Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 4
MORfiíINBLM>IÐiSUNNU'DM;iIJK13JAPHÍLía98e á Þj óðhagsstof nun: Mest veltuaukning í þjónustugreinum BREYTING veltu í verslun, þjónustu og' iðnaði á síðasta ári varð mun meiri en sem nam almennum verðbreytingum í fyrra sé miðað við visitölu vöru og þjónustu, þ.e. veltan jókst að raungildi. Mest varð aukningin í þjónustu- greinum, 8—10%, en um 5% í smásöluverslun. Miðað við þessar forsendur varð um 12% samdrátt- ur í bifreiðasölu og 5% í bygginga- vöruverzlun. Veltubreyting í iðn- aði varð svipuð og f smásöluversl- un, 5—6%. í frétt frá Þjóðhags- stofnun segir að til samanburðar megi nefna að síðustu áætlanir bendi til nálægt 5% aukningar neyzluútgjalda heimilanna í fyrra. Þjóðhagsstofnun hefur mörg undanfarin ár fylgst reglulega með breytingum heildarveltu í einstökum atvinnugreinum á grundvelli söluskattsframtala. Þessar upplýsingar gefa mikil- vægar vísbendingar um útgjalda- þróunina á hveijum tíma og þar með raunar um framleiðslu í þess- um greinum. Tölumar sýna heild- arveltu í hverri grein, þ.e. bæði þann hluta veltunnar sem er sölu- skattsskyldur og eins þá veltu, sem er undanþegin söluskatti. í meðfylgjandi töflu má sjá heildarveltu í einstökum greinum verziunarinnar, þjónustu og iðnaði á tveimur síðustu árum og hlut- fallsbreytingu á milli ára. Morgunblaðið/Emilía Ásmundur Stef ánsson ræðir árangur f ebrúarsamninganna á þingi Landssambans iðnverkafólks. „ Arangurinn sýnir að nið- urfærsluleiðin er fær“ — sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASI í ræðu á þingi Landssambands iðnverkafólks „ ARANGURINN á þeim tíma sem liðinn er frá þvi kjarasamningar voru undirritaðir í lok febrúar lofar góðu. Fyrsta mars var verðlag 0,3% lægra en gert var ráð fyrir í samningunum, og 1. apríl var það orðið 0,4% lægra en við var búist. Þessar tölur Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, Eamonn Gallagher, skrif- stofustjóri sjávarútvegsdeildar EB og Halldór Ásgrimsson, sjávarút- vegsráðherra. -------------- Skrifstofustjóri sjávarútvegsdeildar EB í heimsókn: Rætt um tollamál og stofna við Grænland SAMEIGINLEGIR fiskistofnar íslands og Grænlands og sala veiðiréttinda við Grænland, var meðal þess, sem íslenzkir ráða- menn ræddu við Eamonn Gall- agher, skrifstofustjóra sjávarút- vegsdeildar Evrópubandalags- ins, í heimsókn hans hingað þessa dagana. Ennfremur var rætt um tolla á saltfiski. „Það eru ákveðin mál, sem hafa verið til umflöllunar milli íslands og Evrópubandalagsins í mjög lang- an tíma,“ sagði Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið. „Fyrst var það svo, að EB fjallaði um fískveiðimál- efni Grænlands og síðan samdi það við Grænlendinga um ákveðin fisk- veiðiréttindi. í langan tíma hafa menn haft áhyggjur af framgangi sameiginlegra fískistofna okkar og Grænlendinga, loðnu og karfa. Grænlendingum er óheimilt að framselja veiðiréttindi í lögsögu sinni án þess að bjóða EB þau fyrst. Þessi atriði hafa verið til umræðu og um það talað að menn hittust til að tiyggja sem bezt friðun og eftirlit með þessum stofnun, en fyrst og fremst þurfum við að ræða þessi mál við Grænlendinga. Tollamáiin eru svo annar hand- leggur, sem ekki má tengja þessu máli. Þar eru enn óleyst mál, sem að sjálfsögðu komu til umræðu, en engin bein niðurstaða fæst í viðræð- um sem þessum," sagði Halldór Ásgrímsson. sýna að sú nýja leið sem valin var, að færa niður verðlag í stað mikilla kauphækkana, er fær,“ sagði Ásmundur Stefánsson for- seti Alþýðusambands íslands í ræðu á þingi Landssambands iðnverkafólks á föstudag, þar sem hann ræddi um kjarasamn- ingana 26. febrúar sl., aðdrag- anda, efni og árangur. Ásmundur varaði menn við að halda að þessi góði árangur kæmi af sjálfu sén „Verkinu lauk ekki við undirskrift," sagði hann. „Lækkun á undanfömum vikum hefur ekki orðið án átaka. Það sýndi sig að tollalækkun ríkisstjómarinn- ar á bifreiðum misheppnaðist í fyrstu atrennu, margir kaupmenn nýttu sér lækkun heimilistækja til að auka álagningu sína, þjónustu- gjöld banka hækkuðu og ýmsilegt fleira mætti neftia. Það hefur þurft strangt aðhald og eftirlit til að hrinda slíkri aðför að samningun- um. Og í því efni bíður mikið verk það sem eftir er samningstímans. Á öllum vigstöðvum er mikið undir því komið að menn haldi vöku sinni og reki áróður fyrir því að verðlagi sé haldið í skefjum. Starf verkalýðs- félaganna og verðlagsstofnunar dugir þar ekki til. Almenningur verður að þroska verðskyn sitt, hreinlega venja sig á að læra verð utanað, svo hægt sé að bera það saman frá einum tíma til annars og milli verslana. Óðaverðbólga undangenginna ára hefur haft þau áhrif að við höfum tapað öllu verð- mætamati; tökum hugsunarlaust og af handahófí vörur úr hillum, án þess að skeyta um verð þeirra. Það er eitt meginskilyrði þess að sú tilraun sem gerð var með febrúar- samningunum heppnist, að þetta skeytingarleysi almennings um verðlag sé úr sögunni," sagði Ás- mundur Stefánsson. Þingi Landssambands iðnverka- fólks lauk í gær Fóðurtollurinn notaður í niður- greiðslu áburðar REKSTRARFRAMLAG ríkis- ins til Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi, það er að segja niðurgreiðsla áburðarins í vor, verður fjármögnuð að mestu leyti með þeim hluta fóður- gjalds sem rennur í ríkissjóð. Svokallað grunngjald á inn- fluttar fóðurvörur verður fram- lengt út árið og mun það skila um 120 milljónum króna upp í þær rúmar 170 milljónir króna sem niðurgreiðsla áburðarins kostar. Njótið þess að fara til Benidorm 6. maí í beinu Gistimöguleikar eru fjölmargir í mismunandi verðflokkum. Hótel með fæði og íbúðir af ýmsum stærðum. Ósvikið þriggja vikna frí í spánska vorinu á hvítu ströndinni Costa Blanca. Pantið tímanlega. VERÐ DÆMI: 25.700kr.pr. mann. Tveir í studioíbúð. 19.500 kr.pr.mann.Tveir fullorðnir og tvö böm í íbúð. FERÐA.. C&hIccU MIÐSTOÐIIM Tccum AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK - S. 2813 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.