Morgunblaðið - 05.03.1986, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
52. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Olíufatið
undir 12
dollurum
New York, Moskvu, 4. marz. AP.
OLÍUFATIÐ lækkaði í 12,15
dollara á olíumarkaðinum í
New York í dag og spá
sérfræðingar að verðið eigi
eftir að lækka niður undir 8
dollara. Fór olíuverðið niður
fyrir 13 dollara á heims-
markaði i dag og niður fyrir
tólf dollara á Norðursjávar-
oliu.
Sérfræðingar segja að verð-
lækkuninni sé hvergi nærri lokið
og að fatið gæti farið allt niður
undir 8 dollara, en það er undir
kostnaðarverði. Sérfræðingum bar
saman um að enda þótt samstaða
næðist á endanum meðal olíufram-
leiðsiuríkja um að draga úr fram-
leiðslu þá hefði það ekki í för með
sér skyndilega hækkun á olíuverði.
TÓNLISTAR- OG BÓKMENNTAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS AFHENT:
Hafliði snillingur
í verkum sínum
— sagði danskur gagnrýnandi í ávarpi
Stórsigvr
Félagamir Kristján Arason og Þorgils Óttar Mathiesen faðmast
innilega eftir glæsilegan stórsigur íslenzka landsliðsins yfir
þvi danska í heimsmeistarakeppninni í Sviss í gærkvöldi. ísland
vann með níu marka mun, 25:16, og er þetta stærsti sigur ís-
lands á heimsmeistarakeppni.
Sjá nánar á íþróttasíðum á bls. 48, 49 og 51 og frétt á
baksíðu.
Leigumorðingi
banamaður
Olofs Palme?
Stokkhólmi, 4. mars. AP.
SÆNSK lögregluyfirvöld sögðu í dag að maðurinn sem á
föstudagskvöld skaut Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, til bana, hefði flúið í bifreið ásamt a.m.k. einum
samverkamanni. Hans Holmer, lögreglusljjóri, sagði í sjón-
varpsviðtali í kvöld að verið gæti að leigumorðingi hafi
verið að verki. Yfirvöld hafa heitið 500 þúsund sænskum
krónum (tæpum þremur miljónum ísl. kr.) að verðlaunum
fyrir upplýsingar, sem leitt gætu til þess að morðinginn
fyndist.
Hans Holmer sagði á blaða-
mannafundi í dag að leigubílstjóri,
sem var sjónarvottur að morðinu,
hefði séð morðingjann stökkva inn
í bifreið, farþegamegin. Leigubíl-
stjórinn hefði aðeins getað náð
niður hluta af númeri bifreiðarinnar
og vildi lögreglan ekki lýsa henni
frekar. Leigubflstjórinn kvað mann-
inn hafa haft heymartól á höfði og
gæti hann hafa verið leigumorðingi
í talstöðvarsambandi við aðstoðar-
mann í bfl.
Krufning á líki Palme hefur leitt
í ljós að hann hafí látist samstund-
is. Dr. Birger Schantz, prófessor
við rannsóknarstofnun hersins,
sagði að skotið hafí farið í gegnum
hrygg Palme og aðalslagæð lík-
amans, ósæðina. Hvað hann þetta
benda til þess að morðinginn hafí
kunnað til verka.
Holmer kvaðst vona að verðlaun-
in fengju einhvem samverkamann
morðingjans til að segja til hans.
Varðstjórinn neitaði einnig ásök-
unum um slælega frammistöðu
lögreglunnar í Stokkhólmi í rann-
sókn málsins.
Lögreglan hefur meðal annars
verið sökuð um að loka undankomu-
leiðum of seint, hún hefði ekki verið
nógu fljót að girða af morðstaðinn
og kalla út eftirlitssveitir.
„Við gerðum allt það, sem fólk
getur vænst af okkur," sagði Hol-
mer: „Vel getur verið að lögreglan
hafí verið gagnrýnd, en við skulum
ræðaþaðsfðar."
Yfírmenn innan lögreglunnar
hafa gefíð í skyn að rannsókn
morðsins sé nú að komast á skrið
og sagði Holmer að borist hefðu
flögur þúsund ábendingar og 600
manns hefðu verið yfírheyrðir.
Hann kvað 100 manns hafa verið
yfirheyrða rækilegar en aðra og
hefðu yfirheyrslumar leitt til þess
að ýmis ótengd mál leystust.
Lögreglan kveður nokkra menn
hafa hringt og lýst yfír ábyrgð sinni
á verknaðinum. Flestir hefðu sagst
hringja fyrir hönd vestur-þýsku
hryðjuverkasveitarinnar Rote Arme
Fraktion og hópa, sem tengdust
henni.
Vestur-þýsk yfírvöld segja fátt
benda til þess að þarlendir hópar
hafi verið viðriðnir morðið. Lög-
regluyfírvöld í Vestur-Þýskalandi
segja þó að hryðjuverkamenn
Rauðu herdeildarinnar hefðu oft
notað byssukúlur af sömu gerð og
notaðar voru í árásinni á Palme.
Sovétríkin:
Hætt við
að beina
ámtil
suðurs
Moskvu, 4. mars. AP.
ÁÆTLANIR um að beina sovésk-
um ám, sem renna í Norður-
tshaf, til suðurs, hafa verið lagð-
ar á hilluna í bili, að sögn Leon-
ard B. Vid, varaformanns Áætl-
unarnefndar rikisins (Gosplan).
Hugmyndir hafa verið uppi um
það i Sovétríkjunum að veita
ánum í Volgu og Kaspíahafið.
Yfírborð Kaspíahafsins fór lækk-
andi um miðbik aldarinnar, en síð-
ustu tíu ár hefur það farið hækkandi
á nýjan leik og sagði Vid að sovésk
stjómvöld teldu sig ekki þurfa á
þessu að halda á næstunni.
Vid sagði einnig að lækkun olíu-
verðs á heimsmarkaði, myndi ekki
vaida neinum vandamálum í sov-
ésku efnahagslífi.
Nikolai T. Borchenko, yfírmaður
landbúnaðardeildar Áætlunarráðs-
ins sagði að strax á næsta ári yrði
yfírvöldum á hveijum stað leyft að
ákveða hversu mikið ríkisbú undir
þeirra stjóm ættu að framleiða af
landbúnaðarvörum og yrði þeim
leyft að selja það sem þar væri
umfram á hærra verði. Er þessi
breyting á fyrirkomulagi landbún-
aðarframleiðslu í anda NEP-stefn-
unnar svokölluðu, sem Lenin greip
til eftir byltinguna þegar land-
búnaðarfrmleiðsla fór niður úr öllu
valdi.
Nordfoto/Slmamynd
Anker Jörgensen afhendir Hafliða Hallgrímssyni tónlistarverð-
laun Norðurlandaráðs.
Kaupmamiahöfn, 4. mars. Frá Sveini Sigurðssyni, biaðamanni Morgimblaðsms.
TÓNLISTAR- og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru afhent
í kvöld við hátíðlega athöfn í ráðhúsi Kaupmannahafnar. Anker
Jörgensen, núverandi forseti Norðurlandaráðs, afhenti verðlaunin,
en verðlaunahafamir em eins og kunnugt er, þeir Hafliði Hall-
grímsson, tónskáld og sellóleikari, og ljóðskáldið Rói Patursson
frá Færeyjum.
Athöfnin hófst á því að Bent
Nebelong, forseti borgarstjómar
Kaupmannahafnar, minntist Olofs
Palme, forsætisráðherra Svía.
Anker Jörgensen sagði í ræðu sinni
að það væri skemmtileg tilviljun
að þegar verðlaunum var úthlutað
síðast í ráðhúsi Kaupmannahafnar,
hefðu þau einmitt fallið í skaut
íslendingi, Atla Heimi Sveinssyni.
Einnig væri það mikið gleðiefni
að nú fengi færeyskt skáld, sem
skrífaði á færeysku, eftirsótt bók-
menntaverðlaun.
Ulla-Britt Edberg, tónlistar-
gagmýnandi, færði síðan rök fyrir
verðlaunaveitingunni, rakti nokk-
uð sögu tónlistar á íslandi og sögu
Hafliða sem listamanns og sagði
að hann væri oft snillingur í verk-
um sínum, maður sem talaði ekki
í hálfkveðnum vísum, þegar listin
væri annars vegar.
Þegar Anker hafði afhent verð-
launin þakkaði Hafliði fyrir sig
með ræðu og lék síðan ásamt
Philip Jenkins, verkið „Fimmu"
fyrir selló og píanó. Verðlauna-
verkið sjálft er hins vegar „Poerni",
verk fyrir hljómsveit og einleiks-
fiðlu.
Rithöfundurinn Jóhannes
Heggeland, gerði grein fyrir „Lik-
asurn" verðlaunabók Róa Paturs-
sonar.
Þessari hátíðlegu stund lauk
með því að Philip Jenkins lék á
píanó tvö „íslensk þjóðlög" eftir
Hafliða.