Morgunblaðið - 13.04.1986, Side 51
m
Minning:
Skúlína H. Guð-
mundsdóttir
Fædd 10. nóvember 1898
Dáin 18. marz 1986
Hinn 18. marz andaðist á sjúkra-
húsinu í Keflavík Skúlína Hlíf
Guðmundsdóttir frá Krossnesi í
Grundarfírði, á áttugasta og átt-
unda aldursári. Ellin hafði leikið
þessa frænku mína hart síðustu
árin. Hún var ijarri sínum fomu
slóðum og blind síðustu tvö árin. —
Fyrir löngu hafði maður hennar,
Jóhannes Þorgrímsson, ort um
Grundarfjörð:
Ég þekki fjðrð svo fagurbláan
við fótskör draums og stuðlalags.
Og hversu löngum sæll ég sá hann
við sólarris hins nýja dags...
Og síðan spyr hann:
Hvar eygist fegri fjallaröðin
en Fellið, Mönin, Hyman, Stöðin?
Skúlína hefur án efa svarað
þessari spumingu svo, að engin
fjallaröð væri fegurri þeirri, sem
hér hefur nefnd verið. Hún var
náttúruunnandi, sem kunni að meta
það umhverfí, sem hún var alin upp
við. Þar vildi hún vera og féll þungt
að þurfa að hvérfa á braut.
Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir
fæddist í Krossnesi 10. nóvember
1898. Foreldrar hennar vom hjónin
Guðmundur Skúlason útvegsbóndi
þar og Guðrún Kristín Jóhannes-
dóttir. Var Skúlína yngst níu systk-
ina, sem upp komust og sú þeirra,
sem lengst lifði. Auk Skúlínu vora
Krossnessystkinin þessi: Anna Soff-
ía (f. 1883, d. 1968), starfaði
lengstum í Reykjavík. Guðrún (f.
1885, d. 1954), húsfreyja í Lárkoti
í Grandarfírði. Ólafía (f. 1886, d.
1974), húsfreyja í Krossnesi. Guð-
mundur Skúli (f. 1888, d. 1908),
fórst ungur í róðri frá Kvíabryggju.
Jóhannes (f. 1890, d. 1961), bóndi
og vitavörður í Krossnesi. Kristensa
(f. 1891, d. 1972), starfaði lengst-
um í Reykjavík. Láras (f. 1892, d.
1953), bóndi í Krossnesi. Sigríður
(f. 1896, d. 1967), starfaði lengst-
um í Reykjavík.
Á uppvaxtaráram Skúlínu Hlífar
var jöfnum höndum lögð stund á
sjósókn og búskap í Krossnesi.
Einkum var sjórinn mikið sóttur, á
meðan faðir hennar lifði, en hann
andaðist árið 1920. Eftir það stýrði
ekkja hans, Guðrún Kristín, búinu
með aðstoð bama sinna, sem þá
vora öll uppkomin. En árin milli
stríða vora ekki hagstæð Snæfell-
ingum. Þeir áttu erfítt með að laga
sig að nýjum háttum við sjósókn
og margir hinir gömlu útgerðar-
staðir lögðust nær í auðn. Ekki fór
svo með Krossnes að sinni, en miklu
þrengra varð þar um lífsafkomu,
eftir að af lögðust fomir útgerðar-
hættir. Guðrún Kristín bjó í Kross-
nesi til dauðadags, árið 1937, en
eftir það skiptist jörðin að fullu á
milli fjögurra bama hennar, sem
þá höfðu reyndar fyrir nokkra
stofnað sjálfstæð heimili. Var Skúl-
Félag kaþólskra
leikmanna:
Fyrirlestur um
heilaga Margréti
frá Antíokkíu
ÁSDÍS Egilsdóttir bókmennta-
fræðingur flytur fyrirlestur á
fundi Félags kaþólskra leik-
manna í safnaðarheimili félags-
ins að Hávallagötu 16, mánudag-
inn 14. apríl kl. 20:30.
Fyrirlesturinn fjallar um sögu
heilagrar Margrétar frá Antíokkíu
og um hversu nytsamleg sú saga
þótti vera fram eftir öldum við
fæðingarhjálp. Margrét naut mik-
illa vinsælda og taldist til hinna
Qórtán hjálpenda í nauðum.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestri þessum.
' (Fréttatilkynning)
ína einn hinna nýju búenda, en hún
hafði gifzt árið 1930 Jóhannesi
Ólafí Þorgrímssyni frá Miklhól í
Skagafírði. Hann hafði komið I
Eyrarsveit árið 1928 sem bama-
kennari og stundaði einkum
kennslu á Bryggju (Kvíabryggju),
sem á þessum áram var aðalþétt-
býliskjami sveitarinnar.
Skúlína og Jóhannes reistu sér
snoturt timburhús á sínum hluta
Krossneslands og nefndu staðinn
Foma-Krossnes, því að þar vora
tóftir frá eldri tímum. Frá húsinu
í Foma-Krossnesi var víðsýni mikið,
einkum út yfír Krossnesvatn og
Bjargið. Lengra fram undan var svo
sjálfur Bréiðafjörður og allt um
kring „Fellið, Mönin, Hyman, Stöð-
in“.
í Foma-Krossnesi bjuggu þau
Skúlfna og Jóhannes á áranum
1930 til 1975. Þau eignuðust fjögur
böm, sem öll era á lífi. Þau era:
Arnór Björgvin, starfsmaður á
Keflavíkurflugvelli og býr í Njarð-
vík. Hann var kvæntur Guðbjörgur
Einarsdóttur, sem nú er látin. Dóttir
hennar ólst upp með þeim Amóri.
— Guðmundur Lárus Skúli, út-
gerðarmaður í Grundarfirði,
kvæntur Jóhönnu Pálmadóttur
og eiga þau fjögur börn. — Guð-
rún Kristín, húsfreyja í Reykjavík,
gift Kjartani Stefánssyni og eiga
þau einnig fjögur böm. — Kristín
Salbjörg, húsfreyja í Reykjavík,
giff Bimi Benediktssyni og eiga þau
einn son. Bamaböm Skúlínu og
Jóhannesar era nú orðin sjö.
Ég man fyrst eftir Skúlínu
frænku minni á áranum eftir síðari
heimsstyijöld, 'þ.e. fyrir um .40
árum. Þá var enn stundaður bú-
skapur í Krossnesi með nokkuð
fomlegum hætti. Að heyskap var
gengið að mestu án véla, tekinn var
upp mór og þvottar þvegnir úti í
læk. Við allt þetta fékkst húsfreyja
ásamt venjulegum innistörfum og
vék sér hvergi undan. Mér fannst
hún eiginlega alltaf vera eitthvað
að starfa og þá jafnan með glöðu
geði, enda þrek, glaðlyndi og kjark-
ur meðal sterkra einkenna í skap-
gerð hennar.
Jóhannes Þorgrímsson andaðist
árið 1975 og lét Skúlína þá af bú-
skap í Foma-Krossnesi. Eftir það
dvaldist hún með bömum sínum,
ýmist í Grandarfírði, Reykjavík eða
Njarðvfk, en eins og áður sagði lézt
hún hinn 18. marz síðastliðinn. Hún
var jarðsungin frá Grandarfjarðar-
kirkju 25. marz. — Blessuð sé
minning hennar.
Heimir Þorleifsson
ruu. rife Nf ntoiam
ffmmfmitím
Svefnbekkir, skrifborð, bókahillur,
skápar, tölvuborð o.fl.
20% UTB0RQUI1
12 MÁI1AÐA QREIÐ5LUKJÖR
b/»>W fe^að. Vl6lu &nmitt
HUSGAGNAVERSLUNIN
vlÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
þarsem
góðu kaupin
gerast.