Morgunblaðið - 25.02.1986, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.02.1986, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1986 B XI sigur á Sovétmönnum. Liö íslands var í C-riðli með liöum Danmerkur, Sovétríkjanna og Spánar og tapaöi öllum leikjunum. 1982: Keppnin fór fram í V-Þýzkalandi og nú urðu Sovétmenn heims- meistarar. Þeir sigruöu Júgóslava 30—27 eftir framlengdan leik í úr- slitum. Pólverjar sigruöu Dani 23—22 í keppni um 3. sætiö og enn lentu því Danir í 4. sæti. 1986: Úrslitakeppni 16 sterkustu þjóöa í handknattleik fer fram í Sviss. Áður en dregið var í riðla var liðunum raðað í fjóra hópa eftir árangri. [ fýfsta hópnum voru lið þeirra þjóða sem lentu í fjórum efstu sætunum á ÓL í Los Angeles 1984 eða Júgóslavía, V-Þýzkaland, Rúmenía og Danmörk. í öðrum hópnum voru Svíþjóð, (sland og Sviss (5.-7. sæti á ÓL) og A-Þýzkaland (sigurvegarar í sið- ustu B-keppni). Þriðja hópinn skip- uöu lið þeirra þjóða, sem lentu í 2.-5. sæti í B-keppninni eða Sovétríkin, Pólland, Tékkóslóvakía, Sovétríkin og Ungverjaland. Fjórði hópurinn var fulltrúar Ameríku, Asíu og Afríku auk liðs númer 6 í B-keppninni eða Kúba, S-Kórea, Alsír og Spánn. 6 efstu lið keppn- innar í Sviss tryggja sér rétt til að leika á ÓL 1988. S.G. Verdlaun í heimsmeistarakeppninni frá upphafi Ár Gull Sllfur Brons 1938 Þýzkaland Austurríki Sviþjóð 1954 Svíþjóð V-Þýskaland Tékkóslóvakía 1958 Svíþjóð Tékkóslóvakia A-Þýskaland 1961 Rúmenía Tékkóslóvakfa Svíþjóð 1964 Rúmenía Svíþjóð Tékkóslóvakía 1967 Tékkóslóvakía Danmörk Rúmenía 1970 Rúmenía A-Þýzkaland Júgóslavía 1974 Rúmenía A-Þýzkaland Júgóslavía 1978 V-Þýzkaland Sovétrikin A-Þýzkaland 1982 Sovétríkin Júgóslavía Pólland 1986 ? ? ? Ur sögu handknattleiksins Heimildum ber ekki saman um hvar eða hvenær handknattleikur var fyrst leikinn. í Tékkóslóvakíu þekktist leikur fyrir síðustu alda- mót, sem nefndist ceska hazená eða tékkneskur handknattleikur. Um aldamótin var Holger Nielsen leikfimikennari í Ordrup í Dan- mörku. Hann bannaði drengjunum að sparka' bolta áður en kennslu- stundin byrjaði, en tók þá eftir, að drengirnir köstuðu boltum á milli sín þess í stað og höfðu gaman af. Þarna var komið efni í nýjan leik og Holger Nielsen samdi og gaf út fyrstu reglur í handknattleik árið 1906. Um svipað leyti var byrjað að leika handknattleik í Þýzkalandi, en hann var leikinn úti á knattspyrnuvöllum. Reglum knattspyrnunnar var breytt, þann- ig að leikið var með höndum. Þjóð- verjinn Max Heiser samdi reglur fyrir 11 manna handknattleik árið 1917, sem landi hans Carl Schel- enz endurbætti árið 1920. Þessi 11 manna handknattleikur þróaðist fyrst í nágrannalöndum Þýzkalands, Austurríki, Ungverja- landi, Sviss, Rúmeníu og Frakk- landi á meðan Skandinavar léku sinn 7 manna bolta inni. Handknattleikur heyrði undir Alþjóðafrjálsíþróttasambandið (IAAF) til 1928, en þá var Alþjóða- handknattleikssamband áhuga- manna (IAHF) stofnað af fulltrúum 11 þjóða. Utihandknattleikur var á dag- skrá Ólympíuleikanna í Berlín 1936 og kepptu sex þjóðir. Heimamenn sigruðu í keppninni, en hin liðin voru frá Austurríki, Sviss, Ungverj- alandi, Rúmeníu og Bandaríkjun- um. Alþjóðahandknattleikssam- bandið (IHF) var svo stofnað 1946. Handknattleikur innanhúss varð æ vinsælli á kostnað leiksins úti og síðasta heimsmeistarakeppnin utanhúss fór fram 1963. Hand- knattleikur innanhúss var á dag- skrá OL 1972 og hefur verið þar siðan. í dag er handknattleikur með vinsælli knattleikjum í heimin- um og fleiri og fleiri þjóðir sækja umaðild aðlHF. S.G. Frá handknattleik f Danmörku skömmu eftir síðustu aldamót. Holger Nielsen í hermannabúningi dæmir. Egyptum. Lið Svíþjóðar og Ung- verjalands komust áfram í milliriöl á betra markahlutfalli en lið ís- lands. Rúmenar urðu heimsmeist- arar ööru sinni með sigri á Svíum í úrslitaleik 25—22. Tékkar unnu V-Þjóðverja 22—15 og lentu því í 3. sæti. 1967: Keppnin fór fram í Svíþjóð 12.—31. janúar. 16 lið léku í 4 riðlum og var síöan leikin útsláttar- keppni, þannig að sigurvegarar í A-riöli léku við liö númer 2 í D-riöli, B1 við C2, D1 við A2 og C1 við B2. Sigurvegarar úr þessum leikj- um léku i undanúrslitum og sigur- vegarar þar léku til úrslita. Tékkar urðu heimsmeistarar meö því aö sigra Dani 14—11 og Rúmenar unnu Sovétmenn 21—19 eftir framlengdan leik og hlutu brons- verðlaun. 1970: Keppnin fór fram í Frakklandi og lenti íslenska liðið í 3. sæti í D-riðli og lék því um 9.—12. sæti í keppninni. Rúmenar sigruðu A-Þýzkaland 13—12 eftir tvífram- lengdan leik og urðu heimsmeist- arar í þriðja sæti. Júgóslavar unnu Dani 29—12 í keppni um 3. sætið. íslendingar lentu í 11. sæti. 1974: Úrslitakeppnin fór fram í A-Þýzkalandi og enn urðu Rúmen- ar heimsmeistarar. Þeir sigruðu heimamenn 14—12 í úrslitaleikn- um. Júgóslavar uröu í 3. sæti eftir sigur á Pólverjum 18—16. íslend- ingar léku í A riðli með Dönum, Tékkum og V-Þjóðverjum og töp- uðu öllum leikjunum. 1978: Danir héldu úrslitakeppnina og ætluðu sér stóra hluti. En þeir héldu uppteknum hætti og lentu í 4. sæti eftir að hafa tapað 15—19 fyrir A-Þjóðverjum. V-Þjóöverjar urðu heimsmeistarar eftir 20-19- Copía: Ljósmyndasafnið. Ljósmynd: PóturThomsen Frá leik íslendinga og Finna. Sigurhans með skot af línu. Markadómari fylgist vel með. Línudómari þriðji til vinstri. landið á sumrin á þessum árum og héldu námskeið í handknattleik. Leikurinn varð strax vinsælli hjá stúlkum en piltum úti á landi. Þór og Týr kepptu í útihandknattleik, 11 í liði, á Þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum árið 1931 og að sögn Þor- steins Einarssonar, fyrrverandi íþróttafulltrúa ríkisins og dómara leiksins, voru stúlkurnar síst verri en piltarnir, sem æfðu í Reykjavík á sama tíma. Landsmót Fyrsta íslandsmótiö innanhúss fór fram í húsi Jóns Þorsteinssonar árið 1940. Salurinn er 12x24 m og léku 5 í liði. Leiktími í mfl. var 2x15 mínútur og knattrak var bannað. Valur varð Islandsmeistari fyrstu 3 árin í mf. karla og Ármann fyrstu 5 árin í mfl. kvenna. Aðstæð- ur gjörbreyttust með tilkomu íþróttahallarinnar í Laugardal árið 1965 og hefur handknattleikurinn verið í stöðugri framför síðan. Landsleikir Áformað var að halda heims- meistarakeppni í handknattleik í Svíþjóð árið 1950 og ætluðu ís- lendingar að vera með. Hætt var við keppnina vegna lítillar þátttöku. Því var samið um landsleiki við Svía og Dani og var fyrst leikið gegn Svíum í Lundi 15. febrúar 1950. Um leikinn gegn Dönum í Kaupmannahöfn skrifaði Haf- steinn Guðmundsson í íþrótta- blaðið í apríl sama ár m.a. eftirfar- andi: Um íslenska liðiö er það að segja, að það sýndi að þessu sinni, vægast sagt lélegan leik. Eins og svo oft áður vantaði fyrst og fremst baráttuviljann og góða „stemmningu" J liðið. Einnig koma sömu veilurnar fram í taktíkinni (þ.e. enginn línudans og óafgerandi varnar- spil á miðjunni). Leikið var gegn Finnum á Mela- vellinum 25. maí sama ár og lauk leiknum með jafntefli 3:3. Fyrsti landsleikurinn í handknattleik inn- anhúss á íslandi fór fram í íþrótta- húsinu á Keflavíkurflugvelli 1964. Áriö 1977 náðu þeir Geir Hall- steinsson, Viðar Símonarson og Ólafur H. Jónsson þeim áfanga að leika sinn 100. landsleik fyrir ís- land, en í árslok það ár hafði ísland leikið 201 landsleik í handknattleik. Fyrir HM í Sviss eru leikirnir orðnir 403 og 9 leikmenn í liðinu hafa leikið yfir 100 landsleiki. íslending- ar hafa sigrað 75 sinnum, 11 leikir hafa endað með jafntefli og 68 leikir hafa tapast. Markatalan er 3380 mörkgegn 3331 marki. íslendingar hafa 6 sinnum tekið þátt í HM og voru með á ÓL 1972 og 1984. S.G. Verðlaun á Ólympíuleikjum 1972—1984 Ár Gull Sllfur Brons 1972 Júgóslavía Tékkóslóvakia Rúmenia 1976 Sovétríkin Rúmenía Pólland 1980 A-Þýzkaland Sovétríkin Rúmenia 1984 Júgóslavía V-Þýzkaland Rúmenía '76 Rúmenia Pólland '76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.