Morgunblaðið - 04.03.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986
27
Kosningar í Slésvík-Holstein:
Úrslitin áminning til
slj órnarflokkanna
Bonn, 3. mars. AP.
ÚRSLIT kosninganna i Slésvík-Holstein, nyrsta ríki Vestur-Þýska-
lands, eru viðvörun til Helmuts Kohl, kanslara; Flokkur hans, kristi-
legir demókratar (CDU), tapaði sex prósent fylgi frá siðustu kosning-
Kurt Biedenkopf, formaður CDU
í Nordrhein-Westphalen-ríki, segir
að úrslitin séu greinileg viðvörun
til stjómarflokkanna í Bonn. „Úr-
slitin sýna að þungur róður er fram-
undan," sagði Biedenkopf fyrir
flokksfund í Bonn og vísaði þar til
þingkosninganna í janúar á næsta
ári.
Sósíal-demókratar (SPD) hlutu
40,3 prósent atkvæða í bæjar- og
sveitarstjómarkosningunum í Slés-
vík-Holstein á sunnudag og bættu
við sig 5,7 prósentum frá kosning-
unum 1982.
Fylgi Græningja (die Griinen)
rúmlega tvöfaldaðist og em þeir
nú þriðji stærsti flokkur ríkisins.
Þeir fengu 7,4 prósent fylgi, en
aðeins 3,1 prósent 1982.
Fylgi CDU féll úr 40,1 prósenti
1982 niður í 44,2 prósent og Frjáls-
ir demókratar (FDP), sem sitja við
stjómvölinn í Bonn ásamt kristileg-
um demókrötum, misstu 2,4 prósent
fylgis síns: Fengu nú 4,4 prósent
atkvæða, en 6,8 prósent 1982. FDP
fékk ekki einu sinni sæti í bæjar-
stjómum Kílar, Lúbeck og Flens-
borgar.
Uwe Barschel, forsætisráðherra
í Slésvík-Holstein, kenndi sam-
steypustjóm CDU/CSU og FDP í
Bonn fyrir hrakfarir CDU í ríkinu.
Hann sagði að af þessu sex pró-
senta fylgistapi megi skrifa fímm
prósent á reikning Kohls, kanslara,
og stjómar hans og þeirra mistaka,
sem stjómin hefði gert.
Þar hefðu helst átt hlut að máli
deilur, sem varað hefðu marga
mánuði, um breytingar á greiðslum
til verkamanna í verkfalli og nýja
gerð skilríkja, er setja á í umferð
í Vestur-Þýskalandi.
Norður-Noregur:
• •
Ordeyða um
allan sjó
ÞAÐ SEM AF er þessari vertíð, hefur ekki fengist bein úr sjó við
Lófóten að heitið getur og ber mannlífið þar þess glöggt vitni. Tugir
tonna af salti standa ónotuð í verstöðvunum og fiskihjallamir eru
tómir, sem er óvenjulegt á þessum árstima þegar mánuður er liðinn
af vertíðinni. Ef ekki verður breyting á til batnaðar fljótlega, getur
svo farið að vertíðin í ár verði ein sú versta frá upphafi. Til marks
um það hafa nú veiðst 2.900 tonn af þorski á þessari vertíð, en á
sama tima i hitteðfyrra höfðu veiðst 10 þúsund lestir og var þó sú
vertíð ekki nema í meðallagi.
í Henningsver, stærstu verstöð-
inni á Lófóten, er deyfð yfír mann-
lífínu. Þar hafa ekki veiðst nema
160 tonn á móti 900 árið 1984,
enda er þar ekki nema þriðjungur
þeirra sjómanna sem þar eru venju-
lega á þessum tíma. Þeir sjómenn
AP/Ljóamynd
Reagan ísnjókasti?
Ronald Reagan, forsetí Bandaríkjanna, gaf sér tíma til þess að
sýna nokkrum ljósmyndurum hvernig henda á sijóbolta með
stæl, er hann var á leið til skrifstofu sinnar & þriðjudaginn
fyrir viku. Fáeinum klukkustundum síðar skýrði Bandaríkja-
stjóm frá þvi að Marcos fyrrverandi forseti Filippseyja hefði
samþykkt að fara úr landi, en það skal ésagt látið hvort
spjókastið stóð í einh verju samhengi við þá tilkynningu.
sem eftir eru, eru orðnir órólegir
og sífellt kemur upp orðrómur um
góða veiði annars staðar. En hingað
til hafa þessar sögusagnir ekki verið
á rökum reistar. Sama ördeyðan
er um allan sjó.
(Aftenposten)
Norðmenn
byggja risa-
olíupall
Kaupmannahöf n 28. febrúar. Frá Grœn-
landsfréttaritara Morgunbl., N.J. Bruun
GRÆNLENSKA olíuleitarævin-
týrinu á Jamesonlandi á austur-
strönd Grænlands hefur verið
frestað í að minnsta kosti 2 ár.
Hefur oliufélagið Arco tilkynnt
að bæði uppbygging og jarð-
fræðilegar rannsóknir, sem þar
hafa staðið yfir, verði stöðvaðar.
Starfsmenn verða sendir heim i
áföngum í mars, allir nema þeir
sem sjá skulu um reksturs hins
nýja flugvallar á staðnum.
Stöðvun framkvæmdanna er
vegna verðfalls á olíu að sögn yfír-
manna hjá dótturfyrirtæki Arco í
Danmörku, Nordisk mineselskab.
Arco hefur tilkynnt danska Græn-
landsráðuneytinu ákvörðun sína um
að stöðva framkvæmdir - og ráðu-
neytið hefur ráðgast um málið við
Jonathan Motzfeldt formann land-
stjómarinnar og Jonas Danielsen
bæjarstjóra í Scoresbysund.
Arco hafði áætlað að láta fara
fram viðamiklar jarðfræðilegar
rannsóknir á Jamesonlandi og
framkvæma tvær tilraunaboranir í
framhaldi af þeim. Átti þessu að
vera lokið árið 1990. Uppsagnir og
brottflutningur starfsmanna verður
einmitt á sama tíma og opnaður
er nýr flugvöllur sem m.a. átti að
vera fyrir olíuleitarmennina. Hann
er við Constable point í Hurry-fírði,
norðan við Scoresbysund. Er þessi
nýi flugvöllur var tekinn í notkun
var flugvöllurinn í Meistaravík lagð-
ur niður og þeirri ákvörðun verður
ekki breytt. Flugvöllurinn við
Constable point verður starfræktur
áfram og munu starfsmenn flug-
vallarins jafnframt gæta olíuleitar-
stöðvarinnar sem ekki verður starf-
rækt næstu tvö árin að minnsta
kosti. Þegar er hafíð að ganga frá
mælitækjum og verkfærum í
geymsluhúsum á staðnum, þar sem
þau munu liggja óhreyfð næstu tvö
árin að mirmstakrjgfj ^