipulagiö var
gott og margar góöar sóknarlotur
buldu á vörn Skotanna. Janus,
sem haföi verið vinstri bakvöröur i
fyrri hálfleik, kom meira inn á miöj-
una og Árni Sveinsson dró sig aft-
ar vinstra megin, en sótti reyndar
stíft fram þegar svo bar undir.
Aöeins ellefu og hálf mín. voru
liðnar af síöari hálfleik er Teitur
fyrirliöi var tekinn útaf og Sigurður
Grétarsson settur inn. Teitur var
farinn aö haltra — var „teipaöur" í
byrjun leiks og gat ekki meira.
Maöur bjóst viö Ragnari Mar-
geirssyni inn á, en Sigurður var þar
eins og áöur sagöi. Hvar var
hættulegasti sóknarmaður 1.
deildarinnar, Tony?
Hvaö um þaö, Siguröur stóö sig
nokkuö vel þann tíma sem hann
var inn á og ekki viö hann aö sak-
ast.
Fljótlega eftir skiptinguna mun-
aöi litlu aö Jim Bett skoraöi fyrir
Skotland. Fékk knöttinn skammt
frá marki á ská og þrumaöi í neö-
anveröa þverslána og út. Stund-
arfjóröungur var liöinn af hálfleikn-
um er Arni Sveinsson óö upp
vinstra megin, sendi stórhættu-
legan bolta fyrir markiö og Atli
skallaöi aö marki. Skotarnir náöu
aö hreinsa af línunni en enginn
fylgdi eftir.
Skömmu síöar átti Atli dauöa-
færi. Siguröur Grétarsson gaf inn á
teig hægra megin, Atli var kominn
einn í gegn en Leighton kom út á
móti og varöi glæsilega. Sorglegt.
Þaö voru svo aöeins þrjár og
hálf mín. eftir er Bett geröi markiö.
Löng sending kom frá hægri kanti
yfir á teig íslenska liösins. Þor-
grímur Þráinsson lét knöttinn fara
af einhverjum óskiljanlegum
ástæöum í staö þess að hreinsa
frá, hélt greinilega aö engin hætta
væri á ferðum og Bett læddist inn
bakdyramegin. Hikaöi ekki og
skoraði meö þrumuskoti hjá Egg-
erti sem kom engum vörnum viö.
En mig grunar aö Archibald hafi
handleikiö knöttinn lítillega úti i
teig er fyrirgjöfin kom. Ekki legg ég
mannorö mitt aö veöi í því máli en
mig grunar margt ...
ísland
Eins og áöur er sagt lék íslenska
liöiö mjög vel langtímum í leiknum.
Fékk góð færi en nýtti þau ekki og
þá er allt annaö til einskis. Barátta
var mjög góö. Eggert greip vel inn
í í markinu, varöi nokkrum sinnum
mjög vel, en gat ekki komiö i veg
fyrir markiö. Þorgrímur „seldi“ sig
of oft, en var traustur á köflum.
Miöveröirnir Sævar og Magnús
voru góöir og héldu Everton-dúett-
inum Gray og Sharp vel niðri. Sig-
uröur Jónsson virkaöi sterkur í
þann stutta tíma sem hans naut
viö og Ómar, sem kom í hans staö,
lék mjög vel. Var einn besti maöur
liösins. Árni Sveinsson átti geysi-
góöa kafla, en stóö sig ekki alveg
nógu vel í varnarhlutverkinu. Janus
ekki heldur í fyrri hálfleiknum sem
bakvöröur, en var frábær eftir hlé.
Atli baröist vel aö vanda, sterkur
leikmaöur sem aldrei gefst upp, og
Guömundur Þorbjörnsson átti
einnig góöa spretti.
Framherjarnir Pétur og Teitur
byrjuöu vel. Léku ágætlega sam-
an. Pétur gafst aldrei upp, hann
stoppaöi hreinlega ekki allan leik-
inn, drengurinn. Teitur fór hins
vegar út af, var greinilega ekki
heill, og jafnvel vafasamt aö láta
hann í byrjunarliö. Virkaöi þó frísk-
ur framan af. Siguröur Grétarsson
stóö fyrir sínu eftir aö hann kom
inn á, geröi laglega hluti, en samt
haföi maður á tilfinningunni aö
Ragnar Margeirsson hefði verið
rétti maöurinn til aö koma inn á
fyrir Teit.
Allir eiga heiöur skiliö fyrir
frammistööuna. Slæmt aö ekki
skuli hafa unnist sigur meö svo
góöri frammistööu.
Skotarnir
Skoska liöiö lék alls ekki eins vel
og þaö getur. Liöiö var yfirspilaö á
köflum og var heppiö aö sleppa
meö sigur. Fékk farseöilinn til
Mexíkó ódýrt. Strachan skapaöi
einna mesta hættu, Leighton var
öruggur í markinu. Aörir voru i
meöalmennskunni.
I STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur, 7. riöill HM
island — Skotland 0:1 (0:0)
MARK Skotlands: Jlm Bett á 87. min.
GUL spjöld: Graeme Souness og Pétur Pét-
ursson.
ÁHORFENDUR: 15.600
DÖMARI: SovétmaOurlnn Anatoty Mllchenko
og var góður.
LIDIN: Island: Eggert Guömundsson, Þorgrím-
ur Þráinsson, Siguröur Jónsson (Ómar Torfa-
son), Magnús Bergs, Pétur Pétursson, Sævar
Jónsson, Janus Guólaugsson, Atli Eövalds-
son, Teitur Þóröarson (Slgurður Grétarsson),
Guómundur Þorbjörnsson og Arnl Svelnsson.
SKOTLAND: Jim Leighton, Rlchard Gough,
Maurice Malpas, Roy Aitken, Alex McLeish,
Willie Miller, Gordon Strachan, Graeme Sou-
ness, Andy Gray, James Bett, Graeme Sharp.
Varamaóur: Andy Gray tór út á 73. min. og
Steve Archibald kom Inn i hans staó.