Morgunblaðið - 29.05.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
B 3
Morgunblaðlö/FrlAbiófur
VÍTIIl Sovéski dómarínn gat ekki annað en dæmt vítaspyrnu þegar Roy Aitken braut é Pétri Péturssyni inni I teig é 34. mín. leiksins. Aitken er tíl
vinstri, númer fjögur. Leighton, markvöröur Skotanna, er heldur stúrinn é svip til hœgri.
„Besti leikurínn
undir minni stjórn"
— sagöi Tony Knapp, landslidsþjálfari, eftir leikinn í gær
— „Þetta er besti leikur sem
strékarnir hafa leikiö undir minni
stjórn. Þeir voru í einu orði sagt
stórkostlegir. Viö éttum alls ekki
að tapa þessum leik. Viö vorum
betri aðilinn í leiknum allan tím-
ann. Ég er sorgmnddur og hreint
út sagt veikur yfir þessum úrslit-
um. íslenska liöið haföi þaö
skoska í hendi sér. Ég sé leik
Skota og Englendinga é Hampen
Park é laugardaginn þegar Skot-
ar unnu 1—0. íslenska liöiö lék
betur en þaö enska. Þaö er ekki
út í hött að tala um aö viö höfum
étt möguleika é aö komast í úr-
slitakeppnina. Viö éttum svo
sannarlega skiliö aö vinna en þaö
eru mörkin sem gilda,“ sagöi
Tony Knapp landsliðsþjélfari
níöurbrotinn eftir leíkinn.
„Okkur tókst aö útfæra leik-
kerfin mjög vel og héldum fram-
línumönnunum alveg niöri. Viö
byggðum vel upp og éttum fjöld-
ann allan af góöum tækifærum.
Það var agalegt aö skora ekki úr
þeim. íslensku strékarnir geta
veriö stoltir af leik sínum. Þeir
eru sérstakir aö halda niöri
skoska landsliöinu sem er í
heimsklassa, það er mikið afrek.
Viö éttum bara aö vinna, sagöi
Knapp.
— ÞR.
Staöan
STAÐAN í 7. riöli eftir leikinn í
gærkvöldi er þannig:
Skotland 5 3 0 2 7:3 6
Wales 5 3 0 2 6:5 6
Spénn 4 2 0 2 5:6 4
ísland 4 1 0 3 2:6 2
„Attum
fleiri
færi“
— Ég hef sjaldan oröiö eins
svekktur eftir leik og núna,
sagöi Guömundur Þorbjörna-
son eftir leikinn.
Viö áttum miklu fleiri færi i
leiknum og áttum aö vera búnir
aö gera út um leikinn er þeir
skoruöu. Leikurinn var mjög
erfiöur. Hann var mjög opinn
og var því mikiö um hlaup enda
á milli. Þetta er eitt hiö besta liö
i heimi og þaö var ekki hægt aö
sjá þaö í kvöld hvort liöiö væri
betra. Viö getum unniö þessi
bestu liö heims á góöum degi
hór á heimavelli. Þaö er marg-
búið aö sanna þaö, sagöi Guö-
mundur Þorbjörnsson.
„Grát-
legt“
— Þaö var grétlegt aö
skora ekki úr vítaspyrnunni,
sagði Teitur Þórðarson eftir
leikinn.
— Þaö var mikil pressa á
mér, ég skaut allt of laust en
viö þessu er ekkert aö gera og
er ég mjög miöur min út af
þessu. En svona er knattspyrn-
an, allt getur skeö. Þaö var
reglulega leiöiniegt aö þurfa aö
tapa leiknum. Viö áttum svo
sannarlega skiliö aö vinna. Viö
lékum mjög vel og áttum í fullu
tré viö Skotana allan leikinn,
sagði Teitur.
Morgunblaöið/Friðþjófur
Eggert Guömundsson stóö sig mjög vel (marki islands (gærkvöldi en
hann lék þarna sinn fyrsta A-landsleik. Hér þjarma þeir Roy Aitken
(númer fjögur) og Miller (númer sex) aó Eggerti. Boltinn í lausu lofti
en þaö kom ekki aö sök þar sem dómarinn haföi dæmt brot é Miller.
„Getum unniö
hvaða liö sem er“
— sagöi Ómar Torfason
— Ég komst strax inn í leikinn,
þaö hjélpaði mér mikiö, sagör
Ómar Torfason, sem kom inn é
sem varamaður fyrir Sigurö Jóns-
son er hann meiddist.
Viö áttum aö vinna leikinn meö
tveimur til þremur mörkum. Þetta
er sennilega besti leikur islands í
langan tíma. Viö réöum algjörlega
feröinni og létum þá ekki komast
upp meö neitt spil.
En þaö var mjög leiðinlegt aö
tapa þessu og þaö setur skugga á
annars góöan leik íslenska liösins.
Þaö er mjög skemmtilegt aö leika
viö þessa frægu kappa og þaö
sannaöist enn einu sinni aö viö
getum unniö þetta lið á góöum
degi.
Viö getum unniö hvaöa liö sem
er hér á Laugardalsvelli, þaö hefur
sýnt sig, sagöi Ómar.
Jóns-málið:
KR tapar leiknum
AGANEFND KSÍ kom saman til
fundar i gær vegna méla Jóns
G. Bjarnasonar, som lék meö
KR-ingum í fyrsta leik ís-
landsmótsins ( knattspyrnu
gegn Þrótti sem KR vann, 4—3.
Aganefnd afgreiddi máliö end-
anlega í gær og úrskuröar leikinn
tapaöan fyrir KR, 0:3, og 50.000
kr. sekt, samkvæmt lögum aga-
nefndar, sem hljóöar svo:
»Ef félag notar leikmann, þjálf-
ara eöa forystumann í leikbanni,
skai refsa því meö stigatapi úr
viðkomandi leik og viðkomandi
leikur dæmdur tapaöur 3:0,
nema tapiö hafi verið stærra og
sekt kr. 50.000.
Staöan í 1. deildinni í knatt-
spyrnu er þá þannig eftir úrskurö
aganefndar:
Fram 3 2 1 0 8:3 7
Þróttur 3 2 0 1 5:2 6
ÍBK 3 2 0 1 6:5 6
Þór 3 2 0 1 5:4 6
ÍA 3 1 1 1 8:3 4
Valur 3 1 1 1 5:5 4
FH 3 1 1 1 2:2 4
Víkingur 3 1 0 2 3:6 3
KR 3 0 2 1 2:5 2
Víðir 3 0 0 3 1:10 0