Morgunblaðið - 30.08.1985, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
Morgunblaðið/Sig. P. Bjðrnsson.
Haukur Ágústsson fráfarandi skólastjóri Laugaskóla ávarpar viðstadda.
Á my ndinni er einnig kona hans, Hilda Torfadóttir.
Laugaskóli:
Fjölmennt
kveðjusamsæti
Húsavík, 25.08.
AÐ Laugum kvöddu Uingeyingar
í gær tvo fráfarandi starfsmenn
skólans, þá Hauk Ágústsson,
skólastjóra, eftir 4 ára starf og
Óskar Ágústsson, íþróttakenn-
ara, eftir 41 árs starf, með veg-
legu samsæti, sem á annað
hundrað héraðsbúar sátu.
Til hátíðarinnar boðaðí
skólastjórn Laugaskóla og
Héraðssamband Þingeyinga,
en Óskar hefur um áratuga
skeið verið öflugur stuðnings-
maður HSÞ og formaður þess
Í20ár.
Veizlustjóri var Þráinn Þór-
isson, skólastj. Skútustöðum
og voru í hófinu margar ræður
fluttar og mikið sungið.
Hátíðarávarp og þakkir til
heiðursgestanna Hauks
Ágústssonar og konu hans,
Hildu Torfadóttur, og óskars
Ágústssonar og konu hans,
Elínar Friðriksdóttur, flutti
séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup, en konurnar
hafa báðar kennt við skólana,
auk þess sem þær hafa stutt
menn sína dyggilega í starfi.
Formaður skólanefndar
Eysteinn Sigurðsson, Arnar-
vatni, færði heiðursgestunum
gjafir frá skólanum, málverk
eftir Sigurð Hallmarsson og
voru bæði listaverkin frá
Laugaskóla og umhverfi hans.
Formaður HSÞ, Kristján
Yngvason, færði Óskari að gjöf
slípaðan blágrýtisstein með
ágreiptu merki sambandsins
og þökkum fyrir mikil og vel
unnin störf.
Einnig voru tveim öðrum
fráfarandi kennurum þeim
Dagbjörtu Kristjánsdóttur og
Karli Sveinssyni fluttar þakk-
ir.
Alls tóku tíu aðrir en að
framan greinir til máls og
höfðu margs að minnast og
þakka, en samkomunni lauk
með ávörpum heiðursgest-
anna.
Við skólastjórn Laugaskóla
hefur tekið Steinþór Þráinsson
frá Skútustöðum og bjóða hér-
aðsbúar hann og konu hans,
Katrínu, velkomna til starfa.
Fréttaritari.
Hjálparsveit
skáta
Býður til
samæfingar
í tilefni 20
ára afmælis
HJÁLPARSVEIT skáta í Vest-
mannaeyjum á um þessar mundir 20
ára afmæli og af því tilefni hefur
sveitin boðid til samæfingar 13.—15.
september nk. Hjálparsveitum og
flugbjörgunarsveitum um land allt
er boðið ásamt Björgunarfélagi Vest-
mannaeyja og Stakk í Keflavík.
Gert er ráð fyrir að æfingin taki
u.þ.b. 13 tíma, en þeir sem koma
með fyrri Herjólfsferðinni á
föstudaginn byrja æfinguna og
þeir sem koma með seinni ferðinni
munu ganga inn í æfinguna eins
og um venjulegar aðgerðir væri að
ræða.
Á laugardeginum verður nýja
skátaheimilið vígt og síðar um
kvöldið verður afmælishátíð í einu
samkomuhúsa bæjarins.
Óskar Ágústsson flytur ræðu, en hann lét nú af störfum eftir að hafa
kennt við Laugaskóla í 41 ár. Á myndinni er einnig kona hans, Elín
Friðriksdóttir.
I<YN NTNGAR-
VEISLA
Allar deltdir opnar
a laugardeglnum'.
kl 13.00-110°
Sölukynning í húsgagnadeild
laugardag og sunnudag kl. 13.00-17.00
Yamaha hljóðfæri af öllum stærðum og gerðum. Tilvalið
tækifæri fyrir unga sem eldri að kynna sér hljóðfæraúrvalið
áður en tónlistarkennslan hefst og hljómsveitirnar fara að æfa
af fullum krafti Hljóðfæri jafnt fyrir leikmenn sem atvinnumenn.
Hljöðfæraleikur. Hrólfur Vagnsson hljóðfæraleikari spilar
báða dagana kl. 14.00-16.00
Hjónarúmakynning. Hjónarúm í úrvali frá Hreiðrinu, Kópavogi.
Ljósakynning. Loftljós, vegglampar, kastarar og útiljós frá
Borgarljósi, Reykjavík.
Kaffi og kökur:
Báða dagana mun Slysavarnadeild kvenna annast sölu á kaffi
og kökum í versluninni.
Hvers vegna ekki að skella sér í helgarbíltúr til Bolungarvíkur,
þiggja Ijúffengar veitingar og styrkja um leið gott málefni?
Helgina 31. ág. -1. sept.
Við efnum til fjölbreyttar vörukynningar í verslun okkar um
mánaðamótin. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi og verða
margs vísari um nýjar og spennandi vörutegundir sem kynntar
verða. Auk þess mun kaffisala og hressilegur hljóðfærajeikur
setja svip sinn á helgina og þegar góða skapið bætist við er
allt sem mælir með því að skella sér til Bolungarvíkur og
bætast í hóp veislugesta.
Vörukynning á
laugardeginum frá
imnex hf.
Keflavík
Sælgætl með 20% afslætti.
Brik þvottaefni með 20% afslættl.
Fjölvítamín gospillur
sem innihalda dagsþörf af vítamíni. Nýjung sem allir verða
að kynnast.
Danskt hnossgæti
Nýi danski bakarinn okkar verður með sérstaka kynningu á
laugardeginum þar sem allir fá að smakka það besta sem
dönsk brauðgerðarlist býður upp á.
Sinar ffuðfjinmson h.fa.
VERSLUN, BOLUNGARVÍK, SÍMI 94 -7200