Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 9

Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986 9 Vogir hf. tilkynna Vogir hf. Sundaborg 1 og Vogaþjónustan Smiðshöfða 10 hafa gert með sér samkomulag um að Vogaþjónustan annist alla varahluta- og viðgerðaþjónustu sem Vogir hf. sá um áður. Um leið og við þökkum viðskiptamönnum okkar gott samstarf á liðnum árum þá biðjum við þá vinsamlegast um að beina viðskiptum sínum til Vogaþjónustunnar þar scm sérfræðingur okkar í BERKEL-vogum mun annast alla þjón- ustu og ráðgjöf við þá. Vogir hf Sundaborg 1, s. 686520. Vogaþjónustan tilkynnir: Alla eigendur BERKEL-voga bjóðum við velkomna í viðskipti við okkur, þar sem sérhæfðir viðgerðarmenn munu annast viðgerðir og ráðgjöf. Minnum á sérhæfða þjónustu okkar og ráðgjöf við eigendur AVERY, AIC, SALTER og SOEHNLE-voga. V ogaþ jónusta Ólaf s Gíslasouar & Co. hfv Smiðshöfða 10, Reykjavík, sími: 91-686970. Carnegie R námskeiðið Námskeið hefst í kvöld Námskeiðið getur hjálpað þér: • að öðlast meiri trú á sjálfan þig og hæfileika þína • að byggja upp jákvæðara viðhorf gagnvart lífinu • að ná betri samvinnu við starfsfélaga, fjölskyldu og vini • að þjálfa fninnið á nöfn, andlit og staðreyndir • að læra að skipuleggja og nota timann betur • að ná betra valdi á sjálfum þér í ræðumennsku • að verða hæfari í þvi, að fá örvandi samvinnu frá öðrum • að ná meira valdi yfir áhyggjum og kvíða í daglegu lífi • að meta eigin hæfileika og setja þér ný persónuleg markmið 82411 Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson T3ítamatkadutinn Pajero (lengri) 1985Græns- ans. beinskiptur m/aflstýri. Ekinn aðeins 12 þús. km. Útvarp + segulband. Spoke-felgur, drátt- arkrókur, bretta og sílsalistar, talstöð fylgir. Algjör dekurbill. Verð kr. 840 þús. Mistubishi jeppi 1981. Hvítur, ekinn 56 þús. km. Vandað hús og innréttingar, sóllúga o.fl. aukahlutir. Fallegur jeppi. Verð kr. 380 þús. Subaru station 4x4 1983 Gulsans. útvarp + segulband grjótgrind, ekinn 60 þús. km. Með háum toppi. Verð kr. 370 þús. Mazda 9291982 Rauðsans. ekinn 45 þús. km. Sjálfskiptur, aflstýri o.fl. Skipti á ódýrari bíl. Verð kr. 335 þús. Mazda 323 Hatchback 1984 Blásans. ekinn 40 þús. km. 5 dyra. Verð kr. 310 þús. Mitsubishi Lancer 1983 Grásans. ekinn 71 þús. km. Verð kr. 240 þús. Toyota Hilux pickup 1982 Rauður meö plasthúsi, ekinn 62 þús. km. Verð 355 þús. Suzuki Fox 1983 Ekinn 35 þús. km. V. 280 þús. Saab 900 GLE1984 Ekinn 24 þús. kmT V. tilboð. Verðlækkun á öllum notuðum bílum. Orkufrekur iðnaður Áliðnaður hefur verið í lægð vegna lágs verðs naestliðin misseri. Stóriðjunefnd, sem Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður, er formaður í, hefur engu að síður haft ýmís járn í eldi. Staksteinar glugga í dag í viðtal flokksfrétta, sem miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins gefa út, við formann stóriðjunefndar. Rio Tinto Zink Metals Formlegar viðræður íslenzka ríkisins og stór- fyrirtældsins Rio Tinto Zink Metals um bygg- ingu og rekstur kísil- málmverksmiðju i Reyð- arfirði hófust í Bristol i Engiandi 13.-15. janúar sl. Sérstök nefnd annast þessar viðræður af hálfu ríkisins í umboði iðnaðar- ráðherra undir forystu Birgis ísleifs Gunnars- sonar. Sérstök viðræðu- nefnd Landsvirkjunar kemur síðar til, ef saman gengur, og annast samn- inga fyrir hönd þeirrar stofnunar um orkusölu til Kisilmálmvinnslunnar hf. Fyrirtækjasamsteypan Rio Tinto Zink er stór samsteypa með höfuð- stöðvar i Bretlandi. Eitt af mörgum dótturfyrir- tækjum er Rio Tinto Zink Metals, sem hefur marg- vislega málmvinnslu i Evrópu: Spáni, Portúgal, Þýzkalandi og Bretlandi — og raunar einnig i Kanada. Þetta fyrirtæki hefur sýnt áhuga á sam- starfi við ísiendinga á sviði orkufreks iðnaðar. Kísilmálm- verksmiðja i Reyðarfirði Birgir ísleifur kemst svo að orði um fyrir- hugaða stærð verksmiðj- unnar í Reyðarfirði: „Þessi verksmiðja mun framleiða um 25 þúsund tonn af kísilmálmi á ári f tveimur ofnum. Til samanburðar má geta þess að verksmiðjan á Grundartanga framleiðir rúmlega 50 þúsund tonn af járnblendi á ári en álverksmiðjan framleiðir 85 þúsund tonn af áli á ári . . . Þessi verksmiðja mun nota um 350 gwh á ári. Til samanburðar má geta þess að verksmiðjan á Grundartanga notar um 550 gwh og álverksmiðj- an um 2350 gwh á ári. Rafmagnið er að sjálf- sögðu fyrst og fremst úr hinu almenna orkuneti landsmanna og fyrstu árin getur hún tekið rafmagn án þess að nýjar virkjanir þurfi til að koma, en lfklegt er að Blönduvirkjun þurfi að koma inn árið 1990.“ Samningaviðræður, sem eru rétt byijaðar, taka að ágizkun Birgis ísleifs 6-8 mánuði, miðað við að niðurstaða náizt, en á þessi stigi „er ekki hægt að fullyrða með vissu að samningar takizt". Reiknað er með að i fullgerðri kísilmálverk- smiðju vinni um 130 manns f fastri vinnu en margfeldisáhrif frum- starfa af þessu tagi eru mikil. Það má þvi gera ráð fyrir að nokkur hundruð nýrra starfa fylgi i kjölfarið. Birgir ísleifur segir orðrétt: „“Líta verður á Eski- fjörð og Reyðarfjörð sem eitt vinnusvæði ■ f þessu efni, en þar búa nú um 2 þúsund manns og hugs- anlega mætti teygja sig til Egilsstaða, þegar fjall- að er um vinnusvæði verksmiðjunnar. Hins vegar er mjög lfklegt að þessi verksnúðja muni hafa í för með sér fólks- fjölgun á þessu svæði en á þessu stigi er erfitt að segja fyrir um, hversu margt fólk muni flytjast inn á svæðið sérstaklega vegna verksmiðjunnar." Títanhvítu- verksmiðja? Birgir ísleifur Gunn- arsson segir í viðtalinu að það sé „algjörlega óraunhæft að ætla“ að íslendingar geti axlað einir byggingarkostnað verksmiðja í orkufrekum iðnaði. Við þyrftum þá að taka byggingarkostn- að að fullu að láni erlend- is. Ekkert vit sé í þvf fyrir íslenzka ríkið að axla slíka áhættu. Sam- vinna við aðrar þjóðir á sviði fjármagns, áhættu, tækni, og hráefnis- og ekki sfzt markaðsmála sé vænlegri kostur. Að þessu leyti hafi núver- andi ríkisstjórn aðra og raunhæfari afstöðu en fyrri ríkisstjómir 1978- 1983. „Stóriðjunefnd hefur haft ýmis jám f eldin- um,“ segir Birgir ísleif- ur. „Áliðnaður hefur hinsvegar verið í lægð upp á síðkastið vegna hins lága verðs. Meðan svo varir huga menn ekki mikið að nýjum fjárfest- ingum. Nefndin hefur einnig beitt sér fyrir athugun á mörgum öðr- um iðnaðarkostum. Sem dæmi má nefna að nú er Sjóefnavinnslan á Reykjanesi að kanna hagkvæmni títanhvitu- verksmiðju á þeim slóð- um. Of snemmt er þó að fullyrða um niðurstöð- ur.“ Orkan f fallvötnum lands okkar er eina auð- lind okkar sem er stór- lega vannýtt. Enginn vafi er á þvi að breyta má þessari auðlind f ríkara mæli en nú er gert, f störf, útflutningsverð- mæti og lífskjör. Hins- vegar er margs að gæta. Dreifa þarf áhættu, ekki sízt á meðan stórfyrir- tæki af þessu tagi eru að komast yfir byrjunar- örðugleika og treysta markaðsstöðu fram- leiðslu sinnar. Fyrst og síðast verður að virða bæði umhverfissjónar- mið og heilsuvemdar- sjónarmið. Við þurfum að lifa i sátt við umhverfi okkar, en við verðum jafnframt að lifa af gögrnun þess og gæðum, ef við viljum tryggja sambærileg lífskjör f landi okkar og bezt þekkjast annars staðar í V-Evrópu og N-Ameríku. Hjá okkur fæst landsins mesta úrval af fjarstýrðum bílum af öllum gerð- um í öllum verðflokkum. Til dæmis Range Rover 4x4 og Tbyota Hilux Ax4 með rafdrifnu spili. Góð aðkeyrsla — næg bílastæði. Póstsendum um land allt. TÓrnSTUnDRHÚSID Laugavegi164-Reykjavik-S: 21901

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.