Morgunblaðið - 04.03.1986, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. MARZ1986
MUPRO
Allar stœrðlr af
röraklemmum. Auðveldar í
notkun. Hagstœtt verð.
HEILDSALA —
SMÁSALA
!r VATNSVIRKINN/if
2 APMUU 21 - PÖSTHOlF 8620 - 128 RtYHJAVlK
SÍMAR VERSUJN 686455. SKRtfSTOTA 685966
Farymann
Smádíselvélar
5.4 hö við 3000 SN.
8.5 hö við 3000 SN.
Dísel-rafstöðvar
3.5 KVA
'i^L'
SöyirOgKuigiiuKr
>J^)irЮ©®ira &
Vesturgötu 16,
sími 14680.
INNVEGGJA-
EINANGRUN
fyrir pípulagnir.
Stœrðir 3/8", 1/2", 3/4", 1" og
1V4" fyrirliggjandi.
HEILDSALA —
SMÁSALA
MUPRO
MERKINGAR Á
VATNSLAGNIR
HEILDSALA — SMÁSALA
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
VATNSVIRKINNhf
ARMÚU 21 - PÖSTHOU 8620 - 128 RCYKJAVlK
SlMAR VERSLUN 686455. SKRVSTOf A 685966
mrentroD
vatnssíur fyrir kait vatn.
Eigum OVENTRAP vatnssfur fyrir
kaldavatnskerfi.
Stœrðir 1". V/a". 1W og 2".
Þrfr grófleikar af síum.
Sfumar mó hreinsa og nota
aftur og aftur.
&
VATNSVIRKINNhf
ARMÚU 21 - PÖSTHÓLf 8620 - 128 REYKJAVlk
SlMAR VERSLUN 686455. SKRESTOf A 685966
Gódan daginn!
„Mikil gróska í bæj arfélaginu
og menn eru bjartsýnir“
segir Aki Gránz forseti bæj ar stj órnar
Njarðvíkur í lok 16 ára bæj arstj órnarsetu
ÁKI GRANZ forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur dregnr sig í hlé úr
fremstu víglínu i pólitíkinni við bæjarstjórnarkosningarnar í vor,
en hann hefur setið í bæjarstjóm í 16 ár. Áki var hvatamaður
að stofnun Sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings fyrir 22 áram og
hefur verið í stjóra þess frá upphafi. Hann er nú formaður
Sambands sveitarfélaga á Suðuraesjum.
Um áratuga skeið hefur Áki
unnið að störfum fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn, en hann hóf þau störf
þegar hann gekk í Félag ungra
sjálfstæðismanna í Vestmanna-
eyjum árið 1946. Áki sagði í
samtali við Morgunblaðið í tilefni
af ákvörðun hans að draga sig í
hlé, að í Njarðvíkum byggi gott
fólk sem hefði í gegn um árin
treyst Sjálfstæðisflokknum og
fulltrúum hans í málefnum bæjar-
ins, enda bæru framfarir og af-
koma í byggðarlaginu þess glögg-
lega merki.
Áki sagðist vilja leggja áherslu
á það að það væri mikill styrkur
hverju byggðarlagi að eiga full-
trúa úr sterkum stjórnmálaflokki
og að það hefði komið berlega í
ljós þegar Sjálfstæðisflokkurinn
tók við utanríkismálum hvaða
þýðingu það hefði haft fyrir
Njarðvíkinga. „í liðlega 20 ár,“
sagði Áki, „hafði verið reynt að
fá leiðréttingu landamerkja og
færslu girðinga sem tilheyrðu
varnarsvæði hersins, en sú skipan
sem var stóð í vegi fyrir skipulagi
og eðlilegum vexti bæjarins.
Þegar Geir Hallgrímsson tók við
utanríkismálunum þá voru sam-
skiptamál okkar og Vamarliðsins
tekin föstum tökum og leyst
ásamt því að koma á góðu sam-
starfi þessara aðila."
Þá sagði Áki að það væri mikil
gróska í bæjarfélaginu, margt að
gerast og annað á döfinni sem
tilheyrði framtíðinni.
„Menn eru bjartsýnir," sagði
Áki, „en það þarf alltaf að fara
með aðgát í hveiju máli og skoða
það nákvæmlega áður en hafist
er handa, sérstaklega með tilliti
til þess að fjallað er um fjármagn
almennings. Miðað við aðstæður
og önnur sveitarfélög stendur
Njarðvíkurbær sig vel, búið er að
tryggja landrými til framtíðar og
yfir 90% af öllum götum bæjarins
eru komnar með bundið slitlag.
Margskonar nýbyggingar eru í
gangi og reynt er að hlú að
gömlum og nýjum fyrirtækjum.
Jafnframt er vel séð fyrir æskunni
ogþeim öldnu.“
Áki sagði að samstarfsvett-
vangur sveitarfélaganna á Suður-
nesjum hefði stuðlað að upp-
byggingu fjölmargra verkefna
sem þau ynnu saman, svo sem
sjúkra- og heilsugæslu, dvalar-
heimili aldraðra, fjölbrautaskóla,
sorpeyðingarstöð, brunavarnir og
fleira. Þá stóðu sveitarfélögin að
stofnun Orkuveitu, sjóefnavinnslu
oggróðurvemd á Reykjanesi. Um
þessar mundir er unnið að smíði
reglugerðar um Vatnsveitu Suð-
umesja og kvað Áki mikinn áhuga
fyrir því að koma vatnsbúskaps-
málunum undir eina stjóm m.a.
vegna þess að mikil ásókn er í
vatnið hjá fiskiræktarmönnum
sem telja Reykjanesið einn ákjós-
anlegasta stað landsins til fiski-
ræktar.
Ný safn-
plata með
lögumí
toppsætum
TOPPSÆTIN heitir safnplata
sem Skífan hefur gefið út og
inniheldur hún 14 lög, þar af
þrjú islensk, . flutt af Bubba
Morthens, Stuðmönnum og
Magnúsi Þór Sigmundssyni.
Nafn safnplötunnar er táknrænt
því að topplögin tvö á vinsældalista
Rásar 2, „How Will I Know“ með
Whitney Houston og „System
Addict" með Five Star, em á þess-
ari plötu. Þessi sömu lög em einnig
efst á Þróttheimalistanum og safn-
platan sjálf trónir efst á toppi vin-
sældalista DV.
Þar að auki hefur safnplatan
Toppsætin að geyma þijú topplög
á bandaríska vinsældalistanum, þ.e.
„Kyrie" með Mr. Mister, „How
Will I Know" með Whitney Houston
og „Sara“ með Starship. Einnig
náði lagið „That’s What Friends
Are For“ með Dionne & Friends
toppi bandaríska vinsældalistans
fyrir nokkmm vikum.
(Fróttatilkynning.)
Vogfum, 26. febrúar.
FÖSTUDAGINN 21. febrúar sl.
færði Lionsklúbburinn Keiiir í
Vogum Stóru-Vogaskóla ritvél
að gjöf til nota á kennarastofu
skólans.
Mörg undanfarin ár hefur Lions-
klúbburinn gefið tæki til skólans,
en nú var ákveðið að gefa ritvél,
þar sem þessháttar tæki bráðvant-
aði á kennarastofuna. Ritvélin er
með textaminni. Hægt er að tengja
ritvélina við tölvu og nota sem
prentara við hana.
Stjóm Lionsklúbbsins Keilis af-
henti Helgu Sigríði Ámadóttur
skólastjóra tækið með ósk um að
það komi kennurum skólans vel á
komandi ámm.
Meðfylgjandi mynd var tekin við
afhendinguna, en á myndinni em:
Kristófer Guðmundsson, Helga
Sigríður Ámadóttir skólastjóri,
Helgi Valdimarsson formaður Keilis
og Ingi E. Friðþjófsson.
E.G.
Vogar
Lionsmenn gefa grunn-
skólanum ritvél
mothercare
BARNAFATAVERSLUN KERRU- 0G VAGNAVERSLUN LEIKFANGAVERSLUN RÚMFATAVERSLUN BARNAÖRYGGISBÚNAÐARVERSLUN
TÆKIFÆRISFATNAÐARVERSLUN MOTHERCARE ERÁ LAUGAVEGI 13 SÍMI 26560 ---------------