Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 56
TIL DAGLEGRA NOTA SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. Ruddaleg árás á van- færa konu VUNG VANFÆR kona fannst vió illcmm um hálffimm í gærmorgun og gekk blóó upp úr henni. Vegfar- andi kom aó og tilkynnti lögreglu. Konan var flutt í sjúkrahús og kom í Ijós að hún var með innvortis blæó- ingar. Hún bar að maður hefði komið til hennar og beðið að koma með sér. Hún hefði neitað og hefði maðurinn þá sparkað í kvið henn- ar og skilið eftir liggjandi í göt- unni. Konan mun komin rúma fjóra mánuði á leið og lá á sjúkra- húsi í gær. Hún hefur ekki misst fóstur, en óvíst hvort það hafi skaðast. Unga konan gat gefið lýsingu á ’ V árásarmanninum og hóf lögregla víðtæka leit. Um hálf níu í gær- morgun var maður handtekinn í nágrenninu. Yfirheyrslur yfir honum hófust undir hádegi í gær og er enn óljóst hvort hann var að verki. Hann hefur komið við sögu hjá lögreglunni fyrir grófar árásir á fólk.______^ ( ^ 5 á slysadeild -eftir árekstur UM klukkan 12.45 í gær, laugardag, varð harður árvkstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Kleppsvegar og Laug- arnesvegar. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild, ásamt þremur farþegum úr öðrum bílnum. Ekki var vitað um líðan fólksins þegar Morgunblaðið fór í prentun eftir hádegið í gær. Davíð Oddsson borgarstjóri tekur á móti Jacqueline Picasso í boði sem hann hélt í Höfða í gær. Morgunbiaðið/Þorkeii „LÍST VEL Á KJARVALSSTAÐI" KKKJA málarans Picasso, Jacqueline Picasso, kom hingað til lands { gærmorgun til að ræða við forráðamenn I.istahátíðar í Reykjavík 1986 um sýningu á verkum eftir Picasso. Frú Picasso skoðaði salarkynni Kjarvalsstaða og Listasafns íslands í gærmorgun. I hádeginu bauð borgarstjóri til hádegisverðar í Höfða og við það tækifæri spurði blaðamaður Morgunblaðsins hvernig henni litist á aðstæður. „Salarkynnin eru mjög góð. Sérstaklega er ég hrifinn af austursal Kjarvalsstaða," sagði frú Picasso. Salvör Nordal, fram- kvæmdastjóri Listahátíðar, sagði að hugmynd þessi hefði upprunalega komið frá Erró. „Öryggisgæsla þarf að vera mjög mikil ef af þessu verður. Gæsla þyrfti að vera dag og nótt. Jacqueline Picasso kemur sjálf til landsins til þess að setja sýninguna upp ef af henni verður." V Jóhann Hjartarson; „Anægður með að stór- meistaratitill er í höfn“ „Ég er að sjálfsögðu ánægður með að stórmeistaratitill er í höfn þó maður taki þessu með jafnaðargeði," sagði Jóhann Hjartarson, sem í gær tryggði sér þriðja og síðasta áfanga að stórmeistaratitli þegar hann gerði jafntefli við Svíann Harry Schussler á Norðurlandamótinu í skák í Gjövik í Noregi. Þar með hlaut Jóhann 8 vinn- inga, jafnmarga og Norðmaður- inn Simen Agdestein, sem gerði jafntefli við Yrjola. Helgi Óíafs- son átti líklega unna biðskák við Jens Chr. Hansen og stefndi í 8 vinninga. Fjórir norrænir skákmenn verða útnefndir stórmeistarar á FIDE-þingi i næsta mánuði. Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Curt Hansen og Simen Agdestein. „Menn hafa tjáð mér að titillinn sé í höfn, þó smá formgalli sé á, því Helgi og Hansen eru ekki formlega orðnir stórmeistarar. En enginn á von á öðru en ég verði útnefndur stórmeistari," sagði Jó- hann. Mikil óánægja er meðal skák- manna með þá ákvörðun forseta Skáksambanda Norðurlanda að keppni um NM-titilinn verði út- kljáð með stuttu hraðmóti efstu manna í dag, sunnudag. „Við tefl- um ekki einvígi undir slikum kringumstæðum — unnum íþrótt okkar of mikið til þess. Ákvörðun- in var tekin að okkur forspurðum. Við mætum ekki til leiks og krefj- umst þess, að fullur umhugsun- artími verði í einvíginu, sem verði haldið síðar. Átak hefur verið gert til að gera veg Norðurland- amótsins sem mestan. Þessi ákvörðun forsetanna gengur þvert á þá stefnu, — er móðgun við skákmennina og Norðurlanda- mótið," sagði Jóhann Hjartarson. Útflutningur á ísfiski í gámum hefur margfaldast: Nýtt met -1900 tonn seld í næstu viku GÁMAUTFLUTNINGUR á fiski á Bretlandmarkað hefur stöðugt farið vax andi á undanförnum mánuðum, jafnhliða sölu fiskiskipa á ísfiski erlendis. Gert er ráð fyrir að nýtt met verði sett í sölu á ferskum ísfiski í næstu viku, en þá er áætlað að 1900 tonn verði seld á breskum fiskmörkuðum. Mest hefur vikusalan hingað til verið 1700 tonn, nú í byrjun júlímánaðar, en allt þetta ár hefur aldrei verið selt undir eitt þúsund tonnum á viku til Bretlands. „Þetta er feikileg aukning,* sagði Kristján Ragnarsson, for- maður Landssambands íslenskra útvegsmanna, í samtali við Morg- unblaðið. Aðspurður hvort þeir óttuðust ekki verðfall vegna of mikils framboðs, sagði hann að þeir hefðu verið smeykir við það. „Ég fór til Englands á dögunum til að athuga hvort hætta væri á ferðum og ræddi við umboðsaðila okkar. Við höfum haldið þokka- legu verði i allt sumar og ennþá eru engir fyrirboðar um að það breytist og við höfum ekki séð ástæðu til að grípa inní. Það hefur allt gengið vel og enginm snurða hlaupið á þráðinn. Markðurinn virðist stöðugt eflast og taka við auknu framboði,“ sagði Kristján. Kristján sagði að hann hefði Þyrlimni skilað til Frakklands TF-SIF, þyrlan sem Landhelgisgæslan hefur haft að láni frá frönsku Aero- spatiale-þyrluverksmiðjunum, fór í gærmorgun áleiðis til Frakklands. Er fyrirhugað að skila þyrlunni á mánudagsmorgun. TF-SIF millilenti á Höfn i Hornafirði og Færeyjum á leið sinni til Skotlands þar sem fyrir- hugað var að gista í nótt. í dag, sunnudag, var fyrirhugað að fljúga henni suður um Bretlands- eyjar og yfir til Norður-Frakk- lands þar sem flugmennirnir ætla að gista og skila þyrlunni síðan á mánudagsmorgun. Gunnar Berg- steinsson, forstjóri Landhelgis- gæslunnar, sagði að verksmiðj- urnar stefndu að afhendingu nýju þyrlunnar í lok ágúst og kæmi hún þá hingað heim í byrjun septem- ber. Nýja þyrlan er sömu gerðar og TF-SIF, en betur búin tækjum. meðalverði hingað til. sem fengist hefði óttast að útgerðaraðilar í Grimsby væru þeim öndverðir vegna þessa mikla framboðs og þeim fyndist við íslendingar bjóða niður verðið fyrir þá. Sú hefði ekki verið raun- in. Það eina sem við þyrftum að varast væri að bjóða fram lélegan fisk, en það gæti reynst afdrifa- ríkt. Það mætti alls ekki gerast og ætti ekki að þekkjast að við send- um fisk út í óeinangruðum gám- um, eins og hefði verið raunin. Þá ættu gámarnir að vera hvítir og nauðsynlegt væri að breiða yfir gámastæðurnar þegar þær biðu í höfnum erlendis til að hlífa þeim við sólskininu. Á ferð sinni í Eng- landi hefði hann séð vatnið fossa úr gámastæðum með ísfiski, enda hitinn yfir 20 stig, gámarnir bláir og dræju því meiri hita til sín en elía og engin yfirbreiðsla til hlífð- ar. Slíkt mætti ekki gerast. Kristján sagði aukninguna á ís- fisksölu til Bretlands margfalda samanborið við fyrra ár. Eins mörg skip seldu aflann erlendis og löndunaraðstaða fékkst fyrir, en hún væri takmörkuð. Því hefði verið brugðið á það ráð að flytja fiskinn út í gámum. Það væri augljós hagur sjómanna og út- gerðarmanna með hliðsjón af því Alvarlegt umferðarslys á ísafirði: Bfllinn lenti á bryggjupolla ALVARLEGT umferðarslys varð á ísafirði um klukkan 4.30 í fyrrinótt. Bíl var ekið á bryggjupolla á hafnarbakkan- um og slasaðist fólkið sem í bílnum var. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á ísafirði er talið að bílnum hafi verið ekið hratt niður á bryggjuna og ökumað- urinn misst þar stjórn á honum. Hafnaði bíllinn á polla a hafn- arkantinum, en hefði annars farið í sjóinn eða í bát sem þar lá bundinn við bryggjuna. Bíll- inn er af Rover gerð, tiltölulega nýlegur, og er hann talinn ónýt- ur. í bílnum voru piltur og stúlka um tvítugt og voru þau flutt á sjúkrahúsið. Pilturinn hlaut höfuðáverka og var ekki kominn til meðvitundar um klukkan 10.30 I gærmorgun, en þó ekki talinn í lífshættu. Stúlk- an slasaðist minna. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er ökumaðurinn grunaður um ölv- un við akstur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.