Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986
Menntamálarit
Heimdallar
komið út
1. árgangur sérrits Heimdallar um
menntamál er komið út. í ritinu sem
dreift er í 4.000 eintökum í skóla
og á vinnustaði eru m.a. greinar
um lánasjóð íslenskra námsmanna,
aukna þátttöku sveitarstjóma og
einstaklinga í rekstri og stjómun
skóla ásamt því sem kynnt eru
stefnumið Sambands ungra sjálf-
stæðismanna í menntamálum.
Einnig er viðtal við dr. Vilhjálm
Egilsson formann Sambands ungra
sjálfstæðismanna, þar sem tekið er
á grundvallarspumingum um þessi
mál. Loks eru í ritinu stuttar fréttir
og bókakynningar. Sérrit Heimdall-
Hí'rril
Ilcí<i*«iaIL»* mn
1. árs.
Mciiiilaitiál
ar um menntamál fæst án endur-
gjalds á skrifstofu félagsins í Val-
höll á Háaleitisbraut 1.
Aðalfundur
VERZLUNARRÁÐS
ÍSLANDS 1986
Aðalfundur Verzlunarráðs íslands verður haldinn
fimmtudaginn 6. marz næstkomandi í Átthagasal Hótel
Sögu.
Dagskrá
10.15—10.30 Mæting og móttaka fundargagna
10.30—11.00 Setningarræða
Ragnar S. Halidórsson, formað-
urVÍ.
11.00—12.00 Stefna Verzlunarráðs íslands
Niðurstöður stefnuskrárnefnd-
ar.
1. Bjarni Snæbjörn Jónsson,
formaður stefnunefndar.
2. Almennar umræður.
12.10—13.30 Hádegisverður í Súlnasal.
Styrkveiting úr námssjóði VÍ.
13.30-14.30
Alþjóðaviðskipti og fjárfesting
1. Jacques G. Maisonrouge,
fyrrverandi forstjóri IBM
í Evrópu.
2. Almennar umræður og fyrir-
spurnir.
14.30—15.15 Störf, stefnaog skipulag VÍ1984—1987
1. Starfsemi og fjárhagur
1984—1985. Almennar um-
ræður.
2. Fjárhags- og framkvæmda-
áætlun. Almennar umræður.
3. Laga- og skipulagsbreyting-
ar. Almennar umræður.
15.15—15.30 Kosningar
1. Kosning formanns VÍ.
2. Úrslit stjórnarkjörs.
3. Kosning kjörnefndar.
4. Kosning endurskoðenda.
15.30— 16.00 Önnurmál
16.00 Fundarslit
16.30— 18.30 Móttaka í Húsi verslunarinnar,
7. hæð
Fundarstjóri: Gunnar M. Hansson, forstjóri.
Tilkynnið þátttöku tímanlega í síma
83088.
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Stefna sænsku stjórnarinnar óbreytt:
Árangiirinn af starfi
Palmes mun ekki
hverfa með honum
- segir Ingvar Carlsson, hinn nýi forsætisráðherra Svíþjóðar
INGVAR Carlsson var einróma kjörinn formaður sænskra jafnað-
armanna eftir morðið á Olof Palme. Jafnframt var hann kjörinn
til þess að gegna embætti forsætisráðherra fyrst um sinn. Þetta
kom engum á óvart. Carlsson hafði um langt skeið verið einn
nánasti samstarfsmaður Palmes. Hann hafði þannig verið varafor-
sætisráðherra frá árinu 1982 en jafnframt gegnt tveimur öðrum
mikilvægum ráðherraembættiun, það er embætti áætlanaráðherra
og umhverfismálaráðherra.
Carlsson verður fjórði forsætis-
ráðheiTa Svíþjóðar úr hópi jafnað-
armanna eftir stríð. Flokkurinn
komst til valda í landinu á fimmta
áratugnum og varð Per Albin
Hansson þá fyrst forsætisráð-
herra. Síðan tók Tage Erlander
við og var forsætisráðherra um
19 ára skeið til ársins, unz Olof
Palme tók við af honum.
Skjótur frami
Ingvar Carlsson er fæddur 9.
nóvember 1934 í Boraas í Vest-
ur-Svíþjóð, þar sem faðir hans var
verkamaður. Frami hans var
skjótur. Honum gekk vel í skóla
og lauk stúdentsprófi frá verzlun-
arskóla í heimabæ sínum, en hóf
síðan nám í stjómmálafræði við
háskólann í Lundi. Þar vakti hann
strax athygli á sér sem snjall
ræðumaður. Leið ekki á löngu,
unz Tage Erlander, þáverandi
forsætisráðherra, kom auga á
þennan unga hæfíleikamann og
gerði hann að samstarfsmanni
sínum.
Líkt og annar gáfaður, ungur
stúdent að nafni Olof Palme, tók
Carlsson að afloknu BA-prófi í
stjómmálafræði að starfa í
sænska stjómarráðinu og gerðist
þar mjög handgenginn Erlander
forsætisráðherra. Eftir að hafa
starfað þar í fáein ár, hélt hann
til Bandaríkjanna og lauk þar
prófi í þjóðhagfræði. Er hann kom
þaðan, varð hann formaður sam-
bands ungra jafnaðarmanna í
Svíþjóð (SSU), sem oft hefur
reynzt mikill stökkpallur fyrir
unga menn í flokknum.
Frami hans á stjómmálasviðinu
varð síðan mjög skjótur. Hann
varð þingmaður á sænska þjóð-
þinginu árið 1965 eða 31 árs
gamall og því yngri en nokkur
annar maður. Fjórum árum síðar
tók hann við embætti mennta-
málaráðherra af Palme og var þá
yngsti ráðherra sænsku stjómar-
innar. Síðan gegndi Carlsson
ýms-um öðrum embættum. Hann
var um skeið húsnæðismálaráð-
herra og síðan efnahags- og orku-
málaráðherra.
Er jafnaðarmenn fóm í stjóm-
arandstöðu 1976-1982, varð það
verkefni Carlssons að skipuleggja
flokksstarfið og flokksstefnuna
að nýju til þess að leggja grund-
völl að því, að flokkurinn kæmist
aftur til valda.
Hæglátur en ákveðinn
Þegar jafnaðarmenn mynduðu
stjóm á ný undir forsæti Olofs
Palme, varð Carlsson áætlana- og
umhverfísmálaráðherra en jafn-
framt varaforsætisráðherra.
Hann og Palme hafa ekki aðeins
verið nánir samstarfsmenn í
stjómmálum heldur einnig miklir
vinir. Það þykir engin tilviljun,
að sumarbústaðir þeirra á Got-
landi standa hlið við hlið.
Carlsson er nú 51 árs að aldri.
Honum er lýst sem hæglátum
manni en ákveðnum, sem ekki
vilji láta bera of mikið á sér. Tóm-
stundum sínum kýs hann að veija
við útivist. Þannig iðkar hann
skíði á vetuma af kappi en göngu-
ferðir á sumrin.
Carlsson er kvæntur æskuunn-
ustu sinni, Ingrid, sem er 51 árs
og starfar sem bókasafnsfræðing-
ur. Þau eiga tvær dætur, Piu, sem
er 23.ára, oglngelu, 21 árs.
Eftir að Carlsson tók við sem
leiðtogi jafnaðarmanna í gær,
lýsti hann því yfir, að engar breyt-
ingar yrðu á stjómarstefnunni. A
fundi með fréttamönnum sagði
hann: „Stjórnarstefnan mun hald-
ast óbreytt. Það hafa ekki verið
teknar neinar mikilvægar stjóm-
arákvarðanir, án þess að það
væri gert í náinni samvinnu okkar
Palmes."
Carlsson kvaðst viðurkenna, að
hann byggi ekki yflr þeirri reynslu
á vettvangi alþjóðamála sem
Palme. Hann lagði hins vegar
áherzlu á, að hlutverk Svíþjóðar
í heiminum myndi ekki breytast
og sagði síðan: „Árangurinn af
starfí Olofs Palme mun ekki
hverfa með Olof Palme.“
simamynd/AP
INGVAR Carlsson, sem nú hefur tekið við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar eftir morðið á
forvera hans í embætti, Olof Palme. Mynd þessi var tekin, er Carlsson kom til fundar með stjóm
jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð, þar sem hann var kjörinn flokksleiðtogi, auk þess sem honum
var falið að gegna embætti forsætisráðherra. Maðurinn að baki Carlsson er öryggisvörður, en
ráðstafanir til þess að vernda öryggi sænskra ráðamanna hafa nú verið auknar mjög.