Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985
Svavar A. Jónsson
Evangelískt klausturlíf
Leið fárra en lífslind margra
Ég hef nokkrum sinnum hitt
karla og konur úr hinum ýmsu
kirkjum mótmælenda þar á með-
al lútersku kirkjunni sem hafa
gengið í mótmælendaklaustur.
Mörg þeirra, kannski öll, nú er
bezt að fullyrða ekki of mikið,
hafa unnið hin þrjú gömlu
klausturheit, heit um fátækt,
skírlífi og hlýðni. Sum þeirra
ganga í klæðnaði sem ber köllun
þeirra vitni.
Klausturlíf er einn af mörgum
möguleikum. Það er hægt að
kjósa sér margvisleg lífsform,
einbýli, hjónaband, stórfjöl-
skyldu, hóp af jafnöldrum eða
fólki á ýmsum aldri, sem býr
saman o.s.frv. Klausturlíf er
einn möguleika sagði miðaldra
maður, sem bjó í klaustri í Hol-
landi. Og það víkkar víst sjón-
deildarhring okkar allra að
hugleiða þessi mál nánar hvort
sem okkur finnst þau aðlaðandi
fyrir sjálf okkur eða ekki. Um
daginn fékk ég bréf frá Noregi,
sem segir frá undirbúningi undir
mótmælendaklaustur þar. Þessi
undirbúningur hefur staðið yfir í
fimm ár og nú verður til skarar
skriðið. Eitt bréfanna var frá
systur Evu, sem hefur verið í
klaustri mótmælenda í Frakk-
landi í nokkur ár.
Klaustrið í Frakklandi
Ég byrja á að segja ykkur frá
þessu franska systrasamfélagi,
þessu franska mótmælenda-
klaustri. Það heitir La Commun-
auté des Diaconesses de Reuilly
og er í Versölum. Það var stofn-
að árið 1841 og allar götur síðan
hafa konur úr mótmælenda-
kirkjum komið þangað og lifað
þar klausturlífi. Klaustrið tekur
á móti gestum, sem vilja koma
þangað til að eiga nokkurra daga
kyrrð og endurnýjun andlegs
lifs. Það er líka hægt að dveljast
þar um lengri tíma, hálft ár eða
heilt. Manneskja sem kemur til
nokkurra mánaða dvalar, tekur
þátt í daglegu lífi klaustursins,
vinnunni og samfélaginu, og get-
ur fengið sérstaka handleiðslu
við lestur Biblíunnar og annað,
sem eflir andlegan vöxt og
þroska. Allir geta svo komið til
guðsþjónustu sem haldin er
daglega og til altarisguðþjón-
ustu, sem haldin er á fimmtu-
dagskvöldum kl. 20.30. Það er
rétt að láta heimilisfangið fylgja
hér með ef einhver ykkar vildu
heimsækja klaustrið:
10 rue Porte de Buc
F— 78 000 Versailles.
Símar: (3) 951-2562 og (3)
951-0486.
Tekið er fram að ekki er nauð-
synlegt að kunna franska tungu
til að dveljast þar í nokkra daga
og að allir eru hjartanlega vel-
komnir. Ef einhver ykkar skyldu
velta því fyrir sér hvort „allir"
séu bæði karlar og konur eða
einungis konur verð ég að viður-
kenna að ég er líka að velta því
fyrir mér og hef ekki hugmynd
um það.
Klaustrið í Noregi
í haust munu 4—5 systur frá
klaustrinu í Versölum koma til
Noregs og hefja klausturstarf
þar eftir fyrirmynd frá klaustr-
inu í Versölum. Til þess að
byggja klaustur þarf samfélag,
sem er borið uppi af hefð og
reynslu, segir f bréfunum.
Klaustrið verður í Tunhovd í ör-
ve Numedal, sem er um 200 km
frá Osló. Það hefur bæði kosti og
galla að byggja klaustrið svo
langt frá þéttbýlinu en þarna
eru góðar samgöngur við Osló,
Bergen og Kristiansand. Söfnuð-
urinn, presturinn og sóknar-
nefndin í örve Numedal ætlar að
taka á móti systrunum og styðja
starf þeirra eftir mætti en
klaustrið verður hluti af starfi
norsku kirkjunnar og biskupinn
í Osló mun tilnefna 1 af 4 aðilum
í stjórn þess. Hinir í stjórninni
eru tilnefndir af aðalstjórn Dí-
akonissuhússins (Lovisenberg),
Vinahópi Díakonissuklausturs-
ins og klaustrinu í Versölum.
Margt áhugafólk í kirkjunni
vinnur nú að því að klaustrið
megi rísa sem fyrst á lóðinni í
örve Numedal. Systurnar frá
Versölum munu líka halda
Hin sígildu klausturheiti
hafa aftur fengið hljómgrunn
á okkar tímum.
Fátœkt
— líf í næyjusemi án persónulegra eigna
— leið til innrafrelsis
— hljóð mótmœli gegn efnishyggju samtímans
Skírlífi
— köllun til að vígja sig alla, allan til þjónustu fyrir Guð og
náunga sinn
— tákn um heild. í sundruðum heimi
—staðhæfing um að leyndardómurinn tilheyrir raunveru-
leikanum
— ogað vilji er til að gefa honum rúm
Hlýðni
— æfing í því að játast lifinu og kröfum þess með þyí að
játast Drottni lifsins og neita sjálfsdýrkun og eigingimi.
Systur talast við, alls óskyldar en þó tengdar traustum böndum, önnur úr
mótmælendaklaustri í Prakklandi, bin i Kamerún.
áfram að vinna ötullega að því
en í byrjun munu þær dveljast í
Osló og starfa að þjónustustarfi
sínu þar.
Hvað er klaustur?
í bæklingi, sem fylgdi bréfun-
um, er kynning á hinu fyrirhug-
aða klaustri. Þar segir: Évangel-
ískt klausturlíf — leið fárra en
lífslind margra.
Klaustur
— er staður kyrrðar
— bænar og lofsöngs
— starfs og samfélags
— baráttu og friðar
Staður, sem er vígður Drottni
kirkjunnar, staður, þar sem
kyrrðin skapar hljómgrunn fyrir
orð Guðs.
Klaustur er líka staður þar sem
þreyttar og önnum kafnar
manneskjur geta komizt aftur að
uppsprettu nýs lífs, nýrra krafta
og nýs hugrekkis á veginum
framundan.
Klausturlíf
er eitt þeirra lífsforma, sem
hægt er að velja. Þar er unnt að
æfa sig í því að „lifa náð skírnar-
innar“ (Lúter).
í *tki
: \j? L.
Hvunndagurinn er oftast blanda af gleði og streitu. Mörg vildu vita af
stað, þar sem þau gætu endurnýjað hversdagsþrekið við og við og komið
til baka með nýjan frið, eða öllu heldur gamla, góða friðinn.
Keflavík:
Félagasamtök reisa minnis-
varða um Helga S. Jónsson
Keflavík, 2«. júlí.
FYRIR nokkrum dögum var byrj-
að að reisa minnisvarða við skáta-
heimilið í Keflavík. Er hann reist-
ur til minningar um Helga S.
Jónsson sem er landskunnur fyrir
störf sín að félagsmálum. Það eru
Skátafélagið Heiðarbúar, St.
Georgs-gildið í Keflavík, Gilwell-
skátar, Rotaryklúbbur Keflavíkur,
Ungmennafélag Keflavíkur,
Björgunarsveitin Stakkur og Fé-
lag slökkviliðsmanna í Keflavík
sem standa fyrir byggingunni
ásamt Keflavíkurbæ, en Helgi var
mikilvirkur meðlimur og foringi í
öllum þessum félögum.
Minnisvarðinn verður 2,2 m há
varða á allstórum hraunhól um-
luktum áttavitarós, en umhverfis
verður hellulagt göngusvæði með
bekkjum. Á suðurhlið vörðunnar
verður andlitsmynd af Helga, gerð
af Erlingi Jónssyni, og áletraður
skjöldur.
Þeir sem standa að byggingu
minnisvarðans hafa ákveðið að
leita til vina og samherja Helga
um stuðning við verkefnið. Tekið
verður við framlögum í Spari-
sjóðnum í Keflavík, Bókabúð
Keflavíkur, Verzlun Þórðar Þórð-
arsonar Suðurgötu 36 Hafnarfirði
og hjá Franch Michelsen úrsmíða-
meistari Laugavegi 39 Reykjavík.
Á þessum stöðum munu liggia
frammi listar sem stuðningsmenn
skrá nöfn sín á, en listarnir verða
síðan birtir í veglegri bók um
Helga S. Jónsson.
Minnisvarðinn verður afhjúpað-
ur 21. ágúst nk., og um leið verður
opnuð sýning í skátahúsinu á mál-
verkum eftir Helga, ásamt vísi að
skátaminjasafni en uppistaðan í
því eru munir úr eigu Helga. Mun-
ina hefur ekkja hans, Þórunn
Ólafsdóttir, afhent skátafélaginu
til varðveislu.
Þess má geta að Helgi S. Jóns-
son var um langt árabil fréttarit-
ari Morgunblaðsins í Keflavík.
EFI
Framkvæmdanefndin sem stendur að byggingu vörðunnar. Frá vinstri: Haf-
steinn Guðmundsson, Guðleifur Sigurjónsson, Bjöm Stefánsson og Margeir
Jónsson. Á myndina vantar Jakob Arnason.