Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 26

Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986 DUUIX fráOSRAM —1 Dulux 5w 82 mm táí——1 Dulux 7w 112 mm Dulux 9w 144 mm 3 Dulux 11w 212 mm Dulux frá Osram fer eins og Ijósið um allan heim, vekur athygli fyrir góða hönn- un, sexfalda endingu miðað við venju- lega peru og 80% lægri lýsingarkostnað. Dulux perurnar eru 5w, 7w, 9w og 11w en það samsvarar 25w, 40w, 60wog 75 w miðað við venjulegar perur. a I 8 JÓHANN OLAFSSON & CO. HF. 43 Sundaborg 13 - 104 Reykjavík - Sími 688 588 Þjónusta f öllum helstu raftækjaverslunum 0 Egypzk stjórnvöld beittu skríðdrekum gegu uppreisnarmönnum. Hér má sjá tvo þeirra i bænum Giza. í bakgrunni stígur reykur upp af stóru glæsihóteli, en talið er, að meira en helmingur þess hafi eyði- lagzt, er uppreisnarmenn báru eld að þvi. Egyptaland: Lík danskrar konu fannst á hóteli Kaíró, 3. marz. AP. KOLBRUNNIÐ konulík fannst í dag í hótelherbergi í Kaíró. Er það talið vera af aldraðri danskri konu, sem saknað hefur verið, síðan sveitir úr egypzka þjóð- varðliðinu gerðu uppreisn í síð- ustu viku. Kona þessi mun vera fyrsti útlendingurínn, sem týndi lífi i átökunum, svo að vitað sé. Zaki Badr, hinn nýi innanríkis- ráðherra Egyptalands, sagði í dag, að öryggissveitimar yrðu ekki leystar upp vegna uppreisnarinnar. Allt kapp yrði hins vegar lagt á að bæta aðbúnað þeirra og aðstöðu, svo að unnt yrði að koma í veg fyrir að þessir atburðir endurtækju sig. Megn óánægja á meðal þjóð- varðliða er talin kveikjan að því, að Qölmennir hópar þeirra hófu uppreisn. I uppreisninni var m. a. kveikt í þremur stórum hótelum. Danska konan, sem beið bana, var ferða- maður á einu þeirra. Hún hét Anne Pedersen og var 65 ára að aldri. Enda þótt líkið hafi verið svo brunn- ið, að það var óþekkjanlegt, er ekki talinn leika vafi á, að það var af henni. Áður hafði Osama El-Baz, tals- maður Mubaraks Egyptalandsfor- seta, lýst því yfir, að enginn útlend- ingur hefði verið í hópi þeirra 36, sem týndu lífí í átökunum í síðustu viku. Hins vegar hefðu 300 manns særzt, þar á meðal þrír franskir ferðamenn. Hefðu þeir verið fluttir á sjúkrahús vegna meiðsla sinna, sem ekki voru talin lífshættuleg. Ekki kom til neinna alvarlegra átaka í Egyptalandi um helgina. Var það haft eftir Abdel-Halim Abu-Ghazala, vamarmálaráðherra landsins, að útgöngubanni því, sem verið hefði í gildi, yrði aflétt „innan fárradaga". Ný bókmenntaverðlaun í Bandaríkjunum: Róbert Penn Warren út- nefndur lárviðarskáld Washington, 28. febrúar. ROBERT PENN WARREN, 80 ára gamall skáldsagnahöfundur og ljóðskáld, hefur verið útnefndur fyrsta lárviðarskáld Bandaríkjanna af þar til skipaðrí nefnd. Bretar hafa útnefnt lárviðarskáld síðan á 17. öld, og hlaut John Dryden þann heiður fyrstur breskra skálda. Robert Penn Warren varð þekkt- næstum allar greinar bókmennta, ur fyrir um 40 ámm fyrir skáldsögu sagði í viðtali 1983 að ljóðin stæðu sína „All the King’s Men“. Hann nærst hjarta sínu, og hann hefur hefur tvisvar hlotið Pulitzer-verð- fyrst og fremst fengist við ljóðagerð launin bæði fyrir skáldsögur og ljóð. síðasta áratuginn. Warren, sem hefur fengist við Bandaríkin: Hafa vísindamenn uppgötvað „aðalrofa“ ónæmiskerfisins? Atlanta, Bandaríiyunum, 28. febrúar. AP. BANDARÍSKIR vísindamenn hafa fundið nátt- úrulegt hormón, sem þeir segja, að margfaldi virkni ónæmiskerfisins í baráttu þess við krabba- mein og aðra smitsjúkdóma. Var greint frá þessu í dag í blaðinu The Atlanta Conatitution. Blaðið hefur það eftir vísindamönnunum, að ef efnið, sem kallast Interleukin-4A, hafi sömu áhrif í mönnum og dýmm, muni það e.t.v. geta eytt æxlum og unnið bug á hættulegum smitsjúkdómum. Vonast þeir jafnvel til, að það geti endurreist bæklað ónæmiskerfíð í alnæmissjúklingum. Dr. Ellis Reinherz, yfirmaður rannsóknastofu í ónæmisfræði við Dana-Farber-krabbameinsstofnun- ina í Boston, segir í viðtali við blaðið, að hann og félagar hans telji sig hafa fundið „aðalrofa" ónæm- iskerfísins, efni, sem margfaldi áhrif þess og sé miklu öflugra en InterIeukin-2. Bandaríska krabba- meinsstofnunin hefur gert tilraunir með síðamefnda efnið á 25 sjúklingum og hefur árangurinn af þeim vakið mikla athygli. Tilraunir vísindamannanna hafa leitt í ljós, að Interleukin-4A örvar ónæmissvaranir líkamans 100 sinnum meira en önnur Interleukin-efni en efni af þessum flokki stjóma frumuvexti og fundust aðeins fyrir nokkmm ámm. Grein um þessa uppgötvun vísindamannanna mun birtast í vísindatímaritinu Science Magazine, dag- settu 7. mars.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.