Morgunblaðið - 04.03.1986, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986
Þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn:
Fyrirspurn frá Dönum
um örýggisgæslu ís-
lensku sendinefndarinnar
DÖNSK lögregluyfirvöld hafa
stóraukið öryggisgæslu á þingi
Norðurlandaráðs, sem nú stend-
ur yfir í Kaupmannahöfn. Fyrir
þingið barst fyrirspurn frá
dönskum yfirvöldum hingað til
Rafmagn og
hiti lækka
GJALDSKRA Rafmagns-
veitna ríkisins á almennum
töxtum, svo sem heimilis-
töxtum, lækkaði um 10%
frá og með 1. mars. Enn-
fremur var fellt niður verð-
jöfnunargjald svo lækkunin
nemur samtals 20%. Ekkert
verðjöfnunargjald hefur
verið á rafmagni til heimilis-
hitunar en það lækkaði um
7%, en niðurgreiðslur á því
eru óbreyttar og nemur
lækkunin þvi samtals um
11—12%. Gjaldskrá Hita-
veitu Reykjavíkur lækkar
um 7% og kostar hver rúm-
metri af heitu vatni nú krón-
ur 18,60, en kostaði frá og
með siðustu áramótum 20
krónur.
Að sögn Stefáns Amgríms-
sonar deildarstjóra hjá Raf-
magnsveitum ríkisins kostar
Rafmagn t.d. á heimili sem
notar 4000 kílóvattstundir á
ári nú um 19.000 krónur, en
kostaði fyrir lækkun krónur
23.730.
Um síðustu áramót hækkaði
rafmagn um 14% og hitun um
17,6% en að sögn Stefáns
hefur almennur heimilistaxti á
rafmagni ekki verið lægri en
hann er nú síðan 1984. Meðal-
verð á síðasta ári var 4,64
krónur á kílóvattstund, en fer
nú niður í 4,22 krónur.
Jóhannes Zoéga hitaveitu-
stjóri sagði að um síðustu ára-
mót hefði gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur hækkað um
17,6% eða úr 17 krónum í 20
krónur hver rúmmetri af heitu
vatni. Hann sagði að lækkunin
nú úr 20 krónum í 18,60 krón-
ur hver rúmmetri jafngilti um
110—120 milljónum króna.
lands um hvort fyrirhugað væri
að senda öryggisverði með ís-
lensku sendinefndinni.
Böðvar Bragason, lögreglustjóri
í Reykjavík, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að fyrirspum hefði
borist frá Dönum hvað þetta varðar,
en engir öryggisverðir hefðu fylgt
íslensku sendineftidinni til Kaup-
mannahafnar. Danir hefðu hins
vegar sjálfir gert þær ráðstafanir,
sem þeir töldu nauðsynlegar varð-
andi öryggisgæslu á þinginu, en í
kjölfar morðsins á Olof Palme,
forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur
viðbúnaður verið stórefldur á öllum
Norðurlöndunum.
Sjá fréttir af Norðurlanda-
ráðsþingi í Kaupmannahöfn á
bls. 32.
VR samþykkti samningana
FÁMENNUR félagsfundur Verzlunarmannafé-
lagfs Reykjavíkur samþykktj nýgerða kjara-
samninga Alþýðusambands Islands og vinnu-
veitenda með yfirgnæfandi meirihluta í gær-
kvöldi. Um 130 manns sóttu fundinn, 117 voru
meðmæltir samningunum, en 12 á móti. Fáeinir
sátu hjá.
í VR eru liðlega átta þúsund fullgildir félag-
ar, en alls eru innan vébanda félagsins um 11
þúsund manns.
Smjör lækkar um 33%:
Liðlega 5% hækkun á unmim
mjólkurvörum og nautakjöti
— búist við 12% lækkun á bensíni um
miðjan mánuðinn
ar við unnar vörur, að því er Ás-
mundur sagði. „Ég hefði kosið að
þetta væri öðruvísi, en þar sem
um tilfærslur er að ræða brýtur
þetta ekki í bága við yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar," sagði hann.
LIÐLEGA fimm prósent hækk-
un varð á rjóma, skyri, ostum
og nautakjöti frá og með 1.
mars. Á móti er hafin smjörút-
sala — frá mánaðamótum lækk-
aði smjör um 33% þannig að
þessar verðbreytingar hafa
engin áhrif á framfærsluvísi-
tölu. Auknar niðurgreiðslur
komu í veg fyrir hækkun á
mjólk og kindakjöti, sem að
öðrum kosti hefðu hækkað um
nærri 5,4%. Þá er og gert ráð
fyrir að bensín muni lækka um
eða yfir 12% um miðjan þennan
mánuð, skv. upplýsingum blaðs-
ins.
Lítri af rjóma hækkaði úr 54,60
krónum í 57,40 krónur, kíló af
skyri úr 60,20 krónum í 63,40,
45% ostur í hálfum stykkjum úr
299,50 kr. kílóið í 314,30 og
nautakjöt, 1. flokkur í hálfum og
heilum skrokkum, úr 257,30 krón-
um kílóið í 270,70 krónur. Kíló
af smjöri var hinsvegar lækkað úr
410,20 krónum í 275 krónur, eða
um þriðjung.
Þessar verðbreytingar falla
innan ramma samkomulags aðila
vinnumarkaðarins við ríkisvaldið,
því hér er fyrst og fremst um til-
færslur að ræða, að sögn Ásmund-
ar Stefánssonar, forseta ASI.
Fyrir undirritun kjarasamning-
anna gaf ríkisstjómin ASÍ yfirlýs-
ingu um að mjólk og dilkakjöt, sem
vega þyngst í búvöruverði í fram-
færsluvísitölu, myndi ekki hækka
og eru tilfærslumar því afmarkað-
Útsvar Reykvíkinga
lækkað niður í 10,2%
ÚTSVAR Reykvíkinga hefur
verið lækkað úr 10,8% í 10,2%.
Ákvörðun um þetta var tekin á
aukafundi borgarráðs Reykja-
víkur sl. laugardag.
Á fundinum var einnig ákveðið
að lækka gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur um 7% og taxta Raf-
magnsveitu Reykjavíkur um 10%.
Þá var samþykkt að lækka dagvist-
argjöld um 5%.
Að sögn Davíðs Oddssonar, borg-
arstjóra, felur þessi ákvörðun í sér
125 milljóna króna tekjulækkun
fyrir borgarsjóð og þegar tekið er
tillit til tekjutaps af öðrum ástæð-
um, s.s. vegna lækkunar dráttar-
vaxta, er lækkunin samtals 193
milljónir króna.
Borgarstjóri sagði, að það jmni
á móti þessu tekjutapi að fram-
kvæmdir verða ódýrari vegna lækk-
unar byggingarvísitölu og orkuverð
lækkar og vaxtagjöld einnig, svo
nokkuð sé nefnt.
Snarræði og röð tilviljana
bjarga 5 úr brennandi húsi
Isafirði, 3. mars.
ROÐ TILVILJANA réð því að fimm manns björguðust úr brenn-
andi húsi að Engjavegi 33 á Isafirði um sexleytið að morgni
sunnudags.
Fjórir ungir piltar úr Bolungarvík og ung stúlka frá ísafirði
höfðu verið að halda upp á afmæli eins piltsins. Voru þeir að
skila stúlkunni heim en ákváðu að taka einn aukarúnt áður. Þegar
þau komu að innri enda Engjavegar sáu þau að eldur logaði út
um glugga á húsinu númer 33. Þijú þeirra þustu út úr bilnum,
en tveir piltanna óku í ofboði niður að slökkvistöð, sem er í um
það bil tveggja kílómetra fjarlægð.
Engin vakt er á slökkvistöd
ísafjarðar að nóttu til, en lögregl-
an svarar brunaútkalli. Nú vildi
svo vel til að tveir starfsmenn
slökkvistöðvarinnar voru að koma
úr sjúkraakstri. Lögðu þeir strax
af stað á brunastaðinn á tank-
bifreið. Þegar slökkvibíllinn kom
á vettvang voru ungmennin sem
eftir urðu búin að vekja tvær
stúlkur, 11 og 12 ára, sem voru
gestkomandi í húsinu, og tókst
að ná þeim út um dyr hússins,
sem þá stóðu í ljósum logum.
Eigandi hússins, Guðjón Þor-
steinsson, sem svaf ásamt tveimur
ungum dætrum sínum, Thelmu
og Kristínu, í herbergi fjær göt-
unni, hefur sennilega vaknað við
barsmíðar fólksins. Hann komst
við illan leik inn í baðherbergi á
norðurhlið hússins og náði að
bijóta þar gat á glugga. Pétur
Guðmundsson úr Bolungarvík sá
til hans og tókst honum að sparka
það mikið úr rúðunni að hann gat
dregið manninn út á þak við-
byggingar. Maðurinn var þá nánst
meðvitundarlaus.
Slökkviliðsmennimir tveir
lögðu þegar til atlögu við eldinn
með háþiýstidælum. Tvítugur
lögreglumaður, Guðmundur Ifylk-
isson, var þá kominn á staðinn,
en hann var á eftirlitsferð þegar
hann fékk tilkynningu um brun-
Morgunblaðið/Úlfar
Heimir Jónatansson, Pétur Guðmundsson og Finnbogi Svein-
björnsson, allir úr Bolungarvík, við húsið sem þeir björguðu íbúun-
um úr með sannræði sl. sunnudag. Um það bil 15 mínútur liðu
frá því að Heimir ók frá brennandi húsinu eftir að hafa látið
Pétur, Finnboga og Hildi Gylfadóttur út úr bilnum, þar til búið
var að bjarga öllum íbúum hússins. Á myndina vantar Hildi
Gylfadóttur og Ásgeir Jónsson, sem bæði tóku þátt í björgunarað-
gerðunum með hinum þremur.
ann. Hann hé!t strax inn í húsið
með reykgrímu og tókst honum
ásamt Jóni Olafi Sigurðssyni
slökkviliðsmanni, sem einnig var
kominn á vettvang, að fínna
stúlkubörnin tvö undir sæng í
rúmi í svefnherbergi. Þær voru
báðar meðvitundarlausar þegar
komið var með þær út. Lífgunar-
tilraunir voru þegar hafnar á
annarri þeirra, sem ekki virtist
anda, en með hjálp súrefnistækis,
sem var í sjúkrabíl sem mættur
var á staðinn, tókst að bjarga
henni.
Þær systumar em nú á sjúkra-
húsi í Reykjavík, en era taldar úr
lífshættu. Faðir þeirra fékk að
fara úr sjúkrahúsi um hádegisbilið
á sunnudag.
Slökkviliðsmenn og íbúar ná-
grannahúsa dreif nú að og tókst
að ráða niðurlögum eldsins á
skömmum tíma.
Hermann Bjömsson, sem starf-
að hefur í slökkviliði Isafjarðar I
rúm 45 ár og býr í næsta húsi
við brunastaðinn og kom strax á
vettvang, sagði að ef unga fólkið
hefði ekki verið jafn yfírvegað í
aðgerðum sínum og slökkviliðs-
mennimir tveir hefðu ekki fyrir
algera tilviljun verið á slökkvistöð-
inni þegar kallið kom, hefði senni-
lega allt fólkið brunnið inni.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar á Ísafírði er talið að kviknað
hafði í út frá rafmagni.
Úlfar