Morgunblaðið - 02.08.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1985
Myndbðnd
Sæbjörn Valdimarsson
B 5
Útivistarakálinn í Básum í Þórsmörk.
Gönguferðir
úrBásum
Þórsmörk dregur til sín fjölda feröamanna hvert sumar.
Náttúrufegurö þarna um slóöir er gífurleg og endist vart
mannsævin til aö skoöa svœöiö til hlítar. Flestir halda
sig þó noröan Krossár, en sunnan árinnar, í Goöalandi,
er ekki síöur mikil náttúrufegurö, líklega er þar hrika-
leikinn meiri.
i skjóli Réttafells og Útigöngu-
höföa eru Básar, skjólsæll og
sólríkur staöur, skrýddur
gróskumiklum birkitrjám. Og þar
er Hattur, sérkennilegur kletta-
haus. Undir honum eru bygging-
ar feröafélagsins Útivistar, stór
og fallegur skáli, sem rúmar um
80 manns í gistingu. Þar er einn-
ig lítill skáli fyrir um 15 manns og
er hann opinn yfir vetrartímann.
Þarna er einnig snyrtihús með
fullkominni salernisaöstööu og
sturtum. Eftirtektarvert er
hversu Útivistarfólki hefur tekist
aö fella byggingar sínar inn í um-
hverfið.
Tilvaliö er aö dvelja nokkra
daga í Goöalandi og gista í Úti-
vistarskálanum. Félagiö skipu-
leggur feröir í Þórsmörk á föstu-
dögum, sunnudögum og miö-
vikudögum og hentar því prýöi-
lega aö dvelja á milli feröa á
staönum. Kosturinn er sá aö
ekki er nauösynlegt að binda
dvölina viö helgar. Skálaverðir
eru í Útivistarskálanum yfir
Ísumarmánuöina til umsjónar og
leiðbeiningar. Veita þeir einnig
upplýsingar um gönguleiöir í
nágrenninu auk þess sem skipu-
lagöar eru gönguferöir meö far-
arstjóra um helgar.
Auövelt er aö ganga á Rétta-
fell. Fariö er inn í Bása og lítill
stígur á milli trjánna þræddur.
Þegar upp úr skóginum er komiö
liggur leiðin aö fjallinu þar sem
auöveldast er upp á fjallið.
Göngutíminn er u.þ.b. 45 mínút-
ur og er þá rólega fariö.
Sé ætlunin aö ganga á Úti-
gönguhöföa má fara upp á svip-
uöum staö og þegar fariö er á
Réttafell. Þaöan er þó nokkur
spölur eftir hálsinum aö fjallinu.
Þessi háls skilur aö Bása og
Hvannagil. Af hálsinum og upp á
tind er um 400 m hækkun, enda
er Útigönguhöföi um 805 m hár
og með hæstu fjöllum í Þórs-
mörk. Þó Útigönguhöföi sé
brattur er uppgangan auöveld.
Af öörum stööum má nefna
Strákagil sem er austan viö Úti-
gönguhöföa. Þar eru sérkenni-
legar móbergsmyndanir og má
sjá alls kyns furöuverk sem nátt-
úran hefur þar skapaö.
Skuggi yfir
ATLANTA
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
BARNAMORÐIN í
ATLANTA ★★★
Leikstjóri John Erman.
Tónlist Billy Goldenberg.
Handrit og framleiðandi:
Abby Mann.
Kvikmyndataka: Victor J.
Kemper.
Klipping: Neil Travis.
Aöalhlutverk: James Earl
Jones, Martin Sheen, Jason
Robards, Jr. Rip Torn, Ruby
Dee, Calvin Lebels, Morgan
Freeman, Lynne Moody,
Gloria Foster, Paul Benjamin.
Bandarísk frá Finnegan Ass-
ociates/Metromedia. Tvær
spólur, samt. 41A klst.
Mörgum er sjálfsagt í fersku
minni efni þessarar þáttaraöar,
skugginn sem hvíldi yfir Atlanta-
-borg á þriöja ár á meðan morö-
ingi eöa moröingjar myrtu á
fimmta tug ungra negradrengja.
Myndin fylgir atburöarásinni frá
fyrsta morðinu, síöan rannsókn
glæpanna og lengstur hluti
hennar eru réttarhöldin yfir hin-
um grunaöa, Wayne Williams.
Barnamoröin í Atlanta er
átakanleg og framúrskarandi vel
gerö í alla staöi. Þar sem hún
fylgir sönnum atburöum út í ystu
æsar, (reyndar er örfáum per-
sónum hnýtt við efnisþráöinn),
hlýtur hún aö skilja fáa eftir
ósnortna.
Svo virðist sem lögregluyfir-
völd Atlanta hafi veriö komin í
blindgötu varöandi lausn þessa
óhugnanlega máls þegar hiö
ólíklega moröingjaefni, Williams,
var handtekinn. Mikiö skelf-
ingaræöi haföi gripiö um sig
meðal borgarbúa, en í Atlanta er
meirihluti borgarbúanna þel-
dökkur og svo er einnig borgar-
stjóri hennar og lögreglustjóri.
Sá síöarnefndi er nýbúinn að
taka viö embætti er morðaldan
hófst, 1981, og var búinn aö þola
haröa gagnrýni frá ýmsum
starfsbræörum sínum og fyrir-
rennurum. Sökum þessa var
hann undir margfaldri pressu viö
lausn málsins.
Þegar svo lögreglan loks greip
Wayne, létti af henni (og borgar-
búum), þungu fargi og svo virðist
sem hinn tvítugi, þeldökki at-
vinnuleysingi hafi veriö blóra-
böggull, því myndin upplýsir
tvær stórfurðulegar staöreyndir:
Wayne var dæmdur á likum, á
hann fundust engar sannanir og
þá var hann ákæröur og dæmd-
ur fyrir morö á aöeins tveimur
fórnarlambanna. Eftir sakfelling-
una skipaði síöan saksóknari
borgarinnar svo fyrir aö frekari
réttarhöld í málaferlum allra
hinna fórnarlambanna væru Atl-
anta alltof dýr og málið væri þar
meö látiö niður falla. Borgaryfir-
völd töldu sig hólpin meö þenn-
an kattarþvott.
Þetta er lygilegur sannleikur.
Sú ályktun sem maöur dregur
eftir aö hafa séö myndina er aö
höfundar hennar hafi til hins ítr-
asta reynt aö segja sem réttast
og sannast frá atburöum. Hvorki
Williams né aörar persónur
þessa harmleiks eru sýndar í
verra né betra Ijósi. Maöur er aö
lokum jafnnær um hvort hinn liö-
lega tvítugi Wayne Williams er
sekur eöa ekki. Hjá flestum
vaknar þó sjálfsagt grunur um
að Williams sé mun frekar sak-
laus. Þaö er annar glæpur þess-
ara sérstæöu réttarhalda, hinn
er aö öll fórnarlömbin voru sölt-
uö í dómabók Atlanta-borgar.
Sem fyrr segir er Barnamorö-
in í Atlanta fyrst og fremst rétt-
arsalsdrama, enda hefur ágætur
leikstjóri valiö nokkra velsjóaða
leiksviösgarpa í aöalhlutverkin,
Jason Robards, Rip Torn og
James Earl Jones. Þaö þarf ekki
aö orðlengja þaö aö þeir standa
sig meö fyrirframvituöum ágæt-
um og hjálpa mikiö til aö gera
myndina eina þá bestu um þenn-
an efniviö ailt frá Inherit the
Wind. Aðrir ágætisleikarar gefa
þeim lítiö eftir, þessi hópur hefur
verið valinn af stakri kostgæfni
og færa þessari 4'A tíma löngu
mynd óvenju trúverðugt yfir-
bragð.
Þáttur handritshöfundarins,
Abby Mann, er sterkur, samtölin
kjarnyrt og hnitmiðuö, frásögnin
rennandi og þularformiö heppi-
legt. Kvikmyndataka Kempers
útsjónarsöm í þröngum réttar-
salnum. En skugga barnamorö-
anna hefur ekki enn létt af Atl-
anta-borg.
Guöjón Ketilsson og Kolbrún, fagnandi mót ítalskri sól.
i Altamura.
„Endanlegur veröur hann líklega
um 10 milljónir islenskra króna,“
segir Þorgeir, „og heföi reyndar
oröiö töluvert meiri ef myndin
heföi alfariö veriö gerö hér á is-
landi.* Hór skýtur Kolbrún inn í að
sem dæmi hafi Matthías kokkur
gersamlega fríkaö út á ávaxta-
mörkuöunum ítölsku eftir aö hafa
uppgötvaö aö þar gat hann keypt
kassa af ferskjum á sama veröi og
tvö stykki á íslandi.
„Eignarhlutur okkar í myndinni
er til helminga viö þann þýska,
þannig aö á okkur hvíla töluverðar
skuldir, fyrir utan fjögurra mánaöa
vinnu, sem var ekkí launuö nema
aö litlu leyti,“ heldur Þorgeir áfram.
„Nú til þess aö geta frumsýnt
myndina, auglýst og dreift þurfum
viö aö geta borgaö bæöi þær
skuldir sem hvíla á okkur í dag og
fyrirsjáanlegan kostnaö og treyst-
um í þvi tilviki, eins og fleiri, á
Kvikmyndasjóö."
—Hvenær verður myndin frum-
sýnd?
„Þaö veröur alheimsfrumsýning
hér um jólin,” segir Kolbrún, „en
viö hugsum myndina fyrir íslensk-
an, þýskan, ítalskan og enskan
markaö. Enda hluti af „plottinu“ aö
hafa myndina á öllum þessum
tungumálum. Eins erum viö þarna
aö velta svolítiö fyrir okkur spurn-
ingunni um landamæri — hvort
þjóöirnar séu í raun svo ólíkar? En
islenska hlutanum tilheyrir ekki
einungis þaö sem viö gerðum fyrir
framan og aftan vélarnar á ítalíu.
Tónlistina fyrir leikritiö samdi Egill
Ólafsson og hún ásamt leikritinu
kemur til meö vera rúmlega tutt-
ugu mínútur af myndinni."
—í lokin, hvaöa reynslu standiö
þiö meö eftir kvikmyndageröina?
„Fyrir mig sem kvikmyndagerö-
armann var þetta alveg ný reynsla,
bæöi var maöur þarna aö sjá nýja
hluti, vinna í fyrsta sinn aö þessari
tegund kvikmyndar sem gerist
víösvegar og enginn fastur sama-
staöur er á, og síöast en ekki síst
aö kynnast heilli þjóö á einu
bretti," svarar Þorgeir og Kolbrún
tekur viö: „Fyrir okkur í Svörtu og
sykur<ausu var reynslan tvíþætt.
Viö vorum öll þarna aö leika i
kvikmynd í fyrsta sinn nema Ha-
nna María og i raun get ég ekki
sagt eftir þetta hvernig þaö er aö
leika í kvikmyndum. Þessi mynd
var einstök út af fyrir sig, eins og
allar kvikmyndir hljóta aö vera. En
reynslan sem ég get tengt viö
eitthvaö sem ég þekki var leikritiö.
Sú reynsla er kannski dálítiö svíf-
andi á rósrauðu skýi eftir feröina.
Þarna lékum viö fyrir opnum and-
litum, engum hornaugum eins og
stundum gerist hér, þar sem fólk á
þaö til aó vera svolítiö settlegt og
horfa á hlutina meö fyrirvara. Síö-
an er bara reynslan af því aö
ganga inn i svona lítiö sextán
manna samfélag í einhverjum
heimi sem er svo langt frá manns
vanalega. Heimi þar sem maöur
haföi engar áhyggjur af islenskum
víxlum, fjölskyldunni eöa kvöld-
matnum. Þarna mættust tveir hóp-
ar fólks á svipuðu reki, sem hvor
um sig þekktist vel innbyröis, og
náöu vel saman í heildina," seg-
ir Kolbún. Og þá er bara aö bíða
og sjá heildarmynd ævintýrisins í
desember.
L