Morgunblaðið - 30.08.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
37
Elton John og stráhatturinn
Með stráhattinn sem olli fjaðra-
fokinu ásamt eiginkonunni Renate
og leikkonunni, Nanette New-
mann.
Elton John og Renate.
Elton John og frúin Renate
lögðu leið sína í leikhús í
London nýlega til að sjá verkið
„Stepping Out“ sem er vart í frá-
sögur færandi. En hann mætti
að venju skrautlegur og bar m.a.
á höfði hinn skemmtilegasta
stráhatt.
Áhorfendur í leikhúsinu voru
ekki eins hrifnir, því það sást
ekki mikið á sviðið fyrir þá er
sátu fyrir aftan rokkstjörnuna.
Þegar það var fært í mál við
hann hvort nokkur möguleiki
væri á því að hann tæki ofan
gripinn brást hann hinn besti við
og færði sig í konunglegu stúk-
una svo hann truflaði engan.
A einhver mynd af braki
skipsins „Grimsby Town“?
Okkur barst þetta bréf í
hendur hérna á Morgun-
blaðinu þar sem maður að nafni
Lond biður okkur að aðstoða sig
við að finna einhvern sem ætti
mynd af braki togarans „Grims-
by Town“ sem strandaði hjá
Hjörleifshöfða 23. apríl 1946.
Faðir hans var einn af þeim er
drukknuðu er skipið strandaði
og var aðeins 26 ára gamall.
Manninum hefur verið tjáð að
brakið hafi verið sýnilegt í nokk-
ur ár eftir atburðinn.
Hér er sem sagt ósk mannsins
komið á framfæri og segist hann
muni meta það mjög, ef einhver
vildi senda sér mynd (gegn
greiðslu) og nánari upplýsingar,
því hann hyggst heimsækja stað-
inn þar sem skipið sökk, innan
skamms.
Heimilisfang hans er:
Mr. GJ.Lond, 21 Milton
Road, Grimsby,
South Humberside DN
33
IBQ England
COSPER
TONAFLOÐ
laugardagskvöldiö 31. ágúst
12 söngvarar ásamt
hljómsveitinni Goögá
flytja nær 30 lög
frá gullaldarárum
rokksins ásamt nokkrum
af perlum síöustu
ára undir röggsamri
stjórn Sigga Johnnie
□ 0
Oddrún Berta Selma
PPúfici SWmw
*
SPétC bt&i/U g/uMUceM ccð
Acettc
Faðir bréfritara sem drukknaði að-
eins 26 ára að aldri.
Til hundsins ykkar. — Frá innbrotsþjófínum.
Matur framreiddur kl. 20.00
Boröapantanir í síma 46500
frá kl. 13.00—19.00
Veitingahúsiö
Smiöjuvegi 1, Kopavogi
Sími 46500