Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 32

Morgunblaðið - 04.03.1986, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986 Frá þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn Kaflar úr ræðu Steingríms Hermannssonar á þingi Norðurlandaráðs: Samnorrænt útflutnings- ráð athyglisverð hugmynd Einn lögregluþjónn viðhallardyr Einn lögregluþjónn gætti öryggis fyrir utan danska þingið í Kristjánsborgarhöll, þar sem þing Norðurlandaráðs hófst í gær. Þjóðfánar Norðurlandanna blakta yfir aðalinnganginum. á óréttlætinu og betjast fyrir betri heimi. Káre Willoch, forsætisráðherra Noregs, sagði að á öllum Norður- löndum nkti sorg vegna dauða Palmes. Á þessari stundu skildist mönnum best hve Norðurlandabúar væru bundnir nánum böndum. „Það sem hendir góðan granna, það hendir okkur einnig," sagði Willoch. Anker Jörgensen, leiðtogi danskra jafnaðarmanna, minntist Palmes sem friðarins manns, þess stjómmálamanns sem þekktastur hefði verið á Norðurlöndum. Nú væri hann fallinn í valinn, fómar- lamb ofbeldisins. Að ræðunum loknum risu allir úr sætum og minntust Palmes með einnar mínútu þögn. Símamynd/Nordfoto Þingheimur reis úr sætum í virðingarskyni við minningu Olofs Palme. Myndin var tekin við setningu þings Norðurlandaráðs í gær. Kaupmannahöfn, 3. februar. Frá Svemi Sigurðssym, blaðamanm Morgunblaðsms. „SAMNINGUR Islendinga og Dana um handritamálið er lýsandi dæmi um alþjóðlega samvinnu eins og hún gerist best,“ sagði Sverr- ir Hermannsson, menntamálaráðherra, í ræðu sinni á þingi Norður- landaráðs, þar sem hann gerði lyktir handritamálsins að umtalsefni. „Mig skortir orð til að lýsa þakk- læti íslensku þjóðarinnar vegna stórmannlegrar framkomu Dana í handritamálinu og ég undrast það hugrekki og þann skilning, sem danskir stjórnmálamenn hafa sýnt,“ sagði Sverrir Hermannsson m.a. í ræðu sinni. Hann rakti gang handritamálsins allt frá fyrstu tíð. Sagði hann að áður fyrr hefði verið um það talað í fjölmiðlum að norræn samvinna væri meiri í orði en á borði, en þessar raddir hefðu þagnað með tímanum. Samvinnan stæði með miklum blóma, ekki síst í menning- ar- og efnahagsmálum og nefndi í því sambandi Norræna fjárfestinga- sjóðinn. Sverrir sagði að 5 framhaldi af lausn handritamálsins hefði sú hugmynd vaknað að stofnuð yrði norræn málvísindastofnun á íslandi með sérstöku tilliti til rannsókna á íslensku máli og bókmenntum. Reifaði hann síðan hugmyndina og sagði að verkefni stofnunarinnar ættu að vera alþjóðlegar rannsóknir á íslenskri og norrænni menningu. STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra, flutti í gær ræðu á fyrsta degi þings Norðurlandaráðs. Hér á eftir fara kaflar úr ræðunni: „íslenska ríkisstjómin leggur nú mikla áherslu á nýsköpun í atvinnu- lífí. Ætlunin er að auka verulega fjölbrejrtni í íslensku atvinnulífi. í því skyni hefur auknu fjármagni verið veitt til rannsókna og sett á fót þróunarfélag, sem ætlað er að aðstoða áhættusöm en álitleg ný fyrirtæki. í þessu sambandi leggjum við áherslu á aukið samstarf Norður- landanna. Með samvinnu milli Norðurlanda má bæta markaðs- stöðu norrænna atvinnuvega í harðri samkeppni á alþjóðamarkaði. Norræn samvinna þarf nú að miða að því að skapa skilyrði fyrir aukinn hagvöxt, en ein forsenda hans er efling útflutnings. Með samstarfí má ná betri stöðu á mörkuðunum, m.a. á sviði útflutningsverkefna, þar sem ekki síður er flutt út hugvit og þekking en vörur. Efling sam- starfsins út á við á þó alls ekki að verða á kostnað hins innra sam- starfs. Innri styrkur á sviði menn- ingar- og félagsmála er einmitt forsenda árangurs út á við í skiptum við aðrar þjóðir, ekki síður en öflugt atvinnulíf. Það er ánægjulegt að verða þess var, að áhugi atvinnulífsins á nor- rænu samstarfi er vaxandi, bæði í orði og verki. Starf Gyldenhamm- er-hópsins er gott dæmi um þennan áhuga. Hugmyndimar sem koma fram í skýrslu hópsins eru athyglis- verðar, ekki síst varðandi samstarf á sviði iðnaðarrannsókna og tækni- þróunar. Nordisk handlingsplan, sem samþykkt var á síðasta þingi Norð- urlandaráðs, er góður grundvöllur fyrir sameiginlega stefnumótun í efnahagsmálum. Nú er nauðsynlegt að fylgja því eftir með raunhæfri framkvæmd. Við íslendingar minn- um á tvennt í þessu sambandi; Við leggjum áherslu á að eiga fulla aðild að UNI-lánum hjá Norræna fjárfestingabankanum, og við ítrek- um enn að styrki til atvinnuvega verður að lækka, ekki síst á sviði iðnaðar og sjávarútvegs, í öllum löndunum. Norðurlöndin eiga að beijast sameiginlega fyrir þessu máli á alþjóða vettvangi. Ég er þeirrar skoðunar, að sam- starf í útflutningsmálum með stofn- un samnorræns útflutningsráðs sé athyglisverð hugmynd. Einnig tel ég mikilvægt að tryggja áhættufé til forathugana á arðsemi útflutn- Leiðtogar á Norðurlöndum minnast Olofs Palme á þingi Norðurlandaráðs: Palme sameinaði mannlega hlýju, skilning og mikla þekkingu - sagði Páll Pétursson, forseti Norðurlandaráðs Kaupmannahöfn, 3. rnars. Frá Sveini Sigurðaayni, blaðamanni Morgunblaðains. „NORÐURLÖND hafa mikils misst. Forsætisráðherra Svíþjóðar var skotinn til bana á götu úti i Stokkhólmi, féll fyrir byssukúlu sem nú nístir alla Norðurlandabúa að hjartarótum. Við höfum misst þann mann sem frekar en nokkur annar var fulltrúi þeirra hugsjóna sem norrænt samstarf er byggt á.“ Þannig hóf Páll Pétursson, forseti Norðurlandaráðs, mál sitt þegar hann minntist Olofs Palme, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, á þingi Norðurlandaráðs sem haldið er í Krist- jánsborgarhöll í Kaupmannahöfn. Að ræðu hans lokinni minntust forsætisráðherrar Norðurlanda og Anker Jörgensen, leiðtogi danskra jafnaðarmanna, Palmes og að þvi búnu reis allur þingheimur úr sætum i einnar mínútu þögn. „Norðurlandabúar og Norður- landaráð hafa misst félaga, vin og leiðtoga og Palme sameinaði það allt sem við metum mest, mannlega hlýju, skilning og mikla þekkingu. Þessara eiginleika hans naut Norð- urlandaráð í ríkum rnæli," sagði Páll Pétursson ennfremur þegar hann minntist Palme. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði að föstudagur- inn 28. febrúar hefði verið anna- samur á Alþingi íslendinga. Gengið hefði verið frá umfangsmiklum samningum um kjaramál og efna- hagsmál, sem miklar vomr væru við bundnar og hefði almenn bjart- sýni og ánægja ríkt meðal lands- manna. Þann sama dag hefði Olof Palme, forsætisráðherra Svía, fallið fyrir hendi ofbeldismanns á götu í Stokkhólmi. „Þessi frétt kom yfir íslensku þjóðina eins og reiðarslag. Á einu augnabliki breytist gleði í sorg. Menn spurðu sjálfa sig hvem- ig það mætti vera að sá maður sem mest hefði barist fyrir friði og gegn ofbeldi skyldi vera fómarlamb of- beldisins. Mönnum fannst að sú trú að Norðurlönd væru sem vin í eyðimörkinni hefði verið frá þeim tekin. Olof Palme naut mikillar virðingar á íslandi. Það sýndi sig best þegar hann og kona hans, Lisbet, komu í opinbera heimsókn til íslands í desember 1984.“ Paul Shliiter, forsætisráðherra Danmerkur, sagði þegar hann minntist Palmes að þessir dagar hefðu átt að vera gleðidagar, en í stað þess einkenndust þeir af harmi vegna voðaatburðar, sem ekki ætti sér hliðstæðu í norrænni sögu. „Þetta gat ekki gerst, hvorki í Sví- þjóð né annars staðar á Norðurlönd- um, en það gerðist samt. Hér er um að ræða ólýsanlegan harmleik," sagði Schliiter. Kalevi Sorsa, forsætisráðherra Finnlands, sagði í ræðu sinni að lýðræðið fæddist í frelsi og þrifist ekki nema í frelsi, en þegar ofbeldi væri annars vegar væri frelsinu og lýðræðinu hætt. Sagði hann að Finnar minntust manns sem aldrei hefði hikað við það að vekja athygli Dæmi um alþjóðlega sam- vinnu eins og best gerist - sagði Sverrir Hermannsson um handrita- málið í ræðu sinni á þingi Norðurlandaráðs Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, í ræðustól á þingi Norðurlandaráðs. Við hlið hans má greina Pál Pétursson, fráfar- andi forseta ráðsins og Snjó- laugu Ólafsdóttur, ritara Islands- deildar ráðsins. ingsverkefna, með aðstoð Norræna verkefnaútflutningssjóðsins. Þetta er mjög mikilvægur þáttur í að auðvelda fyrirtækjum, ekki síst hinum smærri, að kanna ný verk- efni. Óvissa og langur undirbún- ingstími dregur úr áræðni fyrir- tækja í þessu efni, jafnvel þótt horfur um arðsemi til lengri tíma séu góðar. Samstarf í alþjóðstofnunum, ekki síst ijármálastofnunum, sem Norð- urlöndin eiga aðild að, er mikilvægt. Vert er að athuga hvort hagkvæmt er fyrir Norðurlöndin að eiga sam- eiginlega aðild að slíkum stofnunum í þeim tilvikum þar sem engin ein þjóð hefur talið hagsmuni sína nægilega til að réttlæta aðild á eigin spýtur. í því efni má t.d. nefna þróunarbanka og þróunarsjóði um heim allan. Ég vil að lokum vekja athygli á tillögu, sem fyrir þessu þingi liggur um norræna rannsóknastofnun á sviði líffræði á íslandi. fsland er að mörgu leyti vel til slíkra rannsókna fallið. Ég er sannfærður um, að samstarf Norðurlandanna, eins og lagt er til í þessari tillögu, mun verða öllum þjóðunum til hags- bóta.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.