Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985
Valgeir
Gestsson
formaður Kennarasam-
bands íslands
„Þetta er spurning um
pólitíska skólastefnu, það
er hvort hið opinbera, ríki
og sveitarfélög, ýti undir
slíka þróun eða stendur
áfram á þeirri braut, að í
skyldunáminu eigi allir sem
jafnastan kost til skóla-
göngu. Þetta er grundvall-
aratriðið.
Það er náttúrulega alveg
ljóst, að þrjú þúsund krón-
ur á mánuði er veruleg upp-
hæð. Ég hygg að okkur
opinberum starfsmönnum
þyki það þó nokkuð, þegar
um er að ræða 10—12% af
mánaðarlaunum kennara.
Þá er þarna verið að tala
um milljarða á ári. Mig
minnir að grunnskólanem-
endur á landinu séu í kring-
um 40 þúsund. Það þýðir
120 millj. kr. á mánuði og
yfir milljarð á ári. Það væri
hægt að breyta og bæta
skólana verulega með slíku
fjármagni, en ég mæli ekki
með að það verði sett á
nemendagjöld.
Ég er ekki að tala um að
banna eigi eitt eða neitt,
þeir sem hafa meiri fjárráð
hafa alltaf getað gert meira
fyrir börnin sín sem kostar
fjármuni, til dæmis með
kaupum á aukakennslu og
fleiru. En við verðum að
gera það upp við okkur,
hvort við ætlum að setja
grunnskólann og fram-
haidsskólann á það stig, að
fólki verði verulega mis-
munað eða hvort við eigum
að halda áfram þeirri
stefnu að berjast fyrir því,
að ríki og bæjarfélög geri
skólann úr garði eins og
hann þarf að vera. Manni
dettur jafnvel í hug, hvort
hið opinbera ætli að losa sig
við skyldur sínar í skóla-
rekstri og setja yfir á for-
eldrana. Þá erum við að
gera fyrstu alvarlegu
stefnubreytinguna frá upp-
hafi skipulags skólastarfs í
landinu."
Elín
Ólafsdóttir
kennslufulltrúi í
Reykjavíkurborg
„Þarna er á ferðinni
eitthvað sem ég felli mig
ekki við. Mér finnst að það
sé verið að gera ráð fyrir að
það sé hægt að bjóða hluta
barna skemmtilegan og
gagnlegan skóla, sem ég vil
meina að við séum öll að
reyna að skapa í skólakerf-
inu hvar sem við erum á
landinu, en við illan leik
víða. Ef það er tilfellið, að
það þurfi meira fé í skóla til
þess að þeir geti orðið
skemmtilegri og gagnlegri
þá finnst mér að það hefði
þurft að taka það mál upp
og skoða það fyrir heildina.
Þá finnst mér skrítið að
fólk skuli viðurkenna, að
það þurfi meira fé í skóla-
kerfið. Ráðamenn viður-
kenna það með því að gang-
ast inn á þessa hugmynd og
þarf þá ekki að taka á mál-
inu í heild?
Guðni
Guðmundsson
rektor Menntaskólans
í Reykjavík
„Ég hef ekkert á móti því
að svona tilraun sé gerð, en
auðvitað er ég algjörlega
fylgjandi því, að allir eigi
og verði að hafa jafnan rétt
til náms. En komi það í ljós,
að eitthvað betra kemur út
úr þessum skóla heldur en
ríkisskólunum, þá er skýr-
ingarinnar væntanlega að
leita í því að kennarar eru
alltof illa launaðir. Sem
skýring á því, að það geti
verið hluti að málinu, á
þetta fullan rétt á sér.
Ég tel þó að það sé alveg
sama hvað frjálshyggju-
menn hugsa sér með þessu,
það er ekki og verður ekki
hægt að losa ríkið undan
þeirri ábyrgð sem það hefur
á menntun skólabarna.“
Gudmundur
Heiðar
Frímannsson
kennari við Mennta-
skólann á Akureyri
„Mér finnst ekkert óeðli-
legt, að ríkið reyni að ýta
undir einkastarfsemi á
þessu sviði, en hún hefur
verið lítil. Þá eru fyrir
hendi einkaskólar sem
reknir eru með mjög svip-
uðu eða sama sniði og þess
vegna kallaðir einkaskólar.
Mér finnst ennfremur mjög
óeðlilegt að foreldrar þurfi
að greiða allan kostnað af
þvi að hafa börnin sín
þarna og um leið að greiða
til ríkisins og þar af leið-
andi fyrir skólakostnað
allra hinna.
Umræðan um þennan
skóla hefur meira og minna
verið um aukaatriði, held
ég. Ekki um það hvort æski-
legt eða óæskilegt sé að
reka þennan skóla heldur
um hvort bera eigi málið
undir fræðsluráð og annað í
þeim dúr. Ég tek mjög ein-
dregið undir að stofnun
skólans sé æskileg. Varð-
andi skólagjöldin og um-
ræðuna um þau, þá má
benda á eitt, sem menn
hafa verið að velta fyrir sér,
en það er að greiðslur
kæmu til hvers barns í
formi ávísana, sem fram-
vísa mætti í skólunum að
eigin vali barna og forráða-
manna. Ef sú regla yrði
viðhöfð, sem ég teldi æski-
lega, þá held að það verði
mun auðveldara að koma á
einkaskólum. { öðru lagi tel
ég hugsanlega leið, að bæj-
arfélög hreinlega bjóði út
skólareksturinn."
Sigrún
Ágústsdóttir
formaður Kennara-
félags Reykjavíkur
„Eins og búið er að
grunnskólanum í dag, bæði
í Reykjavík og úti á landi,
finnst mér þessi skóli ekki
tímabær og þá sérstaklega
ekki að styrkja hann þetta
mikið af almannafé. Þá er
ég með í huga, að skólum í
landinu er illa við haldið,
þar eru mikil þrengsli, fjöl-
mennir bekkir og námsgögn
vantar ár eftir ár. Heilu
kennslugreinarnar eru ekki
kenndar í sumum lands-
hlutum og skólum vegna
aðstöðuleysis, eins og til
dæmis tónmennt, heimilis-
fræði og ýmislegt fleira. Á
meðan svo er ástatt, finnst
mér ekki rétt að einkaskóli,
sem ætlar að bjóða upp á
alla þá sömu kennslu og
boðið er upp á samkvæmt
grunnskólalögum og meira
til sé styrktur af almanna-
fé.
Það hafa ekki allir for-
eldrar efni á að borga fyrir
menntun barna sinna sér-
staklega. Spurningin að
mínu mati er þessi: Eigum
við að byggja upp góðan
grunnskóla og menntakerfi
og sjá sóma okkar í því?
Auðvitað vitum við að fólk
býr við mismunun nú þegar,
en ég er ekki hrifin af
þessu."
Welkom,Griiezi,Willkommen..
Arnarflug býður ykkur velkomin til þriggja borga í Evrópu
Þessi Ijúfa heimsborg er í
uppáhaldi hjá öllum sem
hafa heimsótt hana. Það er
sérstaklega gaman og gott
að versla í Amsterdam, þar
er meira úrval af frábærum
matstöðum en í flestum
öðrum borgum og skemmt-
analífið er Qölbreytt og létt.
Það verður flogið fimm sinn-
um í viku milli Amsterdam
og Keflavíkur í sumar. Arnar-
flug býður hagstæðar pakka-
ferðir til Amsterdam, útvegar
hótel og bílaleigubíla og far-
miða í tengiflug ef ferðinni
er heitið lengra. Engin flug-
höfn í heiminum býður upp
á betri og auðveldari tengi-
flugsmöguleika en Schiphol
í Amsterdam.
ARNARFLUG
Lágmúla 7 Síml 84477
Auk pess að vera hliðið að I
Ölpunum o^ hinum fögru
Qallahéruðum Sviss er Zurich
stærsta borgin þar í landi. Þar
er að finna einkar vandaðar
verslanir og menningar- og
skemmtanalífið er í samræmi
við það. Borgin stendur við
stórt stöðuvatn og um pað
sigla falleg, gamaldags hjóla-
skip, með ferðamenn. Zurich
er í fögru umhverfi og feg-
urðin blasir hvarvetna við pér
þegar þú ekur frá borginni,
um frjósama dali og tignarleg
fjöll til að gista í litlum fjalla-
þorpum og skoða forna kast-
ala. Arnarflug flýgur vikulega
til Zúrich í sumar.
A"<
"•••I
Það er í Dússeldorf sem
Rínarævintýrin heQast. Þaðan
er lagt upp í ferðir um fögur
héruð Rínardalsins og ferðin
verður sérstaklega þægileg
og skemmtileg ef þú tekur
einn af húsbílunum sem Arn-
arflug hefurá boðstólum. Bíl-
arnir eru af ýmsum stærðum,
allt upp í að vera hreinar
lúxusvillur, á hjólum. Dúss-
eldorf sjálf er falleg borg og
sérstaklega gaman að heim-
sækja „gamla bæinn". Hann
er innan við ferkílómetra að
stærð, en þar eru yfir 200
gamaldags veitingahús og
Qölmargar verslanir. Þar hefj-
ast líka skemmtilegar báta-
ferðir um Rín. Arnarflug flýgur
vikulega til Dússeldorf.
S