Morgunblaðið - 02.08.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1985
B 15
er ókeypis en sýningarskrá taest hjá
gæslukonu á staönum. Sýningin
mun standa fram I september.
SAMKOMUR
Naustiö:
Píanóleikari
og söngvari
Cab Kaye, planóleikari og söngv-
ari, skemmtir I Naustinu I kvöld, ann-
aö kvöld og sunnudagskvöld.
Kaye veröur einnig aö skemmta
þar um næstu helgi frá fimmtu-
dagskvöldi til sunnudagskvölds.
Hann á um þessar mundir 50 ára
starfsafmæli.
Pöbb-lnn:
Hljómsveitin
Rock-óla
Hljómsveitin Rock-óla leikur fimm
daga vikunnar á Pöbb-lnn, Hverfis-
götu 46, það er aö segja frá miö-
vikudegi til sunnudags. Meölimir
hljómsveitarinnar eru Agúst Ragn-
arsson, Bobby Harrison, Pálmi Sig-
urhjartarson og Rafn Sigurbjörns-
son.
Hótel Borg:
Orator meö dansleiki
Hótel Borg hefur tekiö stakka-
skiptum og þar fara nú aftur fram
dansleikir á vegum Orators. Þaö
verður bryddaö upp á ýmsum nýj-
ungum, en andi slöastliöins vetrar
mun svlfa yfir vötnum.
LEIKLIST
Tjarnarbíó:
„Light Nights“
Qórum sinnum
íviku
Feröaleikhúsiö sýnir nú „Light
Nights" fjórum sinnum I viku I Tjarn-
arbíói viö Tjörnina: Fimmtudags-,
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld og hefjast sýningarnar
klukkan 21.00.
Light Nights-sýningarnar eru sér-
staklega færöar upp til skemmtunar
og fróöleiks fyrir erlenda ferðamenn.
Efniö er allt (slenskt, en flutt á ensku.
Sýningin gefur innsýn I Islenskt
menningarllf gegnum aldirnar.
Undanfarna tvo mánuöi hefur
veriö unniö aö endurnýjun á mörg-
um atriðum sýningarinnar. Má þar
nefna nýjar upptökur á allri tónlist og
leikhljóðum unnar af Gunnari Smára
Helgasyni. Meö nýrri tækni eru nú
skyggnur og tónlist samhæfö I um-
sjá Magnúsar S. Halldórssonar.
Skyggnum hefur veriö fjölgaö um
helming frá slöustu uppfærslu og
hafa þær flestar veriö teknar af
Heröi Vilhjálmssyni Ijósmyndara og
Ömari Ragnarssyni fréttamanni.
Asamt fjölmörgum listamönnum
sem hafa lagt þessari uppfærslu liö
má nefna Jón Guðmundsson, mynd-
listarmann, séra Gunnar Björnsson,
sellóleikara og Robert Berman.
Leikhússtjórar eru Halldór
Snorrason og Kristln G. Magnús,
sem jafnframt er sögumaöur Light
Nights. Sýningar veröa út ágúst-
mánuö.
FERÐIR
Ferðamálasamtök
Suðurnesja:
Vatnsleysuströnd,
Njarðvíkur, Keflavík,
Rosmhvalanes
Fyrsti viðkomustaöur er við
Straum, kapella heilagrar Barböru.
Ekið um Vatnsleysuströnd. Viðkoma
gerö viö Kálfatjörn og kirkjan skoð-
uö. A leið til Njarövlkna veröur gerö-
ur stuttur stans viö Snorrastaða-
tjarnir og á Grlmshól og ýmsar þjóö-
sögur rifjaðar upp sem tengjast nán-
asta umhverfi. Ekiö um Njarðvlkur
og Keftavfk og saga staöanna rifjuö
upp. Haldið út I Garö um Leiru og
þaöan sem leið liggur út á Hvalsnes
á slóöir séra Hallgrlms Péturssonar.
Þvi næst er ekið um Stafnes og
komiö við á Básendum, hinni fornu
verslunarhöfn frá tlma einokunarinn-
ar, sem er sföasti viðkomustaður áö-
ur en haldiö er til baka til Reykjavlk-
ur. En þangaö er áætlað að veröi
komiö um klukkan 17.30.
Léttur hádegisveröur á Glóðinni I
Keflavlk þar sem áætlaö verö er 250
krónur á mann. Brottför verður frá
Umferðarmiðstöðinni sunnudaginn
4. ágúst kl. 10.00. Verö er 500 krón-
ur fyrir fullorðna, 250 fyrir 12—15
ára. Frltt fyrir börn I fylgd með full-
orönum. Leiðsögn.
Ferðamálasamtök
Suðurnesja:
Eldeyjarsigling —
Ævintýraferö
Fariö veröur I Eldeyjarsiglingu
laugardaginn 10. ágúst. Siglt veröur
frá Sandgerðishöfn. Siglingin að
eynni tekur rúmar tvær klukkustund-
ir. Siglt veröur umhverfis eyna. Gott
tækifæri veröur til myndatöku og til
aö fylgjast meö fjölskrúöugu fuglallfi.
Veitingar um borö. Lagt verður af
staö frá Reykjavfk klukkan 7.00 og
frá Keflavlk klukkan 8.00. Komið
verður aftur úr siglingunni klukkan
16.00. Farþegum úr Reykjavlk og
Keflavik ekið til og frá borði. Leið-
sögn.
Nauösynlegt er að tilkynna þátt-
töku I feröina meö minnst þriggja
daga fyrirvara. Þetta veröur eina
feröin I eyna I sumar.
Nánari upplýsingar I slma 92-
4099.
Geysir í Haukadal:
Gos á laugardag
Akveöið hefur veriö aö setja sápu
I Geysi laugardaginn 3. ágúst nk.
klukkan 15.00 og má þá gera ráö
fyrir gosi nokkru slöar ef veðurskil-
yrði veröa hagstæö.
Ferðafélag íslands:
Helgar- og dagsferöir
I kvöld, föstudagskvöld, klukkan
20.00 verður farið til eftirtalinna
staða I helgarferðir: Landmanna-
laugar, Eldgjá, Þórsmörk, Fimm-
vörðuháls, Alftavatn, Hólmsárbotn-
ar, Hveravellir, Blöndugljúfur,
Skaftafell, Öræfajökull og Miöfells-
tindur.
Ekiö veröur um Sprengisand til
Mývatns og Jökulsárgljúfur skoöuö
o.fl. Laugardg klukkan 13.00 verður
ferö til Þórsmerkur og einnig á
mánudag er dagsferð þangað.
Brottför er klukkan 8.00.
Dagsferðir um verslunarmanna-
helgi eru á sunnudag klukkan 13.00.
Þá er ekið aö Höskuldarvöllum og
gengiö á Keili. Mánudag klukkan
13.00 er gönguferð á Reynivallaháls
og sföan ekið um Kjósarskarö aö
Þórufossi.
Klám-
drottningin
og
kvinnurnar
þrjár
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
LACE I OG II ★★
Bandarískir sjónvarpsþKttir á 2
spólum, alls 240 mín. Leikstjóri:
Billy Hale. Aðalhlutverk: Brooke
Adams, Bess Armstrong, Arielle
Dombasle, Phoebe Cates, Herbert
Lom, Honor Blackman, Angela
Lansbury, Anthony Quayle. Frá Lor-
imar, gerð 1984
Þessi ásjálegi eldhúsróman er
byggður á allþekktri metsölubók
Shirley Conran og kom út fyrir
nokkrum árum.
Myndin hefst í kvennaskóla í
Frakklandi, þar sem þrjár vinkon-
ur Armstrong, Adams og Dom-
basle, sem koma hver úr sinni átt-
inni, bindast sterkum vináttu-
böndum. Svo þegar ein þeirra
verður ófrísk og elur barn, þá sjá
þær til þess að enginn komist að
hinu sanna né hver sé hin rétta
móðir.
Árin líða. Samkvæmt sam-
komulaginu átti sú sem fyrst yrði
til að koma sér i álnir að vitja
stúlkubarnsins hjá fósturforeldr-
unum og ganga því í móður stað.
En þegar sex ár eru liðin fá þær
upplýsingar um að stúlkan sé lát-
in.
Tuttugu ár hafa nú liðið frá
fæðingu stúlkunnar og vinkonurn-
ar þrjár hafa allar spjarað sig með
miklum ágætum i lífinu. Ein
blaðaútgefandi, önnur öðluð
vísindamannsfrú, sem reyndar
missti af olíuprinsinum sínum, og
sú þriðja framleiðir kampavín i
striðum straumum. Þá kemur til
sögunnar ung klámmyndaleikkona
og yljar þeim undir uggum ...
Hér er á ferðinni ljómandi hag-
lega gerður sparöatíningur um
myrka fortíð, velgengni, hatur,
ást, vonbrigði, hefnigirni og und-
urblíða endurfundi. Bara að nefna
það og hér er það. Efnið er nánast
ómerkilegur hrærigrautur tilfinn-
inga og atvika. En þetta er allt
gert í áferðarfallegum glassúrstíl,
svo engum þarf virkilega að leið-
ast (nema á köflum), í þær fjórar
stundir sem sýning spólanna tek-
ur.
Þættir af þessari gerð njóta með
ólíkindum mikilla vinsælda víðs-
vegar um heimsbyggðina i dag.
Hér fær sauðsvartur almúginn
smá nasasjón af glamorlífi hinna
vellauðugu auk þess sem höfundar
þessara myndaflokka (bók-
mennta) eru snillingar í að hræra
saman fallegu fólki og framandi
stöðum.
Lace er þokkalega leikinn,
Phoebe Cates gerist þó óhugnan-
lega frekjuleg þegar hún á að sýna
dramatískustu tilþrifin. Tækni-
vinna öll og útlit myndarinnar af
Hollywood-gráðu Á. Gullhúðað
drasl.
Mia Farrow verst ásókn útsendara djöfulsins í Rosemary’s Baby.
Rósmaría og antikristur
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Einhver frægasta hrollvekja allra
tíma er Rosemuy’s Baby, mynd
snillingsins Roman Polanskis frá ár-
inu 1968 eftir samnefndri skáldsögu
Ira Levin. Hún hefur prýðilega stað-
ist tímans tönn þótt hún sé gerð þeg-
ar meiri áhugi og stemmning var
fyrir alls kyns dulhyggju, galdra-
kukli og djöflatrú en nú er.
Mia Farrow leikur Rosemary,
unga konu sem flytur með eigin-
manni sínum, metnaðarfullum
leikara sem ekki hefur of mikið að
gera, John Cassavetes, inní gamalt
sambýlishús i miðri New York.
Þar komast þau í kynni við ald-
urhnigna granna sína i næstu
íbúð, Ruth Gordon og Sidney
Blackmer, sem í fyrstu virðast
vingjamleg en hnýsin en eru i
reynd fulltrúar kölska. Þessu fólki
selur eiginmaðurinn konu sina til
að fæða barn sem á að þjóna alveg
sérstöku hlutverki i veraldarsög-
unni og fær i staðinn þann frama i
starfi sem hann sækist eftir.
Kannski er ég búinn að segja of
mikið um spennuþráðinn, en eðli
hans liggur tiltölulega fljótt i aug-
um uppi, eiginlega strax i titli
myndarinnar; það er meðferð
hans og úrvinnsla sem gera Rose-
mary’s Baby að jafn óhugnanlegri
reynslu og hún er. Þetta er flókn-
ari mynd en hún virðist i fljótu
bragði, vegur oft salt milli raun-
veruleika og súrrealísks draums,
full af trúarlegum táknum og fé-
lagslegri gegnumlýsingu. Kvik-
myndataka, klipping og tónlist
Krzysztof Komeda, félaga Pol-
anskis frá Póllandi, eru i fyllsta
máta taugaertandi og hlutverka-
skipan sérlega vel heppnuð. Ekki
sist eru þau Blackmer og Gordon
mögnuð sem hinir geðþekku
djöfladýrkendur, en Gordon fékk
Óskarsverðlaunin fyrir sinn leik.
Rosemary’s Baby fæddi af sér
mikla hrollvekjutisku i Hollywood
og varð átakanlega raunveruleg
þegar barnshafandi eiginkona
leikstjórans, Sharon Tate, var
myrt á hinn hroðalegasta hátt af
geðveiku djöflagengi Charles
Mansons stuttu síðar. Trúlega á
Rosemary’s Baby eftir að verða sí-
gild hryllingsmynd og er sannar-
lega ein sú besta sem hér má fá á
myndbandamarkaðnum.
Stjörnugjöf: Rosemary’s Baby ★★★
Ny sportvöruverslun með splunkunýjar vörur!
EKKERT OÞARFA STRESS
FYRIR VERSLUNARMANNAHELGINA i
^Viö höfum opið til kl. 21.00 á kvölclin og til hádegis á laugardaa
Á 160 fermetrum í verslun okkar við Eiðistorg 1^1
bíður þín Qölbreytt úrval I L|l
af fallegum og vönduðum. 1 .V,ctoRgm3-sími6H313
• íþrottagöllum • íþróttaskóm • Sundfötum • Bakpokum • Svefnpokum o.fl. o.fl. ' “ Næg bílastæði