Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 04.03.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986 45 Akranes: Athyglisverðar niðurstöður úr könnun á högum unglinga Akranesi í febrúar. H B ri f,\ p. ^ \ l ít * fl rf I Æskulýðsmidstöðin Arnardalur á Akranesi. Morgunbiaðið/J6n Gunnlaugsson ÆSKULÝÐSNEFND Akranes- kaupstaðar gekkst fyrir könnun á högum unglinga sem eru í 7., 8. og 9. bekk grunnskólanna á Akranesi. Niðurstöður þessarar könnunar liggja nú fyrir og voru þær kynntar á almennum fundi með unglingunum sem haldinn var að tilstuðlan Bæjarstjórnar Akraness. Fundurinn var fjöl- sóttur og ræddu unglingarnir sín mái við bæjarfulltrúana en síðan sat bæjarráð fyrir svörum og voru unglingarnir ófeimnir við að spyrja þá um hin margvíslegu mál. Eins og vænta mátti voru niður- stöður könnunarinnar nokkuð ræddar og til að forvitnast nánar um þær var Elís Þór Sigurðsson æskulýðsfulltrúi á Akranesi spurður hvað í könnuninni hefði komið honum mest á óvart. — Mér finnst kannski mest koma á óvart hve miklum tíma ungling- amir eyða í félagsstörf og nám og hversu lítinn tíma þeir hafa til fijálsra nota. Heldurðu að þessu sé öðruvísi farið á Akranesi en í öðrum sveitar- félögum? — Já, ég tel ekki nokkum vafa leika á því að svo er, enda er ungl- ingum sköpuð mjög góð aðstaða til íþrótta, leikja og náms og sú að- staða batnar með hveiju árinu sem líður. En ekki sinna þó allir unglingarn- ir skipulögðu félagsstarfi? — Nei, því miður þá gera það ekki allir. Annaðhvort finna þeir sig ekki í því sem þeim er boðið uppá eða þeir hafa ekki tíma eða áhuga. Þess vegna spurðum við þá hverju þeir vildu breyta ef þeir mættu ráða æskulýðsmálum á Akranesi. Svörin vom frekar fátækleg og ekkert nýtt kom fram sem ekki er fyrir í bæn- um, en þó komu fram ýmsar hug- myndir um breytingar á því sem fyrir er, hugmyndir eins og það að stækka félagsmiðstöðina í Arnar- dal, kaupa tölvur eða tölvuspil í félagsmiðstöðina, opna dansstað fyrir unglinga 16 ára og eldri á Akranesi og hafa þar dansleiki lengur en til kl. eitt. Attu von á að þessar hugmyndir þeirra verði að veruleika? — Því er hægt að svara bæði játandi og neitandi. Skólarnir eru að byggja upp félagsaðstöðu og það er nokkuð öruggt að æskulýðsnefnd mun leita eftir samstarfi við þá um nýtingu á þeirra húsnæði. Aðarar niðurstöður, svo sem viðhorf unglinga til tóbaks, fíkni- efna og áfengis. Hvað viltu segja um það? — Ef við bytjun á tóbakinu þá virðast reykingar byija hjá ungling- um í 9. bekk því þar segjast 30% unglinga reykja en aðeins 12-14% í 7. og 8. bekk. Spurningin er sú hvað veldur þessari stökkbreytingu í 9. bekk og þá er til að svara að nemendur í 9. bekk eru í sama skólahúsnæði og fjölbrautaskóla- nemar sem eru allir mun eldri og það kann að vera orsökin. Ef við snúum okkur að áfenginu þá eru 64% unglinga sem aldrei segjast hafa bragðað áfengi. Tel ég það vera góða niðurstöðu en engu að síður eru um 100 unglingar af 272 sem segjast hafa neytt áfengis og eru þeir nær eingöngu úr 8. og 9. bekk. Eins kemur okkur það spánskt fyrir sjónir hvaða tegundir áfengis unglingarnir drekka. Vin- sælast hjá þeim virðist vera vodka og brennivín en síðan kemur bjór- inn, þá vaknaði hjá okkur sú spurn- ing hvar þeir kæmust í hann. Varð- andi fíkniefnin er það að segja að 2% segjast hafa neytt hass eða maríúana og 9% segjast hafa „sniff- að“. Varðandi neyslu á hassi og maríúana segjast tveir einstakling- ar nota það tvisvar eða oftar í mánuði og er það von okkar sem að köjinuninni stóðu að hér sé um skekkju að ræða og ef svo er ekki er um mjög alvarlega hluti að ræða. Að lokum Elís, er eitthvað sér- stakt úr þessari könnun sem þú vildir minnast á? — Mérfínnstkönnuninsegjaþað -v varðandi fíkniefnin að stórauka þarf fræðslu og áróður um þessi mál og máli mínu til stuðnings er hægt að upplýsa að 9% þátttakenda segjast muni þiggja hass eða maríú- ana ef þeim væri boðið það. Þannig, hér er ærið verkefni fyrir ríki, sveit- arfélög, skóla og aðra þá aðila sem láta sér þessi mál varða, sagði Elías Þór Sigurðsson að lokum. J.G. Tónlistarsjóður Ármanns Reynissonar: Þriðja úthlutun í júní næstkomandi ÚTHLUTAÐ verður úr Tónlist- arsjóði Armanns Reynissonar í þriðja sinn í byijun júni næst- komandi. Úthlutunarfé sjóðsins nemur 150 þúsund krónum og er óskað eftir umsóknum aðila, sem hafa tónlist að aðalstarfi og hafa hug á að semja eða flytja tónverk, innanlands eða utan. Stjóm Tónlistarsjóðsins skipa frú Rut Magnússon, Sveinn Einarsson fyrrv. Þjóðleikhússtjóri, Benedikt Gunnarsson listmálari, Þorsteinn Gauti píanóleikari og Ármann Reynisson forstjóri. Þeir sem hyggjast sækja um út- hlutun úr sjóðnum eru beðnir að senda umsóknir, þar sem gerð er grein fyrir fyrirhuguðum verkefn- um, fyrir 1. maí nk., til Tónlistar- sjóðs Ármanns Reynissonar, Laugavegi 97, Reykjavík. RE YKJA VÍK1786-1986 Á 200. afmælisári Reykjavíkur verður nýtt útibú Borgarbókasafns Reykjavíkur opnað í Gerðubergi 3—5 þriðjudaginn 4. mars. Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, opnar það með viðhöfn kl. 16:30. Borgarbókasafn íGerðubergi hefur almenna starfsemi sína kl. 19 í dag, þriðjudaginn 4. mars. í safninu er útlánsdeild fyrir börn og full- orðna, upplýsingaþjónusta, tímaritadeild og tónlistardeild með góðri aðstöðu til að hlýða á hljómplötur úr tón- listardeild safnsins. Safnið verður opið mánudaga—föstudaga kl. 9—21 og laugardaga kl. 13—16. Einnig verður opið þar næstu þrjá sunnudaga í mars kl. 13—17. Um opnunartíma í sumar verður nánar ákveðið síðar. Boðið er til sérstakrar kynningardagskrár fyrstu starfsdaga bókasafnsins og er hún öllum opin og aðgangseyr- ir enginn. Dagskráin er sem hér fer á eftir: Þriðjudagur4. mars Kl. 21: Tónlistardagskrá (í samvinnu við Menningarmiðstöðina, Gerðubergi, sem á þriggja ára starfsafmæli þennan dag). Atli Heimir Sveinsson: „Guðsbarnaljóð" tónlist við samnefnt Ijóð Jóhannesar úr Kötlum um GuðmundThorsteinsson, Mugg. Flytjendur: Bernharður Wilkinson, flauta, Einar Jóhannesson, klarinett, Hafsteinn Guðmundsson, fagott, Monika Abendroth, harpa, Szymon Kuran, fiðla, Carmel Russill, selló, Friðrik Guðni Þórleifsson, Vilborg Dagbjartsdóttir. Kristinn Sigmundsson einsöngur undirleik- urJónas Ingimundarsson. Miðvikudagur 5. mars: Kl. 14: Litla brúðuleikhúsið flytur Rauðhettu. Kl. 20: Tónlistardeild safnsins kynnt í umsjá Friðriks Guðna Þórleifssonar. Sunnudagur9. mars Kl. 14: Skotturnar úr Breiðholtsskóla koma í heimsókn, kíkja í bækur safnsins og kynna sig. Höfundur Brynja Benediktsdóttir. Skottur: Fína skotta Saga Jónsdóttir Litla Skotta Guðrún Alfreðsdóttir Stóra Skotta Guðrún Þórðardóttir Kl. 16: Endurtekin tónlistardagskrá frá þriðjudeginum 4. mars. Lýkur þar með kynningardagskrá bókasafnsins. Breidhyltingar og aðrir borgarbúar! Borgarstjórn Reykjavíkur býður yður velkomna í Borgarbókasafn í Gerðubergi! Geymið auglýsinguna. 4t.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.