Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
23
Atli Dam, lögmaður Færeyja, á fundi
Norræna félagsins í Danmörku:
Mótmælaaðgerðir vegna
grinhvalaveiða verða
ekki umbornar meir
FÆREYINGAR hyggjast ekki stödva grindhvalaveiöar þrátt fyrir andstöðu
og mótmælaaðgerðir umhverfisverndarfólks. Þetta kom fram í ræðu, sem
Atli Dam, lögmaður Færeyja, flutti á sumarfundi Norræna félagsins í Dan-
mörku, er haldinn var í Hindsgavl á Vestur-Fjóni um síöustu helgi.
„Mótmælaaðgerðirnar, sem um-
hverfisverndarhreyfingar hafa
undanfarið efnt til vegna grind-
hvalaveiðanna, eru í engu sam-
hengi við veruleikann, og verði
meira af svo góðu, munum við
taka í taumana," sagði Atli Dam,
eftir því sem fram kemur í danska
blaðinu Jyllandsposten.
Atli Dam vék nánar að grind-
hvalaveiðunum: „Við erum, þótt
undarlegt kunni að virðast, orðnir
andstæðingar þeirra, sem ættu, ef
allt væri með felldu, að vera sam-
herjar okkar.
Og þetta gerist, af því að við
nýtum ákveðna auðlind í umhverfi
okkar, eins og við höfum gert í 400
ár. Og þetta gerist þrátt fyrir að
við gætum þess vandlega, að
endurnýjun viðkomandi auðlindar
geti átt sér stað.
Umhverfisverndarmenn vilja
umskapa dýralífið og girða það af
í einhvers konar dýragörðum.
Þannig vilja þeir fara með grind-
ina. En þetta fólk er á villigötum,"
sagði Atli Dam.
Hann lagði áherslu á, að
grindhvalaveiðar Færeyinga lúta
ströngum takmörkunum.
„Það eru veidd um 1700 dýr á
ári, hvorki fleiri né færri en verið
hefur. Og ef hingað koma fleiri
dýr en venjulega, hefur það ekki í
för með sér, að meira sé veitt en
annars. Þá er umframdýrunum
einfaldlega sleppt.
Grindarstofninn er nú sterkari
en nokkru sinni. Þetta er stað-
reynd og staðfest af líffræðingum
okkar. Og þetta staðfestir einnig
tölfræði 400 ára sögu veiðanna,
sem greinir frá sveiflum á stofn-
stærð og göngum.
Auðvitað eigum við ekki að
hlaupa til og veiða meira, þótt
stofninn standi nú vel. Það er
nefnilega sótt að honum úr fleiri
áttum. Og þar er mengun efst á
blaði. í stað þess að einblína á
grindhvalaveiðar okkar, ættu
menn að huga að eiturefnalosun í
Norðursjó, sem er mikil ógnun við
grindhvalastofninn. Einnig ættu
menn að líta til Eystrasaltsins,
þar sem alger eyðilegging blasir
við.“
hann, og gekk þó nógu illa. Svíþjóð
hefur ekki efni á að setja stjórn-
ina í hendurnar á þess konar liði,
segja sósíaldemókratar sem leggja
áherslu á að það séu þeir einir sem
geti tryggt þá styrku stjórn sem
landið þurfi nú mest á að halda.
Sameiginlegur stjórn-
arsáttmáli?
Allir stjórnmálaflokkarnir
nema Miðflokkurinn hafa viljað
sameinast um og leggja fram í
kosningabaráttunni drög að
stefnuskrá sem þeir sameiginlega
gætu hugsað sér að framkvæma í
samstjórn, ef þeir fengju meiri-
hluta í kosningunum, og sýna þar
með svart á hvítu hvaða valkosti
þeir bjóði upp á miðað við sósíal-
demokrata. Þetta hefur foringi
Miðflokksins, Thorbjörn Fáldin,
fyrrverandi forsætisráðherra,
ekki getað tekið undir. Hann vill
að fólkið fái að velja á milli þess-
ara þriggja flokka og þeirra ólíku
stefnumála. Að kosningum lokn-
um verði síðan sest að samninga-
borði þar sem vilji kjósenda yrði
látinn hafa áhrif á það hvernig
sameiginlegur stjórnarsáttmáli
liti út. Það væri að grípa fram
fyrir hendurnar á kjósendum að
semja um þessi atriði fyrir kosn-
ingar.
Eitt þessara atriða sem kjós-
endur eiga að skera úr með at-
kvæðum sínum er hver þessara
þriggja borgaraflokka fái embætti
forsætisráðherra ef um meiri-
hluta verður að ræða. Fjölmiðlar
hafa mikið spáð í það hver það
verður, og það eru þeir Ulf Adel-
sohn og Thorbjörn Fáldin sem
helst koma til greina. Fjölmiðl-
arnir hafa herjað á flokksforingj-
ana til að fá þá til að tjá sig um,
hvem þeir vilji styðja. Þetta hefur
valdið töluverðum taugaæsingi
meðal leiðtoga borgaraflokkanna
og varla aukið tiltrú kjósenda á
því að þeir muni í sátt og samlyndi
skipta með sér verkum að loknum
kosningum.
„Boðorðin tíu“
frá Kristileg-
um demókrötum
Fyrir nokkrum árum tók for-
maður Kristlega demokratafl-
okksins, Alf Svensson, af skarið og
setti upp á sitt eigið eindæmi fram
tíu puntka skrá sem hann taldi að
gæti orðið grundvöllur að stjórn-
arsamstarfi borgaraflokkanna.
Svenson hefur árum saman barist
við að koma fulltrúa frá flokki sín-
um á þing sem nú virðist ætla að
takast vegna kosningabandaiags-
ins við Miðflokkinn. Hann vill
greinilega vera eins konar milli-
liður milli borgaraflokkanna og
gæti ef til þess kæmi haft sitt að
segja við stjórnarmyndun. í stuttu
máli eru þau atriði sem hann lagði
fram eftirfarandi:
1. Stuðningur við barnafjöl-
skyldur við að gæta eigin
barna innan veggja heimilis-
ins (vardnadsersátting).
2. afnám launþegasjóðanna
3. afnám nýja fasteignaskattsins
4. afnám eignaskatts af virku
kapitali (arbetande kapital).
5. afnám sjálfvirkrar skráningar
meðlima í verkalýðsfélagi í
ákveðinn stjórnmálaflokk
6. að neysla fíkniefna verði
skilgreind sem lögbrot
7. auka aðstoð við þróunarlöndin
8. aukin áhersla á aga, fastar
reglur og einkunnir i skólum
9. að óvirkjaðar ár í norður Svi-
þjóð verði friðaðar
10. að stighækkun tekjuskatts
(marginalskatten) verði færð
niður
Vita hvað þeir hafa en
ekki hvað þeir fá
Þótt ýmis þessi atriði fari ekki
alveg saman við helstu stefnumál
Móderataflokksins hefur formað-
ur hans lýst yfir stuðningi sínum
við listann í heild, en formaður
Miðflokksins algerlega hafnað að
ræða hann.
Það er auðvitað alltaf erfitt að
spá — og sérstaklega um framtíð-
ina. Hin borgaralega fylking er
sundurleit og fjölmiðlar gera sitt
til að kynna hana þannig. Svo gæti
farið að margir þeirra sem ekki
hafa enn gert upp hug sinn (sam-
kvæmt seinustu skoðanakönnun-
um eru þeir nú óvenju margir)
hugsi sem svo að þeir viti hvað
þeir hafi, þar sem er stjórn sósíal-
demókrata, en þeir viti ekki hvað
þeir fái með samstjórn borgara-
flokkanna.
1‘étur Pétursson er fréttaritari
Mbl. í Lundi i Sríþjód.
Þessi mynd er tekin fyrir framan herragarðinn Hindsgavl á Vestur-Fjóni, þar
sem sumarfundur Norrænm félagsins f Dmnmörku var haldinn. Með Atlm
Dam, lögmmnni Færeyja, er Dorte Bennedsen, formmöur félmgsins.
Atli Dam lögmaður segir Fær-
eyinga hafa vakandi auga með
frekari mótmælaaðgerðum.
„Það eru allir velkomnir til
Færeyja. En brjóti menn færeysk
lög og reyni að hindra veiðar, sem
yfirvöld hafa leyft, verður tekið í
taumana. Við erum við öllu bún-
ir,“ segir lögmaðurinn, en leggur
áherslu á, að með framkvæmd
nýrra dýraverndunarlaga verði að
mun hert á reglum um slátrun
grindarinnar.
„Það geta auðvitað orðið mistök,
en yfirleitt gengur slátrunin hratt
og örugglega fyrir sig.“
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
fttgrgnnftlafttfo
ÆJSM'VA
4ra dyrar
Isuzu Trooper '86
Þægilegri og rúmbetri
en nokkru sinni fyrr.
Isuzu Pickup '86
með „Space Cab"
stórauknu rými fyrir
farþega og farangur.
Hörkugóðir bílar á góðu verði.
Pottþéttir í akstri, viðhaldi og endursölu.
Við bjóðum sérlega hagstæð greiðslukjör og tökum jafnvel
gamla bílinn upp í þann nýja!
BSLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Á BÍIASÝNINGU
KL. 13.00 - 17.00 LAUGARDAG
KOMIÐ OG KYNNIST KRAFTMIKLUM NÝJUNGUM.