Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLl 1985 AF INNLENDUM VETTVANGI eftir FRÍÐU PROPPÉ Stjórnendur Tjarnarskóla í Reykja- vík eru þessa dagana að fara yfír umsóknir nemenda og kennara um skólavist og kennslu í skólanum á komandi vetri. Á annað hundrað um- sóknir hafa borist um skólavist en fjöldi umsókna kennara fæst ekki uppgefínn, stjórnendurnir segja að- eins aö þær séu nægilega margar og séu enn aö berast. Reglur hafa verið settar um hvernig staðið veröur að vali nemenda, sem verða í fjórum bekkjardeildum, tveimur í 7. bekk, einni í 8. bekk og einni í 9. bekk. Sú regla gildir, að í fyrsta lagi verður farið eftir búsetu í skólahverfum og þess gætt að nemendur skiptist jafnt á skólahverfí samkvæmt höfðatölu- reglu. í öðru lagi ræður innkomuröð umsókna. Þá hafa umsóknir einnig borist úr nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, a.m.k. úr Mosfellssveit, Garðabæ, Hafnarfírði og af Sel- tjarnarnesi og segja forráðamenn skólans að fullur vilji sé fyrir að veita þeim inngöngu eftir sömu reglum og gilda um nemendur úr Reykjavík. Reiknað er með, að kennarar við skólann geti orðið um tíu talsins. Fjöldi þeirra fer nokkuð eftir skipt- ingu námsgreina milli þeirra, en reiknað er með tæplega fímm stöðug- ildum, sem svo eru nefnd. Kennarar verða allir með full kennsluréttindi. Einkaskólar — Nýtt skeið í íslenskri skólagöngu? Skóli þessi hefur verið mjög í sviðsljósinu síðustu vikur og um fátt meira rætt og ritað. Menn greinir á um margt, eru m.a. ekki á eitt sáttir um, hvort hér sé á ferðinni einkaskóli eða einvörð- ungu enn einn ríkisrekinn grunn- skóli. Verður hér á eftir rakinn aödragandi að stofnun skólans, hugmyndir stjórnenda hans um rekstur reifaðar og gerð grein fyrir starfrækslu nokkurra einka- skóla hérlendis. Þá verða birt um- mæli nokkurra þeirra sem rætt var við vegna vinnslu þessarar samantektar, en það voru ráða- menn ríkis og borgar, skólastjórar nokkurra skóla, forsvarsmenn kennarasamtaka, foreldrar grunn- skólanema og áhugamenn um skólamál. Stofnendur Tjarnarskóla og stjórnendur eru tveir ungir kenn- arar, þær Margrét Theódórsdóttir og María Sólveig Héðinsdóttir, en þær kenndu báðar við grunnskól- ann í Mosfellssveit. Báðar eru þær háskólamenntaðar en hafa aðeins að baki þriggja ára starfsreynslu, sem sumir viðmælenda benda á, en þar sem víðar eru menn ekki á einu máli um hvort telja eigi þá staðreynd kost eða löst. Þær við- urkenna sjálfar að öll reynsla sé dýrmæt og segjast hafa rekið sig á reynsluleysi sitt í samskiptum við fjölmiðla við stofnun skólans, en að sú reynsla hafi verið góður skóli. Samstarfsmenn þeirra stallna og foreldrar barna, sem þær hafa kennt, gáfu þeim gott orð, þegar leitað var álits: „Mjög góðir kennarar báðar tvær, sér- staklega góðir íslenskukennarar," sagði m.a. einn fyrrverandi sam- starfsmaður. Að hrökkva eða stökkva María og Margrét lýsa sjálfar hugmyndinni að stofnun skólans á þennan veg: Það var í kennara- verkfallinu á sl. skólavetri að við þurftum sem BHM-kennarar að mæta til vinnu, þó engir væru nemendurnir. Þá bar margt á góma í umræðunni. Við hugleidd- um framtíðina og möguleika okkar sjálfra. Okkur fannst ákveðið vonleysi einkenna umræð- una og kjarabaráttan náði aldrei neinum dampi. Hugmyndin að einkaskóla kom því ekki út frá því að við uppgötvuðum allt í einu að nú vantaði einkaskóla, heldur vor- um við uggandi um framtíðina. Við höfum gaman af starfi okkar og langaði að skapa nýjan starfs- vettvang. Það var síðan um það að ræða að hrökkva eða stökkva eftir að við höfðum kannað grundvöll- inn og aflað upplýsinga um hvað þyrfti til. Þær stöllur sneru sér fyrst til menntamálaráðuneytisins og skil- uðu þangað upplýsingum um hvers konar skóla þær hygðust stofna og fengu jákvæð viðbrögð. Menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, segir að stofnun Tjarnarskóla þýði ekki að upp hafi verið tekin ný stefna í skólamál- um: „Heimild til stofnunar slíks skóla er búin að vera í grunnskóla- lögunum frá því að þau voru sett,“ sagði hún. Ákvæði laganna eru í XIII. kafla, 75. gr., um einkaskóla, en hún er svohljóðandi: „Heimilt er menntamálaráðuneytinu að löggilda grunnskóla eða hluta grunnskóla, sbr. 3. gr., eða for- skóla, sbr. 74. gr., sem kostaðir eru af einstökum mönnum eða stofn- unum, ef þeir starfá samkvæmt reglugerð eða skipulagsskrá er það staðfestir, enda hlíti slíkir skólar sama eftirliti og reglum og aðrir grunnskólar. Kennarar við skóla þessa skulu fullnægja öllum skilyrðum um rétt til kennslu í grunnskóla. Börn, sem þessa einkaskóla sækja, hafa undanþágu samkvæmt 7. gr. (þ.e. til að sækja ríkisrekinn grunnskóla), en for- stöðumaður skal fyrir upphaf hvers skólaárs senda hlutaðeig- andi skólanefnd skrá um nemend- ur og tilkynna henni allar breytingar á nemendaskrá, jafn- Hvað segja þau um Tjarnarskóla óg einkaskóla almennt? Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra. „Ég tel, að hér sé aðeins um að ræða einn af fjöl- mörgum einkaskólum í landinu. Auðvitað er ekki verið að mismuna börnum, þó boðin sé fram þjónusta vegna fræðslu barna, sem ef til vill er ekki í öðrum skólum. Með sama hætti mætti segja, að verið sé að mismuna unglingum með því að gefa þeim kost á að stunda nám í Verzlunar- skólanum eða Samvinnu- skólanum, eða að verið sé að mismuna börnum með því að gefa þeim kost á að stunda nám í ísaksskóla, eða fara í dans- eða spila- tíma. Þetta er eingöngu spurning um meiri fjöl- breytni og hvað það er sem HÉR FARA á eftir ummæli þeirra sem rætt var við um einkaskóla. Spurt var um álit á stofnun Tjarnarskóla, hvort menn teldu hann einangrað fyrirbrigði eða upphaf af nýju skeiði í íslenzkri skólasögu. Ennfremur var spurt um afstöðu manna almennt til einkaskóla og til þeirra fjölmörgu sjónarmiða sem fram hafa komið í umræðu um málið. Svanhildur foreldrar vilja verja tekjum sínum í. Mér sýnist að hér sé um að ræða álíka kostn- að fyrir foreldra eins og að kaupa einn sígarettupakka á dag.“ Aðspurð um hvort hún myndi senda sín börn í Tjarnarskóla, ef þau væru á þeim aldri, sagði ráðherr- ann, að hún hefði sent tvö barna sinna í ísaksskóla á sínum tíma. „Það gæti vel verið, ef ég ætti heima ná- lægt skólanum og ætti börn á þessum aldri.“ Davíð Oddsson borgarstjóri „Ég lít svo á að þessi skóli muni starfa sjálfstæðar en aðrir skólar og feta nýjar slóðir. Auðvitað mun hann sjá um að koma þeirri kennslu á framfæri sem skólaskyldan gerir ráð fyrir. Ég tel að þarna sé um að ræða eins konar vísi að einkaskóla og að þetta sé ekki minni einkaskóli en til dæmis Samvinnuskólinn og Verzlunarskólinn." Davíð sagðist eiga 13 ára gamlan son og aðspurður um hvort hann myndi senda hann í Tjarnarskóla sagði hann: „Það er nú þannig komið að ég sendi hann ekki eitt eða neitt. Ætli hann mundi ekki ráða því sjálfur, en hann er í ágætum skóla, Hagaskóla." Borgarstjóri bætti því við að hann myndi líklega ekki amast við því, ef drengurinn vildi fara í skólann, „en hann er nítíu prósent hættur að spyrja mig,“ bætti hann við. Kaaber formaður Bandalags kennarafélaga „Ég lít svo á varðandi Tjarnarskóla, að þarna sé ríkið í rauninni að viður- kenna, að foreldrar eigi að borga þann umframkostnað sem fylgir því að reka skóla. Nú segja forráðamenn skól- ans að þetta eigi að vera góður og skemmtilegur skóli og ég sé ekki að þarna verði annað í boði en það sem fyrir er í öðrum grunnskólum. Ríkið leggur til kennara, borgin leggur til aðstöðu og foreldrar borga það sem umfram þarf til að gera skólann góðan og skemmtilegan. Er ríkið ekki þar með að viðurkenna, að það leggur ekki nóg fram til grunnskólans?" Svanhildur sagði ennfremur að hún sæi ekki að þarna væri á ferð- inni einkaskóli, hún liti á einkaskóla sem skóla með sérhæfðan kennslufræði- legan bakgrunn, sem þessi skóli hefði ekki að hennar mati.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.