Morgunblaðið - 22.05.1986, Qupperneq 4
4 B
; MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPll'laWNWUUF lilj^g^DAGUR 22.,MAÍ,1986
r
TOYOTA
Nybýlavegi 8 200 Kópavogi S 91 -44144
FJÁ RFESTINGA RSJ ÓÐS -
REIKNINGUR
STOFNAÐUR FYRIR
l.JÚNÍ
GETUR LÆKKAÐ
SKATTSKYLDAR
TEKJUR UM 40%
iS/
i yrirtækjum og einstaklingum
mfellf sem hafa tekjur af atvinnu-
rekstri er heimilt að draga allt að 40% frá
skattskyldum tekjum ársins 1985 til þess
að leggja í fjárfestingarsjóð.
Skilyrði er að helmingur upphæðarinnar
sé lagður inn á 6 mánaða bundinn reikning
fyrir 1. júní n.k.
m
/; / f reikningsárið er annað en
fmSmffl almanaksárið er heimilt að
leggja inn á reikninginn innan 5 mánaða
frá lokum reikningsárs.
/ 7 nnstæðan er verðtryggð sam-
_____/ kvæmt lánskjaravísitölu og
ber að áuki 3,5% vexti. Að loknum
6 mánaða binditímanum er innstæðan
laus til ráðstöfunar.
I
| Nánari upplýsingar veita sparis j óðsdeildir
° bankans um allt land og hagdeild
| Laugavegi 7, Reykjavík, sími 27722.
Uindsbanki
íslands
Banki allra landsmanna HOOár
Fyrirtæki:
Almennar með liðlega
3,3 millj. kr. hagnað
Gjörbreytt skipulag og ný markaðssókn hafin
zmtA
Morgunblaðið/Börkur
KAMPAKATIR — Þeir Þorvarður Sæmundsson og Ólafur B.
Thors eru greinilega ánægðir með sig í nýju afgreiðslunni í Almennum
tryggingum og með þeim er Halldóra Baldvinsdóttir.
AUKIN samkeppni meðal ís-
lenskra lánastofnana um hylli
viðskiptavina hefur ekki farið
fram hjá nokkrum manni á und-
anförnum árum. Með stuttu milli-
bili býður einhver þeirra upp á
byltingakenndar nýjungar í
þeirri von að stækka hóp við-
skiptavina sinna. Má þar til
dæmis nefna tölvubanka, tölvu-
kort og heilan frumskóg af inn-
lánsreikningum, sem hver og
einn á að tryggja bestu ávöxtun.
Bankarnir hafa vaknað til með-
vitundar um að þeirra hlutverk
sé að sinna viðskiptavininum, en
ekki öfugt. Sams konar vakning
er að veða hjá íslensku trygg-
ingafélögunum. Eitt elsta og
þekktasta tryggingafélagið,
Almennar tryggingar hf., hefur
nú lokið við undirbúning sinn
fyrir harðnandi samkeppni og
byltingarkenndar breytingar á
tryggingum, sem ætlað er að
auðvelda og einfalda vátrygging-
arvernd viðskiptavina sinna.
„Harðnandi samkeppni á mark-
aðnum leiðir til breytinga. Það er
ljóst, að öll tryggingaþjónusta er
að gjörbreytast," segir Þorvarður
Sæmundsson, framkvæmdastjóri
markaðs- og sölusviðs Almennra.
„Bankamir byijuðu að auglýsa sig
og berjast um viðskiptavini. Þjón-
ustuhugtakið varð ofan á og neyt-
endur vöknuðu. Við ætlum okkur
að verða leiðandi afl í að breyta og
bæta þjónustuna á íslenskum trygg-
ingamarkaði."
Fyrir ári síðan hófst markaðs-
sókn Almennra, þegar það bauð
atvinnurekstrartrygginguna, sem
náð hefur umtalsverðum vinsældum
hjá forráðamönnum fyrirtækja, að
sögn talsmanna Almennra. Trygg-
ingin hafi verið gjörbreyting á því
vátryggingarfyrirkomulagi, sem
þekkst hafði hér, og leiddi til þess
að önnur félög tóku hana upp
skömmu síðar, sem sína eigin. „Það
sem þessi trygging hefur m.a.
umfram aðrar, er að hana má laga
að ólíkum þörfum fyrirtækja, án
tillits til stærðar eða tegundar.
Ifyrirtæki urðu ætíð að kaupa fjölda
alls kyns trygginga, með mismun-
andi skilmálum og endumýjunar-
dögum, sem oft leiddi til þess að
enginn vissi í raun hvort viðkomandi
fyrirtæki væri vel, illa eða nánast
ótryggt," segir Þorvarður.
„Með atvinnurekstrartrygging-
unni sameinum við fimm vátrygg-
ingar í einn kjama, sem enginn
atvinnurekstur getur verið án og
hægt er að bæta við sjö öðmm
tryggingum sem viðbótarvemd, ef
þess þarf með eða er óskað. I kjam-
anum eru bruna-, þjófnaðar-, vatns-
tjóns-, ábyrgðar- og rekstrarstöðv-
unartrygging. Við þetta má t.d.
bæta slysatryggingu, húseigenda-
tryggingu, rafeindatækjatrygg-
ingu, kæli- og frystivömtryggingu,
svo dæmi séu nefhd.
Þessari nýjung hefur verið mjög
vel tekið á fyrirtækjamarkaðnum
og í raun verið fagnað sem mjög
þarfri tryggingu. Fyrirtækin fundu
út með einföldum samanburði, að
þau væm oft vantryggð. Höfðu í
raun ekki nauðsynlega vátrygg-
ingavemd eða vom undirtryggð.
Við komum t.d. inn í fyrirtæki, sem
var með eina millj. króna bmna-
tryggingu, en þurfti í raun 3—4
millj. króna tryggingu. Víða verðum
við varir við mikla vanrækslu í
þessum málum, sem er stórhættu-
leg, ef óhapp kemur fyrir. Við
breyttum skilmálunum, með því
meðal annars að taka upp læsilegt
mannamál í staðinn fyrir gamalt
og flókið tryggingamál. Smáletrið
margfræga er nú til dæmis prentað
með rauðum lit í skilmálunum, sem
koma í aðgengilegri möppu, þar
sem öll atriði eru sett fram á ein-
faldan og glöggan máta. Mörg og
mismunandi skírteini heyra nú
sögunni til. Tryggjandi er ekki
lengur í vafa um trygginguna, skil-
málana og hvaða vemd hann var
að kaupa sér.“
Skipulag gjörbreytt
Uppbyggingu og skipulagi Al-
mennra hefur verið gjörbreytt og
aðalskrifstofa félagsins að Síðu-
múla 39 endurskipulögð og aðlöguð
að aukinni og endurbættri starfsemi
félagsins. Skipulagsbreytingin var
tilkynnt í október í fyrra, en segja
má, að hún hafi ekki tekið fullkom-
lega gildi fyrr en nú í mars—apríl.
Samkvæmt nýju skipuriti hefur fé-
laginu verið skipt í þrjú aðalsvið,
þ.e. markaðs- og sölusvið, tjóna-
og rekstrarsvið og fjármálasvið.
Framkvæmdastjóri mrkaðs- og
sölusviðs er Þorvarður Sæmunds-
son, Þorgeir Lúðvíksson er yfir
tjónasviðinu og Sigurður Sigur-
karlsson yfir rekstrar- og fjármála-
sviði, en forstjóri Almennra er Ólaf-
ur B. Thors.
Húsnæðinu í Síðumúlanum hefur
m.a. þannig verið breytt, að á fyrstu
hæð er markaðs- og sölusviðið, en
á annarri hæð er tjónadeildin. Við-
skiptavinurinn getur því nú á auð-
veldan hátt fundið þá starfsmenn,
sem hann þarf að eiga orð við, til
að fá skjóta lausn á sínum málum.
Allar innréttingar og fyrirkomulag
er hannað með það fyrir augum að
viðskiptavinurinn finni sig velkom-
inn hjá þjónustufyrirtæki sem hefur
hagsmuni hans í fyrirrúmi.
Leiðandi afl
„Við höfum verið að gjörbreyta
hér öllu til þess að geta þjónað
betur okkar viðskiptavinum. Hér á
fólki að iíða vel, bæði viðskiptavin-
um og starfsfólki," segir Ólafur B.
Thors. „Við erum með ýmsar nýj-
ungar og breytingar á þjónustunni
á teikniborðinu og það er alveg ljóst,
að við ætlum okkur ekki að vera
sporgöngumenn í þessum viðskipt-
um. Við ætlum að verða leiðandi
afl, þar sem tiyggjendur finna
trausta og góða tryggingaþjón-
ustu,“ segir Ólafur ennfremur.
Afkoma félagsins á sl. ári var
hagstæð, að sögn Ólafs, og fé-
lagið skilaði hagnaði upp á kr.
3.356.089,-. Aðalfundur félagsins,
sem haldinn var 18. apríl sl. sam-
þykkti að greiða hluthöfum 10%
arð. Heildariðgjöldin fyrir árið 1985
námu kr 379.555.677,- og höfðu
hækkað um 33% milli ára. Heildar-
tjón hækkuðu um 47% frá fyrra ári
umfram hækkun iðgjalda og hafði
það neikvæð áhrif á afkomu vá-
tryggingarekstursins. Þessi hækk-
un varð öll í frumtryggingum, þar
sem tjónin hækkuðu um 67%, en
tjón í endurtryggingum lækkuðu
hins vegar um 13%. í ræðu sem
Hjalti Geir Kristjánsson, stjómar-
formaður Almennra trygginga hf.',
flutti á aðalfundinum sagði hann
m.a. um þessi mál: „Mest varð
hækkunin í bifreiðatryggingum,
sem er langstærsti einstaki trygg-
ingaflokkurinn hjá félaginu. Þar
hækkuðu tjónin um rúmar 60 millj-
ónir eða úr rúmlega 71 milljón árið
1984 í rúmlega 131 millj. 1985.
Þessi hækkun nemur 85%. Heildar-
tap á bifreiðatryggingum nam
tæpum 19 millj. fyrir kostnað, en
rúmlega 39 millj. að meðtöldum
kostnaði." Hann bætti svo við um
aukið bifreiðatjón: „Það er sorglegt
að sjá að þessi tryggingagrein er
nú aftur að færast í fyrra horf,
þ.e. verulegan taprekstur, eftir að
aðeins rofaði til undanfarin tvö ár.“
Og einnig: „Reyndar eru tjón af
völdum umferðaslysa raunverulegt
þjóðarmein á íslandi og þyrfti þjóð-
arátak til þess að fækka þessum
tjónum og þar með lækka iðgjöld
bifreiðatrygginga."
Hlutafé aukið —
hluthöfum fjölgar
Fram kom á aðalfundinum í ræðu
Hjalta Geirs, að á árinu 1985 var
hlutafé Almennra trygginga hf.
aukið um 12 milljónir króna úr 24
í 36 milljónir, og seldist viðbótar-
hiutaféð á örfáum dögum, en í árs-
lok voru hluthafar 246.
Á aðalfundinum voru eftirtaldir
menn kjömir í stjóm: Hjalti Geir
Kristjánsson, formaður, Gunnar S.
Bjömsson, varaformaður, Davíð
Sch. Thorsteinsson, ritari, Jóhann
Bergþórsson og Ólafur Davíðsson.
í varastjóm voru kjömir Sigurður
Egilsson og Pétur Guðmundsson.
„Nú þegar skipulagsbreytingum
er lokið og búið er að aðlaga skrif-
stofuna að aukinni og bættri þjón-
ustu við tryggjendur, þá ætlum við
okkur hér hjá Almennum að ein-
beita okkur að því að einfalda öll
tryggingamál til þess að allir við-
skiptavinir okkar skilji betur um
hvað tryggingavemd snýst og geti
þannig gengið úr skugga um að
þeir njóti fullkominnar vátrygg-
ingavemdar. Við ætlum líka að
leggja okkar af mörkum til að
stuðla að færri tjónum. Við viljum
fá almenning í lið með okkur í þessu
þjóðfélagslega baráttumáli. Slys og
tjón em alltof tíð hér á landi. Með
fækkun slysa og tjóna fást mun
lægri iðgjöld og öryggi almennings
eykst," segir Ólafur að lokum.