Morgunblaðið - 05.03.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1986
47
Pétri þykir tímabært að hraðahindrunum sem þessum sé komið fyrir á Arnarbakka.
Hraðahindranir
á Arnarbakka
Pétur Sigurðsson hringdi.
Fyrir skömmu las ég í blöðun-
um að bráðlega yrðu lagðar yfir
100 hraðahindranir víðs vegar um
borgina. Mig langar að forvitnast
um hvort nokkur þeirra verði í
Amarbakkanum. Nú eru engar
hraðahindranir í götunni. Ég hef
fylgst með bílstjórum aka þar á
70-80 km/klst. og á hverri
klukkustund aka þar um 4 stræt-
isvagnar. Skóladagheimil stendur
við götuna og þurfa bömin að
fara yfir hana til að komast ferða
sinna. Reyndar er þama umferð-
arskilti sem segir böm að leik en
það stendur í krappri beygju, svo
erfítt er að koma auga á það.
Það er tímabært að koma fyrir
hraðahindrunum á Amarbakkan-
um áður en slys verða á mönnum.
Það gildir hér sem annars staðar
að betra er að byrgja brunninn
áður en bamið er dottið ofan í.
Þessir hringdu . . .
Kæri Velvakandi.
Ég má til með að biðja. þig að
koma þakklæti til sjónvarpsins fyrir
Til velvakanda.
í hinum vinsæla þætti A líðandi
stundu sagði Ámi Johnsen mjög
ósmekklega sögu um Agnesi
Bragadóttur. Þegar ég hlustaði á
Áma hugsaði ég með mér; Hvenær
eru svona sögur sagðar um karla?
Satt að segja fínnst mér svona
sögur lágkúrulegar. Heldur Ámi
Johnsen að þetta sé leiðin til þess
að fá konur til þess að kjósa sig?
Fíflalæti Áma í sambandi við um-
ræðuna um bijóstagjöf á Alþingi
lýsa fordómum og fávisku hans um
málefni kvenna og bama.
Fyrst ég er farin að skrifa langar
mig til þess að lýsa óánægju minni
með hvað spyrlar þáttarins em oft
neikvæðir. Það er eins og það sé
aðalatriðið að klekkja á viðmælend-
um og koma með nógu óþægilegar
spumingar. Þetta er leiðinlegt að
þáttinn „A líðandi stundu", sem
sýndur var beint frá Vestmannaeyj-
um. Hann var frábær og ekki síst
hlusta á og það sem verra er, að
það sem verið er að spyija um er
oft nauðaómerkilegt. Þessi gagn-
rýni á líka við fleiri þætti sjón-
varpsins. Um daginn eyddi Páll
Magnússon löngum tíma í að þvæla
um drullusokk og jarðarfarir við Jón
Baldvin Hannibalsson. Þegar Jón
vildi fá að tala um launamál og
yfírstandandi kjarasamning sagði
Páll Já en aðeins örstutt". Sama
sagan endurtók sig við Steingrím
Hermannsson. Hann var spurður
um eitthvað lítilvægt en þegar hann
vildi tala um landsmálin þá var
svarið „bara örstutt". Auðvitað eiga
menn að vera stuttorðir og gagn-
orðir í viðtölum. Málefni hljóta þó
að vera aðalatriðið, ekki kjaftasög-
ur. Að lokum þakka ég Agnesi og
félögum fyrir góða þætti.
Margrét
hlutur heimamanna. Annars var
miðvikudagurinn 26. febrúar mikill
gleðidagur. Þá tókst samkomulag
um nýjan lq'arasamning, sem gefur
von um sigur yfír verðbólgunni og
eru það einhver bestu tíðindi um
árabil. Þá sigraði handboltaliðið f
Sviss og blessuð sólin skein allan
daginn. Nú er gaman að vera til.
Halldór S. Gröndal
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 11.30, mánu-
daga
til föstudaga, ef þeir koma þvf ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski naf nleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálk-
unum.
Osmekklegar sög-
ur í sjónvarpinu
Og ekki nóg
með það
Við bióðum á meðan birgðir
endast sérstök tilboðskjör. j
Aðeins 6.600 á mánuði og
aðeins 19.530 í útborgun og
3ja ára ábyrgð.
HÚS6A6NABÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK® 91-81199 og 81410
Eitthvert albesta sófasettið
ámarkaðnum í dag er Buffaló
settið sem er alklætt með
ekta vatnabuffala leðri sem
er gegnumlitað og króm sútað
með mjúkri flosáferð sem
gefur settinu þennan eftir-
sótta „villta“ blæ.
ÞAÐ TÓKST
4
BUFFALÓ settið átti að kosta
rúmar 110.000 — en við náðum
því niður ffyrir hundraðið.