Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986 Tollalækkunin: Bílar lækka 1 verði um 18—32% BÍLAR lækka almennt um 18-32% í verði eftir þá lækkun tolla og innflutningsgjalds (bifreiðagjalds), sem samþykkt var á Alþingi fynr helgina. Tollar af öllum bifreiðum lækka úr 70% í 30% og innflutn- ingsgjald fellur niður af bifreiðum með vélar undir 2.000 rúmsentí- metra slagrými. Af stæiri bifreiðum greiðist stighækkandi innflutn- ingsgjald, 4%, 8% og 12%, eftir vélarstærð. Af því greiðist hins vegar söluskattur, sem ekki var áður tekinn af innflutningsgjaldi. Margrét Danadrottning Danadrottning heiðursdoktor við Háskóla íslands? MARGRÉTI Danadrottningu hefur verið boðin nafnbót heið- ursdoktors við heimspekideild Háskóla íslands. Heimspekideild Háskóla íslands gerði það að tillögu sinni sl. fimmtu- dag, að Margrét Danadrottning yrði sæmd heiðursdoktorsnafnbót við háskólann í tilefni af 75 ára afmæli háskólans og vegna þess, að handritamálið er til lykta leitt. Samþykkti Háskólaráð tillöguna einróma. Ekki hefur enn borist staðfesting á því, hvort drottningin hafí þegið nafnbótina. Mest er lækkunin á bílum með vélarstærð rétt undir 2.000 rúm- sentímetrum. Sem dæmi má nefna Opel Record, sem myndi kosta 870 þúsund án tollalækkunar, en kostar nú rúmar 600 þúsund. Það er um 31% lækkun. Chevrolet Monza lækkar einnig um 31%, úr 550 þús- undum í 420 þúsund. Opel Corsa lækkar um nálægt 28%, eða úr 430 þúsundum í 315 þúsund, og Subaru 1800 GL um nærri 32%, úr 695 þúsundum í 529 þúsund. Smærri bílamir lækka hlutfalls- lega minna. Það stafar af því að af bflum með vélarstærð undir 1.000 rúmsentímetra slagrými var ekki greitt innflutningsgjald, og © INNLENT Færeyingar kaupa íslenskt: Mikið selst af fisk- kössum og kerjum MIKIÐ hefur selst í Færeyjum undanfarið af ketjum og fiskköss- um frá fyrirtækjunum Plastein- angrun og Sæplasti. Að sögn Björns Guðmundssonar, starfs- manns Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins í Færeyjum, hefur selst nálega jafn mikið af keijum frá Sæplasti sl. tvo mánuði og allt árið í fyrra, eða um 1.000 ker. Salan í fískkössum frá Plastein- angrun hefur einnig verið mjög góð aðeins 4% af bflum með vélastærð frá 1.001 til 1300. Ódýrasta gerðin af Skoda lækkar um 23%, úr 193 þúsundum í 149 þúsund. Dýrasta gerðin lækkar hins vegar aðeins um 18%, úr 291 þúsundi í 237 þúsund. Lada Safír lækkar úr 230 þúsund- um í 191 þúsund, eða 20%, og Lada Station úr 235 þúsundum í 199, eða um 19%. Citroen Axel fer úr 320 þúsundum í 253 þúsund, sem er lækkun um 27%. Nissan Cherry lækkar um 20%, úr 398 þúsundum í 326 þúsund. á þessu tímabili, en hefur þó ekki alveg ná sölunni í fyrra, sem var um 40.000 kassar. Bjöm sagði að mikill áhugi væri í Færeyjum á íslenskri framleiðslu fyrir sjávarútveginn. Nýlega var þar sýning á vogum frá Marel, sem vakti mikla athygli, að sögn hans. Þá sagði Bjöm að roksala væri í handfæra- vindunum frá DNG á Akureyri, sem settar voru á markað í Færeyjum í haust. Dagskrá kirkjuviku á Akureyri EINS OG áður hefur komið fram í blaðinu er kirkjuvika í Akur- eyrarkirkju þessa vikuna. Hér í blaðinu verður birt dagskrá hvers dags fyrir sig — og hér kemur dagskráin fyrir kvöldið í kvöld, þriðjudag 4. marz. Samkoman hefst kl. 20.50 og eftirtöld atriði em á dagskránni: 1) Tónlist: Nemendur og kennarar Tónlistarskólans flytja. 2) Ávarp 3) Einsöngur: Friðarins Guð. Þuríð- ur Baldursdóttir syngur við undir- leik Jakobs Tryggvasonar. 4) Hugvelq'a: Séra Kristján Rób- ertsson. 5) Almennur söngur: Sálmur nr. 163. 6) Ræða: Þórður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri. 7) Einsöngur: Jóhann Már Jóhanns- son. Undirleikur: Rögnvaldur Val- bergsson. 8) Helgistund: Séra Birgir Snæ- bjömsson. 9) Almennur söngur: Sálmur nr. 29. 10) Lokaorð. 11) Orgelleikur: Jakob Tryggvason, organisti. Á borðinu má sjá líkan af Austurstræti eins og það leit út 1886. I baksýn eru nokkrir gestanna við opnunina. Sýning í Fossvogsskóla: Líkan af húsum við Austurstræti fyrir 100 árum UM SIÐUSTU helgi var fyrsta skólasýningin í Reykjavík i tilefni 200 ára afmælis borgarinnar. Viðstaddir opnunina voru ýmsir framámenn í þjóðfélaginu, forseti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, Davíð Oddsson, borgarstjóri, núverandi og fyrrverandi fræðslustjórar, borgarfulltrúar og fleiri. Að sögn Kára Amórssonar, skólastjóra, var mikið fjölmenni sýningardagana laugardag og sunnudag, en undirbúningur að þessari skólasýningu hefur staðið yfír frá því í nóvember. Óskar Einarsson yfírkennari skólans hafði yfímmsjón með þessu verk- efni, sem unnið var sameiginlega af nemendum og kennumm. Famar vom skoðunarferðir um borgina og ákveðið að gera líkan að Austurstræti eins og það leit út fyrir 100 ámm, árið 1886. Húsin vom búin til úr pappaköss- um og bylgjupappa, unnin verk- efni um ákveðna borgarhluta svo sem Tjömina og svæðið þar í kring, lýst var í máli og myndum þróun húsagerðar í borginni, tekin saman vinnuhefti um sögu Reykjavíkur o.fl. Hið hefðbundna skólastarf hefur legið niðri sl. tvær vikur vegna þessa verkefnis sem að sögn Kára hefur verið bæði nemendum og kennumm til mikillar ánægju, en nú að sýningu lokinni hefst hinn venjulegi skóla- dagur á ný. Dagsbrún fordæmir fréttaflutn- ing Þjóðviljans af samningunum „Vísaþessu á bug,“ segir Össur Skarphéðinsson, ritstjóri. „Lukkuriddarar Þjóðviljans gera ekki lukku hjá Dagsbrún,“ segir Guðmundur J. Guðmundsson „ÞAÐ ER ákaflega sárt, að gera svona samþykkt því blaðið er manni kært í gegnum tíðina og hefur stutt okkur Dagsbrúnar- menn, en þarna kveður við algerlega nýjan tón,“ sagði Guðmund- ur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, er hann var spurður um samþykkt stjórnar félagsins í gær, þar sem fréttaflutningur Þjóðviljans vegna nýgerðra kjarasamninga er fordæmdur. Guðmundur J. Guðmundsson sagði, að 9 af 10 stjómarmönnum Dagsbrúnar hefðu setið fundinn í gær og allir greitt ályktuninni atkvæði. „Þessir lukkuriddarar á Þjóðviljanum verða að gera lukku annars staðar, en hjá Dagsbrún," sagði hann. „Ég vísa því algerlega á bug, að við höfum ástundað rangan og. villandi fréttaflutning af gangi samninganna," sagði Ossur Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóðvilj- ans, þegar leitað var álits hans á samþykkt Dagsbrúnar. í fréttatilkynningu sem Dags- brún sendi frá sér í gær og undir- rituð er af Þresti Ólafssyni, fram- kvæmdastjóra félagsins, segir að eftirfarandi bókun hafí verið samþykkt á fundi stjómar félags- ins: „Stjóm Verkamannafélagsins Dagsbrúnar fordæmir fréttaflutn- ing og upplýsingaþjónustu Þjóð- viljans vegna nýgerðra kjara- samninga verkalýðshreyfíngar- innar. Frá því að samningavið- ræður hófust fyrir alvöru, hefur umfjöllun blaðsins um efni og niðurstöður samninganna verið bæði röng og villandi. Stjóm fé- lagsins harmar að blað sem kennir sig við verkalýðshreyfíngu og sós- íalisma sýni íslenskri verkalýðs- hreyfíngu í reynd slíkt virðingar- leysi með hlutdrægum og röngum fréttaflutningi." Guðmundur J. Guðmundsson sagði, að Þjóðviljamenn virtust ekki átta sig á því, að hin svo- nefnda niðurfærsluleið í kjara- samningunum væri ekkert síður hagsmunamál verkalýðshreyfíng- arinnar, en ríkisstjómarinnar og atvinnurekenda. Umijöllun blaðs- ins um samningana hefði verið ákaflega neikvæð og í því efni virtist ráða einkaframtak tveggja eða þriggja ritstjóra og ritstjóm- arfulltrúa. Guðmundur nefndi sem dæmi um vinnubrögð Þjóðviljans, að blaðið hefði ekki skýrt frá fundi Dagsbrúnar, þegar aflað var verk- fallsheimildar. Frá honum hefði hins vegar verið greint í fjögurra dálka fyrirsögn í Morgunblaðinu. Þjóðviljinn hefði leitað til eins af verkalýðsleiðtogunum og spurt um hvort ákveðnar tillögur í hús- næðismálum væm trúnaðarmál eða hvort hægt væri að fá þær til birtingar. Þær hefðu þá birst í Morgunblaðinu átta dögum fyrr. Foiysta ASÍ hefði haldið átta fundi með stjómum verkalýðs- félaga í öllum landsfjórðungum meðan á samningum stóð. Þar hefðu verið íjörugar umræður og fram komið eindreginn stuðningur við niðurfærsluleiðina. Á þetta hefði aldrei verið minnst í Þjóðvilj- anum. Enn fremur nefndi Guð- mundur að blaðið hefði ekki rætt við einn einasta forystumann verkalýðshreyfíngarinnar í ýtar- legum viðtölum meðan á samning- um stóð. Loks taldi hann blaðið hafa afflutt og afskræmt niður- stöðu samninganna hvað lífeyris- mál varðar. Þröstur Ólafsson sagði í gær, að Þjóðviljinn hefði bæði seint og illa greint frá samningum, sem gerðir hefðu verið, og tínt til það sem óhagstæðast hefði verið og blásið það út, en látið hitt bíða eða alls ekki skýrt frá því sem betra var. f túlkun blaðsins kæmi líka fram rangtúlkun á eðli og innihaldi kjarasamninganna. Össur Skarphéðinsson sagði, að Þjóðviljinn hefði lagt sig fram um að fylgjast sem vandlegast með samningunum og hefði á stundum orðið fyrst blaða til að greina frá einstökum atriðum. „Þannig má nefna, að við sögðum fyrstir frá því að ASÍ hygðist reyna að ná fram 40% álagi á eignaskatt og að launaskattur á bönkum yrði hækkaður upp í 10%. Ég tel því, að við höfum ástundað heiðarlega fréttamennsku af samningunum og vísa því sumsé á bug að við höfum á einhvem hátt reynt að afflytja málstað þeirra sem þátt tóku í samninga- gerðinni af hálfu verkalýðshreyf- ingarinnar. Hitt er svo annað mál, að Þjóðviljinn hefur í ritstjómar- skrifum alls ekki tekið þátt í þeim fagnaðarlátum sem orðið hafa yfír þessum samningum og hefur t.a.m. ekki getað samglaðst Morg- unblaðinu, en það er síður en svo tilefni til að veitast að einstökum blaðamönnum, sem hafa sinnt fréttaflutningi af samningunum af kostgæfni," sagði ritstjóri Þjóð- viljans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.