Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 38
m ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON „Syndaselur“ — „Þverpólitískt deiluefni" 1 heilum landshlutum hefur hringormur í fiski ekki tvöfald- ast heldur víða meir en þrefald- ast, sagði Guðmundur J. Guð- mundsson (Abl.-Rvk.) efnislega í umræðu um frumvarp til laga um selveiðar við ísland í neðri deild á dögunum. Vinnulaun við tínslu hringorma nema hundruð- um milljóna. Ég býst við, sagði hann, að hægt væri að hækka laun verkafólks í fiskiðnaði jafn- vel um þriðjung ef þessum út- gjaldalið væri ekki til að dreifa. Gunnar G. Schram (S.-Rn.) taldi sterk rök hníga að þvf að tengsl væru milli fölgunar sela og vaxandi fjölda hringorma f fiski. Hringormur væri vandamál í islenzkum sjávarútvegi, bæði vegna kostnaðar við tfnslu og samkeppni um vöruvöndun við framleiðslu annarra fiskveiði- þjóða, er ekki hefðu við þennan vanda að stríða, þ.e. ekki í jafn- stórum mæli. Hér við bættist að selurinn „étur það fiskmagn“ sem svarar til ársafla rúmlega tuttugu togara, sagði þingmað- urinn. Efnisatriði frum- varpsins Halldór Asgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, mælti fyrir frum- varpi til laga um selveiðar við ísland 2. apríl sl. Efnisatriði frumvarpsins eru meðal annars þessi: * Sjávarútvegsráðuneytið hefur yfirumsjón allra mála er selveiði varða (í stað landbúnaðarráðuneytis nú). * Hafrannsóknarstofnun annist rannsóknir á selum við ísland. Feli ráðunmeytið öðrum aðila rannsókn- arefni, sel varðandi, skal stofnunin fá fyrirfram í hendur rannsóknar- áætlanir og aðstöðu til að fylgjast með framkvæmd og niðurstöðum rannsóknar. * Sjávarútvegsráðuneytið skal hafa samvinnu við landbúnaðarráðuneyti um framkvæmd laganna og samráð við Náttúruvemdarráð, Hafrann- sóknarstofnun, Búnaðarfélag ís- lands og Fiskifélag íslands varðandi ákvarðanir er lúta að friðun eða fækkun sela. * Landeiganda eru einum heimilað- ar selveiðar og ráðstöfunarréttur þeirra í landareign sinni og 115 metra á haf út. Öllum íslenzkum ríkisborgurum eru heimilaðar sel- veiðar utan landareigna, samanber þó lög um landhelgi, efnahagslög- sögu og landgrunn. * Erlendum ríkisborgurum skuiu óheimilaðar selveiðar við ísland. Heimilt skal þó að víkja frá þessu ákvæði í milliríkjasamningum. * Ráðherra setur reglur um fram- kvæmd þessara laga. Hann getur m.a. sett ákvæði um bann við sel- veiðum á tilteknum svæðum, tak- markanir á selveiðum miðað við ákveðinn tíma, friðun ákveðinna tegunda eða takmörkun á fjölda dýra er veiða má, lejrfilegar veiðiað- ferðir, hvemig ganga skuli frá veiddum dýrum, veiðar í vísindaleg- um tilgangi, aðgerðir til fækkunar sela sé þess talin þörf o.fl. Gagnrýni á frumvarpið Frumvarp þetta sætti harðri gagnrýni og afstaða til þess fór ekki. eftir flokkslínum. Hjörleifur Guttormsson (Abl.-Al.) var einna harðorðastur andmælenda. Hann vefengdi að vísu ekki „að skynsam- legt sé að hafa stjóm á selveiðum og leitast við að taka á selveiðum í ljósi þekkingar hverju sinni og með þeim hætti að það sé líklegt til þess að skila þeim árangri sem menn vilja ná, hvort sem um er að ræða að minnka hið svonefnda hringormavandamál sem að hluta til er rakið til selastofna við landið - þó að deildar meiningar séu um þátt selsins og stærð vandamálsins - og einnig hitt, sem bent hefur verið á af ýmsum þeim sem hafa viljað fá þessar lagaheimildir sem 06 ráab^er ,n 4,tö\ub'ab'í kepv>o»na°& * vWi»f i a,semVoloaSl' .\egvetb\aUOlb0 1 \ ; .,orb\auo- n00$ G^81 vt a \ta\'U‘ * \oVaúísJ° 200-000J \ verb\au°-/ 5i000$ Vverb\auu*Vo0o$ “'í' . * W ——— ^TTsem urf)U w"",,us ^^^Tstephanie - |okakePpn' i 1985 p I«et!>“rnií Vreva“blaS ' r Þaer tÖKU K T 985 SverburnáoarJ;eVbob\ab- ■N V. ODDI HF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.