Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
52. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Palme minnst á þingi Norðurlandaráds:
„Fulltrúi hugsjóna
sem Norðurlanda-
ráð er byggt á“
Kaupmannahöfn, 3. mars. Frá Sveini Sigurðssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÞING Norðurlandaráðs hófst í Kaupmannahöfn í dag í skugga
þess voðaatburðar sem er dauði Olofs Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar. „Við höfum misst þann mann sem frekar en nokkur
annar var fulltrúi þeirra hugsjóna sem Norðurlandaráð er byggt
á,“ sagði Páll Pétursson, fráfarandi forseti ráðsins, í sérstakri
minningarathöfn um Palme. Að ræðu hans lokinni minntust
forsætisráðherrar Norðurlanda Palmes og einnig Anker Jörg-
ensen, formaður danskra Jafnaðarmanna, en hann hefur nú
tekið við sem forseti Norðurlandaráðs.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði í ræðu sinni
þegar hann minntist Palmes að
fostudagurinn 28. febrúar hefði
verið mikill gleðidagur á íslandi
vegna nýgerðra samninga um
kjara- og efnahagsmál. Síðan hefði
fréttin um dauða Olofs Palme komið
eins og reiðarslag yfir þjóðina.
í almennu umræðunum í dag
urðu margir til þess að votta fjöl-
skyldu Olofs Palme og sænsku þjóð-
Tankskip
sprakk
Brest, 3. marz. AP.
GRÍSKA tankskipið Galini,
sprakk í kvöld er það var á sigl-
ingu frá Bretlandi til Portúgals.
Að minnsta kosti tveir skipverjar
fórust, tveir slösuðust lífshættu-
lega og níu er saknað.
Galini stóð í björtu báli þegar
síðast fréttist. Skipið er 70 þúsund
lestir. Atvikið átti sér stað um 200
sjómílur undan Frakklandsströnd.
Bezta veður er á slysstaðnum.
Skipið var tómt og er óttast að
neisti hafi komizt í eldfimar olíuguf-
ur í tómum tönkum þess.
Tvö skip björguðu 26 skipveijum
af brennandi skipinu. Þyrlur sóttu
hina særðu á haf út og flugu þeir.i
til Norður-Spánar.
inni samúð sína, en að öðru leyti
snerust umræðumar um þau mál,
sem fyrir þinginu liggja.
Steingrímur Hermannsson gerði
í ræðu sinni grein fyrir þróun efna-
hagsmála á Islandi og þeim erfíð-
leikum, sem þjóðin hefði átt við að
stríða á undanfomum ámm. Fjall-
aði hann um þá samninga, sem nú
hefðu tekist, og þær vonir, sem nú
væm bundnar við að þjóðinni tækist
að snúa af verðbólgubrautinni.
Eiður Guðnason, sem sæti á í
menningarmálanefndinni, gerði
meðal annars fjárlög Norðurlanda-
ráðs að umtalsefni, en um þau er
mikill ágreiningur. Fjárlagatillagan
hljóðar upp á 540 milljónir danskra
króna (2,7 milljarða ísl. kr.) og
hafa útgjöldin því í raun ekkert
hækkað á milli ára. Sagði hann að
framlögin til menningarmála væm
sér mikil vonbrigði, í þessum efnum
stæði nú Norðurlandaráð á kross-
götum.
Sverrir Hermannsson gerði lyktir
handritamálsins að umtalsefni í
sinni ræðu og taldi þær dæmi um
alþjóðasamvinnu eins og hún best
gerist.
Almennu umræðunum verður
fram haldið á morgun, þriðjudag,
og verður þá m.a. rætt um skýrslu
norrænu ráðherranefndarínnar um
norræna samvinnu.
Sjá frásögn frá Norðurlanda-
ráðsþingi á bls. 32.
StóIlPalmes
Nordfoto/Símamynd
Paul SchlUter, forsætisráðherra Danmerkur, stendur við stól
þann, sem ætlaður var Olof Palme á þingi Norðurlandaráðs,
sem hófst í Kaupmannahöfn í gær. Palme var minnst með
athöfn við þingsetningar. Á borðið hefur verið lagður vöndur
drottningarblóma.
Irakar
ráðast á
Kharg
Manama, 3. mar? AP.
IRAKAR kveðast hafa ráðist eina
ferðina enn á olíuhöfn írana á
Khargeyju og stæðu mannvirki
þar í ljósum logum. Síðustu daga
hafa sex tankskip verið löskuð
nálægt Khargeyju í átökum Ir-
ana og íraka.
Um 90% allrar olíu írana er skip-
að um borð í skip við Kharg og
telja írakar sig geta neytt írani til
þess að semja um frið með því að
laska þar mannvirki og stöðva lest-
un.
Vamarmálaráðherra íraks hvatti
írani til uppgjafar á Faw-skaga
því þær væru hvort eð er umkringd-
ar og biði ekkert annað en slátrun
ef þeir bæðust ekki vægðar. Ráð-
herrann sagði „aðra lotu“ gagn-
sóknar íraks á Faw í uppsiglingu
. og látið yrði til skarar skríða þegar
tímabært yrði.
Yfirlýsingar stríðsaðila í dag og
um helgina stönguðust á, eins og
verið hefur, og lýstu báðir stórsigri
í bardögum á átakasvæðunum.
Samtök, sem bejjast gegn
klerkastjóminni í íran héldu því
fram í dag að 168 stjómarandstæð-
ingar hefðu verið teknir af lífi með
leynd þar í landi upp á síðkastið.
Einn þeirra hefði verið brenndur
lifandi á báli.
Sænska lögreglan um rannsókn morðsins á Olof Palme:
Stöndum ennþá
í sömu sporum
Stokkhólmi, 3. marz. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbiaosins. Ar.
LOGREGLAN í Stokkhólmi
kveðst lítt hafa komizt áleiðis í
rannsókninni á morðinu á Olof
Palme, forsætisráðherra. „Við
Corazon spáir
bættri sambúð
Manila, 3. marz. AP.
CORAZON Aquino, forseti,
sagðist búast við að samband
Filippseyja og Bandaríkjanna
styrktist eftir stjórnarskiptin á
FÚippseyjum og útilokaði hún
í samtali við AP-fréttastofuna
að tekið yrði upp náið samband
við Sovétríkin.
Corazon kvaðst hafa áætlun
um framtíð bandarísku herstöð-
vanna á Filippseyjum en kveðst
ekki vilja birta hana fyrr en við-
ræður við Bandaríkjamenn hefj-
ast. Hún kvaðst mundu reyna að
semja eins og framtíð þjóðarinnar
væri fyrir beztu.
Forsetinn kvaðst vilja að stofn-
anda kommúnistaflokksins yrði
sleppt úr haldi, en hún hefúr nú
fyrirskipað að allir pólitískir fang-
ar skuli undantekningarlaust látn-
ir lausir. Hins vegar hótaði Coraz-
on því að ef félagar í flokknum,
sem er útlægur, legðu ekki niður
vopn og lýstu stuðningi við stjórn-
ina, myndi her landsins elta þá
áfram á röndum.
Leiðtogar stjómmálahreyfinga,
sem studdu Ferdinand Marcos,
fyrrum forseta, tilkynntu í dag
að þeir teldu stjóm Corazon lög-
mæta og sögðu það aðeins forms-
atriði að ógilda þingúrskurð um
að Marcos hefði verið réttkjörinn
forseti í kosningunum 7. febrúar.
Sjá „Hvað verður um auðæfi
Marcosar" á bls. 25.
stöndum í sömu sporum og í
upphafi,“ sagði talsmaður lög-
reglunnar. Tekizt hefur að rekja
slóð banamannsins allt að 2 km
frá morðstaðnum upp á Öster-
malm. Leið morðingjans lá um
tröppur og stiga og var ógerlegt
að veita honum eftirför á bíl.
Hefur hann komizt undan á
hlaupum.
Hans Holmer, lögreglustjóri,
hafði áður gefið í skyn að lögreglan
væri komin á sporið. Tilræðið hefði
verið rækilega skipulagt og svo
virtist sem morðinginn hefði fylgst
grannt með ferðum Palme um hríð.
Staðfest var í dag að Rauðu
herdeildimar í V-Þýzkalandi hefðu
lýst ábyrgð á hendur sér örfáum
klukkustundum eftir morðið, er
hringt var í sænskan sendiráðs-
mann í Bonn. I kvöld hringdi maður
í nafni herdeildanna til fréttastofu
í London og sagði að félagar í
Holger Meins-sveitunum, sem aðild
eiga að herdeildunum, hefðu myrt
Palme. Lögreglan verst nú hins
vegar allra frétta; blaðamannafundi
var aflýst síðdegis. Herdeildimar
hafa sjaldan látið að sér kveða utan
V-Þýzkalands og venjulegast beitt
sér gegn bandarískum hermönnum
eða NATO-mannvirkjum. Er ólík-
legt talið að þær beri ábyrgð á
morðinu.
Ingvar Carlsson, sem tók við
forsætisráðherrastarfi af Palme,
var kjörinn eftirmaður hans sem
formaður Jafnaðarmannaflokksins.
Hann sagði í dag að verk Palmes
hyrfu ekki með honum og kvaðst
Carlsson myndu fylgja stefnu hans
áfram.
Sjá ennfremur fregnir varð-
andi Palme-morðið á bls. 24
ogf grein um Ingvar Carlsson,
hinn nýja forsætisráðherra
Svíþjóðar, á bls. 20.
11 særðust
París, 3. marz. AP.
ELLEFU manns slösuðust er
sprengja sprakk á krá við Lýð-
veldistorg í Parísarborg í kvöld,
þrír þeirra alvarlega. Óljóst er
hvort um hermdarverk haf i verið
að ræða.