Morgunblaðið - 29.05.1985, Blaðsíða 12
WraMW-'
MOKGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
12 B
Lárus bikarmeistari öðru
sinni á atvinnuferiinum
- fyrst í Belgíu og nú í Þýskalandi með Uerdingen. Lék vel í úrslitaleiknum
LÁRUS Guðmunc'ason og félagar hans í Bayer Uerdingen hömpuðu
vestur-þýska bikarnum á sunnudag eftir að þeir sigruðu stórliðið
Bayern MUnchen í úrslitaleik bikarkeppninnar í knattspyrnu, 2:1, á
ólympíuleikvanginum í Vestur-Berlín, aö viðstöddum 70.000 áhorfend-
um. Sigur Uerdíngen var sanngjarn. Lárus hefur nú náö þeim frábæra
árangri aö verða bikarmeistari bæði í Beigíu, þar sem hann lék meö
Waterscheí (og skoraöi einmitt bæöi mörk liösins í úrslitaleiknum fyrir
I nokkrum árum), og nú í Þýskalandi. Ekki algengt aö slíkt gerist.
Udo Lattek, þjálfari Bayern
! Múnchen, sem þekktur er fyrír allt
annaö en aö kunna aö tapa, sagöi
eftir leikinn aö sigur Uerdingen
heföi veriö sanngjarn. Einn leik-
manna Bayern, Dremmler, var rek-
inn af velli strax í upphafi seinni
hálfleiks en Lattek sagöi eftir leik-
inn: „Þaö heföi ekki skipt neinu
máli þó hann heföi verið áfram inn
á. Ég hef ekki trú aö aö mínir menn
heföu sigraö frekar. Þeir náöu sér
einfaldlega ekki nógu vel á strik.
Böröust ekki nóg.“
Fyrstu 15 mínútur leiksins voru
geysilega vel leiknar. Hraöi var
mjög mikill, hreyfing leikmanna
mikil, stórskemmtilegur kafli á aö
horfa.
Fyrsta markiö kom strax á 8.
mín. Gamla brýniö Dieter Höhness
skoraöi þá. Hann fékk sendingu
inn i teig, þóttist ætla aö skjóta
meö hægri fæti en lét boltann
Skotar unnu
Englendinga
SKOTAR sigruöu Englendinga 1:0
í landsleik í knattspyrnu á Hamp-
den Park í Glasgow á laugardag.
Það var bakvörðurinn Richard
Gough sem skoraði eina mark
leiksins meö skalla á 68. mínútu.
Skotar unnu því Stanley Rous-
bikarinn, en keppt var um hann í
fyrsta skipti. Sir Stanley Rous er
»- nú níræöur, en þessi fyrrum for-
maöur FIFA, er einn kunnasti
knattspyrnufrömuöur allra tíma.
Rous afhenti sjálfur Graeme Soun-
ess, fyrirliöa Skota, bikarinn aö
leikslokum. Þetta var 103. viður-
eign Skota og Englendinga á
knattspyrnuvellinum.
renna lengra áfram og skoraöi
meö vinstrifótarskoti yst úr teign-
um — í stöngina og inn.
Sumir héldu aö þetta væri aö-
eins forsmekkurinn aö því sem
koma skyldi — en markiö haföi
engin áhrif til hins verra á Lárus og
félaga. Þeir geystust fram í sókn
strax eftir aö hafa byrjaö á miöju,
en sent var fram kantinn, há
sending kom fyrir markiö þar sem
einn skallaöi frá. En knötturinn
barst til Uerdingen-leikmannsins
Feilzers yst í teignum og hann
þakkaði kærlega fyrir sig meö því
aö skora meö fallegu skoti.
Þrumuskot hans réð Aumann
markvöröur ekki viö, en hann lék
einmitt mjög vel.
Eftir fyrstu 15. mín. færöist mikil
harka í leikinn. Dómari leyföi tals-
veröa hörku — tók of seint á hlut-
unum af festu. Hann sýndi nokkur
gul spjöld í fyrri hálfleik og strax í
upphafi þess siöari þaö rauöa —
Dremmler rekinn af velli sem fyrr
segir.
Eftir þaö réð Uerdingen aö
mestu gangi leiksins en Bayern
reyndi aö klóra í bakkann meö
skyndiupphlaupum. Þau sköpuöu
þó heldur litla hættu.
Sigurmarkiö var svo gert á 66.
mín. og kom eftir mjög skemmti-
legan samleik.
Knötturinn var gefinn inn að
teig, ætlaöur Lárusi en honum var
brugöið og knötturinn barst til
Wolfgang Schafer — hann renndi
sér í gegnum varnarmúrinn og
skoraöi af stuttu færi fram hjá út-
hlaupandi markveröinum.
• Lárus Guömundsson. Hefur
oröiö bikarmeistari í Belgíu og
Vestur-Þýskalandi.
Sigur Uerdingen var sanngjarn.
Feldkamp, þjálfari liösins, haföi sjö
sinnum tapaö fyrir liöi sem Udo
Lattek þjálfar — vann nú í fyrsta
skipti sigur. Hann notaöi þá leikaö-
ferö aö láta taka miövallarleik-
mennina frábæru hjá Bayern, Dan-
ann Soren Lerby og Þjóöverjann
Lothar Matthaus, úr umferö allan
tímann og viö þaö varð miðjuleikur
liösins mun veikari en venjulega.
Uerdingen réö því gangi leiksins
lengst af.
Aumann markvörður og Höhn-
ess voru bestu menn Bayern-liös-
ins í úrslitaleiknum en hjá Uerding-
en voru bestir þeir Wolfgang Funk-
el, Herget og Buttgereit. Auk þess
stóö Lárus sig mjög vel eins og
áöur kom fram eins og reyndar allt
liöiö. Þetta var fyrst og fremst sig-
ur liösheildarinnar.
Þess má geta aö Lárus fékk
mjög gott marktækifæri í fyrri hálf-
leiknum — lók í „þríhyrning" viö
félaga sinn og komst viö þaö inn á
teig. Skaut strax þrumuskoti frá
teig og aöeins frábær markvarsla
Aumanns kom í veg fyrir mark.
Þetta geröist er staöan var 1:1.
• Einar Vilhjálmsson sigraði moö glæsibrag um helgina og átti glæsi-
lega kaströö: fjögur köst yfir 86 metra.
Bikarkeppnin:
Eins
marks
tap
Kiel
KIEL tapaði 19:20 á útivelli
gegn Gummersbach, nýbök-
uöum þýskum meisturum {
handknattleik, um helgina í
bikarkeppninni. Jafnt var á
öllum tölum í stórskemmti-
legri spennandi vel og leikínni
viðureígn. Kiel er þar með úr
leik og flestir telja þetta hafa
veriö úrslitaleik keppninnar
þó 8vo um 8 liða úrslit hafi
verið aö ræöa.
„Þjálfari Gummersbach
sagði aö ef þurft heföi aö fram-
lengja heföi hans liö ekki náö
aö sigra. Hans menn voru gjör-
samlega búnir t lokin, margir
hverjir. Viö vorum greinilega í
betri æfingu,“ sagöi Jóhann
Ingi Gunnarsson, þjálfari Kiel, í
samtali viö Mbl.
Samíö við Guö!
Jóhann Ingi sagöist hafa
sagt á biaöamannafundi eftir
leikínn i Gummersbach aö for-
ráöamenn meistaranna hlytu
að hafa samið viö Guö almátt-
ugan fyrir þetta keppnistímabil.
Svo heppið heföi liðiö verið.
„Ég ætla að reyna aö ná sam-
bandi viö hann strax í sumarl"
sagöi Jóhann Ingi.
Gummersbach varð sem
kunnugt er meistari á dögun-
um, einu marki munaöi á liöinu
og Kiel. Nú munaöi svo aftur
einu marki í bikarnum. „Þaö var
Ijóst aö þaö lið sem heföi
heppnina meö sér ynni þennan
leik,“ sagöi Jóhann Ingi og var
heldur óhress meö tapiö.
Einar Vilhjálmsson á fyrsta Grand-Prix mótinu — fjögur köst yfir 86 metra:
t
„Alveg Ijómandi!"
- sagði Einar í samtali við Morgunblaðið eftir sigurinn
„ÞETTA var alveg Ijómandi. Eins
og það best gat veriö og óg er
mjög ánægður,“ sagði Einar
Vilhjálmsson, spjótkastari, í sam-
tali viö Morgunblaóið eftir að hafa
sigraó í fyrsta Grand-Prix-mótinu
sem fram fer í ár, Bruce Jenner-
mótinu, í San Jose í Bandaríkjun-
um á sunnudag.
Einar kastaöi spjótinu lengst
88,28 metra — tæpum fjórum
metrum styttra en íslandsmetiö —
og átti frábæra seríu: fjögur köst
yfir 86 metra markiö, 87,46 m —
86,16 m — 86,90 m — 88,28 m.
Glæsileg byrjun á keppnistímabil-
inu hjá Einari.
„Viö köstuöum af gras-hlaupa-
braut, sem er töluvert verra en
venjulega, og þar aö auki var hliö-
arvindur frá hægri sem er erfiöara
fyrir vinstri handar kastara eins og
mig,“ sagði Einar.
Bandaríkjamaöurinn heims-
kunni Tom Petranoff varö aö láta
sér nægja annaö sætiö í spjótkast-
inu — kastaöi 87,22. Bronzverö-
launahafinn frá Ólympíuleikunum í
fyrra, Svíinn Eldenbrink, varð þriöji
og fjóröi varö Bandaríkjamaöurinn
Christiansson. Fimmti varö svo
Mike Burnett, einnig Bandaríkjun-
um.
Einar var spuröur hvort hann
væri ekki bjartsýnn á sumariö
eftir þessa góðu byrjun.
„Jú, ef maöur heldur sér heilum
þá horfir vel. Og ég sé enga
ástæöu til þess aö maöur færi aö
meiöast nú — versti tíminn er liö-
inn, millibilið frá því er maður hætti
aö lyfta og fór aö kasta.“
Grand-Prix-mótiö er vissulega
stórmál i heimi frjálsíþróttanna.
Flestir bestu frjálsíþróttamenn
heims taka þátt i þeim — en þó
aöeins þeir sem unniö hafa sér
þátttökurétt; hafa náö þeim lág-
mörkum sem sett eru.
Færri komast aö en vilja en
byggt er á lista sem Track-and-
Field-New tímaritiö birtir í janúar-
mánuöi ár hvert.
Næsta mót hjá Einari er strax
um næstu helgi — annaö Grand-
Prix-mót, það veröur í Oregon og
þar veröa allir bestu spjótkastar-
arnir aftur meðal keppenda.
Einar kemur síöan heim til is-
lands 7. júni. Hann keppir ásamt
fleiri íslenskum frjálsíþrótta-
mönnum á Vesturleikunum í Sviss
um miöjan júní, „og svo eflaust í
Skandinavíu 18. og 19. júní. Síöan
er Grand-Prix í Tékkóslóvakíu 22.
júni og hugsanlega keppi ég aftur
einhvers staðar í Skandinavíu 24.
og 26. júlí,“ sagöi Einar.
Hann sagöist ánægöur meö
hvernig köst hans heföu þróast í
vetur. „Ég var svolítiö hræddur viö
tæknina á tímabili en hún er aö
lagast." Hann vonast til aö komast
til Rómaborgar í haust en þar
verður sérstakt úrslitamót fyrir þá
íþróttamenn sem standa sig best á
Grand-Prix-mótum sumarsins.
Það veröur 7. september.
Sjá nánar um mótió á bls. B11.