Morgunblaðið - 30.08.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
47
Einar í lögreglufylgd?
Oddurí
undanrásir
„MÉR gekk ágætlega í dag, ég
fékk að vísu engan sérstakan tíma
því það var bara hjaupiö upp é
sætin, ekki tímann. Ég varð annar
í mínum riðli 6 47,43 og komst í
millirásír," sagöi Oddur Sigurðs-
son, eftir að hann hafði tryggt sér
sæti í undanrásum 400 m hlaups-
ins á heimsleikum stúdenta sem
fram fara í Japan.
„Ég leiddi mest allt hlaupiö, en á
síöustu metrunum skaust Rússi
fram úr mér og sigraöi. Þaö veröur
örugglega mjög erfitt aö komast í
úrslitahlaupiö, en ég geri mitt
besta. Þaö er mikiö af góöum
hlaupurum hérna, en ég er í mjög
góöri æfingu og ætla aö komast í
úrslitahlaupsiö."
Oddur sagöi aö þetta væri mjög
stórt mót og þaö væri mikill áhugi
fyrir þvi í Japan. „Leikvangurinn
tekur 60.000 manns i sæti, en í dag
voru ekki nema um 30.000 aö fylgj-
ast meö, enda var ekki keppt til
úrslita í neinni grein. Þaö eru um
5000 keppendur á þessu móti og
stemmningin er góö,“ sagöi Oddur
aölokum.
— keppir í Japan á laugardaginn
Morgunbladid/Þórarinn Ragnarsson
• Einar Vilhjálmsson hefur i nógu aö snúast og þeysist heimshorna á
milli á keppnisferðum sínum.
• Oddur Sigurðsson ætlar sér i úrslitahlaupiö í Japan.
EINS og við skýröum frá í gær
ætlar Einar Vilhjálmsson að
keppa á heimsleikum stúdenta í
Japan. Einar keppti í vikunni í
Koblenz í Þýskalandi og ætlar
síöan að koma sér til Japan.
Feröalagiö tekur um 18 klukku-
stundir og þaö veröur allt aö
standast, flugferöir, lestarferöir
og fleira, ef Einar á aö ná til
keppnisstaöarins í tæka tíö.
Valdimar Örnólfsson er í Japan
og sagöi hann t samtali viö Morgun-
blaöiö aö veriö væri aö vinna aö því
aö seinka spjótkastskeppninni eins
og unnt væri til aö Einar gæti keppt.
„Mótsstjórinn hefur seinkaö
spjótinu og Einar var settur í seinni
hópinn og er síöastur þar. Þeir hafa
einnig boöist til aö bíöa á flugvellin-
um eftir aö hann komi og flytja hann
í lögreglufylgd til keppnissvæðisins
og veriö er að athuga hvort mögu-
legt sé aö flytja hann meö þyrlu á
milli fiugvallarins og íþróttasvæöis-
ins. Þeir vilja allt fyrir okkur gera
hérna og allir bíöa spenntir eftir því
aö fá aö sjá Einar kasta, þvi hann
hefur staöiö sig vel og þeir þekkja
hann hérna í Japan vegna þess,“
sagöi Valdimar i samtalinu.
FYRIR YKKUR’
Skipholt 35
Einstakt tækifæri
til aö fata upp
alla fjölskylduna.
Meira en 5000
flíkur og
allar á kr. 300
jakkar, buxur, skyrtur, skór, peysur,
blússur og fl. og fl.
og svo er þaö
SÉRTILBOÐIÐ
Þú velur 4 flíkur á 1000.-
og
10 flíkur á 2000.-
ER HÆGT
AÐ GERA BETUR?
Yfir 200 teg. af fataefn-
um, allar á
100 kr. metrinn.
„FYRIR YKKUR
Skipholt 35
(viö hliöina á Tónabíói).
Morgunblaöiö/Friöþjófur.
• Ragnheiður Jónsdóttír, ÍA, skallar hér aö marki Vals en til varnar
eru Erna Lúövíksdóttir markvöröur og Vódís Ármannsdóttir.
Valssigur
Valsstúlkurnar uröu í gær-
kvöldi bikarmeistarar í knatt-
spyrnu þegar þær sigruöu Akur-
nesinga 1:0 í úrslitaleiknum á
Valbjarnarvelli í Laugardal. Eina
mark leiksins skoraói Kristin
Arnþórsdóttir eftir aó hún fókk
stungu frá Evu Þóróardóttur strax
á 10. mín. leikains.
Jafnræði var framan af en síöan
sóttu Skagastúlkur mun meira en
allar sóknaraögeröir þeirra strönd-
uöu á Guörúnu Sæmundsdóttur
og það sem komst framhjá vörn-
inni varöi Erna í markinu hjá Val.
Skagastúlkurnar fengu mjög
gott marktækifæri á fyrstu mínútu
síöari hálfleiks en sem fyrr vildi
knötturinn alls ekki inn. Mikil
sþenna var í síöari hálfleiknum og
sóttu Skagastúlkur mun meira og
oft skaþaöist hætta viö mark Vals.
Einu sinni átti ÍA þrjú skot í röö
sem lentu í varnarmönnum og
Erna varöi fallega. Leiknum lauk
því meö eitt—núll-sigri Vals og
bikarinn í höfn annaö áriö í röö.
Heimsleikar stúdenta: