Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 9

Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 9 1 1 - kennslubók handa skólum og almenningi eftir Halldór Kristjánsson Helstu útsölustaáir: Reykjavík - Radíóbúðin, Bókabúð Braga, B.S.E. Akranes - Bókaskemman Hafnarf jörður - Bókabúð Böðvars Sölusími: 8 39 53 Unnift á Maclntosh/Las*rVrit*r rMáele. 10% kynningarafsláttur meðan á sýningunni stendur Þessar heimsþekktu vestur-þýsku hágæða vélar eru kynntar á sýningunni „Heimilið 85“ í Laugardalshöll Veldu Míele annað er málamiðlun æJÓHANN ÓLAFSSON & CO 43 Sundaborg -104 Reykjavík • Sími 82644 ■■■! AHGUS40 = HÉÐINN = SEUAVEGI 2, SÍMI 24260 Pólitískt sendibréf! Stöku sinnum berst upp í hendur grandalausra smárit eöa pólitískt sendibréf, sem hefur yfirskriftina „Alþýðu- blaöið“. Sendandi er Blað hf., sem ráða má af efni ritlingsins, að heyri til Alþýðuflokknum. Þar var í gær að finna forystugrein, „Að kjósa sér þjóð“, sem varð kveikj- an að Staksteinum í dag. Hún er dæmigerö fyrir „inn- legg“ stjórnarandstöðunnar í þjóömálaumræðu. „Aö leysa upp þjóðina“ Forystugrein Alþýdu- hlaðsins í gær mótar engin tímamót í íslenzkri þjóó- málaumræóu. Þvert á móti. Hún er dæmigerð fyrir það neikvæða nöldur, sem ein- kennir fjórflokka þá, er falla undir samheitið stjórnarandstaöa. Hún hefst með eftirfarandi spekiorðum: „Er ekki tímabært, að ríkisstjórnin leysi upp þjóð- ina og kjósi sér nýja?“ Þegar stórt er spurt verður stundum smátt um svör. Síðan tíundar forystu- greinin einstaka ráöherra og gefur þeim einkunnir, sem allar eru keimlíkar — og sýna fyrst og fremst tak- markað hugarflug og ein- hæfan málsmekk: • „Fjármálaráðherra ... er sáróánægður með þjóð- ina.“ • „Mikið hlýtur mennta- málaráöherra vað vera óánægður með þjóð, sem ekki hrífst af þessum glimrandi hugmyndum." • „Utanríkisráðherra hlýt- ur einnig að vera sár- óánægður með þjóðina." • „Dómsmálaráöherra vUI ekki drekka áfengt öl. Hann verður því að koma sér upp nýrri þjóð...“ • „Varla getur húsnæð- ismálaráðherrann verið ánægður með þjóð sína — 44 Þegar leiðarahöfundur hefur sýnt þá fagþekkingu á íslenzkum þjóðmálum, að nafngreina einstaka ráðherra, sem hann gerir nokkurn veginn skamm- laust, hnýtir hann sömu þulunni aftan við hvert nafn. Viðkomandi ráðherra verður að „leysa upp þjóð- ina og finna sér nýja“. Hvorki meira né minna. Þessi skarplega niðurstaöa er byggð á þeirri staðhæf- ingu höfundar, að ráðherr- arnir og ríkisstjórnin eigi engan hljómgrunn með þjóðinni. Röksemdinni snúið upp á Alþýðublaðið Forystugrein Alþýðu- blaðsins er skrifuð í skjóli skops. En öllu gamni fylgir nokkur alvara. Sá „alvöru- grunnur", sem hún hvflir á, er sú staóhæfing höfundar, að ríkisstjórnin og ráö- herrarnir séu rúnir öllu fylgi meðal þjóðarinnar. Þeir verði að leita uppi „nýja þjóð“ til að tryggja sér hliðstæða pólitíska stöðu og þeir hafí nú. Ef þeirri röksemda- færslu, sem höfundur beit- ir, er snúið upp á Alþýðu- blaðið, hvað ber því þá að gera, „leysa upp þjóðina og finna sér nýja“? Ekkert íslenzkt dagblað hefur jafn lítinn hljóm- grunn með þjóðinni og Al- þýðublaðið. Það sýnir út- breiðsla þess, sem er nán- ast engin. Alþýðuflokkur- inn hefur að vísu rétt úr kútnum, a.m.k. tímabund- ið. Það hefur gerzt þrátt fyrir Alþýðublaðið en ekki vegna þess. Menn með skopskyn halda því jafnvel fram að sú heilsubót, sem Alþýðuflokkurinn hefur náð, byggist á því að Al- þýðublaðið, og málflutning- ur þess, nái ekki til fólks almennt. Því er ennfremur fleygt að þeir, sem standa | því næst, bollaleggi þá hugmynd að leggja blaðið niður, sem vonandi verður þó ekki. Síðasta skoðanakönnun Hagvangs (júní/júlí sl.) sýnir 57,4% stuðning við ríkisstjórnina. Stuðningur hennar hefur vaxið úr 50,2% í febrúar sl. og 52,5% í mai sl. í 57,4% í júlí sl. Á sama tíma rýrnar hóp- ur þeirra, sem styðja ekki ríkisstjórnina (en væntan- lega stjórnarandstöðu) úr 49,8% í febrúar og 47,5% í maí niður í 42,6% í júlí. Stjórn og stjórnar- andstaða KíkLsstjórn sú, sem nú situr, er síður en svo hafln yfir gagnrýni. Hún hefur margt gert vel, en henni hafa einnig verið mislagðar hendur. Vinnulag hennar hefur á stundum verið ámælisvert, ekki sízt skylmingar einstakra ráð- herra í fjölmiðlum um ágreining, sem bezt færi á að leysa innan veggja stjórnarráösins. Stjórnarandstaða hefur ekki veigaminna hlutverki að gegna í lýðræðisríki en ríkisstjórn. Hún hefur brugðizt hlutverki sínu herfilegar en orð fá lýsL Hún á að tíunda marktæk úrræði, annan valkost, í helztu vandamálum þjóðar- innar, til að hugsandi fólk hafi um marktækar leiðir að velja. Margklofin stjórnar- andstaða hefur ekki komið sér saman um neitt af slíku tagi. Stjórnarandstöðu- flokkarnir eru undir sömu sök seldir í því efni, eiga það eitt sameiginlegt, að hafa enga marktæka stefnu í helztu vanda- og viðfangsefnum þjóðarinn- ar. Ríkisstjórnin hefur sína annmarka. Hún er hins- vegar verulega betri kostur en stjórnarandstaðan, þeg- ar grannt er gáð. sjálfstýringar Wagner-sjálfstýringar, komplett meö dælusettum 12 og 24 volt, kompás og fjarstýringum fram á dekk, ef óskaö er, fyrir allar stæröir fiskiskipa og allt niöur í smá trillur. Sjálf- stýringarnar eru traustar og öruggar og auðveldar í uppsetningu. Höfum einn- ig á lager flestar stæröir vökvastýrisvéla. Hagstætt verö og greiðsluskilmálar. Atlas hf Borgartún 24 — Simi 26755. Pósthólf 493, Rsykjavík Flóamarkaðurinn á Öldugötu 11 heldur áfram á laugardag 31. ágúst frá kl. 2—5 eftir hádegi. Fatnaöur, leikföng — ALLT Á TÍKALL. Húsgögn og skrautmunir á prúttveröi. Nýtínd rifbsber seld í kílóavís. Og fleira og fleira. Kaffi og vöfflur til sölu. Afmælisrit og gömul jólakort. Mætiö stundvíslega og geriö kaup ársins. Stjórn FEF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.