Morgunblaðið - 30.08.1985, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
Ólafsfjörður:
Atvinnuleysis-
bæturnar
verða að nægja
til áramóta
Akureyri, 27. ágúst
ATVINNULEYSI á Ólafsfirði hefur verið mikið undanfarið og allt útlit
fyrir að lítt rætist úr á næstunni, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum
að undanfornu.
Mikið hefur verið þingað um leiðir til úrbóta, bæjarstjórn rætt við
þingmenn kjördæmisins og er á leið á fund ríkisstjórnar, en yfirleitt
virðast menn sammála um, að fátt verði til bjargar í þessum efnum
á þessu ári, helst er litið til aukinnar skipaeignar á næsta ári og þar
með aukins afla til vinnslu. Einnig eru vonir bundnar við loðnu-
bræðslu, fiskirækt, kavíarvinnslu og saumastofu, sem eigendur fyrir-
tækisins Valbergs hf. hafa í hyggju að koma á fót.
Sigríður Rut Pálsdóttir með dóttur sina, Sigurbjörgu Vigfúsdóttur.
Sigrfður Rut Pálsdóttin
„Fráleitt að ein fyrirvinna nægi
fjögurra manna fjölskyldu“
En hvað segir fólkilð, sem nú á sitt lifibrauð undir atvinnuleysis-
bótum, sér ekki fram á breytingu á því fyrr en á næsta ári og má þá
ef til vill reikna með að sama ástand skapist að ári, ef ekki tekst að
fá fleiri skip til bæjarins?
Á ferð á Olafsfirði á dögunum var rætt við tvær konur, sem unnið
hafa hjá Hraðfrystihúsi Magnúsar Gamalíelssonar, en sjá nú fram á
að atvinnuleysisbæturnar verði að nægja til áramóta.
GBerg
Akureyri, 27. ágúst
„AUÐVITAÐ setur þetta allar okkar
áætlanir úr skorðum, við höfðum
fyrirhugað ýmsar endurbætur á
heimili okkar, sem nú verður að slá
á frest,“ sagði Sigríður Rut Páls-
dóttir.
„Það er nú einu sinni svo, að við
sem eigum eiginmenn vinnandi (
Verndaðu kaupmáttinn
tryggöu þér ÍGNIS
Frystikistur
1150 lítra I
HxBr.xD/cnn
1*6x60x66
l>2()lítra |86x81x66
Áður kr.
18.300
lá340
2O990-
Nú kr/*
15.560
15.760
Uppþv.vél____
F.12/m.borðh. 85x60x60
Vað hækkar ekki kjötiö í trystinum þínum!
★ Staögreiösluverö
RAFIÐJAN SF,
Ármúla 8, 108 Reykjavík, sími (91)82535
landi, verðum að taka til hendi á
vinnumarkaöinum með þeim, öðru
vísi gengur dæmið ekki upp í gós-
enlandinu fslandi á þessum síð-
ustu og bestu tímum. Fráleitt er
að ein fyrirvinna nægi fjögurra
manna fjölskyldu, og ég mun nú
fram til áramóta fá 504 krónur á
dag úr atvinnuleysisbótunum, sem
nær ekki helmingi þeirra tekna
sem ég aflaði. Slíkt hlýtur að koma
við hjá okkur. Auðvitað hefur það
breytt miklu fyrir fiskvinnslu-
stöðvarnar hér, að Sigurbjörginni
var breytt í frystitogara, við það
minnkaði vinnan hjá okkur, og nú
höfum við heyrt að fyrir dyrum
standi að breyta fleiri skipum
okkar í frystiskip. Þá versnar
ástandið enn, en kannski ætla
þessir blessaðir menn bara að setja
barnaheimili upp um borð og við
getum þá farið út á frystiskipun-
um, húsmæðurnar, sem unnið
höfum aflann fram að þessu,"
sagði Sigríður Rut Pálsdóttir að
lokum.
G. Berg.
AuAur Benediktsdóttir
Auður Benediktsdóttir:
Ljósm. GBerg
„Atvinnuleysis-
bætur tveggja
duga skammt“
„ÉG HEF UNNIÐ í Hraðfrystihúsi Magnúsar Gamalíelssonar í 11 ár,
maóurinn minn vinnur f Hraófrystihúsi Olafsfjarðar og af því má sjá, að
ekki er bjart framundan hjá okkur hjónum,“ sagði Auður Benediktsdóttir
á Ólafsfirði.
„Við eigum fimm dætur og af
þeim eru fjórar í námi. Sumar-
vinna þeirra nægir ekki fyrir
náminu, svo að auðvitað setur at-
vinnuástandið okkur í verulegan
vanda, atvinnuleysisbætur
tveggja einstaklinga duga
skammt. Þó svo við vildum fara í
eitthvað annað, þetta fólk sem í
fiskvinnslunni vinnur, þá er hér
ekkert annað að hafa og því hef-
ur það vissulega hvarflað að
okkur hjónum að flytja burtu,
halda heimili þar sem dæturnar
eru í námi, en það er hægara sagt
en gert. Ekki getum við selt eign-
ir okkar hér á staðnum, enginn
vill kaupa, og fyrir fólk á miðjum
aldri er ekkert létt verk að byrja
lífsbaráttuna upp á nýtt. Það má
því segja að við séum bundin
Ólafsfirði. Bundin staðnum og
við verðum einhvern veginn að
lifa af atvinnuleysisbótum fram
til áramóta, vonandi lagast þetta
á næsta ári, þó maður hafi vissar
efasemdir um að svo verði, út-
gerðarmenn virðast hugsa í
frystitogurum þessa dagana,
ekki eykur það atvinnuna hjá
okkur í landi,“ sagði Auður Bene-
diktsdóttir að lokum.
GBerg