Morgunblaðið - 30.08.1985, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.08.1985, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 Minning: Gunnlaugur Stefánsson kaupmaður Hafnarfirði Fæddur 17. nóvember 1892 Dáinn 22. ágúst 1985 Gunnlaugur Stefánsson, fyrr- verandi kaupmaður, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði 22. þ.m. á 93. aldursári. Með honum hverfur af sjónarsviðinu einn af þeim gömlu og góðu Hafnfirðingum er ég kynntist á 6. áratugnum og settu svip sinn á bæinn með persónu- leika sínum og umfangsmiklu starfi. Gunnlaugur fæddist í Hafnar- firði og ól þar allan sinn aldur. Faðir hans var Stefán trésmiður Sigurðsson, Húnvetningur að ætt, fæddur að Saurbæ í Vatnsdal 1859. Barn að aldri var Stefán tekinn í fóstur á höfuðbólið Þingeyrar í Húnaþingi skömmu eftir að Sig- urður faðir hans drukknaði í há- karlalegu árið 1862. Bjuggu þá á Þingeyrum merkishjónin Ásgeir Einarsson frá Kollafjarðarnesi og Guðlaug Jónsdóttir, sýslumanns á Melum í Hrútafirði, Jónssonar. ■> Höfðu þau áður búið í Kollafjarð- arnesi en fluttust að Þingeyrum 1861. Var Ásgeir þingmaður Strandamanna í tvo áratugi og m.a. fulltrúi á hinum sögufræga þjóðfundi árið 1851. Stefán andað- ist árið 1906 aðeins 47 ára að aldri. Móðir Gunnlaugs, kona Stefáns, var Sólveig Gunnlaugsdóttir, fædd í Veghúsum í Reykjavík 1863. Var hún alnafna ömmu sinnar í föður- ætt er var systir Húnvetningsins Björns Gunnlaugssonar, kennara við Bessastaðaskóla og síðar yfir- kennara við lærða skólann í Reykjavík. Var Björn nafnfrægur fyrir stærðfræðigáfu sína og hæð- armælingar á landslagi fslands og fyrir hið mikla kvæði Njólu. Var hann af sumum nefndur speking- urinn með barnshjartað. Sólveig andaðist 1952 á 79. aldursári. Um tildrög þess að Stefán flutt- ist til Hafnarfjarðar segir svo í grein um Stefánshús í jólablaði Alþbl. Hfj. eftir Gísla Sigurðsson fyrrv. lögregluvarðstjóra. „Það var mikill siður hér allt fram undir síðustu aldamót að mannaskipti fóru fram milli sveita norðanlands og Inn- og Suðurnesja. Menn komu norðan úr Húnavatns- og Skaga- fjarðarsýslum til sjóróðra en karl- ar og konur fóru héðan úr sýslunni norður í land til kaupavinnu á sumrum, og var það í engu frá- brugðið hvað snerti Hafnfirðinga. Um 1880 eða þar í kring fór maður að nafni Filipus Filipusson ár eftir ár norður í Húnavatns- sýslu í kaupavinnu aö Þingeyrum. Meðal heimafólks á Þingeyrum á þessum árum var ungur maður er Stefán hét. Það fer ekki á milli mála, að strax í upphafi tókst góð vinátta með þeim Filipusi og Stef- áni. Fannst Filipusi maðurinn efnilegur, því að allt sem að smíð- um laut lék í höndum hans, þótt engrar tilsagnar hefði hann notið.“ ■í Filipus kom þessum vini sínum í smíðanám til vinar sins Jóns smiðs Steingrímssonar „er þá var höf- uðsmaður hér í Hafnarfirði, kunn- ur austan frá Seivogi um Suðurnes öll og víðar“. Hann var til heimilis hjá meistara sínum eins og þá var | siður með lærlinga. Þar á heimil- inu hófust kynni þeirra Sólveigar því að þangað hafði hún ráðist til þjónustustarfa. Að námi Stefáns loknu 1885 giftu þau sig og fluttu að Þórukoti í Njarðvík. Þar voru þau í þrjú ár en fluttu 1888 til Hafnarfjarðar og settust að í „Klúbbnum". Gerð- ist þá Stefán samverkamaður fyrr- um meistara síns, Jóns Stein- grímssonar. Árið 1889 reisti Stefán sér og fjölskyldu sinni hús á stórri lóð syðst í Undirhamarstúni er hann fékk hjá prófastinum í Görðum. • Var það almennt nefnt Stefánshús og stendur enn, að vísu nokkuð breytt og er nú nr. 25 við Suður- götu. Býr þar enn yngsta barn þeirra hjóna og hið eina í tölu lifenda, sonurinn Ingólfur. Þegar Stefán vann að húsbygg- ingu sinni vakti hann athygli meðal samtíðarmanna sinna fyrir útsjónarsemi, dugnað og harðfylgi. Hafa þeir eiginleikar erfst afkom- endum hans, en þau hjón, Stefán og Sólveig, eignuðust 8 börn sem öll voru borin og barnfædd í Hafn- arfirði utan elsti sonurinn, sem fæddur var í Njarðvík, og í Hafnar- firði hafa þau alið allan sinn aldur. Elstur barnanna var Sigurður Jóel. Hann lærði trésmíði sem faðir hans, en lést 27 ára gamall, f. 22.12.1887, d. 5.6.1914. Næstelstur var Ásgeir, f. 26.3. 1890, d. 22.6.1965. Var Ásgeir þjóð- kunnur fyrir störf sín að bygging- arframkvæmdum og útgerðarmál- um og einnig, eins og segir í minn- ingargrein um hann, „fyrir hnyttin tilsvör og skjót og snjöll úrræði“. Er Bæjarútgerð Hafnarfjarðar var stofnuð árið 1931 varð hann fram- kvæmdastjóri hennar og gegndi þeirri stöðu til ársloka 1954. Næst í röðinni voru tvíbura- systkinin Gunnlaugur, er hér á eftir verður lítillega minnst, og Ingibjörg, f. 17.11. 1892. Ingibjörg átti alla ævi sína heima í Stefáns- húsi og reyndist móður sinni fágæt hjálparhella í veikindum hennar og ekkjudómi. „Hún helgaði sig alla tíð óskipt æskuheimilinu og studdi móður sína og bræður með ráðum og dáð, hvetjandi til góðra verka, einbeitt og ákveðin í afstöðu tii manna og málefna." Ingibjörg andaðist 17.4.1961. Næstur að aldri var Friðfinnur, f. 3.9. 1895, d. 8.3. 1967. Friðfinnur lærði múraraiðn og var múrverk aðalstarf hans um langt skeið. Var hann athafnasamur múrarameist- ari og stóð fyrir miklum bygging- arframkvæmdum, en samhliða múrverkinu stundaði hann bú- skap, og síðar eingöngu, og í mörg ár rak hann eitt af stærstu hænsnabúum landsins. Valgerður Þorbjörg fæddist 23.12. 1897, en hún andaðist á þriðja aidursári 29.4.1900. Næstur í aldursröð þeirra systk- ina var Tryggvi, f. 9.12. 1900, d. 5.11. 1980. Á unglings- og æsku- árum vann hann við skipasmíðar hjá Böðvarsbræðrum en lærði síð- an húsasmíði og starfaði sem byggingameistari til 75 ára aldurs. Átti hann löngum samstarf með bræðrum sínum við byggingar- framkvæmdir en einnig um langt skeið við Guðjón Arngrímsson byggingarmeistara. Yngstur systkinanna og sá eini núlifandi er Ingólfur, f. 17.12.1902. Hefur hann alla tíð átt heima í Stefánshúsi. Starfsferil sinn hóf hann í bakaríi Gunnlaugs bróður síns og einnig vann hjá Garðari Flygenring bakara. Verslunarstörf stundaði hann um skeið en fetaði svo í fótspor bræðra sinna og hóf störf við húsabyggingar, lærði múraraiðn, hlaut meistararéttindi eins og hinir og starfaði í þeirri iðngrein frá 1926—1977. Eins og nú hefur fram komið voru þeir bræður allir byggingar- iðnaðarmenn nema Gunnlaugur, sem lærði bakaraiðn, þóttævistarf hansyrði annað. Þeir bræður stóðu fyrir byggingum fjölmargra íbúð- arhúsa og byggingum á vegum hins opinbera í Hafnarfirði og víðar um byggðir landsins. í Hafn- arfirði byggðu þeir t.d. St. Jós- efsspítala, Lækjarskóla, Flens- borgarskóla, Ráðhúsið, Sólvang o.s.frv. Þóttu þeir áreiðanlegir og hagsýnir dugnaðar- og áhugamenn sem í engu máttu vamm sitt vita í neinum þeim verkefnum sem þeir tóku að sér eða þeim var á hendurfalið. Eins og áður sagði andaðist Stefán, faðir þeirra systkina, á miðjum aldri. Voru börnin þá 7 að tölu á aldrinum 4—19 ára og auk þess var á heimilinu móðir Sólveigar, Valgerður Hildibrands- dóttir, sem þá var orðin blind. Á þeim árum var ekki um að ræða lögboðna samhjálp í þjóðfélaginu eins og tryggingar, ekkjubætur og barnalífeyrir. Fyrir vikið var höggið enn þyngra fyrir barn- margar fjölskyldur þegar fyrir- vinnan féll frá. Gunnlaugur Stefán Stefánsson, eins og hann hét fullu nafni, var 14 ára að aldri er faðir hans féll frá. Höfðu þá verið uppi ráðagerðir um að setja hann til mennta því að hann var námsfús og efnilegur námsmaður, en við fráfall föðurins urðu þær ráðagerðir að engu. Hann kaus líka fremur að leggja hönd á plóginn við hlið móður sinnar og systkina í strangri lífs- baráttu þessara ára. Hóf hann því snemma störf og afskipti í at- vinnulífinu. Sama árið og faðir hans féll frá varð hann starfsmað- ur við Kaldá, fyrstu gosdrykkja- verksmiðjuna á íslandi. Var hún í eigu Jóns Þórarinssonar er þá var skólastjóri Flensborgarskól- ans. Er sú verksmiðja talin fyrsti vísir að iðnaði í Hafnarfirði, stofn- uð 1898. Vann Gunnlaugur þar í þrjú ár, og þótt ungur væri að árum sýndu eigendurnir honum þann trúnað að annast forstöðu verksmiðjunnar síðari árin. Árið 1909 hóf Gunnlaugur nám í bakaraiðn í brauðgerðarhúsi Einars Þorgilssonar. Starfaði hann í brauðgerð Einars til 1920, tók hana á leigu síðustu árin og annaðist sjálfur reksturinn. Er þá komið að stærsta og umfangsmesta þættinum í lífi Gunnlaugs, en það er kaupsýslan. Árið 1920 stofnar hann verslun í Akurgerðishúsinu, Vesturgötu 10, Gunnlaugsbúð sem hann rak af miklum dugnaði og myndarskap til ársins 1956 undir kjörorðinu: Gunnlaugsbúð, sér um sína. Er skemmst frá því að segja að versl- unin varð víðfræg um land allt, þótt fjölmiðlun væri þá skemmra á veg komin en nú er, m.a. vegna hins snjalla kjörorðs sem Gunn- laugur valdi verslunarstarfsemi sinni. Þeir sem næstir voru vettvangi á þessum árum hafa sagt mér að við þetta kjörorð sitt hafi Gunn- iaugur staðið frábærlega vel. Fyrir seinna stríð og á striðsárunum, þegar skortur var á vörum, sá hann ávallt vel um sína viðskipta- vini. Gunnlaugur var líka heppinn í vali á samstarfsmönnum. Mun leitun á liprari manni og meira prúðmenni en Ólafi Gíslasyni sem var hans hægri hönd og innan- búðarmaður í versluninni í 27 ár. Verslun á fyrri hluta aldarinnar var með allólíkum hætti en nú er orðið, einkum að því leyti að þá tíðkaðist talsvert vöruskiptaversl- un og sérhæfing í versluninni var nánast engin. Gunnlaugsbúð var meira en verslun með vörur í smá- sölu. Hún var bæði inn- og út- flutningsverslun, enda hafði Gunnlaugur víðtæk verslunarsam- bönd við Suðurnesjamenn og Sel- vogsbændur. Vörur keypti hann beint erlendis frá og hafði t.d. söluumboð fyrir hið heimsþekkta hljómplötufyrirtæki His Masters Voice. Segja má að í Gunnlaugsbúð hafi fengist „allt milli himins og jarðar“ eða flestar þær vörur sem almenningur vissi deili á. í Akurgerði varð húsnæðið brátt allt of þröngt fyrir verslun Gunn- laugs. Árið 1928 tók hann sér fyrir hendur að byggja mjög myndar- legt hús að Áusturgötu 25. Sló hann þá tvær flugur í einu höggi, eins og stundum er sagt, því að á efri hæð hússins var íbúð fjöl- skyldunnar en verslunin var á neðri hæðinni. En Gunnlaugur var ekki aðeins kaupmaður, hann var líka iðn- rekandi. Árið 1930 hóf hann rekst- ur kaffiverksmiðju að Vatnsstíg 3 í Reykjavík sem annaðist kaffi- bætisgerð og kaffibrennslu og rak Gunnlaugur hana fram yfir stríðs- árin. Var G.S.-kaffibætirinn og -kaffið þjóðkunn vara á þessu ára- bili og fékkst um land allt. Áhugi Gunnlaugs var víðtækur eins og títt er um athafnamenn og beindist fyrst og fremst að fé- lags- og atvinnumálum. Hann hafði áhuga á útgerð og sjósókn og svo vildi til að hann eignaðist jörðina Hóp í Grindavík árið 1934, en landið kringum núverandi höfn í Grindavík var eign þeirrar jarð- ar. Jörðina átti Gunnlaugur til 1942 og gerði þaðan út fjóra báta sem báru eftirfarandi heiti: Stef- án, Sólveig, Árni og Bjarni riddari GK 1. Á þessum árum dvaldist fjölskylda Gunnlaugs mikið í Grindavík á sumrum, en bátar hans lögðu einnig stundum upp afla sinn í Þorlákshöfn. Gunnlaugur var einn af stofn- endum Félags íslenskra iðnrek- enda og um árabil var hann í stjórn Kaupmannafélags Hafnarfjarðar og í stjórn KFUM í Hafnarfirði. Einnig var hann um skeið í Sjó- og verslunardómi Hafnarfjarðar. Gunnlaugur kvæntist 5. nóv- ember 1921 Snjólaugu Guðrúnu Árnadóttur, Björnssonar prófasts í Görðum á Álftanesi og k.h. Lín- eyjar Sigurjónsdóttur frá Laxa- mýri. Snjólaug var mikilhæf kona, ákaflega músikölsk og hafði fagra söngrödd. Reyndist hún Gunnlaugi gifturíkur förunautur í ævinnar blíðu og stríði. Þau eignuðust þrjú börn, Stefán, fyrrv. bæjarstjóra í Hafnarfirði og alþingismann og nú viðskiptafulltrúa við sendiráð íslands í London, Árna, hæstarétt- arlögmann, og Sigurlaugu, sem átt hefur við fötlun að stríða. Fóstur- dóttur eignuðust þau sem er Sigur- jóna Jóhannesdóttir, bróðurdóttir Snjólaugar. Snjólaug andaðist 30. desember 1975. Hér hefur nú verið stiklað á stóru í ævi athafnamannsins Gunnlaugs Stefánssonar. Á starfs- ævi hans var sjaldan logn heldur blésu oft um hann vindar enda var maðurinn athafnasamur og til- finningaríkur og fór ekki ætíð troðnar slóðir. Gunnlaugur var gestrisinn maður og stórtækur í gjöfum og aðstoð sinni við þá sem höllum fæti stóðu í lífsbaráttunni. Hygg ég að smámunasemi hafi verið óþekkt í fari hans. Gunnlaugur háði á köflum tví- sýna baráttu við áfengissýkina en tókst ætíð að rétta við. Hann hafði ríkan áhuga á framgangi bindind- ismála, og sem dæmi um það má nefna að hann var upphafsmaður að stofnun bindindismálasjóðs Sigurgeirs Gíslasonar sem stofn- aður var 1948 á áttræðisafmæli Sigurgeirs. í bréfi um þetta mál segir hann orðrétt: „Þegar ég hef fengið köllun að leggja lið ein- hverri góðri hugsjón þá er ég svo af guði gerður, að ég vil halda fast á góðu máli.“ Sjálfur fylgdi hann málinu eftir með rausnarlegri gjöf og fékk aðra til liðs við sig. Lýsir þetta vel staðfestu hans þegar hann beitti sér fyrir framgangi mála. Á seinni árum yljaði Gunnlaug- ur sér á stundum við upprifjun minninga frá uppvaxtarárum. Bar hann hlýjan hug til foreldra sinna og systkina, en þó einkum til Ingi- bjargar tvíburasystur sinnar og hans einu systur sem upp komst, en hún annaðist móður þeirra síðustu ár hennar af fágætri hug- ulsemi. í bréfi til Ingibjargar segir hann m.a. þetta: „Það verður aldrei spurt um að leiðarlokum hvað við höfum safnað miklu af jarðneskum auðæfum ... heldur hitt hvernig við höfum varðveitt sálargullið, barnið í okkur sjálfum." Og síðar í sama bréfi: „Það er þessi þjónusta sem er guði þóknanleg að vinna í einrúmi að hagsæld annarra manna.“ Gunnlaugur Stefánsson hafði sérstakt dálæti á börnum og yndi af að setja sig inn í hugarheim þeirra, gleðja þau með gjöfum, horfa á þau að leik, vekja hjá þeim spurn og eftirvæntingu. Hann lagði áherslu á að vernda barnið í sjálfum sér og sagði að það ætti hver maður að gera til hinstu stundar og það mun honum hafa tekist. í þessu sambandi minnist ég þess að hann hafði dálæti á þessu erindi úr ljóði eftir Matthías skáld Jochumsson: Seinni ára gæðin, fé og frægð, flestum eykur meiri þraut en hægð; innra lífsins lán á enginn til lengur en hann gætir barnsins yl. Gunnlaugur Stefánsson var persónuleiki sem setti svip á umhverfi sitt. Yfir honum var reisn og hann dró að sér athygli. Hann var hrifnæmur og hlýr, gustmikill og örlátur og lét verkin tala. í raun var hann horfinn að mestu af sjónarsviðinu fyrir nokkrum árum. Hann fór á Sól- vang í janúar 1978 og mátti sig þaðan lítið hræra. Þar leið honum vel við góða umönnun og aðhlynn- ingu og alveg sérstaka umhyggju Árna sonar síns sem naumast lét svo dag líða að hann heimsækti ekki sinn aldraða föður á sjúkra- beðinn. Ég veit hann var orðinn hvíld- inni feginn og því vil ég enda þessi fátæklegu orð með tilvitnun úr ljóði eftir Davíð frá Fagraskógi sem Gunnlaugur hafði sjálfur rit- að í bréf til vinar síns. Velkomin nótt sem allir þreyttir þrá, sem þjáða getur svæft með friðarkossi. Blessuð veri minning Gunnlaugs Stefánssonar. Snorri Jónsson í dag kveðja Hafnfirðingar og fjöldi vina um landsbyggð alla aldurhniginn heiðursmann er tek- ur hinstu hvílu í hafnfirskri mold. Gunnlaugur Stefán Stefánsson fyrrum kaupmaður, brauðgerðar- maður, iðnrekandi og útvegsbóndi, andaðist í hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði, fimmtu- daginn 22. ágúst síðastliðinn, tæplega 93 ára gamall. Löngu og merku ævistarfi er lokið. Gunnlaugur Stefán fæddist í Hafnarfirði 17. nóvember 1892. Foreldrar hans voru Sólveig Gunnlaugsdóttir, fædd í Reykja- vík, en foreldrar hennar voru Val- gerður Hildibrandsdóttir frá Ási við Hafnarfjörð og Gunnlaugur Jónsson, sjómaður, ættaður af Álftanesi. Þau voru búsett í Hafn- arfirði. Eiginmaður Sólveigar var Stefán Sigurðsson trésmiður frá Saurbæ í Vatnsdal í Húnavatns- sýslu, nátengdur hinum lands- kunnu stórbændum á Þingeyrum þar í sveit. Foreldrar Gunnlaugs gengu í hjónaband 1884 í Njarðvíkum og hófu þar búskap í nýbyggðu húsi er Stefán hafði reist þeim hjónum þar í héraði. Ári síðar fluttust þau hjón bú- ferlum til Hafnarfjarðar og reistu þar snoturt íbúðarhús neðst í „Illubrekku", sem var ávallt nefnt „Stefánshús", og er nú við Suður- götu nr. 25. Þar bjuggu þau hjón allan sinn búskap til andláts Stef- áns árið 1906, og Sólveig síðan með börnum sinum til hárrar elli. Eftir 21 árs farsælt hjónaband og kærleiksríkt fjölskyldulíf í Stefánshúsi féll fyrirvinnan skyndilega frá og var allur. Eftir lifði ung ekkja með sjö ung börn á framfæri, aðeins tvö höfðu naumlega náð fermingar- aldri en hið yngsta var sex ára. Fátækt og þung spor horfðu gegn framtíð Sólveigar og barn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.