Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 24
MORG UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986
24
Á laugardagskvöld hópuðust Stokkhólmsbúar saman á Sergels-torgi. Það voru fluttar ræður og Internationalen sunginn.
Svíar syrgja Palme:
60 þúsund manns söfn-
uðust saman í Gautaborg
Pravda kennir
hægri öf lum
um morðið
Moskvu, 3. marz. AP.
OLOF Palme var fórnarlamb
„þeirra afla í heiminum, sem vilja
hægrisveiflu". Var þessu haldið
fram í dag í Pravda, blaði
sovézka kommúnistaflokksins og
var höfundur greinarinnar,
Chingiz Aitmatov, kunnur stjórn-
málablaðamaður.
I Izvestia, málgagni sovézku
stjórnarinnar^ var sama sjónarmiði
haldið fram. Þar lagði höfundurinn,
Georgy Arbatov, sem sæti á í mið-
stjóm kommúnistaflokksins,
áherzlu á, að Palme hefði átt sér
óvini bæði í Bandaríkjunum og
annars staðar vegna andstöðu
sinnar við stríðið í Víetnam og
skoðana sinna í afvopnunarmálum.
Þeir Aitmatov og Arbatov báru
báðir morðið á Palme saman við
morðið á Indiru Gandhi, forsætis-
ráðherra Indlands, í október 1984,
en sovézkir fjölmiðlar tengdu það
óbeint við CIA.
Stokkhólmi, 3. mars. Frá Bergjjótu Fridriksdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKA rikisstjórnin telur ekki þörf á því að gefa út formlega
yfirlýsingu um þjóðarsorg hér í Svíþjóð vegna morðsins á Olof
Palme, forsætisráðherra, sakir hinnar einlægu og djúpu sorgar
sænsku þjóðarinnar.
Blómahaf á
morðstaðnum
Fréttin um morðið á forsætisráð-
herra Svíþjóðar tók að berast um
Stokkhólm skömmu eftir miðnætti
á föstudag og var ijölda veitinga-
og skemmtistaða tafarlaust lokað.
Fljótlega tók fólk að streyma í þús-
undatali að morðstaðnum í miðri
borginni til þess að heiðra minningu
Olofs Palme og þurfti lögregla að
loka svæðið af þar sem Palme var
skotinn til þess að ekki yrði hróflað
við vegsumerkjum. Fjöldi fólks
henti blómvöndum á gangstéttina
þar sem Palme féll fyrir hendi
morðingjans og síðdegis á laugar-
dag var afgirta svæðið þakið blóm-
um í öllum regnbogans litum.
Margir skildu eftir persónulega
muni sína og aðrir röðuðu logandi
kertum umhverfís morðstaðinn.
Syrgjendum fór sífellt íjölgandi
eftir því sem lengra leið á daginn.
Fólk stóð í hóp umhverfis blómahaf-
ið án þess að mæla orð af vörum.
Margir grétu.
Stóll Palmes var auður
Um alla borgina var flaggað í
hálfa stöng og fyrir utan Rosenbad,
aðsetur ríkisstjómarinnar, beið gíf-
urlegur fjöldi fólks í röðum eftir að
geta vottað samúð sína, skriflega
og með blómagjöfum. Á laugar-
dagskvöldið söfnuðust um 10 þús-
und manns saman á Sergels-torgi
í miðri borginni til þess að minnast
hins látna forsætisráðherra. Fólkið
var með blóm og bar logandi kyndla
og enginn mælti orð af vörum. Eftir
að utanríkisráðherrann, Sten And-
erson og iðnaðarráðherrann, Tage
G. Peterson, höfðu ávarpað við-
stadda, var baráttusöngur verka-
Iýðsins, Intemasjónalinn, leikinn.
Brustu þá margir í grát.
Á sunnudaginn kom ríkisstjómin
saman til fundar með eftirmanni
Olofs Palme, Ingvari Carlsson, í
Rosenbad. Sæti Olofs Palme var
autt og á borði hans logaði kerti.
Biskupinn í Stokkhólmi, Krister
Stendahl, lagði til að sérstök bæn
yrði lesin við messu í kirkjum lands-
ins á sunnudag til að heiðra minn-
ingu Olofs Palme. Kirkjur voru
flestar þéttsetnar og höfðu margir
prestar á orði að þennan sunnudag
hefðu þeir náð óvenju nánu sam-
bandi við söfnuði sína.
Útför Palme fer
fram 15. marz
Stokkhólmi, 3. marz. AP.
ÚTFÖR Olofs Palme á að fara fram 15. marz frá ráðhúsinu í
Stokkhólmi og verður ekki kirkjuleg. Bo Toresson, talsmaöur
sænskra jafnaðarmanna, sagði í dag, að fulltrúum erlendra ríkis-
stjóma yrði boðið að vera viðstaddir athöfnina en einnig fulltrú-
um annarra aðildarflokka að alþjóðasamtökum jafnaðarmanna.
Toresson sagði, að hefð hefði
skapazt þegar á árinu 1925 varð-
andi útför á flokksleiðtogum
sænskra jafnaðarmanna, er
Hjalmar Branting dó, en hann var
fyrsti forsætisráðherra Svía úr
röðum jafnaðarmanna. Sagði
Toresson ennfremur, að í sam-
ræmi við óskir fjölskyldu Palmes,
hefði þeim, sem vildu minnast
hans, verið bent á sérstakan sjóð
jafnaðarmannaflokksins, er hefði
það að markmiði að efla og gefa
upplýsingar um stefnu jafnaðar-
manna.
Flokkurinn hefði þó jafnframt
stofnað sérstakan sjóð, Minning-
arsjóð Olofs Palme og væri mark-
mið hans að auka gagnkvæman
skilning og öryggi á alþjóðavett-
vangi, efla nemendaskipti á milli
þjóða svo og friðar- og afvopnun-
arrannsóknir og vinna gegn kyn-
þáttahatri.
Palme verður borinn til grafar
í kyrrþey í samræmi við óskir
fjölskyldu hans. Legstaður hans
hafði ekki verið ákveðinn í dag.
Flaggað í hálfa stöng
á konungshöllinni
Minningarathafnir um Olof
Palme voni haldnar um helgina um
land allt. Á sunnudagskvöld söfnuð-
ust rúmlega 60 þúsund manns
saman í Gautaborg. Gekk mann-
fjöldinn með logandi kyndla um
miðbæinn að svokölluðu Gauta-
torgi, þar sem minningarathöfn var
haldin. Einn af yfírmönnum lögregl-
unnar í Gautaborg sagði í samtali
við Sænska dagblaðið í dag að á
40 ára starfsferli sínum hefði hann
aldrei séð svo mikinn fjölda fólks
saman kominn í Gautaborg.
Karl Gústaf Svíakonungur var í
skíðafríi í Áre í Svíþjóð, þegar að
Palme var myrtur og flaug hann
til Stokkhólms á laugardagsmorg-
uninn. Á fréttamannafundi síðar
um daginn sagði hann að lát Palmes
snerti sig djúpt þar sem þeir hefðu
verið mjög nánir. Konungurinn
ákvað á sunnudag að dregið skyldi
í hálfa stöng á konungshöllinni við
jarðarför Palmes. Við konungshirð-
ina ríkir sú hefð að flagga eingöngu
í hálfa stöng þegar meðlimir kon-
ungsfjölskyldunnar falla frá.
Ákvörðun Svíakonungs kom því
mönnum nokkuð á óvart. Hún mun
þó ekki vera einsdæmi, því fáni
konungshallarinnar var dreginn í
hálfa stöng er Dag Hammarskjöld
léstárið 1961.
Borgaryfirvöld í Stokkhólmi hafa
ákveðið að reisa minnisvarða um
Olof Palme, en ekki hefur ennþá
verið ákveðið hvar hann muni
standa. Honum mun þó ekki verða
komið fyrir á morðstaðnum á horni
Sveavágen og Tunnelgatan.
Jarðarför Olofs Palme fer fram
frá ráðhúsinu í Stokkhólmi laugar-
daginn 15. mars, en hér í Svíþjóð
mun algengt að jarðarfarir fari
fram um tveimur vikum eftir andlát.
Jafnaðarmannaflokkurinn mun sjá
umathöfnina.
Öryggis-
ráðstafanir
hertar
Stokkhólmi. 3. marz. AP.
RÁÐSTAF ÁNIR varðandi
öryggi sænskra ráðamanna
hafa verið hertar mjög eftir
morðið á Olof Palme.
Sagði Lars Lönnback, tals-
maður sænska utanríkisráðu-
neytisins, í dag, að miklu fleiri
ráðherra væri gætt nú en áður.
Þannig hefði Carlsson forsætis-
ráðherra nú með sér lffvörð,
hvert sem hann færi.
Fram er komið, að Palme
hafði sent frá sér öryggisverði
sína, eftir að hann kom til skrif-
stofu sinnar á föstudag og sagt
þeim, að þeirra yrði ekki þörf
það sem eftir væri dagsins.
Sjaldgæft vopn
MORÐINGI Olofs Palme notaði
skammbyssu af gerðinnni Smith
og Wesson, sem er sjaldgæft
vopn í Svíþjóð. Kúlan, sem varð
Palme að bana, var koparhúðuð
og það öflug að skotheld vesti
duga ekki gegn henni.
Kúluna, 357 kalibera Magnum,
framleiddi Winchester-vopnaverk-
smiðjan og var framleiðslu skota
af þessari gerð hætt fyrir rúmum
flmm árum og eru þær hvergi fáan-
legar. Notkun kúlu af þessari gerð
er talin vfsbending um að tilræðið
hafí verið undirbúið og skipulagt. í
safni sænsku lögreglunnar, þar sem
eru 500 sýnishom af kúlum er engin
af þessari gerð.
Innfellda myndin sýnir byssur af
gerðinni Smith og Wesson. Lög-
regluþjónninn heldur á annarri af
kúlunum, sem urðu Palme að bana.
Pressens Bild/Símamynd