Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985 47 Á íslandi höfum við hreint loft. Eitthvað á þessa leið var fimm dálka fyrirsögn á viðtali við landbúnaðarráðherra, ný- kominn heim frá Norðurlönd- um. Og fimm dálka frétt í öðru blaði: Mannekla og súrefnis- skortur. Því lýst hvernig fólk verður veikt af súrefnisskorti — á Landspítalanum. Ekki þó sjúklingarnir heldur símastúlk- urnar, sem hafðar eru í loft- lausum klefa. Hugsið ykkur að hafa ekki loft í landi þar sem ómælt magn af lofti leikur um vanga eða lemur alla daga árs- ins. Og kostar ekki neitt. Bara að opna glugga í 10—15 mínút- ur og inn streymir hreina loftið. Er næstum það eina sem við eigum — fyrir utan nóg land- rými — og það ómælt og öllum frjálst. Þarf hvorki að panta það né borga, nema maður endi- lega vilji og komi sér með til- færingum upp slíkum kostnað- arlið. Loft er víst það eina sem ekki verður frá okkur tekið. Ekki hvarflað að neinum að setja réttinn til hreins lofts í stjórn- arskrá landsins, eins og sumar þjóðir ku nú gera, því eins og hann Hannes Hafstein sagði svo réttilega: Loft við þurfum, við þurfum bað, að þvo burt dáðleysis mollukóf Látum vera með baðið (enda ekki talið til mannréttinda í nokkurri stjórnarskrá). Óhreinir lifa af. En án lofts verða þeir eins og gapandi fiskar á þurru þilfari. Flestir geta víst verið sammála Hannesi þegar hann segir um loft i hástigi, Storminn: þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur og lífsanda starfandi hvarvetna vekur. Ekki þurfum við, um tugur blaðamanna, hér í splunkunýju stórhýsi við Tryggvagötuna vitn- anna við. Sönnunargagnið á staðnum. Finnum það a eigin skrokki eftir nokkurra klukku- tíma í sal, sem er 10°16 metrar á lengd og aðeins þrjár 10 sm rifur á gluggum í 16 metra fjarlægð frá þeim sem innst situr. Og fyrir þessar rifur hefur hönnuður hússins sett spýtur og festingar til að loka næstum alveg fyrir þessi loftgöt — aðeins neðst hægt að opna svona 15 sm. Bjargaðist fyrsta hálfa árið meðan gat var upp í heiðan himin fyrir framan dyrnar, en svo var neglt fyrir það. Síðan reynum við hér að gleypa loft áður en inn er gengið og horfum öfundaraugum á þá sem eru fyrir utan húsið — í þessu fræga íslenska lofti. Kvört- unarkór með kröfur um að hleypa lofti inn framkallaði bara andstyggilega ljótar pípur neðan í loftin, — sem enn kemur ekkert loft úr. Kannski verður það ein- hvern tímann. „Fagmenn" vilja víst endilega úr því að við erum svo leiðinleg að heimta ioft kaupa það með rándýrum aðgerðum og rafmagni. Við kunnum að vísu betra ráð: bara að gera þessa stóru glugga opnanlega. Afsakið reiðilesturinn, sem kemur af loft- leysi og andarteppu. Næsta neyð- arráð verður eflaust að reyna að bera loft inn í húfu sinni að hætti Bakkabræðra. Þeir fyrir neðan okkur í veitingahúsinu eru betur settir. Þeir hafa port, sem hægt er að læsa og opna svo út. Sögðu mér frá þessu þjóðráði um dag- inn. En hér er ekkert op, bara lokaðir gluggar á einum vegg. Svona er nú þetta hús teiknað. Og það er alveg fullt af svona húsum í Reykjavík — með geysi- stórum gluggum,en engum sem hægt er að opna til hleypa lofti inn. Loftlaus hús á íslandi. Er það ekki skrýtið. Meira að segja fullt af fallegum skólabyggingum í landinu, þar sem ekki er hægt að hleypa fersku lofti inn á krakk- ana og reka burtu lognmolluna. Fyrir par árum var byggt fínt hús við Háskólann, sem nefnist Lögberg — vitanlega án opnan- legra glugga. Loftræstikerfi var sett upp með ærnum kostnaði, en það lét svo hátt í því að truflaði kennslu. (Svona eins og í fund- arsölum Hótel Sögu þar sem fundarmenn eru sífellt að velja á milli þess að heyra í ræðumanni eða hafa hlýju og loft sem kemur inn með hávaðasama loftræsti- kerfínu). Fyrir harðfylgi þeirra sem þarna kenndu tókst að brjót- ast í gegn um „fagmennskuna" og fá opnanlega glugga á kennslu- stofur. Barátta undirritaðrar í fræðsluráði Reykjavíkur fyrir að ekki yrðu byggðir fleiri skólar án opnanlegra glugga varð meira í átt við bardaga Don Kíkóta við vindmyllurnar. Tilefni þeirrar orustu var árvissar kvartanir skólanna vegna loftleysis og sam- þykktir fjárveitinga til að reyna að bæta þar úr. Jafnan var reikn- að nægt loft, en þeir sem það áttu að gleypa virtust ekki geta fundið það. Urðu oft merkilegar umræð- ur um fyrirbrigðið með hjálp sér- fræðinga. Loks var gripið til þess ráðs að samþykkja í fræðsluráði að gera úttekt á loftræstiskerfum allra skólanna í Reykjavík með viðgerðar og rekstrarkostnaði. Datt rétt sí svona í hug að þessa peninga mætti nota til að hjálpa til við að koma fræðslu í kolla nemenda í stað þess að eyða þeim í að reyna að dæla lofti í lungu þeirra. 0 vei, þegar undirrituð hætti í fræðsluráði hafði ekki tekist að koma þessu stóra verk- efni lengra en á blað og hefur víst ekkert til þess spurst. Það gladdi þó hjartað að heyra að útvarps- fólki hefði betur gengið, er það af hörku krafðist opnanlegra glugga í nýja útvarpshúsið, enda þarf að vera mikið loft í þeim. Nú lesum við í blöðunum að íslendingar séu að byrja að spara, farnir að leggja í banka í stað þess að reyna að koma pen- ingunum sínum í lóg á hvern þann hátt sem hugvitið leyfir. Kannski menn vilji þá fara að nýta ókeypis loft í hýbýlin sín. En þrátt fyrir fyrirspurnir til þeirra sem vita ættu um rekstr- arkostnað hafa engin einhlýt svör fengist. Bara sagt að kostn- aður sé misjafn, hægt sé að hanna kerfin „rétt“, semsagt nokkuð sömu svörin og jafnan fengust í fræðsluráði á sínum tíma. En kílówattstundin af rafmagni til heimilisnota í Reykjavík kostar kr. 3,63 og ýms- um finnst rafmagnsreikningur- inn nægilega hár án rafmagns- dælingar á lofti, fyrir utan við- hald og amstur. Kannski mætti þarna fá smáaur til annars skemmtilegra. En þá er kerfinu að mæta. Þarf að sækja um að fá að breyta húsum. Aldrei hefi ég að vísu getað skilið að opnanleg- ur gluggi sé svo miklu ljótari en lokaður gluggi. Enda ekki með löggiltan smekk og hefi ekkert lært til þeirra hluta í útlöndum, þar sem bara kemur mengað loft inn um opna glugga. Sit því uppi með óskólahefíaðan smekk fyrir hreint íslenskt loft beint í lung- un. Sendi nú í bænum mínum ákall: Gef oss í dag vort daglegt brauð og loft inn um opinn glugga. Forða oss frá illu — þeim sem byggja oplaus hús á íslandi, að hætti Molbúa. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar KROSSINN ALIHÓLSVEGI 32 - KÓPAVOGI Samkomur á sunnudögum kl. 16.30.Samkomurá laugardögum kl. 20.40. Biblíulestur á þriöju- dögum kl. 20.30. Vegurinn — Nýtt líf Almenn samkoma veröur i kvöld kl. 20.30 í Síöumúla 8. Allir vel- komnir. Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík I dag sunnudag veröur almenn samkoma kl. 17.00. Veriö velkomin. Trúoglíf Samvera í Háskólakapellunni i dag kl. 14.00. Þú ert velkominn. Trú og líf. Hjálpræðis- herinn Kirkjustrsti 2 Sunnudag kl. 16.00 útisamkoma á Laekjar- torgi, kl. 20.00 baen, kl. 20.30 hjálpræöissamkoma. Lautinant- arnir Rannveig Maria Níelsdóttir og Dag Albert Baarnes stjórna og tala. Þriðjudag kl. 20.30 kveöjusamkoma fyrlr deildarstjórahjónin önnu og Daniel Óskarsson. Brigader Óskar Jónsson stjórnar. Veriö velkomin. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir sunnudag 28. júlí: 1. Kl. 08. Þórsmörk — dagsferö. Ath.: m/lengri dvöl i Þórsmörk. 2. Kl. 10. Krísuvíkurbjarg — Rœningjastígur. Ekiö um Krísu- vik aö Ræningjastig. Verö kr. 400. 3. Kl. 13. Lækjavetlir — Ketil- stígur — Seltún. Létt gönguleiö yfir Sveifluháls. Verö kr. 400. Miðvikudagur 31. júlí: 1. Kl. 08. Þórsmörk. Dvalargest- ir — dagsferö. Góö gistiaöstaöa. Mikil náttúrufegurö. Ath.: Fræðslurít nr. 1 ar komið út, „Gönguleiöír aó Fjallabaki" eftir Guójón Ó. Magnússon. Feröafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11796 og 19533. Sumarieyfisferðir Feröafélagsins: 1. 31. júlf - 5. ágúst (8 dagar): Hvftémea — Hveravellir. Gengiö milli sæluhúsa á Kili. Fararstjóri: Siguröur Kristjánsson. 2. 2.-7. ágúat (6 dagar); Land- mannalaugar — Þórsmörk. Gengiö milli sæluhúsa. Farar- stjóri: Sturla Jónsson. 3. 7.-16. ágúst (10 dagar): Há- lendishringur. Ekiö noröur Sprengisand um Gæsavatnaleiö, Öskju, Drekagil, Heröubreiöar- lindir, Mývatn, Hvannalindir, Kverktjöll og víöar. Til baka um Báröardal. Gist í húsum. Farar- stjóri: Hjalti Kristgeirsson. 4. 8.-18. ágúat (11 dagar): Horn- vík. Dvaliö í tjöldum i Hornvík og farnar dagsgönguferöir frá tjaldstaö á Hornbjarg, Hælavík- urbjarg og viöar. Fararstjóri: Gisli Hjartarson. 5. 0.-14. ágúst (6 dagar): Land- mannalaugar — Þórsmörk. Gengiö milli sæluhúsa. 6. 18.-20. ágúst (5 dagar): Fjallabaksleiö og Lakagfgar. Gist i húsum. 7. 16.-21. ágúst (6 dagar): Land- mannalaugar — Þórsmörk. Gengiö milli sæluhúsa. Þaö er ódýrara aö feröast með Ferðafélaginu Upplýsingar og farmiöasala á skrifstofunni, Öldugötu 3. Feröafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11796 og 19533. 2.-5. ágúst 1) Álftavatn - Hóimaárbotnar • Strútalaug. (Fjallabaksleiö syóri.) Gist i húsi. 2) Hveravellir • Þjófadalir - Blöndugljúfur. Gist í húsi. 3) Landmannalaugar - Eldgjá - Hrafntinnusker. Gist i húsi. 4) Skaftafell - Kjós - Miófells- tindur. Gönguútbúnaöur. Gist i tjöldum. 5) Skaftalell og nágrenni. Stutt- ar/langar gönguferöir. Gist i tjöldum. 6) Óræfajökull • Sandfellsleió. Gist í tjöldum. 7) Sprengisandur - Mývatns- sveit - Jökulsárgljúfur - Tjömes - Sprengisandur. Gist i svefn- pokaplássi. 8) Þórsmörk - Fimmvöröuháls - Skógar. Gist í Þórsmörk. Þórs- mðrfc, langar/stuttar gönguferö- ir. Gist i húsi. Brottför i allar ferö- irnar er kl. 20.00 föstudaginn 2. ágúst. 3.-5. ágúst: Þórsmörk. Brottför kl. 13.00. Gist í Skagfjörösskála. Ferðist um óbyggöir meö Feröa- félaginu um verslunarmanna- helgina. Pantiö timanlega. Upp- týsingar og farmiöasala á skrlf- stofu Ff, Öldugötu 3. Ferðafélag Islands. UTIVISTARFERÐIR Utivistarferöir Feröir um verslunarmanna- helgina 2.-5. ágúst: 1. Núpsstaóaskógar. Fallegt og afskekkt svæöi innaf Lómagnúpi. Tjaldaö viö skógana. Gil, gljúfur og fossar. Gengiö á Súlutinda og fl. Möguleiki á silungsveiði. Far- arstj. Þorleifur og Kristján. 2. Eldgjá • Langisjór - Land- mannalaugar: Gist í góöu húsi viö eldgjá. Ganga á Sveinstind o.fl. Hringferö aö Fjallabaki. 3. Homstrandir - Hornvik: Tjald- bækistöö i Hornvík. Ganga á Hornbjarg og víöar. Fararst|óri: Gisli Hjartarson. 4. Dalir - Breiðafjaróareyjar: Gist i svefnpokaplássi. Hringterö um Dali. fyrir Klofning og viöar. Sigling um Breiöafjaröareyjar Stansaö í Flatey. Fararstjóri Ein- ar Kristjánsson o.fl. 5. Þórsmörk: Brottför föstud. kl. 20.00. Ennnfremur daglegar ferðir alla helgina. Brottför kl. 8 aö morgni. Frábær gistiaöstaða í Utivistarskálanum Básum. Gönguferöir viiö allra hæfi. Far- arstjóri: Bjarki Haröarson. 6. Kjölur - Kerlingarfjöll: Gist i húsi. Hveravellir, Snækollur o.fl. Hægt aö hafa skíöi. Uppl. og farmióar á skritst., Lækjarg. 6a, simar: 14606 og 23732. Sjáumst. Útivist. UTIVISTARFERÐIR Miövikudagur 31. júlt KL 8.00. Þórsmörfc. Dagsferö og fyrir sumardvöl. Kl. 20.00. Sandfellskofi — Fjallið eina. Létt ganga. Munió fjölskylduhelgi i Þórs- mörk 9.-11. ágúst. Gönguferöir, leikir, kvöldvökur. Nánar auglýst siöar. Ódýr ferö. Sjáumst. Utivist Gott tækifæri til aö upplifa margt þaö helsta sem miöhálendi ís- lands býöur upp á. Fararstjórl: Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir. 4. Hornstrandir — Homvfk 1.-8. ágúst. Fararstjóri: Gisli Hjartar- son. 5. Borgarfjöróur eystri — Seyó- is-fjöróur — 9 dagar 3.-11. ágúst.Ganga um vikurnar og Loömundar- fjörö til Seyöisfjaröar. Fararstjóri: Jón J. Elíasson. 6. Göngu- og hestaferö um eyóifirói á Austurtandi, berja- ferö. Ath. breytta áætlun. 8 daga ferö. Brottför 18. ágúst. Nánari uppl. og farmiöar á skrifst. Lækjargötu 6a, simar 14606 og 23732. öí\)Nársk ót/ fK 'V ÚTIVISTARFERÐIR Ódýrar sumarleyf isferö- ir með Útivist 1. Sumardvöl i Útiviatarskálan- um Báaum. Básar er sannarlega staöur fjölskyldunnar. Hálf vika, vikudvöi eöa lengur. Skipulagö- ar gönguferóir mánud., þriöjud., fimmtud. og um helgar. Odýrasta og eitt skemmtilegasta sumar- leyfiö 2. Landmannaiaugar — Reykjar- dalur — Þórsmörk — S dagar. 7.-11. ágúst. Bakpokaferð 3. Háiendíshringur 3.-11. ágúst. Gæsavötn — Askja — Kverkfjöll. Froskköfunsrnémskeið verð- ur haldið dagana 24. ágúst til 1. september að Farfugla- heímilinu Reykjanesi. Nám- skeiöinu lýkur með prófi sem miöast við tveggja stjörnu alpjóðleg réttindi til sport köfunsr. Innifaliö i námskeiösgjaldi eru auk kennslu og bóklegra kennslugagna, ferðir, gisting og fullt fæöi. Allar nánari upplýsingar veitt- ar hjá Bandalagi laúmakra Fartugla. Sími (91) 10490. Farfuglar ÉÉL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.