Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986
Tölvumar em fljótar að grípa hugi manna. Hér etja þeir kappi í
einhverju tölvuspilinu Ólafur Ingibrandsson og Guðmundur Brynj-
ólfsson. Myndin er tekin á tölvusýningu nemenda.
SlinilRNF<UA
Starfsdagarair hófust með mikilli skrúðgöngu nemenda og kennara um Keflavik, sem vakti að vonum
þó nokkra athygli.
Starfsdagar í
Fj ölbrautaskóla
Suðurnesja
Keflavík, 26. febrúar.
ÞESSA viku hafa staðið yfir
blómlegir starfsdagar í Fjöl-
brautaskóla Suðumesja. Venju-
legt skólastarf er þá brotið upp,
nemendur mæta í skólann en
ekki í kennslustundir, heldur
hafa þeir sótt ýmsar ferðir og
fyrirlestra sem boðið hefur verið
uppá, ásamt því að allskyns fönd-
ur og tómstundaiðja hefur staðið
þeim opin. Þetta er þriðja árið
sem starfsdagar em haldnir með
þessu sniði og óhætt er að segja
að þetta setji mikinn svip á skóla-
lífið og veiti kærkomna tilbreyt-
ingu frá námsbókunum.
Það er ein vika sem starfsdagar
taka. Undirbúningur hefst snemma
hjá völdum hópi nemenda og kenn-
ara sem sjá um að skipuleggja
dagskrána og sjá til þess að allt
fari vel fram. Var sú leið farin að
þessu sinni að hafa hina eiginlegu
starfsdaga í skólanum frá mánu-
degi og fram á miðvikudag og var
þá boðið uppá fyrirlestra og ferðir,
og svo eru fimmtudagur og föstu-
dagur útivistardagar. Eru allir
nemendur þá skyldaðir til að mæta
í ýmsar útivistarferðir sem á boð-
stólum eru, allt frá skíðaferð og
uppí fjallgöngur.
Óll skipulagning gekk tneð mikl-
um ágætum. Fjöldi fyrirlesara kom
frá Suðumesjum og höfuðborgar-
svæðinu, farið var í lengri og styttri
ferðir, til dæmis var farið í skoðun-
arferð í Hrauneyjarfossvirkjun, í
skoðunar- og ömefnaferð um Suð-
umesin, farið var í menningarferð
til Reykjavíkur þar sem heimsótt
vom söfn, farið í leikhús og fleira
mætti telja. Það olli þó miklum
vonbrigðum að ekki tókst að útvega
sendi til útvarpsreksturs, þar sem
leyfí fékkst fyrir þó nokkmm tíma
síðan og fríður flokkur nema hafði
lagt mikla vinnu í nákvæman undir-
búning útvarpsins.
Var framkvæmd starfsdaganna
Fjöldi fyrirlestra var haldinn og vora þeir vel sóttir. Hér útskýrir Guðni Kjartansson fyrir fólki hveraig
fara skal að því að halda sér í formi allt lífið.
að mestu með miklum sóma og gátu
allir fundið sér eitthvað að sýsla.
Boðið var uppá leður og táganám-
skeið, myndlistarskemman var vel
sótt, nemar sýndu tölvur sínar, einn
hópur sá um að matreiða alla dag-
ana og vom réttimir alla daga til-
einkaðir ijarlægum þjóðum. Sem
dæmi má nefna að einn daginn var
matur frá Suður-Afríku og fór
matartilbúningurinn fram undir
umsjón skiptinemans Derek Young,
sem kemur einmitt frá Suður-
Afríku. Kennarar létu ekki sitt eftir
liggja. Breyttu þeir kennarastof-
unni í kaffistofu fyrir nemendur og
buðu þar uppá kaffi og vöfflur með
ijóma og vakti það mikla ánægju.
Skákklúbburinn Riddarinn sjónum-
hryggi stóð fyrir úti maraþonskák
sem stóð í einn sólarhring og svo
kom enski stórmeistarinn Miles í
heimsókn ogtefldi fjöltefli.
Af nógu var því að taka í skóla-
lífinu og ræddi fréttamaður við
nema og kennara í tilefni alls þessa
og spurði hvað þeim flnndist um
starfsdagana.
— efi
Kennaramir Ósa, Alda, Unnur, Kristinn og Þórunn fagna hér tilbreytingunni í
skólanum.
„Þetta er
allt öðruvísi“
Á KENNARASTOFUNNI voru þau Unnur Þorsteinsdóttir, Alda Jensdóttir, Kristinn Krist-
jánsson, Ósa Knútsdóttir og Þórunn Friðriksdóttir önnum kafin við að semja spumingar
fyrir spumingakeppni sem halda átti á milli sviða í skólanum. Vom kennaramir hinir
jákvæðustu gagnvart því sem fram fór á starfsdögunum. Sögðu þau daga sem þessa
nauðsynlega til að slaka aðeins á námsspennunni og svo væri það góð tilbreyting að geta
rætt við nemendur öðruvísiu en að vera eitthvað að þusa og skammast út í þá. „Krakkam-
ir þurfa nú að vera skapandi og margir leggja sig alla fram við þetta en vissulega er
alltaf ákveðinn hluti sem bíður eftir því að allt sé gert fyrir þá, á meðan að það em aðrir
sem em allt í öllu,“ sagði eitthvert þeirra og hin vom fullkomlega sammála. „Það er úr
mörgu að velja og þrír dagar em mjög hæfilegur tími. Ef þetta værí lengra, þá kæmi
bara upp þreyta í krökkunum," sögðu þau og grúfðu sig að nýju yfír spumingamar.
Hafliði, Bjarni Thor, Guðný og Eðvarð Þór voru hin ánægðustu með tilurð og
framgang starfsdaganna.
„Stuðlar að
bættum tengslum“
Á SKRIFSTOFU nemendafélagsins rakst ég á Hafliða Sævarsson, formann nemendafélags-
ins, Guðnýju Aðalsteinsdóttur, Eðvarð Þór Eðvarðsson sundkappa og Bjama Thor Kristins-
son. Vom þau öll sammála um að dagar sem þessir væm kærkomin tilbreyting og hresstu
mikið uppá skólalíflð. „Þetta fór full rólega af stað," sagði Hafliði, „en þetta er vel skipu-
lagt og þessir dagar em mjög áhugaverðir." „Þetta er mjög gaman en nemendumir
mættu almennt vera mun virkari," sagði Guðný og um það vom þau öll sammála. Sögðu
þau fyrirlestrana þó marga hveija hafa verið merkilega vel sótta og vom þau einnig ánægð
með það fyrirkomulag sem haft var á vikunni, þ.e. að hafa seinni dagana sem útivistar-
daga. „Það sem er lélegast við þetta er að þeir sem eiga útvarpssendi, skuli ekki hafa
lánað okkur hann, þar sem búið var að leggja svo geysilega vinnu í undirbúninginn,"
sagði Guðný. Að lokum samþykktu þau það svo einróma að dagar sem þessir stuðluðu
að mjög bættum tengslum, bæði meðal nemenda og kennara.