Morgunblaðið - 04.03.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986
21
Áskorun til Reykvíkinga
eftirSkúla G.
Johnsen
Fyrir stuttu var borinn í hvert
hús í Reykjavík bæklingur sem
gefinn er út af Slysavamafélagi
Islands að tilhlutan landlæknis.
Bæklingurinn fjallar um slys af
völdum efna í heimahúsum, við-
brögð við þeim og vamir. í tengslum
við útkomu bækiingsins hélt heil-
brigðisráðherra, Ragnhildur Helga-
dóttir, blaðamannafund og komu
þar fram ýmsar upplýsinar um
óvenjulega háa tíðni slysa og eitr-
ana hjá bömum og ungmennum hér
á landi.
Þar komu einnig fram þær ugg-
vænlegu fréttir að slys og eitranir
em algengari meðal reykvískra
bama en annars staðar á landinu.
Mánudaginn 24. febrúar var svo
haldinn annar landsfundur um
slysavamir. Til þess fundar boðaði
Landsnefnd um slysavamir. Þar
komu enn fram uggvænlegar upp-
lýsingar um siysafaraidurinn.
Kannanir á tíðni slysa í heimahús-
um meðal yngstu bamanna, l-4ra
ára, sýna, að um 30% af bömum á
höfuðborgarsvæðinu koma árlega á
slysadeild Borgarspítalans af þeim
sökum. Onnur algengasta orsökin
er eitranir. Slík slysatíðni bama
þekkist hvergi annars staðar í
Evrópu.
Heimilið er vettvangur lang-
flestra slysa meðal bama. Heimilið
veitir semsé ekki það skjól og öryggi
sem allir vilja finna þar. Hinn mikli
griðastaður, heimilið, virðist því
orðinn hættulegur fyrir hina vax-
andi kynslóð og því ástandi verður
ekki unað.
Það er ekki á færi annarra en
foreldra og forráðamanna bama að
ráða hér bót á. Ráðin til þess era
einföld, ódýr og öllum tiltæk. Með
einföldum ráðum og lítilli fyrirhöfn
er hægt að draga veralega úr siysa-
tíðninni. Ég vil því beina því ein-
dregið til forráðamanna heimila þar
sem böm búa eða dvelja að þeir
taki kvöldstund í það að taka fram
öll efni, sem finnast á heimilinu og
hugsanlega gætu verið eiturefni,
og safna þeim saman á hentugan
stað t.d. á borði. Taka síðan glas
Skúli G. Johnsen
„Okkar lági ungbarna-
dauði er því til lítils ef
það forskot gagnvart
þjóðum eins og Bretum
og Svíum glatast á
fyrstu 14 æviárum
barnanna.“
fyrir glas (bauk, brúsa, dós, o.s.frv.)
og lesa upplýsingar á merkimiðum.
Fletta síðan upp á því sem í bækl-
ingi Slysavamafélagsins er að finna
um viðkomandi eiturefni. Við þessa
athugun mun margt óvænt og
lærdómsríkt koma í ljós.
Enginn vafi leikur á að hver sá
sem fylgir þessu ráði mun þar eftir
gjörbreyta umgengni sinni við þess-
ar eitraðu nauðsynjavörar.
Við íslendingar höfum getað
státað af lægsta ungbamadauða í
heimi. Þegar dánarskýrslur okkar
yfír dánarhlutföll á aldrinum 1-14
era bomar saman við nágranna-
þjóðirnar, kemur í ljós, að dánar-
hlutföllin hér era yfirleitt mun hærri
en í Svíþjóð og nokkra hærri en í
Bretlandi. Þennan mismun má fyrst
og fremst rekja til þess að dauða-
slys era tíðari hér. Okkar lági
ungbamadauði er því til lítils ef það
forskot gagnvart þjóðum eins og
Bretum og Svíum glatast á fyrstu
14 æviáram bamanna. Bama- og
ungmennadauði meðal Islendinga
umfram það sem gerist meðal
annarra þjóða er ljótur blettur á
okkar þjóð. Dauðaslysin má forðast.
— Viljinn er allt sem þarf.
Höfundur er borgrarlæknir í
Reykjavík.
Pennavinir
Frá Austur-Þýzkalandi skrifar
27 ára gamall kennari, sem skrifar
á ensku auk þýzku. Hann safnar
frímerkjum, póstkortum og er mikill
skákáhugamaður
Jochen Ullmann,
9373 Ehrenfriedersdorf,
Annaberger Strasse 15,
D.D.R.
Frá Brazilíu skrifar 21 árs stúlka
með áhuga á dýram, jurtum, tónlist,
ballett, íþróttum og ferðalögum:
Janine M. Lago,
Rua Pium-i 997-Carmo Sion,
30.310 Belo Horizonte,
Minas Gerais,
Brazil.
Níu ára bandarískur piltur hefur
áhuga á að eignast islenzka penna-
vini. Hann getur gæludýra sinna,
sem era skjaldbaka, gullfískar, tveir
fuglar og hundur. Er sundáhuga-
maður og hefur gaman af að spila
bridge:
Justin Graham,
Sugarloaf Elementary School,
R,R, 2, Box 502,
Crane Road,
Summerland Key,
Florida 33042,
USA.
MALASKÓL!
RITARASKÓU
* límir
ÁNANAUSTUM 15
Nýja áfangakerfið sem við
tókum upp um áramótin auð-
veldar nemendum að meta
framfarir við tungumálanámið.
Áfangarnir eru fjórir-. bvriendur,
lærlingar. sveinar og meistarar.
Námskeiðin sem nú fara í hönd
eru í b) og d) flokkum allra
áfanganna.
Ef þú veist lítið um raunveru-
lega kunnáttu þína í tungu-
málinu leysa stöðuprófin úr
þeim vanda. Strax í fyrsta tíma
bjóðum við uppá stöðupróf
fýrir þá sem vilja.
Tíma ættu fle:
að geta fúndic
við sitt hæfi.
Við kennum
á kvöldin,
um miðjan
dag og á
morgnana.
ENSKA
ÞÝSKA
FRANSKA
SPÆNSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
mars-
5.
30* apríl
20% afsláttur gildir fyrir hjón,
systkini, öiyrkja, ellilífeyrisþega
og félagsmenn Stjómunar-
félagsins. Munið: starfs-
menntunarsjóðir ríkisins og
Reykjavíkurborgar taka þátt í
að greiða námskeiðsgjöld sinna
félagsmanna á námskeiðum
Múnis.
Allar frekari upplýsingar og
innritun í síma
10004/21655
Viltu læra önnur tungumál en
þau sem hér eru nefnd? Láttu
það ekki aftra þér frá því að
grípa til símans - hringdu til
okkar og berðu fram óskir
þínar. Við reynum að koma til
móts við alla.
aðu
Góð málakunnátta er íslend-
ingum alger nauðsyn — en hvern-
ig náum við bestum árangri? Fyrst er
að hugsa málið, síðan hringja til Múnis.
Múnir hefúr um langt árabil sérhæft sig í
vönduðu tungumálanámi og kappkostað
að tryggja nemandanum bestu fáanlegu
kunnáttu á sem skemmstum túna.
Áratuga reynsla og ánægðir nem-
endur eru besta auglýsingin.
Kennt er tvisvar í viku, tvær
klukkustundir í senn. Öll
námsgögn eru innifalin í nám-
skeiðsgjaldi og við bjóðum
uppá veitingar í frímínútum.
Öllum d) námskeiðunum lýkur
með prófi 30. apríl og þá
útskrifúm við fyrstu lærlingana,
sveinana og meistarana!