Morgunblaðið - 04.03.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986
55
Veðsetning ungs fólks hjá
erlendum bankastjórum
— kynningar- og fræðsluvika Heimdallar
„VEÐSETNING framtíðar ungs fólks hjá erlendum
bankastjórum“ er yfirskrift kynningar- og fræðsluviku
sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, gengst nú fyrir.
í blaði sem gefið hefur verið út í þessu tilefni segir
m.a.: „Hlutfall erlendra skulda af landsframleiðslu er
nú komið upp í 54,9% en var 27,2% á árinu 1981. Ef við
setjum þessar prósentubreytingar upp á áþreifanlegra
dæmi þýðir þessi aukning síðustu ár að hver sá sem
kemur nýr inn á vinnumarkaðinn þarf að taka á sig rúma
milljón. Fæst ungt fólk sem reynir nú að koma sér þaki
yfir höfuðið mundi fúlsa við slíkri upphæð.“
í samtali við Morgunblaðið
sagði Þór Sigfússon formaður
Heimdallar að með þessari kynn-
ingarviku væri ætlunin að vekja
fólk til umhugsunar um þessa
válegu þróun. Ungt fólk á ís-
landi þurfí að horfa upp á að lán
séu tekin erlendis frá til þess
að greiða ýmis „góðverk" stjóm-
málamannanna í núverandi
kunningjaþjóðfélagi, sem síðan
lendi á unga fólkinu að greiða
í framtíðinni. Þannig sé verið
að veðsetja framtíð ungs fólks
hjá erlendum bankastjórum.
„Unga fólkið á íslandi hefur
einfaldlega ekki ráð á að halda
úti því kunningjaþjóðfélagi sem
byggt hefur verið upp. Við vilj-
um reyna að leggja stjómmála-
mönnum lið með tillögum sem
miða að því að koma okkur út
úr þessum vanda,“ sagði Þór og
hann bætti við: „Meðal annars
bendum við í tillögum okkar á
sölu ríkisfyrirtækja og aflagn-
ingu ýmissa stofnana í eigu hins
opinbera. Ennfremur þarf að
koma á skýrari verkaskiptingu
milli ríkis og sveitarfélaga, opna
landið betur fyrir erlendu fjár-
magni og marka framtíðar-
stefnu í byggðamálum svo eitt-
hvað sé nefnt.“
í lok greinargerðarinnar sem
birtist í áðumefndu blaði segir
m.a.: „Ungt fólk hlýtur að kreij-
ast réttar til sjálfstæðis í fram-
tíðinni. Ungt fólk ætlar sér ekki
að fara leiðir þar sem ónefndir
hagfræðingar em tilbeðnir, eða
kennisetningamar teknar fram
yfir manninn sjálfan, heldur leið-
VEÐSETNING FRAMTÍÐAR
UNGS FÓLKS
HJÁ ERLENDUM
BANKASTJÓRUM
ir til þess að losa okkur undan
þessari ímynduðu velferð okkar,
sem er í raun velferð dekurfyrir-
tækja og embættismanna. Við
búum í auðugu landi þar sem
skynsamar ákvarðanir þarf að
taka. í landinu hefur lifað ein
ofdekmð ijölskylda. Við vanda-
málin verður að kljást svo fram-
tíð okkar verði ekki veðsett hjá
erlendum bankastjómm.“
Vegrir frá Raufar-
höfn að Hólsá:
Vilhjálmur
með lægsta
tilboðið
VILHJÁLMUR Konráðsson Ytri-
Brekkum, átti lægsta tilboð í
Norðausturveg frá Raufarhöfn
að Hólsá, en tilboð í verkið voru
opnuð hjá Vegagerð ríkisins síð-
astliðinn mánudag. Kostnaðar-
áætlun var upp á tæpar 7,8 millj-
ónir króna en tilboð Vilhjálms
hljóðaði upp á rúmar 6,5 milljónir
króna.
I útboði kemur fram að lengd
vegarins er 3,5 kílómetrar, fyllingar
em 25.800 rúmmetrar, burðarlag
10.500 rúmmetrar og brú á Deildar-
ár 6 metrar. Öllu verkinu skal að
fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst
1986 og byggingu brúar á Deildará
lokið eigi síðar en 20. júní 1986.
Næstlægsta tilboð í verkið átti
Norðurverk með rúmar 6,9 milljónir
og þriðji lægstur var Halldór G.
Baldursson með rúmar 7,1 milljón
króna.
Mývatnssveit:
Útf ör Gests
Jónassonar
ÚTFÖR Gests Jónassonar, Álfta-
gerði í Mývatnssveit, var gerð
frá Reykjahlíðarkirkju sl. laug-
ardag að viðstöddu mjög miklu
fjölmenni, eða um 300 manns.
Sumir komu um langan veg.
Sóknarpresturinn séra Orn Frið-
riksson flutti útfararræðu og
jarðsöng. Kirkjukórinn söng,
orgelleikari var Jón Arni Sig-
fússon.
Gestur Jónasson fæddist á Kálfa-
strönd hér í sveit 21. febrúar 1919.
Hann var því rétt orðinn 67 ára er
hann andaðist á sjúkrahúsinu á
Húsavík 24. febrúar. Foreldrar hans
vom Jónas Einarsson, Friðrikssonar
frá Reykjahlíð og Kristjana Jóhann-
esdóttir. Þau bjuggu í Álftagerði
allan sinn búskap, eða þar til Gestur
tók við búsforráðum þar ásamt
konu sinni, Kristínu Jónsdóttur frá
Stóra- Völlum í Bárðardal. Þau
eignuðust tvö böm, en auk þess átti
Gestur einn dreng utan hjónabands.
Gestur stundaði samfellt vömbíla-
akstur frá þvf að hann hafði aldur
til og þangað til fyrir rúmum þrem-
ur ámm. Hann gerðist starfsmaður
í Kísiliðjunni hf. Oft þurfti hann á
sínum langa ökuferli að greiða götu
margra. Þess vegna var ætíð gott
til hans að leita. Hér með er öllum
aðstandendum hans sendar innileg-
ar samúðarkveðjur. Kristján
Arnarflug,:
Aukning í far-
þega- og vöru-
flutningum
FLUTNINGAR Amarflugs á
farþegum og vörum milli landa
hafa aukist það sem af er árinu.
Fyrstu tvo mánuði ársins flutti
Amarflug 200,8 tonn af vörum
sem er um 61% aukning miðað
við sömu mánuði í fyrra, en þá
flutti félagið 124,6 tonn. Arnar-
flug flutti 2.982 farþega milli
landa fyrstu tvo mánuði ársins,
en 2.488 á sama tíma í fyrra.
Aukningin milli ára nemur 20%.
í fréttatilkynningu frá Amarflugi
segir jafnframt að í febrúarmánuði
hafi félagið flutt 11,6 tonn af vör-
um. Aukningin nemur um 61% frá
því í sama mánuði í fyrraj en þá
flutti félagið 70,1 tonn. Á sama
tíma vora fluttir 1.637 farþegar
milli landa, sem er 33% meira en í
febrúar í fyrra þegar félagið flutti
1.228 farþega.
STJÓRNUN
VANDVIRKNI
0GGÆÐAMÁLA
Vandvirkni og gæði í framleiðslu- og þjónustustörfum
er sá þáttur, sem viðskiptavinir leggja hvað mesta áherslu
á í dag. Ef ekki er staðið við fyrirheit um gæði vöru og
þjónustu eygirfyrirtækiðekki langalifdaga. Áþetta viðum
iðnfyrirtæki og þjónustufyrirtæki s.s. banka, flutninga- og
verslunarfyrirtæki.
Skipuleg stýring, eftirlit, þjálfun og endurskipulagning er
nauðsynleg til að ná settu markmiði hvað snertir
vandvirkni og gæði, en fyrst og fremst verður að kunna að
stjórna samræmingu þessara þátta.
Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendum grein
fyrir grundvallaratriðum ofangreindra þátta, aðferðum til
að takast á við verkefni og undirbúa átak í vandvirkni og
gæðum fyrirtækja sinna.
Námskeiðið fiallar meðal annars um:
— Afstöðu til gæðamála
— Stöðu fyrirtækis á sviði gæðamála
— Gæðaeftirlit, gæðamælingar og gæðaupplýsingakerfi
— Mismunandi aðferðir s.s. vandvirkniátak, uppbyggingu
gæðakefis og gæðahringa
— Hvernig aukin gæði leiða til aukinnar framleiðni og
lækkunar kostnaðar
— Samskipti innan fyrirtækja og áhrif þeirra á gæðamál
og umbætur
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað stjórnendum og
öllum þeim sem vilja stuðla að betri árangri fyrirtækisins
með auknum gæðum þjónustu/framleiðslu.
Leiðbeinandi: GunnarH.
Guðmundsson, rekstrar-
hagfræðingur. Hann er
reyndur ráðgjafi á sviði
stjórnunar- og gæðamála og
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sfmi: 6210 66
Starfsmenn opinberra
fyrirtækja og stofnana
AÆTLANA-
ujjlíl/ og stofnana
Það er einkennandi fyrir
velferðarsamfélag að þáttur
hins opinbera geira er mikill í
almennri efnahagsstarfsemi.
Hérlendis starfar nú um það bil
fjórðungur vinnandi manna hjá
ríki, sveitarfélögum og hálf-
opinberum stofnunum,
samanlögð skattheimta ríkis
og sveitarfélaga var um 40%
af vergri þjóðarframleiðslu árið
1984. Mikilvægt er út frá
sjónarmiði samfélagsins svo
ög hinna einstöku stofnana, að
ráðstöfun á verðmætum sé í
sem mestu samræmi við
markmið starfseminnar.
Markmið: Markmið
námskeiðsins eraö fjalla um
áættanagerö sem stjórntæki fyrir
forsvarsmenn opinberra stofnana
og fyrirtækja til að ná sem bestum
árangri í rekstri og stjórnun sinna
rekstrareininga.
Efni: Fjallaðverðurumnúverandi
bókhalds- og áætlanakerfi
ríkissjóðs svo og samskipti hinna
mörgu aðila við gerð
fjárlagatillagna fyrir fjárlög. Einnig
verður fjallað um hvernig áætlun
og bókhald geti orðið sem virkast
stjórnunartæki til að ná settum
markmiðum út frá takmörkuðum
fjármunum. Lögð verður áhersla á
að kynna þátttakendum ýmis
hugtök s.s. þjónustustig,
kostnaðartegundir og verð á
þjónustu.
Þátttakendur: Námskeiðiðer
ætlað starfsmönnum opinberra
fyrirtækja og stofnana sem vinna
að stjórnun og áætlanagerð.
Aðalleiðbeinandi: GísliArason,
rekstrarhagfræðingur. Starfarsem
rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi hf.
og stundakennari við Háskóla
Islands.
Stjómunarféjag fsjands
Ánanaustum 15 ■ Sími: 621066