Morgunblaðið - 28.07.1985, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985
t
Móðir okkar,
K ARÓLÍNA MARGRÉT HAFLIDADÓTTIR,
andaöist í Elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi, 26. júií.
Halldóra Skúladóttir,
Vilhjólmur G. Skúlason.
t
Móöir okkar,
ÓLÖF STEFÁNSDÓTTIR,
Ásavallagötu 65,
sem andaöist 23. júli, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 29. júlí kl. 10.30.
Systkinin.
t
Útför
SIGRÍÐAR ÖNNU JÓNSDÓTTUR
fró Helgadal,
Dalbraut 27, Reykjavík,
veröur gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 30. júli og hefst athöfn-
in kl. 10.30.
Vandamenn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
LILJA BJARNADÓTTIR,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 31. júlí kl.
15.00.
Sjöfn Zophoníasdóttir,
Soffía Zophoníasdóttir,
Bjarni Zophoníasson,
Herdís Zophoníasdóttlr,
Gunnar M. Steinsen,
örn Þór Karlsson,
Margrét Jónsdóttir,
Páll Tryggvason
barnabörn.
t
Útför >
HJARTAR NIELSEN,
Baröaatrönd 11,
veröur gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 30. júlí kl. 13.30.
Erna Nielsen,
Svala Nielsen,
Sophus Nielsen.
t
Faöir okkar og tengdafaöir,
SIGURGEIR HALLDÓRSSON,
Hratnistu, Reykjavik,
áður Þórsgötu 10,
veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju mánudaginn 29. júli kl. 13.30.
Eyþór Óskar Sigurgeirsson,
Guóbjörg Sigurgeirsdóttir,
Halldór Sigurgeirsson,
Oddrún Sigurgeirsdóttir,
Sigríóur Sigurgeirsdóttir,
Hrafnhildur Sveinsdóttir,
Klara Sigurgeirsdóttir,
Þórey Björnsdóttir,
Þorsteinn Auöunsson,
Kristján Andrósson.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, fósturfaöir og tengdafaöir,
ÞORSTEINN JÓHANNSSON,
frá Búöardal,
til heimilis aö Furugeröi 1,
Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju miövikudaginn 31. júlí
kl. 13.30. Jarösett verður í Gufuneskirkjugaröi.
Guöríöur Guóbrandsdóttir,
Gyöa Þorsteinsdóttir, Guömundur Á. Bjarnason,
Siguröur Markússon, Inga Árnadóttir,
Halldóra Kristjánsdóttir, Hannes Alfonsson.
Jakob S. Kvaran
Akureyri - Minning
Hniginn er í valinn gamall
góðborgari frá Akureyri, Jakob S.
Kvaran.
Kvaran, eins og hann var löng-
um kaliaður, var Austfirðingur að
ætt, sonur Sigurðar læknis Kvar-
ans og konu hans. Hann kom ung-
ur að árum til Akureyrar, þar sem
hann festi rætur.
Kvaran var framkvæmdamað-
ur, honum féll aldrei verk úr
hendi. Hann setti á stofn fyrstu
skóverksmiðju á Akureyri, og
hafði um tíma mikil umsvif og
margt fólk í vinnu. Sútun fékkst
Kvaran einnig við, einkum á
roðskinnum en þau voru í tízku á
stríðsárunum þegar erfitt var um
annað hráefni til skógerðar. Mörg
áhugamál voru honun hugleikin,
listrænn eins og hann var. Tónlist-
in var eitt af áhugamálum hans og
hann samdi létt lög. Mesta áhug-
amál hans mun þó hafa verið frí-
merkjasöfnunin og var hann
ásamt þeim bræðrum, Jónasi
lækni og séra Friðrik Rafnar, einn
sá fyrsti hér á landi sem fékkst við
þetta tómstundagaman. Kvaran
fluttist til Danmerkur árið 1949.
Þar kynntist hann eftirlifandi
konu sinni, Emelie Kvaran, fædd
Aalling, og reyndist hún honum í
alla staði frábær lífsförunautur,
og var umhyggja hennar fyrir
„gamla manninum" mjög rómuð.
Síðustu árin bjuggu þau hjón á
Spáni hálft árið, en Kvaran reisti
þar myndarlegt hús á sólar-
ströndinni árið 1961. Þar er eftir-
sjá að litríkum persónuleika.
Ég var þeirar gæfu aðnjótandi
Magnús S. Jóns
son — Minning
Fæddur 2. nóvember 1894
Dáinn 22. júlí 1985
Listamaðurinn Magnús S.
Jónsson andaðist á Borgarspítal-
anum 22. þ.m. En listamann nefni
ég Magnús bókbindara vegna þess
góða handbragðs og vandvirkni
sem gætti í starfi hans.
Magnús og tvíburabróðir hans,
Ásgeir Lárus, fæddust á Þingeyr-
um í Húnaþingi þann 2. nóvember
1894. Þeir voru yngstir af 10 systk-
inum, börnum Jóns ÁsgeirsSonar
bónda þar. Alsystkinin voru fimm
og móðir þeirra var Guðbjörg
Árnadóttir frá Sigríðarstöðum á
Vatnsnesi í Vestur-Hópi. Afi
Magnúsar, Ásgeir Einarsson, var
þingmaður Strandamanna og
Húnvetninga í 22 ár á árunum
1845—1885. Auk þess að búa stóru
búi var hann hvatamaður og vann
að byggingu Þingeyrarkirkju, sem
hefur sérstöðu í húsagerð. En því
er minnst á þetta að arfur feðr-
anna setti mark á Magnús. Hann
var stórbrotinn í lund, traustur
maður og mátti ekki vamm sitt
vita í neinu.
Þegar þeir bræður, Magnús og
Ásgeir, voru um tveggja ára aldur
veiktist faðir þeirra og var þá
Magnúsi komið fyrir á Eyjólfs-
(---------------------------s
Kransar og
kistuskreytingar.
Sendum um allt land.
LANGHOLTSVEGI 89 SlMI 341II
stöðum í Vatnsdal en Ásgeiri að
Sveinsstöðum í Sveinsstaðahreppi.
Fósturforeldrar Magnúsar voru
merkishjónin Steinunn Steins-
dóttir og Jónas Guðmundsson sem
bjuggu þar myndarbúi. Hann ólst
þar upp við öll algeng sveitastörf
og minntist fósturforeldra sinna
með miklum hlýhug.
Ævistarf sitt, bókbandið, lærði
Magnús hjá Sigfúsi bónda í For-
sæludal í Vatnsdal. Einnig stund-
aði hann búfræðinám við bænda-
skólann á Hólum.
Á sínum yngri árum starfaði
hann talsvert með bróður sínum,
Ásgeiri, vatnsvirkjafræðingi m.a.
við mælingar á Flóaáveitunni. Þá
áttu þeir bræður góða hesta og
höfðu yndi af eins og þeir áttu kyn
til, en faðir þeirra var hinn lands-
kunni hestamaður Jón á Þingeyr-
um. Af honum og hestum hans eru
til margar skráðar sögur.
Á árunum í kringum 1932 unnu
þeir bræður við mælingar í Land-
eyjum og tjölduðu í túnfætinum á
Búðarhóli. Yngsta heimasætan á
bænum, Oddrún, mun iðulega hafa
fært tjaldbúum kaffi og annað
góðgæti. Þessi kynni leiddu til
brúðkaups Oddrúnar og Magnúsar
haustið 1932. Foreldrar Oddrúnar
voru Einar Nikulásson og kona
hans, Valgerður Oddsdóttir.
Magnús og Oddrún eignuðust
þrjá syni. Elstur er Steinn Valur
viðskiptafræðingur og aðstoðar-
bankastjóri í Verzlunarbankan-
um. Ásgeir Örn er næstelstur.
Hann er járnsmiður hjá Sindra-
smiðjunni. Yngstur er Einar Már
bifvélavirki hjá Þ. Jónssyni. Einn-
ig ólu þau upp son Einars, Ara Má,
sem kom til þeirra á öðru ári.
Hann stundar nú nám við Kaup-
mannahafnarháskóla.
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
8 S.HELGASON HF STEINSMKUA SKÐJMUVEGI 48 SiMI 76677
að þekkja Kvaran í hálfa öld. 1
leiðarlokin kveð ég þennan aldna
vin minn, og sendi eftirlifandi
konu hans og syni, Pétri, mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Richardt Ryel
Oft var leitað til Magnúsar þeg-
ar binda þurfti inn verðmætar
bækur eða þegar gefa átti bækur í
skrautbandi við hátíðieg tækifæri.
Ennfremur batt hann mikið inn
fyrir opinberar stofnanir.
Magnús átti nokkurt safn góðra
bóka, sem bera handbragði hans
vitni og var honum mjög kært.
Hann varði frístundum sínum
til bóklesturs og ferðalaga. Mest
yndi hafði hann af ljóðalestri,
þjóðlegum fróðleik og ferðasögum.
Magnús var útivistarmaður af
lífi og sál og ferðaðist um landið
þvert og endilangt, hálendið jafnt
sem byggðir fram á háan aldur.
Hann naut þess mjög að ganga á
fjöll. Hann var fastagestur í Land-
mannalaugum áratugum saman.
Þegar ég undirritaður, sem er
bróðursonur hans, horfi til baka
og rifja upp kynni mín af Magnúsi
þá sé ég eftir því um seinan að
hafa ekki notað betur þau tæki-
færi sem ég hafði til þess að kynn-
ast honum, en raun varð á. Ég veit
að faðir minn, Ásgeir L., hafði
miklar mætur á honum. Ur æsku
minni man ég eftir því hvað ég
hlakkaði alltaf til jólaboðanna á
fallegu heimili þeirra á Hverfis-
götunni nr. 102b en þar bjuggu
þau í tæp 40 ár. Þar mætti ég
ávallt miklum hlýhug og má til
gamans geta hvað mér fannst
Oddrún vera falleg kona og hélt ég
alltaf að hún hlyti að vera frænka
mín. Allar götur síðan til fullorð-
insáranna, þrátt fyrir alltof lítil
samskipti, hef ég vitað að mér hef-
ur fylgt vinarhugur Magnúsar og
fjölskyldu hans.
Ég votta fjölskyldu hans inni-
lega samúð mína.
Þegar ég kveð kæran föðurbróð-
ur þá man ég síðast eftir honum í
sundlaugunum, gömlum manni
með fullri reisn sem hann ávallt
hafði.
T.Á.
flD PIOIMŒER
....OG BÍLLINN merdur eins og hlkSvileimhöll á hjólum