Morgunblaðið - 30.08.1985, Side 48

Morgunblaðið - 30.08.1985, Side 48
 SIAÐFEST lANSIRAUST KEILUSALURINN OPINN 10.00-02.00 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. Vestmannaeyjar: Stúlka hætt komin í sund- lauginni ÁTTA ára gömul stúlka liggur í lífs- hættu í sjúkrahúsi í Reykjavík eftir að hafa fundist meðvitundarlaus á botni sundlaugarinnar í Vestmannaeyjum seinnipartinn í gær. Með lífgunartilraunum tókst að koma lífi í hana og var hún síðan í gærkveldi flutt til Reykjavíkur í sjúkraflugi. Samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar í Vestmannaeyj- um er ekki vitað nánar um tildrög slyssins. Ekki of seint að fara í berjamó Samkvæmt upplýsingum veðurstof- unnar hefur næturfrost aðeins mælst eina nótt, aðfaranótt sl. þriðjudags, og þá einkum norðanlands. I'að fara að verða síðustu forvöð að tína ber, því berin þola ekki margar frostnætur án þess að skemmast. Berjaspretta hefur verið sæmileg sunnanlands, minni norðanlands og vestan. ÞRJÁTÍU fyrrverandi alþingis- menn komu saman á Þingvöllum í gærkvöldi og var myndin tekin við það tækifæri. Þetta mun vera í fyrsta sinn Lávarðadeildin“ á Þingvöllum H. Morgunblaðið/Bjami sem fyrrverandi þingmenn koma saman til að rifja upp gömul kynni og minnast sam- starfsáranna á Alþingi. Haft var á orði að vissulega hefði verið kominn tími til að hittast á ný því mörg ár væru liðin síðan margir þingmann- anna hefðu haft tækifæri til að ræðast við. Formleg samtök hafa ekki verið stofnuð eins og algengt er erlendis. Hins vegar lýstu margir áhuga á því að halda hópinn og hittast oftar. Mjólk og mjólkuraf- urðir hækka um 8 % MJÓLK og mjólkurafurðir hækka að meðaltali um 8% þann 1. sept- ember. Enn hefur ekki verið ákveð- ið verð á einstökum tegundum. Hver mjólkurlítri kostar nú krónur 30,90 en mun kosta krón- ur 33,40 eftir hækkunina ef um 8% hækkun verður að ræða. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hækkun á kjöt- verði, en búist er við að það verði gert um miðjan september. Líkur á skorti á þorskblokkinni — segir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Iceland Seafood í Bandaríkjunum „ÞAÐ eru líkur á því, að skortur verði á þorskblokk á markaðnum þegar líða tekur á árið. Það hefur ekki skeð í 3 til 4 ár, og getur orðið mjög alvarlegt Rekstur fiskrétta- verksmiðja grundvallast á fram- leiðslu allt árið, þannig að algjör skortur getur orðið mjög afdrifaríkur og haft áhrif á viðskiptin í framtíð- inni. Eigum við ekki vöruna til handa viðskiptavinunum, kaupir hann hana annars staðar," sagði Guðjón B. Olafsson, framkvæmdastjóri Iceland Seafood, dótturfyrirtækis Sambands- ins í Bandaríkjunum, í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum nægilegar birgðir af þorskflökum í bili. Við höfum að undanförnu verið með birgðir í hærra lagi, en staðan er býsna góð i dag. Við vorum méð ýsuflök í skömmtun til viðskiptavina okkar alveg frá því í nóvember á síðasta ári og fram í maí á þessu. Við átt- um síðan nóg af ýsuflökum i Bandaríkjamarkaður: Lágt verð fæst fyrir íslenzkan hörpudisk VERÐ á íslenzkum hörpudiski í Bandaríkjunum hefur verið fremur lágt und- anfarið eitt og hálft ár. Verð á hverju pundi af hörpudiski í öðrum stærðar- flokki er nú um einum dollar (40 krónum) lægra en það hefur orðið hæst. Magnús Þrándur Þórðarson, framkvæmdastjóri Royal lceland í Bandaríkjun- um, segir þetta langvinnustu lægð, sem íslenzkir útflytjendur hörpudisks hafi mátt þola á þessum markaði. Royal Iceland er dótturfyrirtæki Sig. Ágústssonar í Stykkishólmi og er með söluskrifstofu í Berkley við San Francisco. Magnús Þrándur sagði, að fram að þessu tímabili hefðu sveiflur á markaðsverði var- að í styttri tíma eða 4 til 6 mánuði. Hann sagði helztu skýringu þessa mikið framboð á smáum og ódýrum hörpudiski frá Flórida fram á vor og síðan talsvert framboð af fersk- um og frystum hörpudiski frá Perú, sem einnig væri á fremur lágu verði. Hann sagðist ekki sjá teljandi batamerki á markaðsverði íslenzks hörpudisks á næstu miss- erum, að minnsta kosti ekki neinar verðhækkanir, sem talizt gætu verulegar. Magnús sagði, að mest af hörpu- diskinum frá íslandi væri í öðrum stærðarflokki, 40 til 60 stykki í kílói. Fyrir hann væru að fást frá um 90 til 100 krónur pundið. Hann teldi þennan stærðarflokk virði um 114 króna á pundið miðað við eðli- legar markaðsaðstæður. Hins veg- ar hefði verðið lægst orðið um 80 krónur fyrir pundið í þessum flokki og hæst tæpar 150 krónur. Þá gat hann þess, að framboð á hörpudiski frá íslandi væri mjög lítið miðað við það, sem til dæmis hefði að undanförnu komið frá Florida af smáa hörpudiskinum. Þaðan hefðu á tiltölulega skömmum tíma komið um 36 milljónir punda, en árs- framleiðsla heima næmi um 3 milljónum punda. Rjúpu-og gæsastofnar svipaðir og verið hefur „RJÚPUSTOFNINN hefur stækkað síðustu árin, en ekki hefur orðið nein veruleg breyt- ing á honum frá því í fyrra,“ sagði Arnþór Garðarson fugla- fræðingur í samtali við Morgun- blaðið. „Það er mjög lítil aukning milli ára núna. Stofninn hef- ur verið mjög jafn á Vest- fjörðum og Vesturlandi í langan tíma. En meiri breyt- ingar hafa verið á stofninum í Þingeyjarsýslum," sagði Arnþór. Arnþór sagði ennfremur að mikil stækkun væri á heiðar- gæsa- og grágæsastofninum. Alltaf væri nokkuð stað- bundinn breytileiki á stofnin- um en í heild væri um mikla fjölgun að ræða. Talning á þessum tegundum fer fram á Bretlandi á hverju ári og hefur svo verið sl. 34 ár. sumar. Staðan er í lagi nú, en til að koma í veg fyrir algjöran skort, þegar líða tekur á þetta ár, höfum við tekið upp skömmtun að nýju. Við eigum eðlilegar birgðir af ufsa- flökum nú, en vorum komnir anzi tæpt með þær í vor. Við eigum mjög lítið af karfa, en framleiðslan er aðeins að aukast heima núna. En það má segja að karfasalan hafi liðið fyrir það hjá okkur í sumar að við áttum ekki nóg af karfaflökum og á tímabili vorum við algjörlega uppiskroppa með þau. Af grálúðu höfum við selt meira en nokkru sinni áður, en við eigum ennþá þokkalegar birgðir, en hún gæti þó orðið uppseld hjá okkur innan tveggja mánaða vegna þess, að hún er ekki framleidd heima um þessar mundir.“ Hallgrímskirkja: Flugvélum beint frá vegna upp- töku jólaplötu UM ÞESSAR mundir er unnið að upptökum á hljómplötu með jólalög- um í Hallgrímskirkju. Örn og Öriyg- ur gefur plötuna út en stjórnendur eru Kristinn Sigmundsson og Hörður Áskelsson. Til þess að engar truflarnir verði við uptökuna, fékkst leyfi lögreglu til að loka umferð um götu í ná- grenni kirkjunnar. Ennfremur fékkst leyfi hjá flugmálastjóra til að beina flugumferð frá kirkjunni á meðan á upptöku stendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.