Morgunblaðið - 30.08.1985, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
193. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
> MMHHp
•***»»
>
FUNDUR ÍLOFTI
Símamynd/AP
Atlantshafsbandalagið heidur um þessar mundir umfangsmiklar heræfingar á Norður-Atiantshafi og hafa Sovétmenn uppi mikinn
viðbúnað til að fylgjast með þeim. Hér er bresk þota af gerðinni „Lightning“ að fylgjast með ferðum sovéskrar fiugvélar, sem á ensku
er kölluð „Bear Charlie". Var myndin tekin yfir Norðursjó.
Háttsettur Austur-Þjóðverji
flýr til Vestur-Þýskalands
Grænland:
Sovétmenn
fara fram
a veioi-
heimildir
Kaupmannahöfn, 29. ágúst.
Frá N J. Bruun, Grænlands-
fréttaritara Morgunblaösins.
SOVÉTMENN hafa mikinn áhuga á
að fá veiðiheimildir við Grænland og
ræddu það mál við Lars Emil Johan-
sen, sem fer með sjávarútvegsmál í
grænlensku landstjórninni, þegar
hann var í Moskvu fyrir skömmu.
í grænlenska útvarpinu kom
fram að það sem Sovétmönnum lá
mest á hjarta í heimsókn Johan-
sens í Moskvu var að fá leyfi til
að veiða innan grænlenskrar fisk-
veiðilögsögu og höfðu þeir einkum
áhuga á grálúðu og slétthala eða
slétta langhala. Var haft eftir
Johansen að tekið hefði verið vel
í þessar hugmyndir Sovétmanna
og væntu Grænlendingar þess að
Sovétmenn keyptu þá af sér í stað-
inn selskinn, sem nú mega heita
óútgengileg vara á evrópskum
markaði.
Dagblöð segja flóttann tengjast njósnamálunum
Bonn, Vestur-Þýskaiandi, 29. ágúst. AP.
HÁTTSETTUR starfsmaður í aust-
ur-þýska utanríkisráðuneytinu hefur
flúið land og beöist hælis í Vestur-
Rúmenía:
Skyldu-
vinna
Búkarest, Rúmeníu, 29. ágúst AP.
SAMKVÆMT nýjum lögum,
sem ganga í gildi nú í haust,
verður öllum vinnufærum mönn-
um í Rúmeníu gert að vera í
þegnskylduvinnu í sex daga á
ári og færa ríkinu að auki árlega
upphæð, sem nemur allt að ein-
um þriðja af mánaðarlaunum.
Nýju lögin, sem verða tekin
til umræðu 10. sept. nk., kveða
á um, að allir vinnufærir menn
og konur, sem eru 18 ára eða
eldri, vinni kauplaust í sex
daga á ári við ýmiss konar
störf og er til þess ætlast, að
þegnskylduvinnan sé unnin á
sunnudögum eða á þeim laug-
ardögum, sem annars eru frí-
dagar. Auk þess verður hverri
fjölskyldu gert að leggja árlega
af mörkum til ríkisins allt að
3.700 kr. (ísl.) en það fer nokk-
uð eftir fjölskyldustærð. Þeir,
sem svíkjast um að mæta í
þegnskylduvinnuna, verða
sektaðir um rúmar 400 kr. á
dag.
Efnahagsörðugleikar eru
gífurlegir í Rúmeníu og flest
skammtað, matvæli, rafmagn
og olía. I landinu eru um fimm
milljónir fjölskyldna og er
áætlað, að þær muni þurfa að
leggja fram sem nemur allt að
10 milljörðum ísl. kr. Vinnu-
vikan í Rúmeníu er 46 stundir
og frí einn laugardag eða tvo
i mánuði.
Þýskalandi. Tvö vestur-þýsk dagblöð
segja, að flótti hans sé tengdur
njósnamálunum að undanfórnu en
talsmaður stjórnarinnar ber á móti
því. Vestur-þýskum gagnnjósna-
manni, sem var handtekinn í morg-
un, hefur verið sleppt úr haldi og er
hann ekki lengur grunaður um
græsku.
Jurgen Sudhoff, talsmaður
v-þýsku stjórnarinnar, sagði, að
Austur-Þjóðverjinn, Martin
Winkler að nafni, hefði verið
„háttsettur maður í austur-þýska
utanríkisráðuneytinu", og hefði
hann gegnt ábyrgðarstörfum víða
erlendis, t.d. í Suður-Ameriku og
á Kúbu. Dagblöðin Express í Köln
og Bild í Hamborg, sem þekkt eru
fyrir áreiðanlegar fréttir af mál-
um leyniþjónustunnar, sögðu í dag,
að Winkler hefði lengi unnið fyrir
Vestur-Þjóðverja og flúið af ótta
við uppljóstrun eftir að Hans
Joachim Tiedge, vestur-þýski
gagnnjósnamaðurinn, flúði austur
yfir. Sudhoff, talsmaður stjórnar-
innar, vildi hins vegar gera sem
minnst úr þessum fréttum.
Reinhard Liebetanz, vestur-
þýskum gagnnjósnamanni, sem
var handtekinn í morgun, var
sleppt síðdegis og liggur hann ekki
Nígería:
Daglegt líf
í fyrra horf
Abkljan. Fílabeinsntrbndinni, 29. áxúsl. AP.
NÝIR stjórnarherrar í Nígeríu leystu
enn í dag úr haldi 25 pólitíska fanga
og eru mál nokkur hundruð annarra
í athugun. Daglegt líf í landinu er nú
komið í sinni fyrri farveg og hafa
hafnir og flugvellir verið opnuð á ný.
Hans-Georg Wieck, nýskipaður yfir-
maður vestur-þýsku leyniþjónust-
unnar.
lengur undir grun um njósnir fyrir
Austur-Þjóðverja. í Vestur-Þýska-
landi og í Austurríki er nú hins
vegar leitað að öðrum manni,
Eberhard Severin, gömlum vini
Liebetanz, og er hann grunaður
um njósnir.
Helmut Kohl, kanslari, skipaði
í dag Hans-Georg Wieck, sendi-
herra Vestur-Þýskalands hjá
NATO, sem yfirmann leyniþjón-
ustunnar í stað Heribert Hellen-
broich, sem var vikið úr starfinu.
Talsmenn jafnaðarmanna, sem eru
í stjórnarandstöðu, segja, að brott-
rekstur Hellenbroichs sé ekki
nægjanlegur og krefjast þess, að
innanríkisráðherranum verði
einnig vikið frá. í gær voru aust-
ur-þýsk hjón handtekin i Bret-
landi, grunuð um njósnir, og önnur
í Sviss fyrir sömu sakir. Er síðar-
nefnda málið talið tengjast njósn-
unum í Vestur-Þýskalandi.
Blóðbaðí
Karlsruhe
Karlsruhe, V-Þýskalandi, 29. ágúst AP.
FJÓRIR menn létu lífið og
fimm særðust alvarlega þegar
maður nokkur tók að skjóta í
allar áttir á götu í Karlsruhe.
Maðurinn skaut á fólkið á
götunni úr bíl, sem hann hafði
stolið, en þegar skotfærin
þraut gafst hann upp fyrir
lögreglunni. Lágu þá fjórir í
valnum og fimm manns al-
varlega særðir. Morðin hófust
á bensínstöð þar sem maður-
inn skaut afgreiðslumanninn
til bana og stal síðan nálæg-
um bíl. Nokkru síðar keyrði
hann á annan bíl og tók þá
að skjóta á alla nærstadda.
Lögreglan vildi ekki segja
nafn mannsins né önnur deili
á honum. Þeir sem slösuðust
eru nú í sjúkrahúsi.
Suður-Afríka:
Alvarlegt ástand í
e fnahagsmálunum
Jóhannesarborg, London, 29. ágúst AP.
FIMMTÁN svartir menn a.m.k. létu í dag lífið í óeirðum,
sem stóðu fram á kvöld. Beitti lögreglan haglabyssum gegn
fólkinu en meðal þess voru margir skólanemendur. Suður-
afríski seðlabankastjórinn er nú væntanlegur til London til
viðræðna um skuldir landsins en vegna refsiaðgerða ýmissa
ríkisstjórna og ástandsins í landinu eiga stjórnvöld í miklum
vandræðum með að standa í skilum.
Mestu óeirðirnar voru fyrir utan
Höfðaborg þar sem handsprengju
var kastað inn á heimili stjórn-
málamanns sem er kynblendingur,
en svertingjar líta kynblendinga
ekki síður óhýru auga en hvíta
menn. Beitti lögreglan haglabyss-
um en mótmælendur svöruðu með
grjótkasti og bensínsprengjum.
Var einni slíkri sprengju kastað
inn í hús og fórst þá í eldinum
þriggja ára gamall drengur.
Dr. Gerhard de Kock, seðla-
bankastjóri Suður-Afríku, er
væntanlegur til London þar sem
hann mun eiga viðræður við full-
trúa Englandsbanka um ástandið
i efnahagsmálum landsins, sem er
ákaflega alvarlegt. Erlendar
skuldir eru miklar og aðeins á
þessu ári og því næsta eiga Suður-
Afríkumenn að endurgreiða lánar-
drottnum sínum 12 milljarða doll-
ara. Refsiaðgerðir ýmissa ríkis-
stjórna, verkföll og fjármagns-
flótti valda því, að gengi gjald-
miðilsins hefur fallið og stjórnvöld
sjá fram á að geta ekki staðið í
skilum.