Morgunblaðið - 04.03.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986
t
BJÖRNLAUG MARTA ALBERTSDÓTTiR
lést 24. febrúar í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju fimmtudaginn 6. mars
kl. 14.00. Jarðsett verður að Melstaö.
Gunnar Sölvi Sigurðsson, Maggý Sigurðardóttir,
Björg Stefanía Sigurðardóttir, Stefán Þórhallsson,
Helena Svanlaug Sigurðard., Ragnar Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir og dóttir,
MARGRÉT STEINARSDÓTTIR,
andaðist í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 1. mars sl.
Minningarathöfn verður í Langholtskirkju fimmtudaginn 6. mars
kl. 13.30. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju laugardaginn 8.
mars kl. 16.00.
BaldurS. Pálsson,
börn og foreldrar hinnar látnu.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VALGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
frá Lundi, Akranesi,
sfðast til heimilis á Dvalarheimilinu Höfða,
lést í Sjúkrahúsi Akraness 1. mars sl.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Bróðirokkar,
AÐALSTEINN SKÚLASON,
Hornstöðum,
andaðist á Vífilsstöðum 3. mars.
María Skúladóttir,
Sigrfður Skúladóttir.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁSTVALDUR BJARNASON,
fv. skipstjóri,
Suðurgötu 30,
Akranesi,
lést í Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 1. mars sl.
Halldóra Jóhannesdóttir,
Sólveig Ástvaldsdóttir, Heiðar Viggósson,
Jóhannes Ástvaldsson, Ásta G. Thorarensen,
Ásta Ástvaldsdóttir, Gunnar Guðmannsson,
Dóra Ástvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
HARALDUR PÁLMASON,
Grenimel 40,
Reykjavfk,
lést á Grensásdeild Borgarspítalans 15. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jórunn Guðmundsdóttir,
Gunnar Þór Haraldsson,
Vilhjálmur Pálmason,
Guðmundur Pálmason,
Jakobfna Pálmadóttir,
Anna Pálmadóttir Wilkes,
Helga Pálmadóttir,
Hafdís Ólafsdóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Sólrún Engilbertsdóttir,
Guðmundur M. Jónsson,
Bonner T. Wilkes,
Sævar Helgason,
Atli Hauksson
og aðrir aðstandendur.
t
Maðurinn minn,
TÓMAS GÍSLASON
frá Melhóli í Meðallandi,
Reykjamörk 12,
Hveragerði,
lést laugardaginn 1. mars.
Jytta Eiberg og börnin.
t
FANNEY BJÖRNSDÓTTIR,
Réttarholtsvegi 1,
sem lést 27. febrúar, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtu-
daginn 6. mars kl. 10.30.
Sigurður Valgarðsson,
Óskar Valgarðsson, Kolbrún Karlsdóttir,
Anna Valgarðsdóttir, Theódór Ingólfsson,
Valgarður Valgarðsson, Þórunn Siemsen,
Fanney Valgarðsdóttir, Ólafur Óskarsson,
börn og barnabörn.
GuðlaugB. Páls-
dóttir—Kveðjuorð
Fædd 2. febrúar 1955
Dáin 9. febrúar 1986
„Sossa mín, hæ! — Komdu út og
sjáðu norðurljósin!“
„Ha, norðurljósin?"
„Já, komdu út og sjáðu, þau
mynda stóra stjömu á miðjum
himni.“
Það var Gulla sem bankaði upp
á hjá mér seint á fimmtudagskvöld-
ið fyrir rúmri viku, en mínum vinnu-
degi í skólanum var þá nýlokið, og
hennar vinnudegi var að ljúka; hún
var á þorrablóti með gamla fólkinu
á sjúkraskýlinu. Eg fór út og leit
til himins.
„Sjáðu," sagði hún, „hvað fjöllin
lýsast upp.“ Hún benti heiiluð á
fegurð sem ég hafði gleymt að veita
athygli á heimleiðinni stuttu áður.
Við fórum inn aftur og fengum
okkur heitt sítrónuvatn og ræddum
um atburði dagsins.
„Oh, Sossa, það er svo gaman
að vera með gamla fólkinu, það er
alltaf svo þakklátt.“
Síðan fórum við að tala um fram-
tíðarplön og hún sagðist vera
ákveðin í að vera áfram í Bolungar-
vík, a.m.k. eitt ár til viðbótar.
Gulla vann brautryðjendastarf
þann stutta tíma sem hún var búin
að vera í Bolungarvík. Starf hennar
sem sjúkraþjálfari var henni hug-
sjón enda var árangurinn eftir því.
Eg held að hún hafi ekki áttað sig
á hve þáttur hennar í bæjarlífínu
var orðinn stór. Allir þekktu hana.
Fólkið í frystihúsinu, krakkamir í
skólanum, gamla fólkið á sjúkra-
skýlinu ... og auðvitað þekktu allir
gleði hennar og hlýju. Þess vegna
var áfallið stórt. Af hveiju sviku
þá bolvísku fjöllin hana Gullu?!
Fjöllin sem hún elskaði. Nei, það
voru sennilegast engin svik. Elsku
Gullu hefur verið mikil þörf annars
staðar úr því kallið kom svona fljótt.
Ég ætla að trúa því. Samfylgdin
með henni þennan stutta tíma var
mér afar dýrmæt. Megi Guð gefa
það að við hittumst einhvem tíma
fyrir hinum megin þar sem við
getum haldið áfram að syngja og
hlusta á Verdi og Mozart.
Megi norðurljósastjaman lýsa
Gullu á nýjum stað. Hún hefur verið
henni ætluð.
Sossa
Það setti alla hljóða í íshúsfélagi
Bolungarvíkur mánudaginn 10.
febrúar, þegar það fréttist að hún
Gulla eins og hún var kölluð, væri
dáin, að hún hefði látist af slys-
förum daginn áður. Hún sem alltaf
var svo lifandi, full af krafti og
áhuga.
Gulla kom til starfa hingað til
Bolungarvíkur í sumar sem sjúkra-
þjálfari hjá bænum og hjá Ishús-
félagi Bolungarvíkur í haust. Vann
hún verk sitt með svo miklum áhuga
að það var ekki hægt annað en
hrífast með. Hún var búin að vera
með flest starfsfólk íshúsfélagsins
í þjálfunartímum og leikfimi og átti
Minning:
Þar eð ég hefi ekki tækifæri til
að fylgja starfsfélaga mínum, Snjó-
laugu Sveinsdóttur, síðasta spölinn
langar mig til að setja á blað nokkr-
ar hugrenningar, sem leitað hafa á
hugann síðan ég frétti að hún væri
látin.
Arið 1963 falaðist hún eftir vinnu
á stofu minni og unnum við saman
í 5 ár mér til mikillar ánægju og
þroska, án þess að okkur yrði
nokkum tíma sundurorða eða til
ágreinings kæmi.
orðið hugi og hjörtu fólksins sem
þar vinnur. Vill því starfsfólk íshús-
félags Bolungarvíkur þakka henni
góð kynni og megi hún eiga góða
heimkomu.
Einnig viljum við votta foreldrum
hennar, Ollý systur hennar og öðr-
um aðstandendum, okkar dýpstu
samúð.
Farþúífriði.
Starfsfólk íshúsfélags
Bolungarvíkur
Áður en hún hóf störf á stofu
minni, að loknu framhaldsnámi,
lagði hún mikla áherslu á að fá að
fylgjast með störfum starfsbræðra
sinna, sem öðlast höfðu meiri
starfsreynslu. Þegar hún síðan tók
að strarfa á stofunni var áberandi
hve sjálfsgagnrýnin hún var.
Hún var með ákveðna skapgerð
og hafði mikið faglegt stolt, enda
laðaðist fljótt að henni stór hópur
vandaðra skjólstæðinga sem treystu
henni og ekki að ástæðulausu.
Enda kom það skýrt í ljós þegar
hún opnaði eigin stofu í Domus
Medica á sama stað og eiginmaður
hennar, Kjartan Magnússon læknir.
Allir sem höfðu tök á því fylgdu
henni þangað.
Mest dáðist ég að því hversu
góðum árangri hún náði í vinnu
sinni við böm og unglinga, enda
hafði hún stundað framhaldsnám í
þeirri grein. Kom þá festa hennar
og virðuleiki að góðum notum.
Hún var ákveðin í skoðunum, en
þó viðkvæm, sérstaklega teldi hún
sig fá óréttláta gagnrýni.
Hún stefndi á tindana og náði
þeim mörgum. Hún var fríð kona,
sérstæð persóna sem hæfði tindun-
um.
Þótt samskipti yrðu minni eftir
að hún flutti stofu sína hefur
myndast ótrúlega mikið tóm við
brottför hennar. Tóm sem fyllt er
af góðum minningum.
Eg þakka fyrir góð kynni og
samskipti sem aldrei féll skuggi á.
Kjartani og öðrum ættingjum
Snjólaugar sendi ég og kona mín
hlýjar kveðjur.
Megi hún hvíla í friði.
Magnús R. Gíslason
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
SESSEUA JÓHANNESDÓTTIR,
veröur jarðsungin frá Frikirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 5.
mars ki. 15.00.
Jóhannes Eiríksson,
Bergljót Guðjónsdóttir og dætur.
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS B. MAGNÚSSON,
skósmíðameistari frá Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 5. mars
kl. 15.00.
Sigríður G. Hólmfreðsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, James Kaneen,
Sigríður Hreiðarsdóttir, Panos Komatas,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför
REYNIS MARKÚSSONAR STRAND,
Stigahlíð 22,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 5. mars kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarfélög.
Þórdis Strand,
Einar Strand, Erla Strand.
t
SNJÓLAUG SVEINSDÓTTIR,
Mávanesi 25,
var jarðsungin í kyrrþey þann 28. febrúar.
Kjartan Magnússon,
Sveinn Kjartansson,
Júlíana Elín Kjartansdóttir,
Jóhann Kjartansson.
Snjólaug Sveins-
dóttir tannlæknir