Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Nýtt húsnæðis lánakerfi Margir þeir, sem áttu hlut að gerð kjarasamninganna í síðustu viku hafa orðið til þess að kalla þá „tímamótasamninga". Reynslan ein sker úr um, hvort svo verður. Lítið má út af bera til þess að þau markmið, sem að er stefnt, náist ekki. Sjálfír getum við ráðið því að sumu leyti, hvem- ig til tekst, en yfir öðru ráðum við ekki. Veruleg lækkun dollar- ans getur valdið okkur umtals- verðum erfíðleikum, þegar líður á árið. Auk ákvæða kjarasamning- anna um kauphækkun og kaup- tryggingu eru í þeim þættir um húsnæðismál, sem vakið hafa mikla athygli og jafnframt tölu- verðar deilur. Tvennt hefur ein- kennt stöðu húsnæðismála síð- ustu misseri: í fyrsta lagi mikil og alvarleg vandamál þeirra, sem byggt hafa á síðustu 5 árum eða svo. í öðru lagi tregða fólks til þess að festa kaup á húsnæði vegna þeirra vandamála, sem af því hafa leitt fyrir þá, sem það hafa gert og þar af leiðandi samdráttur í byggingariðnaðin- um. Með kjarasamningunum er gerð tilraun til að taka á þessum tvíþætta vanda. Þeir, sem byggt hafa eða keypt frá 1980 hafa lent í miklum erfið- leikum af tveimur ástæðum. Hús- byggingarlán hafa verið margfalt dýrari en áður tíðkaðist og á sama tíma og lán voru verðtryggð var verðtrygging kaupgjalds afnum- in. Jafnframt hefur fasteignaverð farið lækkandi á sama tíma og aðrir íjárfestingarkostir hafa dregið til sín fjármagnið. Afleið- ing lækkandi fasteignaverðs og hækkandi verðtryggðra lána hef- ur orðið sú, að jafnvel fólk, sem átti verulegt eigið fé til þess að leggja í húsbyggingu, hefur tapað því að miklu leyti. Nú gerizt femt, sem verður þessu fólki til hags- bóta. Verðbólgan lækkar svo mikið, að verðtryggðu lánin munu hætta að æða upp úr öllu valdi. Nafnvextir lækka, sem mun bæta mjög greiðslustöðu húsbyggj- enda. Sérstök lán verða veitt til þessa hóps til þess að leysa verstu vandamálin. Loks munu þessir húsbyggjendur eiga kost á því að lengja bankalán sín enn og nú í 10 ár, sem dregur verulega úr greiðslubyrði þeirra. Þessar að- gerðir ættu að komast langt með að leysa vanda þessa hóps. Nú eru gerðar umfangsmestu ráðstafanir, sem gerðar hafa verið í rúma tvo áratugi til þess að auðvelda fólki að eignast eigið húsnæði. Þeir, sem festa kaup á húsnæði í fyrsta sinn, eiga nú kost á svo hagkvæmum lánum til svo langs tima, að líklega getur greiðslubyrði í mánuði hveijum verið léttari fynr þá, sem ráðast í kaup en hinna, sem taka hús- næði á leigu. Að sumu leyti má segja, að þetta séu víðtækustu ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til þess að auðvelda fólki að eignast húsnæði frá því að samningamir voru gerðir um byggingu 1.250 íbúða fyrir lág- launafólk í Breiðholti á árinu 1965. Nú má segja, að stefnt sé að svipuðum ráðstöfunum, sem nái til allra þeirra, sem festa kaup á húsnæði í fyrsta sinn og þá var stefnt að fyrir láglaunafólk sér- staklega. Þessi markmið eru ekki um- deild heldur sú leið, sem farin er til þess að íjármagna þetta kerfí. Talsmenn nokkurra sterkustu líf- eyrissjóðanna hafa talið, að með þessum samningum seilist opin- berir aðilar í sjóði, sem byggðir hafa verið upp með fijálsum sparnaði fólks og ríkisvaldið hafi engan rétt á að sækjast eftir. Samningsaðilar komu til móts við þessa gagnrýni með því að gera lánsupphæð skilyrta eftir því, hvað lífeyrissjóður viðkomandi leggur mikið fé fram til hús- næðislánakerfisins. A móti má halda því fram, að þessi aðferð til þess að þvinga lífeyrissjóðina til þess að leggja fjármuni fram sé engu betri. Ráðstöfunarréttur yfír fé lífeyrissjóðanna er við- kvæmt mál. A undanfömum ámm hafa stjórnvöld hvað eftir annað gert tilraun til þess að lögbinda ákveðin fjárframlög frá lífeyrissjóðunum en jafnan orðið að hverfa frá þeim áformum. Munurinn nú er hins vegar sá, að það eru ekki stjómvöld, sem hafa forystu um þetta, heldur aðilar vinnumarkaðarins, fulltrú- ar þeirra sem borga til lífeyris- sjóðanna. Það mun koma í ljós á næstu misserum hver reynslan verður af þessu kerfí. Þetta nýja húsnæðislánakerfí hefur einnig verið gagnrýnt út frá allt öðrum forsendum. Því er haldið fram, að með því sé stefnt að nýju steinsteypuæði og að engin þörf sé á því fyrir þjóðina að leggja svona mikið fé í bygg- ingar. Þá er því haldið fram, að þetta fjárstreymi í húsbyggingar muni leiða til mikillar þenslu í efnahagsmálum og þannig vinna gegn þeim markmiðum, sem að er stefnt með kjarasamningunum. Loks eru þeir, sem telja, að með þessum aðgerðum sé beinlínis unnið gegn þeim fijálsa fjár- magnsmarkaði, sem hér hefur orðið til á síðustu misserum og muni það hafa neikvæð áhrif á atvinnulífíð í heild sinni. A þessari stundu getur enginn fullyrt neitt um það, hver áhrifin verða af þessum ráðstöfunum í húsnæðismálum á efnahagslífíð í heild sinni. Hið eina, sem hægt er að staðhæfa er, að þær munu greiða verulega úr vandamálum þeirra húsbyggjenda, sem hafa orðið hart úti í efnahagsþróun siðustu ára og þær munu auð- velda ungu fólki að eignast eigið húsnæði. Náist þetta tvennt fram hefur mikið áunnizt. Frá fundi hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins 15. maí 1984, þegar fulltrúar íslands sátu þar í fyrsta inu snýr baki i ljósmyndarann, annar við hægri borðsendann. Þjóðviljinn o g uta eftir Björn Bjarnason Utanferðir á vegum ríkisins hafa verið töluvert til umræðu undan- farið, eftir að fjármálaráðherra svaraði fyrirspurn um þær á Al- þingi. Er eðlilegt, að menn velti því fyrir sér, hvort nauðsynlegt sé að leggja eins mikið fé og raun ber vitni í slíkar ferðir. Því miður er skýrsla ráðherrans ekki tæmandi um þennan þátt í opinberum rekstri. Fyrirspumin var um utanlands- ferðir þingmanna, ráðherra og embættismanna ráðuneytanna. I svarinu er þó ekki getið um það fé, sem alþingismenn nota á ári hveiju til ferðalaga. Er tímabært, að upp- lýsingar um það efni verði lagðar fram. Minnist ég þess, þegar ég var skrifstofustjóri í forsætisráðuneyt- inu fyrir nokkrum árum, að þá lagði Geir Gunnarsson, þingmaður Al- þýðubandalagsins, fram fyrirspum um opinberan ferðakostnað, sem tók einnig til stofnana á vegum rík- isins. Samkvæmt reglugerð um Stjómarráð íslands heyrir Alþingi undir forsætisráðuneytið og kom það í minn hlut að ganga á eftir því við skrifstofu Alþingis að fá svar þaðan um ferðakostnað þing- manna. Það fékkst aldrei og létu þingmenn sér það vel lynda. Hef ég ekki orðið þess var, að á þingi kæmi fram áhugi á því, að frá þessum útgjöldum skattgreiðenda væri skýrt. Ætti þó sama yfír alla að ganga í þessu efni eins og öðmm, þegar rætt er um ráðstöfun á fé skattgreiðenda. Áhugi Þjóðviljans Vegna þeirrar skýrslu, sem nú hefur verið gefín á Alþingi, hefur Þjóðviljinn beint athygli_ sinni að einum þætti hennar. Á forsíðu blaðsins laugardaginn 22. febrúar er greint frá því, að í skýrslunni er þess réttilega getið, að á árinu 1985 hafí ég farið í tvær utanlands- ferðir á vegum utanríkisráðuneytis- ins, til Bretlands í janúar og Hels- inki í lok júlí, auk þess hafi ég farið í eina ferð á vegum ráðuneytisins til Brussel á árinu 1984. Samtals nemur kostnaður við þessar ferðir 172.565 kr. Af ástæðum, sem mér em ekki kunnar, kemur það ekki fram í skýrslunni, að í september 1985 greiddi sendiráð íslands í Bretlandi ferðakostnað fyrir mig frá London til Amsterdam og dag- peninga þar í þijá daga, en á þess- um tíma var ég í leyfí frá störfum á Morgunblaðinu og dvaldist í Englandi. Síðan Þjóðviljinn rakst á þetta í skýrslunni, heftir blaðið oftar en einu sinni minnst á þessi útgjöld í ritstjórnargreinum. I forystugrein blaðsins laugardaginn 1. mars segir meðal annars: „Þá hefur einnig komið í ljós, að ríkissjóður hefur á síðustu tveimur ámm greitt jafnvirði 185 þúsunda króna í ferðakostnað og uppihald fyrir Bjöm Bjamason aðstoðarrit- stjóra Morgunblaðsins, en hann fékk borgað fyrir að vera meðreið- arsveinn Geirs Hallgrímssonar ut- anríkisráðherra og stjómarfor- manns útgáfufélags Morgunblaðs- ins. Með fullri virðingu fyrir útgáfu Morgunblaðsins, þá nær ekki nokk- urri átt að það sé líka lagt á ís- lenska launamenn að greiða Bimi Bjamasyni aðstoðarritstjóra dag- peninga úti í heimi. Hver er réttlæt- ing ríkisstjómarinnar? Hver er rétt- læting Morgunblaðsins? Á að þagga þetta hneyksli niður?" Um ferðirnar Aðeins í einni þessara ferða hafði ég þá ánægju að vera í fömneyti Geirs Hallgrímssonar. Var það þegar hann fór til Helsinki 1985 í tilefni af því, að 10 ár vom liðin frá undirritun Helsinki-samþykkt- arinnar. Var mikill heiður að vera í sendinefnd íslands, ekki síst vegna þess hve skömglega ræðu Geir Hallgrímsson flutti á fundinum og vegna þeirrar athygli, sem orð hans vöktu meðal annars í hópi blaða- manna. Kom það meðal annars í minn hlut að ræða við marga þeirra utan funda fyrir hönd íslensku sendinefndarinnar. Þegar við mig var rætt af ráðuneytinu um þessa ferð, var sagt, að hugmyndin um þátttöku mína í afmælisfundinum ætti rætur að rekja til þess, að ég var, sem starfsmaður í forsætis- ráðuneytinu, í för með Geir Hall- grímssyni til Helsinki 1975, þegar hann ritaði undir lokasamþykkt ráðstefnunnar um samvinnu og öryggi í Evrópu sem forsætisráð- herra. Síðar kom það í minn hlut að þýða þessa samþykkt á íslensku, en hún var gefín út á vegum utan- ríkisráðuneytisins, eins og áskilið var í samþykktinni. Eg sagði, að mér þætti ekki fært að takast ferð- ina á hendur nema ég mætti senda Morgunblaðinu fréttir af afmælis- fundinum. Var á það fallist af ráðu- neytinu. Þegar Geir Hallgrímsson varð utanríkisráðherra voru 30 ár liðin síðan sjálfstæðismaður hafði gegnt því embætti. Hann markaði meðal annars þá stefnu, að íslendingar ættu að verða virkari í hemaðar- legri samvinnu innan Atlantshafs- bandalagsins. Ég sit í Öryggismála- nefnd sem fulltrúi þingflokks sjálf- Utsýn gerir samning við Flugleiðir um leiguflug: Meiri eftirspurn eftir sólar- landaferðum en um langt árabil - segir Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn og Flugleiðir hafa gert með sér samning um leiguflug frá íslandi til sólarlanda sumarið 1986. Samkvæmt samningnum leigir Útsýn nýjustu vél Flugleiða, Boing 727-200, á hveijum fimmtudegi til flutnings á far- þegum sínum til Costa Del Sol á Spáni, Algarve í Portúgal og ítal- íu. Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar, forstjóra Útsýnar, er sætamagn í þessum ferðum um 4.000 og væri nú þegar um helmingur þess seldur. Ingólfur sagði, að auk þessa samn- ings, hefði Utsýn gert viðauka- samning við Flugleiðir um flutning á 3.000 farþegum til annara staða á sérstökum fargjöldum, sem ekki hefðu áður verið á boðstólnum á ferðamarkaðinum. „Samningamir við Flugleiðir eru meðal annars grundvöllur þess, að Útsýn getur boðið ferðir ársins 1986 á sambærilegu verði við sfð- asta ár þrátt fyrir miklar verð- hækkanir milli ára vegna verðbólgu og gengisbreytinga", sagði Ingólf- ur. „Útsýn hóf auglýsingar sínar fyrir komandi sumar undir kjörorð- inu „aukinn kaupmáttur í ferðalög- um“. Það virðist hafa borið góðan árangur því eftirspumin hefur verið meiri síðustu tvær vikumar en dæmi eru til um langt árabil. Niður- staða í kjaramálum, festa í gengis- málum og tiltölulega tryggt at- vinnuástand í kjölfar nýgerðra samninga vekur aukna bjartsýni og fólk á auðveldara með að taka ákvarðanir en áður, þegar óvissa ríkti á vinnumarkaði og verðbólgan æddi áfram“, sagði Ingólfur enn- fremur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.