Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 25
 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL1986 25 Bðm úr Kópavogl velja sór myndbönd til leigu. Hljómplötusafn Stefáns A. Guöjónssonar. Ólafsstofa Það er gengið niður rauðan hringstiga í lqallara hins nýja bóka- safns. Þar eru bækur og blöð í hrúg- um á borðum og tímanna tákn, tölvan, og prentari henni við hlið, standa úti í homi, óumbrotnir kass- ar fyrir handrit og dagblöð standa upp við vegg og brúnir pappakassar frá Ljóma og fleiri fyrirtækjum standa á gólfinu. Brunavamartæki em hengd á einn vegginn. Uppi á gráum litlum jámskáp stendur grænmáluð gipsmynd af Steini Steinarr og horfir hugsandi yfir á langborð í miðjum salnum þar sem Hrafn hefur raðað ýmsum dýrgrip- um í eigu safnsins. Frá vegg vinstra megin horfír Ólafur Ólafsson læknir úr svörtum ramma niður til blaða- manns, það er hann sem hefur safnað nánast öllu sem þessi kjallari hefur að geyma. Á hillu við hring- stigann stendur svo koparafsteypa af þjóðskáldi Kópavogs, Þorsteini Hrafn viö langboróið í Ólafastofu. Valdimarssyni. Afsteypumar af Þorsteini og Steini gerði Magnús Á. Ámason. Það er svalt í húsakynnum Ólafssafns, enda er þar loftræsti- kerfi sem í er blandað raka svo hæfilegt rakastig haldist í sölunum. Var óþreytandi í söfnun sinni Ólafur ÓLafsson læknir var einn af landsins mestu tímarita-, blaða- og bókasöfnurum. Að sögn Hrafns kvaðst Ólafur hafa eignast sína fyrstu bók þegar hann var fermdur sem hefur að líkindum verið árið 1913 en hann var fæddur 1899 og dó árið 1979. Frá fermingarári sínu safnaði hann bókum og öllu prent- uðu efni og var óþreytandi í söfnun sinni. í þessu safni má segja að hægt sé að fræðast um flestallar hliðar hins íslenska þjóðfélags, jafn- vel hundmð ára aftur í tímann, taka á púlsi hins iðandi mannlífs á ýmsum tímum, lesa um gleði og MflNNBJORG! , I.VmHJHH VMt STOIAW HOHM \ IH WUKklH UI M.I IVHIK j Tt MIIJJOMK KKO.NK : rinir Ijtmt nitna IjniHit f 'L ™ '— j|' I f : íiltitn. rJa jJ nulljnnit, Afbrotinn og: glæpum fjölgar ugþrv’ænlega CtUnr4»i*n«tM mM ll'ml M>wéryi «MI t»tr. WMw «« |V»i t*rf ♦«» O«0 i*» rKV«» **>rfxh m*4** .í.a*f ** ylarpor ot frifI í'iK W 1» irniflotiur.ph.Mi i ifrafl Jt: K.. * FjtMW tj«r» mnnwt prs AxtJr nii iirit ,tV m lir. KtM «1 WWiVABAItm .3 míío&o Auglýslng úr blaðl sorgir, baráttu um völd og peninga og hlutskipti hinna fátæku. Það er undarleg tilfinning að standa þann- ig svo gott sem andspænis forfeðr- unum. Fregnmiðar Auk þess sem fyrr er nefnt er í Ólafssafni álitlegt safn af smáprenti og fregnmiðum sem tíðkuðust um síðustu aldamót og fram á þessa öld. Þá komu blöðin út sjaldnar en nú er og voru slíkir miðar hengdir upp á Ijósastaura og húsveggi. Þar eru líka samningar um flutning fólks til vesturheims, boðunarbréf Kristjáns konungs áttunda til ís- lenskra alþingismanna á hið endur- reista alþingi íslendinga árið 1843 og svo mætti lengi telja. Margt skrítið og skemmtilegt er þarna að sjá frá sjónarhóli nútíma- mannsins. Þama er lítið kver sem hefur að geyma lög Gijótfélagsins í Reykjavík. Fyrirætlan þess var, Gömul sfmaskrá að gera það auðveldara fyrir þá sem selja gijót að koma því út sem fyrst og fá það borgað samstundis, með því að kaupa gijót á vetuma, bæði unnið og óunnið, og selja það svo aftur þegar kaupandi býðst. Þama eru líka lög Vindlagjörðafélagsins í Reykjavík. Tilgangur þess var að stofna tóbaksverksmiðju í Reykja- vík og með því auka innlendan iðnað. Það var C. Zimsen sem var forkólfur fyrra félagsins en Tryggvi Gunnarsson þess síðara, báðir kunnir athafnamenn. Hrafn dregur fram ofurlitla bók sem hefur að geyma slitur af „Jó- hönnu raunum", rímum eftir séra Snorra Bjömsson á Húsafelli sem prentaðar vom í Hrappsey 1781. Þetta er eitt dæmið um natni Ólafs og fundvísi á fágæti í íslenskri bóka og blaðaútgáfu. Rímur þessar eru með gotnesku letri og nánast hand- ritsgerð á hinum smáu upplímdu blaðsíðuslitmm og stafsetningin fomleg mjög, kommur vom að jafn- aði ekki notaðar á þessum tímum heldur skrifað t.d. aadur (áður). Safn af greinum um ís- lenskar persónur í innri sal era hillur þétthlaðnar kössum fullum af dagblöðum og þar er líka að finna innbundnar sýslu- fundargerðir. Þar em líka helstu íslensk tímarit frá upphafi, svo sem Skímir, Læknablaðið og Heimir, sem gefið var út í vesturheimi. I litlum trékössum á gólfi herbergis- ins inni í homi em um 20 þúsund umslög sem hafa að geyma upplýs- ingar um íslenskar persónur sem hafa birst í blöðum og tímaritum frá því um 1920 til um það bil 1976. Þetta safn ætti að geta orðið mikil náma þeim sem stunda ætt- fræði. Það var Guðmundur Guðni Guðmundsson sem safnaði þessum upplýsingum og seldi Bókasafni Kópavogs árið 1985. í safni Ólafs er aftur á móti mikill flöldi graf- skrifta um fólk og ýmislegt tæki- færisprent, svo sem drápur sem ortar vom af tilefni eins og kon- ungskomu o.fl. í svörtum kápum standa lítil rit þétt saman og hafa að geyma æviminningar Qölda fs- lendinga frá öldinni sem leið. Skrá yfir þá sem áttu með sig sjálfir Auk dagblaðanna er þama að finna mikinn fjölda landsmálablaða og blaða og rita sem komu út um skamma hríð, sum hver mjög fágæt. Efst uppi í hillu tróna gamlar síma- skrár og nokkm neðar í annarri hillu em skrár „yfir hér um bil alla bæjarbúa sem eiga með sig sjálfir" eins og stendur í formálsorðum eftir Bjöm Jónsson sem skráði. Elsta slík skrá er frá árinu 1903. Gamlar skattskrár em við hlið bæjar- skránna og verða skattskrámar æ digurri eftir því sem árin líða. Bækur íslenskra höfunda standa í löngum röðum og ekki em ómerkari bækur útlendra höfunda um ísland, sumar mjög gamlar og torfengnar. Starfsmenn bókasafnsins hafa verið að vinna að því skemmtilega verki að raða þessu merka safni upp og skrá það og binda inn það sem óinn- bundið er. Ýmist fágæti í klefa, innúr innri salnum, sem lokaður er með jámhurð, em mestu dýrgripimir geymdir. Þar er and- rúmið mettað þessari sætu innilok- unarlykt sem einkennir vemstaði gamalla bóka. Fyrir enda klefans er stóll og borð sem á er sjálf Flat- eyjarbók, en sú er þó í nýju bandi, Hrafn kemur með bunka af gömlum nasistablöðum sem mörg hver em mjög fágæt því menn hafa fyrir satt að sumum hafi verið þau þymir í augum þegar frá leið og jafnvel viljað afmá þau. Þess vegna em þau yfirleitt til í fáum eintökum. Hrafn dregur einnig niður úr hillu gamla bók um Island, „En sommer i Island", eftir C.W. Paijkull sem út kom árið 1867, önnur svipuð kom út árið 1780, „Letters on Iceland", gefin út í Dublin, eftir Uno Von Troil. Þama í hillum státa Fjölnir, Ár- mann á Alþingi, Minnisverð tíðindi, Klausturpósturinn, Rit lærdóms- listafélagsins og fleira í þeim dúr, allt frábær eintök og vel innbundin. í einni hillunni liggur opinn pappa- kassi með fregnmiðum. Á ýmsum þeirra kemur vel fram harkan í pólitíkinni um og undir síðustu aldamót. Rímnasafn Tvær hillur óg hálfri betur em þama fullar af rímum af öllu tagi, þessu uppáhaldslesefni íslendinga á síðustu öld. Jónas Hallgrímsson skáld kom rímunum í ónáð hjá löndum sínum með frægum ritdómi í Fjölni og þótti mörgum súrt í broti. Lítill miði liggur við hlið hinnar snyrtilega innbundnu Flateyjar- bókar í mörgum bindum. Á miða þessum vottast að Guðbjörg Sigurð- ardóttir, fædd á Hörgshlíð, þá tví- tug, var kúabólusett 23. maí 1885 af Kr. Kristjánssyni. Efst á miðan- um stendur Chr. R. IX - kúabólu- setningarattest nr. 70. Einkasafn Barböru og Magnúsar A. Arnason- ar Það em lítil brot sem tilfærð em hér af því góssi sem er að finna í safni Ólafs Ólafssonar læknis, en í klefanum innan jámbentu hurðar- innar er einnig brún tekkkommóða. Þar i em varðveitt handrit Magnús- ar Á. Ámasonar' og Barböm konu hans. Vífill sonur þeirra gaf Kópa- vogsbæ þessi handrit og einnig skissur að myndum eftir þau, hand- rit af ljóðum Magnúsar og Ieikritum og nótur af tónlist hans, sönglögum, sónötum og fleiri tónverkum, margt af því hefur aldrei verið flutt. Hrafn gat þess að eitt sinn hafí kona ein hringt til sín utan úr bæ og beðið sig að sækja úrklippusafn sem hún hefði safnað um þau hjón Magnús og Barböm. Safn þetta er einnig varðveitt í brúnu tekkkommóðunni. Hljómplötusafn Stefáns A. Guðjónssonar Þegar við komum út úr dýrgripa- klefanum fömm við aftur inn í salinn með langborðinu. Á veggnum gegnt borðinu em hillur frá lofti til gólfs fullar af hljómplötum. Þetta er eitt stærsta plötusafn landsins. Það gaf Stefán A. Guðjónsson verkamaður sem þrátt fyrir örðuga lífsbaráttu tókst að safna öllum þessum plötum á undanfomum ára- tugum. Þetta em um 6000 plötur, mestallt sígild tónlist af ýmsu tagi, jöfnum höndum hljómsveitarverk og sönglög. Inn í milli em þama fágætar og dýrmætar plötur að sögn Hrafns. í Olafsstofu em einnig varðveitt tónlistarprógrömm, m.a. mörg prógiömm frá tónleikum Tón- listarfélags Reykjavíkur frá fyrri tíð. Staður fyrir fræðimenn og grúskara Þess má geta að Ólafsstofa er opin tvisvar í viku, mánudag og miðvikudag, milli klukkan 16 og 19. Hrafn sagði að plássleysi háði mjög þeirri stofnun, en beðið er eftir lestrarsal sem á að verða við hlið salanna sem áður er lýst. Þar er nú önnur starfsemi eins og er. Þar gæti orðið gott pláss fyrir frasðimenn og grúskara, allt að þijátíu sæti alls. Ljóspenni notaður við skráningu útlána Um leið og gengið er upp hring- stigann frá ísienskri fortíð á gulnuð- um blöðum getur Hrafn þess að verið sé að undirbúa forrit í tölvu til að nota við skráningu útlána. Þar verður notaður svokallaður ljós- penni. Fyrirtæki sem heitir Hugver er að vinna þetta forrit. Bókasafn Kópavogs mun væntanlega taka það í notkun í vor og er gert ráð fyrir að að það leiði til sparnaðar, betri þjónustu og eftirlits. Bókasafn Kópavogs verður þá fyrst. fyrir-. tækja landsins til að nota þessa nýju tækni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.