Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 Hjúkrunarfræðingar á Akureyri fá 15 þús. króna aukagreiðslu Akureyri, 29. ágúut Fjórðungssjúkrahúsiö á Akureyri hefur ákveðiö að bjóöa hjúkrunar- fræðingum sem ráöa sig í fullt starf 15 þúsund króna launauppbót á mánuði. Veröur þetta í fyrstu gert til reynslu í fjóra mánuöi og þá metin sú reynsla sem f*st af þessari breyt- ingu. Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri FSA, sagði að undanfarið hefði sjúkrahúsið haft alltof fáa hjúkrunarfræðinga í fullu starfi eða aðeins um 15 af þeim 90 sem hjá þeim starfa. Þetta hefur leitt til þess að þeir sem væru í fullu starfi þyrftu að vinna mikla auka- vinnu. Því hefði stjórn FSA ákveð- Ráðstefna um íslensk- ar kvenna- rannsóknir sett í gær RÁÐSTEFNA um íslenskar kvennarannsóknir var sett í gærkvöldi í ráöstefnusal Odda. Anna Sigurðardóttir for- stöðumaður kvennasögusafns Íslands flutti ávarp og Anna G. Jónasdóttir hélt erindi er nefndist Kyn, vald og pólitík. Ráðstefnunni verður hald- ið áfram í dag og verður fjall- að um kvennarannsóknir í bókmenntum og sagnfræði. Fyrirlesarar verða níu tals- ins. Fyrir hádegi flytur Dagný Kristjánsdóttir erindið „Kon- ur og listsköpun", Ragnhildur Richter fjallar um baráttuna við bókmenntahefðina og Guðrún Kvaran gerir grein fyrir íslenskum samheitum um konur. Eftir hádegisverðarhlé seg- ir Þórunn Magnúsdóttir frá lögskráðum sjókonum á ís- landi 1891—1981, Hallgerður Gísladóttir verður með eld- húsþanka, Margrét Guð- mundsdóttir fjallar um upp- haf kjarabaráttu kvenna og Kristín Ástgeirsdóttir ræðir fræðslu um takmarkanir barneigna frá 1880 til 1960 í erindi er nefnist „Fyrst og fremst einkamál kvenna". Að loknum umræðum og kvöldverði verða einnig flutt- ir tveir fyrirlestrar. Þá mun Hrafnhildur Schram kynna listsköpun kvenna 1 máli og myndum og Kristín Jó- hannsdóttir fjallar um kon- una í kvikmyndum. Ráðstefnunni lýkur á sunnudaginn 1. september. og er opinn öllu áhugafólki um kvennarannsóknir. ið að gera þessa tilraun til að freista þess að fá fleiri hjúkrunar- fræðinga í fullt starf. Áætlað væri að útgjöld ykjust ekki við þessa breytingu þar sem dregið yrði á móti úr aukavinnu og að auki fengist miklu betri stjórnun á vinnuna og væntanlega betri hjúkrun. Starfsfólki hefur verið kynnt þessi launahækkun og sagð- ist Halldór vonast eftir góðum undirtektum þeirra sem fram til þessa hefðu aðeins verið í hluta- starfi. Mánaðarlaun hjúkrunarfræð- ings með nokkurra ára starfs- reynslu eru nú um 26 til 27 þúsund á mánuði. GBerg o INNLENT Kartöflu- grös að falla Vegna næturfrosU undanfariö hafa kartöflugrös falliö víöa um land. Að sögn ólafs Guðmundssonar í Kartöfluverksmiðjunni Þykkvabæ hafa grös fallið þar í sumum görð- um en í öðrum sér ekki á. Hann sagði uppskeruhorfur í meðallagi svo fremi að grösin fái að standa í um 10 daga í viðbót. Á öðrum stöðum á landinu er útlit fyrir að kartöfluuppskera verði með minna móti. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og Erna og Matthías Á. Mathiesen reyna vatnsrúm á Heimilissýning- unni í g*r. Morvunblaðið/GTK Heimilió >85; Um 800 boðsgestir við- staddir opnunarathöfnina SÝNINGIN „Heimilið ’85“ var forralega opnuð í Laugardalshöll síödegis í g*r, af viðskiptaráðherra, Matthíasi Á. Mathiesen, verndara sýningar- innar. Viöstödd var forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, auk um 800 boðsgesta. Athöfnin hófst kl. 17 með því að Jón Á. Eggertsson, fram- kvæmdastjóri heimilissýningar- innar, bauð gesti velkomna á þessa sjöundu heimilissýningu sem Kaupstefnan hf. hefur sett upp. Að því loknu tók viðskipta- ráðherra, Matthías Á. Mathie- sen, til máls. Sagði ráðherra m.a. í ávarpi sínu að sýningin „Heimilið ’85“ væri táknræn fyrir þær breyt- ingar sem víða hefðu orðið í verslunarháttum og ekki síst hér á landi. Bað hann viðstadda að vera þess minnuga að baráttan fyrir sjálfstæði þjóðarinnar hefði verið órjúfanlega tengd baráttunni fyrir frjálsri verslun. Að svo mæltu lýsti viðskipta- ráðherra sýninguna formlega opna. Þvínæst sýndu frönsku tísku- sýningarstúlkurnar tíu sýnins- horn af haust- og vetrarfatnað- inum frá Frakklandi undir stjórn Miky Engel. Að tískusýn- ingunni lokinni var gestum boðið að ganga um húsið og skoða heimilissýninguna. Sendiherra Frakklands á íslandi, Yves Mas, opnaði þá frönsku sýningard- eildina, sem nú er í fyrsta sinn á heimilissýningu, að viðstöddum viðskiptaráðherra, forseta Is- lands o.fl. Klukkan 18 var sýn- ingin „Heimilið ’85“ svo opnuð almenningi. Sameining BÚR og ísbjarnarins: Mögulegur rekstrarhagnaður eins árs um 14 milljónir króna Rekstrartap beggja fyrirtækjanna fyrsta hálfa árið um 50 milljónir króna ÁÆTLAÐ er aö hugsanlegur rekstrarhagnaöur fyrirtækis sem stofnað yrði meö samruna BÚR og ísbjarnarins geti á einu ári oröiö um 14 milljónir króna. Er þá miöað við ákveöið magn hráefnis, sölu ákveöinna eigna og fjárfestingu í staðinn og aukningu eigin fjár fyrirtækjanna um samtals 180 til 250 milljónir króna. Er þá reiknaö meö að tap á útgerð veröi 53 milljónir króna en hagnaður af vinnslu 67 milliónir miðað við aukningu heildartekna fiskvinnslunnar um 10 til 15%. Tap BUR var áriö 1984 141,4 milljónir króna, 48,6 á síöasta ári og áætlað 50 milljónir fyrri helming þessa. Sama tap er áætlað hjá ísbirninum fyrstu 6 mánuði þessa árs, en i fyrra var tap hans 81,6 milljónir króna og 54,9 áriö áöur. Þessa áætlun er að finna í skýrslu, sem unnin hefur verið um sameiningu eða samruna fyrir- tækjanna tveggja, en í henni er komizt að þeirri niðurstöðu, að samruni sé æskilegur. Helztu kostir þess eru taldir þeir, að stjórn hráefnisöflunar verði betri; Vorum aldrei í hættu r * — segir Olafur Björnsson, einn þriggja Islendinga, sem staddir voru í Nígeríu er bylting þar var gerð „ÞETTA var miklu frekar uppstokkun en bylting og fór mjög friösamlega fram. Viö vorum aö fara frá borginni Kaduna á þriðjudagsmorguninn, þegar okkur var tilkynnt um þetta og vorum þar aldrei í neinni hættu, þó för okkar seinkaði. Við verðum síðan hér í Lagos fram í næstu viku til aö kynna okkur hvaöa áhrif þessi breyting getur haft á möguleika okkar á skreiöarsölu. Um það er ekkert hægt aö segja strax, en þetta versnar varla,“ sagöi Ólafur Björnsson, stjórnarformaöur Skreiðarsamlagsins, er Morgunblaðið náöi síma- sambandi við hann í Lagos í g*r. „Það lá í loftinu að Buhari hefði viljað hætta og þar sem sá næst- æðsti var í pílagrímsför til Mekka tók Babangida sig til og settist i valdastólinn án átaka. Hinn al- menni landsmaður virðist láta sig þetta litlu skipta og blöðin óska Nígeríumönnum til hamingju með nýja ráðamanninn. Þetta er allt að færast í eðlilegt horf, flugvellirnir eru að opnast aftur og við vorum bara að koma frá Kaduna um miðj- an dag í dag. Til marks um róleg- heitin hér, vorum við bara stoppað- ir einu sinni á leið inn á hótel frá flugvellinum og það hefur oft verið gert meira af því á öðrum tímum," sagði Ólafur. ólafur er þarna á ferð á vegum skreiðarútflytjenda ásamt þeim Ragnari Sigurjónssyni og Bjarna Magnússyni. Hann sagði, að vel hefði farið um þá félaga í Kaduna, hvergi væri rólegra en þar. Þeir hefðu lent þar á mikilli hátíö mú- hameðstrúarmanna í lok föstunnar á mánudag, sem hefði verið líkust því að þeir hefðu verið komnir inn i „1001 nótt“. Emír staðarins hefði tekið á móti fólki með miklum há- tíðarbrag og hatíðahöld verið mik- il. nýting fjármuna verði betri, ef unnið verði á tveimur vöktum; stjórnunarkostnaður verði minni; möguleikar á sérhæfingu í vinnslu verði meiri; Vegna stærðar fyrir- tækisins verði hagkvæmara að auka sjálfvirkni og möguleikar á eigin markaðsöflun verði meiri. Helztu ókostir eru taldir mannleg vandamál vegna sameiningar og að söluverðmæti eigna sé lágt miðað við þá starfsemi, sem eign- irnar nýtist i nú. Líklegt sé að hallarekstur verði áfram á nýju sameiginlegu fyrirtæki nema for- sendur breytist frá því, sem nú sé. í fyrsta lagi þurfi söluverðmæti afurða að aukast. í öðru lagi þurfi að auka sérhæfingu með því að vinna í færri pakkningar en nú sé gert. í þriðja lagi þurfi að auka afköst á manntíma með meiri vélvæðingu. í fjórða lagi er lagt til að saltfisk- og skreiðarvinnsla verði í lágmarki eða lögð niður. Þá segir í skýrslunni að tveir kostir séu álitlegir um rekstur nýs fyrirtækis við samruna BÚR og ísbjarnarins: — Að sérhæfa hvort hús fyrir sig i ákveðinni framleiðslu. Selja megi töluvert af tækjabúnaði og nýta það fé, sem fáist til hagræð- ingar. — Að gefinni þeirri forsendu að hægt verði að vinna á tveimur vöktum og að viðunandi verð fáist fyrir Fiskiðjuver BÚR geti verið hagkvæmt að vinna allt hráefni í frystihúsi ísbjarnarins. Þeir annmarkar séu þó á þessum kosti, að breytingar þurfi að verða á flökunar- og pökkunarsal. Eins sé ólíklegt að sérhæfing verði eins mikil og með fyrri kostinum. Ekki verði hægt að vinna í verðmiklar, hægsnyrtar pakkningar þó vél- væðing í vigtun og pökkun komi til vegna plássleysis. Hugsanlegt sé að fyrri kostur- inn verði fyrsti áfangi samein- ingar og síðari kosturinn seinni áfangi ef nákvæmir útreikningar sýni að það sé hagkvæmt. Verði unnið í báðum frystihúsunum er áætlað söluverðmæti húseigna 80 milljónir króna og vélbúnaðar 30 milljónir. Á móti komi fjárfesting upp á 30 milljónir króna og mis- munur alls 80 milljónir króna. Verði vinnslan aðeins í húsnæði ísbjarnarins er áætlað söluverð- mæti eigna 166 milljónir króna en kostnaður samtals 49 milljónir og mismunur alls 117 milljónir króna. í skýrslunni kemur meðal ann- ars fram, að áhvílandi skuldir á Ottó N. Þorlákssyni, togara BÚR, nemi um 300 milíjónum króna, en skipið sé metið á 163,3 milljónir. Ennfremur kemur fram að rekst- ur Snorra Sturlusonar, einnig í eigu BÚR, sé afar óhagstæður. Til greina komi að selja það skip úr landi og kaupa annað í stað þess eða breyta í frystiskip. Ekki er talið hagkvæmt að selja það innan lands, þar sem þá fylgi aflakvóti þess með því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.