Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 18

Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 Ekkó og Narkissos eru enn á meðal okkar Leiklist Jóhann Hjálmarsson Stúdentaleikhúsið: EKKÓ - guðirnir ungu. Söngleikur eftir Claes Andersson. Þýðing: Ólafur Haukur Símonarson. Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir. Leikmynd: Karl Aspelund. Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson. Rokk-sðngleikur Stúdentaleik- hússins: Ekkó - guðirnir ungu, eftir finnska skáldið Claes Andersson er nú á hringferð um landið. í kvöld verður leikið og sungið í Stykkishólmi. Frumsýnt var í Bfóhöllinni á Akranesi 28. ágúst. Ungt fólk var I miklum meirihluta á sýningunni svo að ætla má að söngleikurinn höfði einkum til þess. En Ekkó á ekki sist erindi við foreldra. í Ekkó er lýst samskiptum unglinga og vandræðalegu sam- neyti þeirra við foreldra, hefð- bundnum átökum á heimilum og I skólum. Unglingurinn er annars hugar heima fyrir, fer ekki eftir uppskrift foreldranna, á i útistöð- um við kennara, snýst gegn sam- félaginu i heild með drykkju, hverskonar andfélagslegri hegðun. Ekki eru allir unglingarnir i Ekkó svona. En Narsi, sem ásamt Ekkó gegnir veigamiklu hlutverki í söngleiknum, er einmitt þessi gerð. Höfundurinn reynir að skýra persónu Narsa og er hinn óham- ingjusami faðir ein af skýringun- um. Narsi er kaldur karl og sýnd- armaður hinn mesti, en innst inni viðkvæmur og þarfnast ástúðar. Samband Narsa og Ekkó er þungamiðja söngleiksins. Ekkó þjáist af minnimáttarkennd, sætt- ir sig ekki við útlit sitt, telur sig algjörlega glataða. En þá kemur Narsi og býðst til að elska hana. Ást þeirra Ekkó og Narsa hefur goösögulegan blæ, enda gerast örlögin þeim grimm. Sagan af Ekkó og Narkissos er fyrirmynd. Ekkó er vel gerð persóna í söng- leik og sama er að vissu marki að segja um persónu Narsa. önnur hlutverk eru fremur litlaus, en þó bregður fyrir leiftrum. Höfuðlausa óhugnaöarfólkið i brenglaðri vit- und unglinganna gæddi verkið óvæntu lifi. Það líktist griskum kór. Við fengum dálitla innsýn i heim freistinganna þar sem eitrið er á boðstólum og er reiðubúið til að draga menn í kaf. Ekkó - guðirnir ungu getur ekki talist sérstaklega vel heppnaður söngleikur, til þess er verkið of venjulegt, gert eftir fyrirfram ákveðnu mynstri. En það er þess virði að kynnast þvi. Helstu tíðindi söngleiksins er tónlist Ragnhildar Gisladóttur sem er i senn lifandi og leggur áherslu á inntak verksins og boð- skap. Þessi tónlist á áreiðanlega eftir að vekja mikla athygli. Leikstjórn Andrésar Sigurvins- sonar þótti mér einum of slök en tæknilegir erfiðleikar spilltu að vísu sýningunni. Leikstjórinn virt- ist ekki gera nógu strangar kröfur til leikaranna, en það er aftur á móti ljóst að Stúdentaleikhúsið skortir kraftmeiri leikara en hér komu fram. Þó eru jákvæðar hlið- ar á því máli. Ekkó lék Arna Valsdóttir og gerði það á þokkafullan hátt. Túlk- un hennar var einlæg og hljóðlát. Ari Matthíasson var dæmigerður Narsi, týpan góð, en minna fór fyrir sannfærandi leik þótt sumt væri vel gert. Leikmynd Karls Aspelund var i einfaldara lagi og gerð við hæfi ferðaleikhúss. Góð hugmynd var að láta fullorðna fólkið birtast aðeins i formi leikmynda, það breikkaði enn bilið sem er oft á milli æskufólks og hinna fullorðnu. En þetta verkaði lika skoplega og átti ekki alltaf við i háalvarlegum tilvikum. Þýðing ólafs Hauks Simonar- sonar heyrðist mér vel af hendi leyst, en ég skal játa að stundum var erfitt að nema textann. Ekki tókst nógu vel að láta texta og tónlist vinna saman. í söngtúlkun voru aftur á móti ljósir punktar. Framtak Stúdentaleikhússins er lofsvert og ég hef trú á þvi að sýn- ingin muni smám saman taka á sig betri mynd. Frá frumsýningu songleiksins á Akranesi í fyrrakvöld Morttunblaðið/Ámi SæberK Sigurlaugur Elíasson IWyndlist Valtýr Pétursson Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, segir máltækið, og það á við í þessu tilfelli, þar sem sonur tekur við af föður ef svo mætti að orði kveða. Sigurlaugur Elías- son er ungur listamaður, sem er með sína fyrstu einkasýningu þessa dagana í Listasafni ASÍ við Grensásveg. Sigurlaugur er sonur Elíasar málara Halldórs- sonar á Sauðárkróki og því hóf ég mál mitt á þann hátt er hér stendur. Það er annars ekkert smáræði sem þeir fjórir feðgar leggja til málanna á menningar- sviðinu. Faðirinn málari og syn- irnir: skáld, hljómlistarmaður og sá þriðji máiari eins og faðirinn. Þetta er skemmtilegt og ótrúlegt í sjálfu sér og því nefni ég það í sambandi við sýningu Sigur- laugs, að um fágætan feðgahóp er að ræða. Sigurlaugur Elíasson er ungur og hefur ekki mikla reynslu á sviði málverks, en hann vekur þegar vonir með þessari fyrstu sýningu og hann er furðu agaður í litameðferð, sem virðist honum mjög eðlilegt. Því verður ekki neitað að svolítið minna sumar myndir Sigurlaugs á karl föður hans og er ekkert óeðlilegt við það. Sigurlaugur vinnur nokkuð í öðrum dúr en faðirinn og hann virðist taka fullan þátt í því sem efst er á baugi hjá þeim ungu eins og stendur. Hann vinnur snöggt og ákveðið og hefur auð- sjáanlega sínar skoðanir á hlut- unum. Mér þótti skemmtilegt að sjá þessi verk eftir Sigurlaug og það fer ekki milli mála að hann hefur hæfileika sem falla vel að þeirri tækni er hann ræður yfir. Flest verk á þessari sýningu eru máluð með akrýllitum og eru nokkuð hörð í tónum, en það fylgir þessu nútíma efni, sem er svo mjög í tísku. Það eru tuttugu og átta verk á þessari sýningu og fara þau sérlega vel í því umhverfi sem Sigurlaugur hefur valið sýningu sinni. Eitt verk vakti sérstaklega eftirtekt mína og freistast ég til að ákveða að það sé betra en önnur verk á þessari sýningu. Það er Sjálfs- myndin No. 4.1 heild fannst mér þessi sýning með því betra er ég hef séð að undanförnu af sýning- um frá hendi ungra listamanna. Til hamingju með árangurinn. Singer Magic rf spori Á fratnar ir 29. ÁGÚST-8 SEPTEMBER í LAUGARDALSHÖLLINNI SÝNINGAR - AFSLÁTTUR @ SAMBANDSINS ÁRMÚLA 3 SÍMI 687910

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.