Morgunblaðið - 22.05.1986, Síða 3

Morgunblaðið - 22.05.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, VEDSKIPIK/KIVINNUIÍF FIMMTODAGUR 22. MAÍ 1986 B 3 Fjarskipti Easylink-gjöldin lækka um 30% með tilkomu nýja tölvunetsins EFTIR opnun sambands til Bret- lands fyrir notendur hins al- menna gagnanets Pósts og síma hefur gjald fyrir sendingu og móttöku telexskeyta Easylink- notenda hér á landi lækkað um 30%, samkvæmt upplýsingum Guðmundar Ólafssonar, verk- fræðings og annars aðaleigenda Simtaks, umboðsaðila Easylink hér á landi. Með tilkomu gagnanetsins þurfa Easylink-notendur á íslandi ekki lengur að hringja til Engiands til að senda eða taka við telexskeytum með einkatölvum sínum, en að sögn Guðmundar hefur mörgum þótt símakostnaðurinn vegna daglegra hringinga vera helsti ókosturinn við tölvutelex Easylink. Nú nægir að hringja í síma 003 eða 004, sem er símanúmer íslenska gagnanets- ins, og eru greidd sömu símagjöld hvar sem er á landinu. Fyrir slíka símtengingu segir Guðmundur að sé greitt venjulegt gjald fyrir innan- bæjarsímtal auk gjalds sem er ein króna á mínútu. Til samanburðar kostaði 39 krónur á mínútu að hringjatil Bretlands. Guðmundur segir þannig gjaldið fyrir sendingu og móttöku telex- skeyta með Easylink lækka um ca. 30%. Sé gert ráð fyrir þvi að fyrir- tæki sendi 50 telexskeyti á mánuði og taki á móti jafnmörgum skeyt- um, þá kostar nú að meðaltali 115 krónur að senda og taka á móti einu skeyti. Er þá miðað við lands- meðaltal í skiptingu skeyta milli Ianda. í þessu gjaldi er allur kostn- aður innifalinn, bæði fastagjöld til Easylink, gjöid til Pósts og síma fyrir notkun síma- og gagnanetsins og telexgjöld Easylink. Til saman- burðar segir Guðmundur að það kosti 172 kr. á hvert skeyti, ef fyrirtækið væri með eigið telex og leigði gamalt telexskeyti af Pósti og síma. Þá er gert ráð fyrir að föst leigugjöld skiptist á 50 skeyti á mánuði, en talan lækkaði eðlilega ef skeytin væru fleiri í hveijum mánuði. Guðmundur segir að ef gerður sé samanburður við símatelex verði munurinn enn meiri. Telex af meðallengd kosti frá 310 krónum og allt upp í 750 krónur eftir því til hvaða lands telexið fer. Er þá miðað við samanlagðan kostnað við að senda eitt telex og fá svar til baka á sama hátt og gert er við verðútreikning í sambandi við Easy- link. Þá segir Guðmundur að með til- komu gagnanetsins hafi nú í fyrsta sinn skapast raunhæfur möguleiki fyrir íslenska Easylink-notendur til að sækja margvíslegar upplýsingar i ótal tölvubanka, er nú standi þegar til boða á hinum margvíslegustu sviðum, þar eð Easylink-notendur hafi nú þegar allt sem þarf til slíkra samskipta, þ.e. tölvu, mótald og samskiptaforrit. Fyrirtækið Símtak var stofnað í mars sl. til að annast sérstaklega alla þjónustu við Easylink-notendur á íslandi vegna mikillar flölgunar þeirra. Stofnendur og aðaleigendur Símtaks eru Guðmundur Olafsson og Halldór Kristjánsson. I síðasta fréttabréfi er í fyrsta sinn birt notendaskrá Easylink á Islandi og eru þeir orðnir alls 120. Athygli vekur að ýmis stórfyrirtæki eru þar á meðal, svo sem Eimskip, Fálkinn hf., Hampiðjan, Hekla hf., Kristján Ó. Skagfjörð, Ríkisútvarpið-sjón- varp og Sláturfélag Suðurlands. Samanburður a Easylink og telewi X d) • < 0) £ x: -oo G -o u Fjoldi telexaámánuði Simtak hl Hugbúnaður Rafreiknir með íslenska útgáfu af Word Perfect Hugbúnaðarfyrirtækið Raf- reiknir hefur hafið sölu á is- lenskri útgáfu af ritvinnslufor- ritinu Word Perfect, sem þykir eitt öflugasta ritvinnsluforritið sem til er á markaðinum og það sem náð hefur hvað mestri út- breiðslu i Bandaríkjunum, að því er fram kemur í frétt frá Rafreikni. Forritið er fullþýtt á íslensku, bæði skjámyndir, allar skipanir til tölvunnar svo og handbækur. Ritvinnslu- og máltölvunarfyrir- tækið Ritmál hf. var fengið til að þýða forritið úr ensku og höfðu þýðendumir nána samvinnu um þýðinguna bæði við starfsmenn Rafreiknis og Satellite Software, framleiðanda Word Perfect. í frétt Rafreiknis kemur fram að mikil áhersla hefur verið lögð á að þýða þetta forrit á sem flest tungumál og fæst það t.d. nú á öllum Norður- landamálunum. í frétt Rafreiknis segir, að það hljóti að vera sérstakt fagnaðarefni að erlent fyrirtæki hvetji til slfks, enda í samræmi við ríkjandi stefnu hér, þar sem íslend- ingar hafi jafnan lagt metnað sinn í að nota móðurmálið á öllum svið- um tækni og vísinda. Flestir eigi Aðstandendurnir- Þessir fjórmenningar stóðu að islenskun ritvinnsluforritsins Word Perfect — t.v. Pétur Friðriksson og Lúðvík Friðriksson frá Rafreikni og Vilhjálmur Siguijónsson og Eiríkur Rögnvaldsson frá Ritmáli hf. auðveldára með að tileinka sér kerfi, sem hafi verið þýdd á gott daglegt mál, heldur en þau sem eru á erlendum málum. í frétt Rafreiknis eru raktir ýmsir kostir þess að nota ritvinnslukerfið. Bent er á að þeir sem vélriti mikið þekki vandamálið sem upp komi við leiðréttingar og breytingar. Iðulega þurfi að vélrita sömu síðuna hvað eftir annað, þótt aðeins sé breytt örfáum orðum. Með því að nota ritvinnslu á tölvu hverfí slík vanda- mál því að þar sé hægt að kalla textann fram á skjá, leiðrétta og prenta eins oft og þarf. Þeir sem eigi svokallaðar einkatölvur eða PC, geti notað Word Perfect í stað rit- vélar og eigi textinn að fara í prent- smiðju, þurfi ekki að setja hann aftur, heldur sé nóg að flytja hann af tölvudiskinum í setningavélina. Ennfremur er í frétt Rafreiknis bent á, að í jafn fullkomnu rit- vinnslukerfi og Word Perfect er, megi gera ýmislegt sem annars þekkist aðeins í dýrum og fullkomn- um tölvum. Með þessu forriti sé unnt eins og í flestum öðrum slíkum kerfum að skipta um stafastærðir, setja spássíur, línubil, dálka, papp- írslengd og annað er hæfi góðri ritvinnslu. Til viðbótar megi síðan nefna að með forritinu sé unnt að setja í dálka líkt og í dagblöðum, reikna, tölusetja kafla sjálfkrafa og raða í íslenska stafrófsröð. Ef til vill sé þó möguleikinn á vélrænni villuleit í textanum mikilvægasti kosturinn við ritvinnsluna, en hjá Ritmáli hf. sé nú unnið að gerð tölvutæks íslensks orðasafns er muni fylgja forritinu. Það leiti að stafavillum í textanum og leggi til ritmyndir í stað þess sem rangritað er auk þess að koma í stað stafsetn- ingarorðabókar. Fyrirtækið Rafreiknir hf. hefur starfað síðan 1983 og er e.t.v. þekktast hér á íslenska hugbúnað- armarkaðinum fyrir launaforritið Laun sem nú er notað í yfir 100 fyrirtækjum hér á landi, að því er fram kemur í fréttinni. Island — Ameríka Beinar siglingar milli Njarðvíkur og Norfolk með M.v. RAINBOW HOPE". Flytjum stykkja-, palla- og gámavöru, frystivöru og frystigáma. Lestunardagar Áætlun: Njarðvík — Norfolk umboösmenn okkar eru Gunnar Guðjónsson sf Hafnarstræti 5 P0 Box 290 121 RevWavik simi 29200 Telex 2014 Mendian Ship Agencv. inc 201 E City Hall Ave. Suite 501 NorfolkVa 25510 USA Simi (0041-625-5612 Telex 710-881-1256 29. maí 18. júní 19. maí 8.júní 28. júní /j£ Rainbow ™ Navigationjnc. • Norsk gæðavara • Margir möguleikar • Ráögjöf í skipulagningu E. TH. MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUNI 10. HAFNARFIROI. SIMI 651000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.