Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986 Ný viðhorf í samskiptum Islands og Bandaríkianna eftir Einar Örn Björnsson í vamarsamningnum er gerður var milli íslands og Bandaríkjanna 1951 er þessi klausa í annarri grein samningsins: „ísland mun afla heimilda á land- svæðum og gera aðrar nauðsynleg- ar ráðstafanir, til þess að í té verði látin aðstaða sú sem veitt er með samningi þessum og ber Bandaríkj- unum eigi skylda til að greiða ís- landi, íslenskum þegnum eða öðrum mönnum gjald fyrir.“ Annað í nefndum samningi er um samskipti á Keflavíkurflugvelli og annað sem varðar þau mál. Einnig um tollfrjálsan innflutning á matvælum og öðru í sambandi við byggingar og framkvæmdir vamarliðsins. Hér verður ekki reynt að skýra þennan samning í heild, það ætti utanríkisráðuneytið að gera og senda inn á hvert heimili í landinu. Það gæti stutt það fólk sem breyta vill þessum endemis samn- ingi og færa hann í það horf að ^ hann væri samningur á milli þjóða, en ekki með þeim hætti sem hann er. Þetta er „mottóið“ í þessari samningagerð allri, eins og það hafi verið í þágu íslendinga einna, varðstaða Bandaríkjanna hér á landi. Eða hafa þjóðir Vestur-Evr- ópu og Norðurlanda, Danmerkur og Noregs, sem eru félagsþjóðir Íslendinga í Atlantshafsbandalag- inu, ekki meira öryggi af því en ella? Svíar og Finnar mega einnig hugleiða það. Það voru íslensk stjórnvöld er gerðu vamarsamninginn, án þess að þjóðinni gæflst kostur á því að íhuga hann og ræða. Hann var til- kynntur með skyndingu í morgun- útvarpi áður en morgunbænin var flutt og látið í það skína að þannig hafí orðið að standa að málum eins og um yfirvofandi innrás væri að ræða. Þar var átt við Sovétríkin og vitnað í Kóreustríðið. Vitanlega höfðu sovétherrarnir svikið bandamenn sína og tekið til hendinni í Austur-Evrópu og víðar og ekki staðið við þau mannréttindi sem heitið var að styijöld lokinni. En þrátt fyrir það og í skjóli þess áttu íslensk stjómvöld ekki að '“1 notfæra sér það til að skipa málum að sinni vild um framtíðarstefnu íslands við Bandaríkin um varnir og öryggi Islands, og önnur sam- skipti sem hlutu að sigla í kjölfarið ef rétt var á haldið og íslensk sjón- armið og þjóðreisn hefði verið höfð að leiðarljósi. Reyndin varð önnur. Aframhald þessarar greinar verður um að breyta því óláni sem íslenskir valdamenn hafa valdið og lýsa þeim möguleikum er við blasa ef rétt er á haldið. Undirritaður hefur skrifað fjölda greina um þessi efni í Morgun- blaðið, en þögnin látin nægja hjá stjómmálaöflunum. En hvenær j vbrestur varnargarður þeirra sem hafa völdin og sérréttindin og yfir- ráð yfir fjölmiðlum og fjármagni, en inn flæðir vilji þjóðarinnar sem hafnar þeim forréttindum, en situr í öndvegi að endurskoðun fari fram á öllum samskiptamálum við Bandaríkin. Forréttindaklíkur í stjómmála- flokkunum vinna sainan og halda óbreyttu ástandi í samskiptum við Bandaríkin og ríghalda í gamlan og úreltan samning er beinir öllum umsvifum suður á Keflavíkurfiug- völl, og kalla það „viðbúnað til - ,vama“ sem dugi. Flugvélar varnarliðsins hefla sig til flugs frá varnarliðsstöðinni á Keflavíkurflugvelli, og úr þeim er horft um landið og hafið umhverfis, en hvergi er hægt að lenda þessum eftirlitsflugvélum, út á landi svo vel sé, og engin aðstaða þar til eins eða neins. — • Island er í augum st.iórnmála- aflanna höfuðborgarsvæðið og Keflavíkurflugvöllur, og vegasam- göngur í þá átt, annað kemur þeim ekki við, þar hreiðca gróðaöflin um sig í skjóli þeirra afla sem ríghalda í úreltan og úrsérgenginn samning, sem enga hliðstæðu hefur um samskipti og samvinnu frjálsra þjóða á Vesturlöndum. Rétt er að hugleiða hvað helst er til ráða að breyta um stefnu og starfsaðfarir í samstarfl við Banda- ríkin og aðrar NATO-þjóðir. Endurskoðun fari fram um nýja samningagerð við Bandaríkin, þar sem samgöngur í landinu öllu yrðu megin verkefni, vegakerfí landsins verði byggt upp frá Faxaflóasvæð- inu út á landsbyggðina úr varanlegu efni með nútíma öryggisútbúnaði. Jarðgöng verða byggð á Vestfjörð- um og Austfjörðum og annarsstað- ar er henta þykir. Fyrsta fram- kvæmd í jarðgangnagerð ættu að vera jarðgöng í gegnum Fjarðar- heiði, sem sennilega yrðu 12—15 kílómetra löng. Samhliða þarf að byggja upp öflugan flugvöll á Hér- aði, slíkar framkvæmdir mundu skapa meira öryggi en ella og fram- tíðarsamgöngur. Flugvellir úr varanlegu efni með tilheyrandi öryggisbúnaði verði byggðir í öllum iandshlutum sem tryggja í senn örugga varðstöðu og samgöngur í landinu. Almannavarnir verði skipulagðar og framkvæmdar um allt land i samvinnu við Bandaríkin. Yrði það liður í meira öryggi fyrir fólkið í landínu. Almannavarnir eru nær engar, einungis skrifstofuhald, sím- ar og einhver íjarskipti en aðbúnað- ur, húsnæði og annað sem máli skiptir eru ekki fyrir hendi ef nátt- úruhamfarir eða önnur vá væri yfirvofandi. Öruggt vegakerfi og flugvellir eru liður í því að skapa hér meira öryggi. Vegakerfið er víða eins og í vanþróuðum löndum, snjóar hamla að hausti og vetri og aurbleyta að vori. Þannig er einnig um marga flugvelli úti á landi. Það sem mætir fólki á ferðum um Iandið er gijót- hríð og moldrok um sumartímann og skapar mikla slysahættu og eyðileggingu á farartækjum. Eigendur farartækja fá síhækk- andi álögur á bensín, olíur, vara- hluti, nýja bíla og aðrar vélae sem notaðar eru vegna umferðarinnar. Þetta eru úrræði stjómmálaafla er bitnar á hinum almenna manni og atvinnulífinu og siglir í strand ef ekki verður snúið við hið bráðasta. Mikið er rætt og ritað um skuldir íslendinga erlendis. Þær eru miklar, en hversvegna? Stór hluti þeirra er vegna mistaka stjórnmálaafla í samningum á alþjóðasviði, eins og rakið er hér að framan. Þess vegna þarf að stemma á að ósi og stilla Islandi inn á nýjar leiðir og fá það fram í samskiptum við Bandaríkin og aðrar NATO-þjóðir, sem ekki hefur tekist á liðinni tíð. íslendingar eiga að vinna að því meðal þeirra þjóða er búa við Norður-Atlantshaf að þær geri með sér bandalag er hafi samvinnu um þær auðlindir er þar eru að finna. Það eru auðlindir hafsins og aðrar auðlindir er finnast og eru þekktar, efldar verði rann- sóknir á lífríki hafsins og nýtingu þess, viðskipta- og tæknileg sam- vinna verði aukin á öllum sviðum. I samgöngumálum verði víðtæk samvinna og ekki síst um flug yfir Norður-Atlantshaf. Þau lönd sem við er átt í fyrstu lotu eru Island, Bandaríkin, Kanada, Grænland og Færeyjar. Dr. Vilhjálmur Stefáns- son landkönnuður er var heims- frægur vegna rannsókna á heim- skautasvæðum Norðursins taldi að þjóðir sem í norðrinu byggju ættu að hafa með sér ríkjasamband. „Þær þjóðir sem í norðrinu búa eiga að standa saman og kunna að lifa og búa í norðrinu." Þetta voru einkunnarorð hans. Þessar hug- myndir breyta ekki þátttöku þess- ara þjóða í Atlantshafsbandalaginu. Einar Örn Björnsson „Bæöi þau mál sem risið hafa og varða sam- skipti við Bandaríkin vegna varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sýna að varnarsamn- ingurinn er meingallað- ur. Sökin liggur hjá ís- lenskum ráðamönnum sem stóðu að gerð hans.“ Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins skrifar ára- mótagrein. Meðal annars er einn þáttur hennar er ber yfirskriftina. „íslensk sérþekking í varnarmál- um“. Er það dýrðaróður um mikinn framgang þeirra utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins er farið hafa með þann þátt er varðar varnar- samstarf bæði hér á landi og innan Atlantshafsbandalagsins. Sérstaklega dásamar hann fram- göngu Geirs Hallgrímssonar fýrrum utanríkisráðherra. Hann tók við utanríkisráðuneytinu af Ólafi Jó- hannessyni sem vann ötullega að utanríkismálum og opnaði þjóðinni sýn inn í þau mál meir en nokkur utanríkisráðherra hafði áður gert. Ólafur Jóhannesson undirbjó byggingu flugstöðvarinnar á Kefla- víkurflugvelli og olíustöðvarinnar í Helguvík en náði ekki að stinga fýrstu skóflustunguna að flugstöðv- arhúsinu vegna þeirra ákvæða í stjómarsamningi ríkisstjómar dr. Gunnars Thoroddsen að ákvörðun mætti ekki taka í því máli nema samkomulag allra lægi fyrir. Þetta var krafa Alþýðubandalagsins eins furðuleg og hún var. Geir Hallgrímsson tók síðan fyrstu skóflustunguna að flugstöð- inni, en sá böggull fylgdi skammrifi að Islendingar skyldu greiða dijúga fjárhæð af kostnaði við flugstöðvar- bygginguna sem hefði átt að koma í hlut Bandaríkjanna. Var það skoð- un Steingríms Hermannssonar áður en hann varð forsætisráðherra. Nefnd ráðstöfun er ein sönnun um þá lágkúru sem þar er á ferðinni. Þegar formaður Sjálfstæðis- flokksins tók við fjármálaráðuneyt- inu setti hann nýjan flugvallarskatt á ferðamenn sem ætlað er að verði um 100 milljónir á ári, sem mælist illa fyrir. Nefnd upphæð á að fara til að greiða hluta af byggingarkostnaði flugstöðvarinnar er koma á í hlut íslendinga, en ekki til að byggja upp flugvellina úti á landi. Vitanlega eiga Bandaríkin að greiða allan byggingarkostnaðinn, varnarliðið fær gömlu flugstöðina og sjálfsagt eitthvert innskot í þeirri nýju ef svo vill verkast. A aðalfundi Eimskipafélags ís- lands 1984 var því lýst að íslensku skipafélögin hefðu misst flutninga er þau höfðu á varningi til varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli, banda- rískt skipafélag hefði tekið við flutningunum og vitnað í lög frá 1904 um flutninga til heija Banda- ríkjanna í öðrum löndum. Vamarlið er í samvinnu við ís- lendinga um eftirlit á friðartímum og ekki sjáanlegt að bandarísk lög frá 1904 geti náð yfir flutninga á nefndum vamingi til vamarliðsins, sem er hér með samningum er gerðirvora 1951. Fyrrverandi utanríkisráðherra, Geir Hallgrímsson, tók að sér að leysa þann ágreining er upp kom, en engin lausn er í sjónmáli. Þetta er sennilega sú „sérþekking í vam- armálum" sem formaður Sjálfstæð- isflokksins gumar af í áramótagrein sinni. Svör íslendinga við þessu ger- ræði hins ameríska skipafélags og annarra sem að því stóðu áttu að vera að varnarsamningnum yrði sagt upp og nýr gerður er útilokaði slík vinnubrögð. Þá var ekki frammistaðan slakleg þegar Þor- steinn Pálsson tók við fjármálaráðu- neytinu af Albert Guðmundssyni, er sýndi fram á að ekki væri allt með felldu um innflutning á hráu kjöti til vamarliðsins, tollamála og fleira. Hann afturkallaði allt sem forveri hans hafði ákveðið og beið eftir áliti þriggja lögfræðinga sem beðnir vora um álit á málinu. Álits- gerðin kom og er hún hreinn kattar- þvottur og furðuleg, að nokkrir ís- lenskir menn og löglærðir að auki skuli senda frá sér slíka moðsuðu eins og álitsgerð þessi er. Bæði þau mál sem risið hafa og varða samskipti við Bandaríkin vegna varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli sýna að vamarsamningur- inn er meingallaður. Sökin liggur hjá íslenskum ráðamönnum sem stóðu að gerð hans. Engin pijónakona byijar á tot- unni á sokknum og endar á fitinni, en þeir sem klúðrað hafa sam- skiptamálum við Bandaríkin fara þannig að. Það hljóta að vera mikil vonbrigði Sjálfstæðiskjósendum og mörgum öðram að hinn ungi for- maður Sjálfstæðisflokksins ætli að feta þá leið í samskiptamálunum er hann lýsir í áramótagrein sinni. Er „Moska" falin inn í Sjálfstæðis- flokknum þar sem menn tilbiðja einhveija sjálfumglaða kreddutrú en snúa síðan glansmyndinni að þjóðinni. Hætt er við að hún verði brothætt í hendi hins nýja formanns Sjálfstæðisflokksins. Höfundur er búsettur að Mýnesi á Héraði. Ráðgjafar IKO um löggæslu: Meiri áhersla lögð á fyrirbyggj andi störf TILLÖGUR ráðgjafafyrirtækisins „IKO-gruppen“ um breytingar á skipulagi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu miða að því að lögregl- an leggi mun meiri áherslu á fyrirbyggjandi störf, með því að þau verði bæði skipulögð og stjórnað af meiri festu, en gert er i dag, að því er segjr i fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu hefur borist frádómsmálaráðuneytinu. _ „Að undanfömu hefur verið fjall- að nokkuð í blöðum um tillögur ráðgjafafyrirtækisins IKO-grappen um breytingar á skipulagi lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Umfjöllunin hefur því miður ekki gefið rétta mynd af tillögunum. Dregin er upp sú mynd að hug- myndir séu uppi um að skerða þjón- ustu og öryggi íbúa í Kópavogi og Hafnarfirði, með því að loka lög- reglustöðvum þar á nóttunni og draga úr mann- og staðarþekkingu lögreglumanna á stöðunum. Talað er um að miðstýra eigi allri lög- gæslu á höfuðborgarsvæðinu frá Reykjavík. Tillögur IKO-grappen miða þvert á móti við að lögreglan leggi mun meiri áherslu á fyrirbyggjandi störf, með því að þau verði bæði skipulögð og stjórnað af meiri festu, en gert er í dag. í því skyni er lagt til að starfsemin á hinum einstöku lög- reglustöðvum verði efld m.a. með því að fela þeim rannsóknir þjófnað- arinála og að yfírmaður stöðvarinn- ar beri ábyrgð á allri löggæslu í sínum bæjarhluta. IKO-grappen leggur veralega áherslu.á að lög- reglumenn auki staðarþekkingu sína og að yfirmaður hverrar stöðv- ar leggi sig fram við að auka og bæta samskipti lögreglumanna við íbúa, fyrirtæki og stofnanir ríkis og sveitarfélaga. IKO-grappen leggur til, að sá tími sem lögreglan notar ekki í út- köll verði nýttur mun betur en gert er í dag til forvamastarfs. Lagt er til að lögreglumenn verði Iosaðir undan aðgerðarlausum innisetum milli útkalla og þeim falin áhuga- verð verkefni við eftirlit og forvam- ir. Athugun sem gerð var í nokkrar vikur sl. haust á fjölda útkalla, hringinga og heimsókna á hinar ýmsu lögreglustöðvar leiddi m.a. í ljós að á tímabilinu frá kl. 12 á miðnætti til kl. 8 að morgni komu til jafnaðar 2,6 menn í heimsókn á lögreglustöðina í Hafnarfirði, 2,8 á lögreglustöðina í Árbæ og 4,3 á lögreglustöðina í Kópavogi. Ráð- gjöfum IKO er ljóst að þessar meðaltölur segja ekki alla söguna. Heimsóknir á lögreglustöðvar era t d meiri um helcar en virka daira og einnig breytilegar eftir árstíðum, veðurfari og fleira. Tillaga IKO er sú að öllum lögreglustöðvum öðram en aðalstöð í Reykjavík verði lokað fyrir heimsóknum yfir blá nóttina en að þær verði opnar um helgar og þegar sérstök þörf er talin á slíku. Þannig eiga t.d. lögreglu- menn í Kópavogi ekki að vera bundnir inni á stöðvum um nætur, við að bíða eftir útkalli eða taka á móti gest.um, heldur sinna öðram kröfum m.a. með því að halda uppi öflugu eftirliti í Kópavogi. Ráðgjafar IKO telja að það þurfi að samhæfa og auka samstarf lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, sem í dag er alltof lítið. Þeir telja heppilegt að hafa eina yfírstjóm yfír allri lögreglu á svæðinu enda verði þá auðveldara að skipuleggja löggæslu á svæðinu, sem eina heild og haga eftir þörfum hveiju sinni. Samstarf lögreglu ætti þá að aukast til muna og leiða til aukinnar hag- ræðingar og hagsbóta fyrir lögreglu og almenning. Ráðgjafamir leggja meðal annars til að lögreglan á öllu svæðinu tengist gegnum sameigin- legar ijarskiptarásir þannig að öll útköll fari um eina fjarskiptamið- stöð. Fjarskiptamiðstöðin geti þá stjómað öllum eftirlitsbílum lög- reglunnar þannig að viðbragðstími vegna útkalla verði sem skemmst- ur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.